Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 15
Föstudagur 14. apríl 1989
Tíminn 15
llllllllllllllllllll MINNING .■ihl .hir ;:li^ .illiií.ihi^hlMi:lhh !1ni!:iiil:: ^
Jónmundur
Ólafsson
fyrrverandi kjötmatsmaður
Fæddur 26. mars 1906
Dáinn 7. apríl 1989
Vinur minn og samstarfsmaður
um 34 ára skeið hefur nú skyndilega
kvatt þetta jarðlíf. Hann hafði geng-
ið út í garðinn sinn, sjálfsagt til að
huga að vorverkunum eins og hans
var vandi. Þar hné hann niður og var
þegar látinn.
Fó dauðinn sé eitt af því fáa sem
við vitum með vissu að yfir okkur
mun ganga, kemur hann oftast á
óvart. Daginn áður töluðum við
saman eins og oft endranær. Var
hann þá hinn hressasti, gerði að
gamni sínu og spjallaði um lífið og
tilveruna. En skjótt skipast veður í
lofti og nú sakna ég vinar í stað.
Langar mig að minnast hans með
nokkrum kveðjuorðum.
Jónmundur er fæddur að Eyri í
Borgarfirði. Foreldrar hans voru
hjónin Ólafur Ólafsson bóndi þar og
kona hans Þuríður Gísladóttir. Börn
þeirra hjóna voru níu talsins og eru
nú fjögur þeirra látin. Jónmundur
ólst upp í föðurhúsum til ellefu ára
aldurs en fluttist þá að Geitabergi
þar sem hann átti heima fram yfir
tvítugsaldur. Hann gekk í Bænda-
skólann á Hvanneyri og útskrifaðist
þaðan sem búfræðingur árið 1928.
Til Reykjavíkur fluttist hann 1929
og bjó þar alla tíð síðan. Árið 1935
kvæntist Jónmundur Eyrúnu Einars-
dóttur en hún lést 1948. Eignuðust
þau einn son Einar Hilmar, yfir-
lækni, sem kvæntur er Björku Sig-
urðardóttur og eiga þau tvö börn.
Jónmundur kvæntist aftur árið 1949
Huldu Daníelsdóttur en hún lést
1983. Eignuðust þau einn son Sigurð
Rúnar, skrifstofustjóra. Á hann eina
dóttur með fyrrverandi sambýlis-
konu sinni Eygló Yngvadóttur.
Eftir að Jónmundur fluttist til
Reykjavfkur vann hann þau störf
sem til féllu. Á þeim tíma var, eins
og allir vita, ekki auðvelt að fá fasta
atvinnu. Atvinnuleysi var mikið og í
raun barist um hvert handtak sem til
boða stóð. Vélknúin tæki voru nán-
ast ekki til og handverkfæri og
mannsaflið látið duga. Reyndist það
mörgum hin mesta þolraun og var
margur maðurinn útslitinn fyrir ald-
ur fram. Fljótt fór orð af dugnaði
Jónmundar og samviskusemi í starfi,
enda þrekmaður og ósérhlífinn í
vinnu. Árið 1930 réðst hann til
Sláturfélags Suðurlands og starfaði
þar samfellt í 17 ár eða til ársins
1947. Naut hann þar mikils álits,
enda víkingur til allra verka og
sérlega glöggur á allt er kjöti og
kjötmati viðkom. Þar kom líka að
Landbúnaðarráðuneytið skipaði
hann í stöðu yfirkjötmatsmanns og
síðar kjötmatsformanns, sem hann
gegndi samfellt um langt árabil, eða
þar til hann náði sjötugs aldri. Lagði
hann mikla alúð við það trúnaðar-
starf og leiðbeindi kjötmatsmönnum
um land allt. Ferðaðist hann m.a.
milli sláturleyfishafanna eins og tími
hans frekast leyfði og notaði þá oft
stóran hluta sumarleyfis síns til að
halda námskeið til að bæta kjötmatið
og samræma það.
Leiðir okkar Jónmundar lágu fyrst
saman í desember 1947 þegar ég
gerðist starfsmaður Framleiðsluráðs
landbúnaðarins. Jónmundur hóf þar
störf f júní 1947 en framkvæmda-
stjóri var Sveinn Tryggvason. Ég
hafði í upphafi ekki hugsað mér að
festa mig í þessu starfi til frambúðar.
En margt fer öðruvísi en ætlað er.
Við nánari kynni þótti mér æ betra
að starfa með þessum mönnum, en
eins og allir vita þá er fátt mikilvæg-
ara á vinnustað en góður starfsandi
og að fólki lt'ði vel í starfinu. Það fór
líka svo að ég starfaði þarna samfellt
í fjörutíu ár. Þakka ég það þessum
góðu samstarfsmönnum mínum Jón-
mundi og Sveini sem ég vann svo
lengi með. Ekki spilltu heldur þeir
ágætu forystumenn bænda t' stjórn
Framleiðsluráðs og Stéttarsam-
bandsins sem ég hefi ávallt metið
mjög mikils.
Mér hefur alltaf verið ljóst hvert
lán það var fyrir Framleiðsluráð sem
stofnun að ráða Jónmund í sína
þjónustu. Trúnaður hans og sam-
viskusemi í starfi var á þann veg að
allir sem samskipti þurftu að hafa
við hann, og þeir voru mjög margir,
fundu hversu traustur og ábyggilegur
hann var. Hann var mjög nákvæmur
í öllu reikningshaldi og skýrslugerð,
sem m.a. snerti alla sláturleyfishafa
landsins.
Ég held að mér sé óhætt að segja
að Framleiðsluráðið hafi sem stofn-
un notið trausts út á við, hjá þeim
fjölmörgu fyrirtækjum um land allt,
sem samskipti þurftu að hafa við
ráðið. Ég veit að með trúmennsku
sinni í starfi skapaði Jónmundur að
stórum hluta þetta traust sem í raun
er ómetanlegt og verður seint full-
þakkað.
Á samstarf okkar bar aldrei neinn
skugga öll þessi ár. Minningin um
hann vrrður mér ávallt kær.
Nú þegar Jónmundur er allur og
leiðir skilja í bili, þakka ég honum
samfylgdina og samstarfið og alla þá
vinsemd sem hann ávallt sýndi mér
og mínu fólki.
Sonum hans og aðstandendum
öllum votta ég og fjölskylda mín
innilega samúð.
Gunnlaugur Lárusson.
Illlllll
FRIMERKI
MARIEHAMN
Fyrsta dags stimpillinn er með mynd
af Guckuskó.
Frímerkin sem komu út 10.4.1989.
ALANDSEYJAR
Álandseyjar eru ef til vill lítið
þekkt frímerkjaland meðal safnara
hérlendis. Aftur á móti er það vel
þekkt meðal Norðurlanda, þar sem
það hefir fengið eigin fána og á rétt
til setu á Norðurlandaþingi, á sama
hátt og Færeyjar og Grænland.
Landið hefur gefið út frímerki frá
árinu 1984 og auk þess verið mjög
hógvært í útgáfu sinni eða gefið út
sex frímerki á hverju ári nema fyrsta
áriðvoruþausjö. Þá kom útfrímerki
með mynd fánans sem við höfum svo
oft séð við Norræna húsið, en auk
þess hafa ýms myndefni prýtt merkin
frá Álandseyjum.
Fyrstu merki þessa árs eiga að
kynna flóru landsins og er myndefni
þeirra þrjár gerðir af orkídeum, sem
þar vaxa. Við nefnum þessi blóm
brönugrös og eigum a.m.k. tvær
tegundir þeirra hér á landi, sem
Áskell Löve minnist á í bók sinni
íslenskar jurtir.
Frímerkin með myndum Álands-
eyjablómanna eru þrjú, að verðgildi
1,50 mörk. 2,50 mörk og 14,00
mörk. En finnskt mark er gjaldmiðill
eyjanna. Allan Palmer hefur gert
merkin, sem eru prentuð hjá Seð|a-
banka Finnlands. Pappírinn í merkj-
unum er með yfirborðsmeðferð og
upplögin eru lítil, eða 600 þúsund af
tveim lægri verðgildunum og 400
þúsund af hæsta verðgildinu.
1,50 mörkin eru með mynd af
blóminu Adam og Eva, eða Dactyl-
oriza sambucina, sem heita svo þar
sem þessi orkídea hefír tvo mismun-
andi liti á blóminu. Þær sem eru með
rauðu blómi kallast Adam en aftur á
móti nefnast þær sem eru með
gulum blómum Eva. Blóm þessi
vaxa snemma og á hlýjum vorum
blómstra þau þegar í byrjun maí.
Blómgun þeirra stendur yfir í um
mánaðartíma og eru þá engjabrekk-
ur rauðar og gular af þessum
blómum.
Brönugrös eru friðuð á íslandi
eins og við þekkjum og sama er að
segja um orkídeurnar í Finnlandi og
á Álandseyjum.
2,50 mörk eru svo með mynd af
hvítri skógarlilju, eða Cephalant-
hera longifolia. Hún er með klukku-
laga blómi og eitt hið fegursta af
blómum Álandseyja. Vex hún í
kjarrlendi í þurrum jarðvegi. Hún
blómstrar í júní og byrjun júlí. Þetta
blóm vex aðeins á um 25 stöðum á
Álandseyjum og er einnig friðað.
Guckuskór er svo myndefni 14
marka frímerkisins, eða Cypriedium
calceolus. Af 30mismunandi orkíde-
um sem vaxa á Álandseyjum er
þetta sértegund. Blómið líkist inni-
skó og er gult. Guckuskórinn vex í
þurrum, kalkkenndum jarðvegi, þar
sem nokkur raki safnast saman í
lundum skógar. Þetta blóm finnst
aðeins á um 15 stöðum á Álandseyj-
um. Það er því eitt hinna friðuðu
blóma eyjanna.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Aðalfundir félagsdeilda
KXM
/ /
verða sem hér segir:
1. deild.
Laugardagur 22. apríl kl. 14.00.
Fundarstaður: Hamragarðar, Hávallagötu 24
Félagssvæði: Seltjarnarnes, Vesturbær og mið-
bær, vestan Snorrabrautar.
2. deild.
Þriðjudagur 25. apríl kl. 17.30.
Fundarstaður: Starfsmannasalurá3ju hæð í Kaup-
stað í Mjódd.
Félagssvæði: Hlíðar, Háaleitishverfi, Múlahverfi,
Túnin og Norðurmýri.
Auk þess Suðurland og Vestmanna-
eyjar.
3. deild.
Föstudagur 21. apríl kl. 20.30.
Fundarstaður: Starfsmannasalur á 3ju hæð í Kaup-
stað í Mjódd.
Félagssvæði: Laugarneshverfi, Kleppsvegur,
Heima- og Vogahverfi.
Auk þess Vesturland og Vestfirðir
4. og 5. deild.
Mánudagur 24. apríl kl. 20.30.
Fundarstaður: Starfsmannasalurá3ju hæð í Kaup-
stað í Mjódd.
Félagssvæði
4. deildar: Smáíbúðahverfi, Gerðin, Fossvogur
Blesugróf, Neðra-Breiðholtog Selja-
hverfi.
Auk þess Norðurland og Austurland.
Félagssvæði
5. deildar: Efra-Breiðholt, Árbær, Ártúnsholt
og Grafarvogur.
Auk þess Mosfellsbærog Kjalames.
6. deild.
Mánudagur24. apríl kl. 17.30.
Fundarstaður: Starfsmannasalurá3ju hæð í Kaup-
stað í Mjódd.
Félagssvæði: Kópavogurog Suðurnes.
7. deild.
Þriðjudagur 25. apríl kl. 20.30.
Fundarstaður: Gaflinn, Hafnarfirði.
Félagssvæði: Hafnarfjörðurog Garðabær.
Dagskrá samkvæmt félagslögum Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis.
\r\uo i Mnr
Borgarnes, nærsveitir
Spilum félagsvist í Grunnskólanum í Borgarnesi föstudaginn-14. apríl
kl. 20.30. Annað kvöld í 3ja kvölda keppni.
Gengið inn um nyrstu dyr nýja skólans.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Skaftfellingar
JónHelgason, Guðni Agústsson, Unnur Stefánsdóttir,
alþingismaöur alþingismaður varaþingmaður
Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins verða haldnir:
3. í Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri, laugardaginn 15. apríl kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.