Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 14. apríl 1989
ÍÞRÓTTIR
Lyftingar:
Lóðum lyft á Akureyri
Nú um helgina verður mikið um
að vera í íþróttahöllinni á Akurcyri
er Norðurlandamótið í lyftingum fer
þar fram. Mótið verður mjög sterkt
og þjóðirnar senda sína sterkustu
menn til keppni.
Fyrir íslands hönd keppa 7 lyft-
ingamenn á mótinu. Þeir eru:
60 kg flokkur Snorri Arnaldsson
67.5 kg flokkur Tryggvi Heimisson
82.5 kg flokkur Þorsteinn Leifsson
82,5 kg flokkur Haraldur Ólafsson
90 kg flokkur Guðm.Sigurðsson
100 kg flokkur Guðmundur Helga-
son
110 kg flokkur Agnar Már Jónsson
Okkar bestu menn, þeir Haraldur
Ólafsson og Guðmundur Helgason,
munu án efa verða í toppbaráttunni
Körfuknattleikur:
Unglinga-
landsliðið
heldur til
Finnlands
Islenska unglingalandsliðið í
körfuknattleik er farið áleiðis til
Finnlands, þar sem liðið mun taka
þátt í Norðurlandamóti. Mótið fer
fram í horginni Forssa, en leikið
verður gegn Dönum í kvöld, Svíum
og Finnum á morgun og Norðmönn-
um á sunnudag.
íslcnska liðið er skipað eftirtöld-
um leikmönnum:
Hörður Gauti Gunnarss. fyrirl. . KR
Friðrik Ragnarsson .... UMFN
Georg Birgisson ............ UMFN
Jón Páll Haraldsson .... UMFG
Sveinbjörn Sigurðsson . . UMFG
Nökkvi Már Jónsson .......... ÍBK
Guðni Hafsteinsson............ÍBK
Björn Bollason................ ÍR
Jón Arnar Ingvarsson . . Haukum
Aðalsteinn Jóhannsson.......Val
BL
NBA-deildin:
Detroit sigur
í fyrrakvöld léku efstu liðin í
miðriðli austurdeildarinnar, Detroit
Pistons og Cleveland Cavaliers. Det-
roit hafði betur 107-95, en liðið
hefur nú tapað fæstum leikjum allra
liðanna í deildinni.
Úrslit leikja síðustu daga hafa
verið þessi:
Þriðjudagur:
Cleveiand Cava.-Philadeiphia ........ 92-90
Houston Rockets-Indiana Pacers .... 108-99
Milwaukee Bucks-N.J.Nets.............125-93
Golden State Warr. Miami Heat........114-98
Portland Trail-L.A. Clippers........126-102
Miðvikudagur:
Detroit Pist.-Cleveland Cava.........107-95
Charlotte Homrte-N.Y. Knicks.........104-99
Washington Bull.-Milwaukee B.......111-107
Phoenix Suns-Dallas Mavricks.........109-94
L.A. Lakers-San Antonio Spurs .... 107-100
Utah Jazz-Denver Nuggets ...........107-102
BL
Isiah Thomas lék ekki með Detriot
■ á miðvikudagskvöld er liðið vann
helsta keppinaut sinn í austurdeild-
inni, Cleveland Cavaliers.
á mótinu. Guðmundur mætir besta
og sterkasta lyftingamanni Dana,
Frank Strömbo og búast má við
hörku baráttu milli þeirra, en þeir
hafa náð svipuðum árangri fyrir
mótið.
Haraldur Ólafsson á við ramman
reip að draga í 82,5 kg flokknum,
þar sem Finninn Jaarli Pirkkiö er, en
hann er einn besti lyftingamaður
Norðurlanda. Sigurlíkur Haraldar
eru ekki ýkja miklar og líklegt er að
hann berjist um silfrið við Danann
Kenneth Nilsen.
Varla er við miklu að búast af
hinum íslensku keppendunum á
mótinu, nema ef vera skyldi af
gamla brýninu Guðmundi Sigurðs-
Daninn Frank Strömbo er margfald-
ur danskur methafí. Skyldi Guð-
mundi Helgasyni takast að skjóta
honum ref fyrir rass.
syni. Hann hefur sýnt það nú síðustu
dagana að hann er að nálgast sitt
gamla form og er til alls líklegur.
Þeir Snorri Arnaldsson ogTryggvi
Heimisson keppa nú á sínu fyrsta
stórmóti, en þeir eru heimamenn og
afsprengi mikils starfs Haraldar
Ólafssonar við kynningu á lyftingaí-
þróttinni.
Þorsteinn Leifsson keppir nú á ný
eftir langt hlé vegna meiðsla og
Agnar er óþekkt stærð, en hann
mun hafa æft mjög vel fyrir þetta
mót.
Akureyringar og nærsveitamenn
eru hvattir til þess að fjölmenna í
íþróttahöllina á Akureyri um helg-
ina til þess að berja kappana augum
og hvetja okkar menn til dáða. Á
morgun verður keppt í 52 kg til og
með 82,5 kg flokkum en á sunnudag
verður keppt í þyngri flokkunum.
Mótið hefst kl 14.00 á laugardag og
kl. 13.00 á sunnudag. BL
Jaarli Pirkkiö er einn sterkasti lyftingamaður á öllurn Norðurlöndum. Hann verður á meðal keppenda á Akureyri
um helgina.
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Get-raunir!!!
Sprengipotturinn mikli s.l.
laugardag gekk ekki út, enginn
var með 12 rétta og því verður
tvöfaldur pottur í boði á morgun
■ íslcnskum getraunum. Pottur-
inn verður óvenju stór, þar sem
sprengipottur var í síðustu viku.
Það má gera ráð fyrir því að
potturinn verði á við þrefaldan
venjulegan pott.
Tæpar 2 milljónir koma til með
að bætast við 1. vinning á
morgun, eða nákvæmlega
1.919.946 kr. Það má því fastlega
búast við að fyrsti vinningur verði
eitthvað á fjórðu milljón.
Tólf raðir komu fram með 11
leikjum réttum í síðustu viku og
fékk handhafi þeirra í sinn hlut
góðan vinning, eða 68.560 kr. Sú
upphæð er hærri en 1. vinningur
var í 13. leikviku.
Fram var söluhæsta félagið enn
eina vikuna með 11,66% af heild-
aráheitum, Fylkir var sem fyrr í
öðru sætinu með 10,50% en
næstu félögstóðu þessum tveimur
nokkuð langt að baki. KR er þó
að sækja í sig veðrið með 6,01 %
af áheitum. Þá vekur athygli að
Haukar eru komnir í 10. sætið á
listanum.
I í fyrirtækjakeppni getrauna
eru nú 32 fyrirtæki eftir af þeim
II 128 sem hófu keppni. Spennan
fer því að magnast fyrir alvöru.
í hópleiknum eru ROZ og BIS
enn efstir og jafnir með 104 stig,
en Júmbó kemur næstur með 103
stig.
Stöð 2 stóð sig best fjölmiðla í
síðustu leikviku, var með 7 leiki
rétta. DV og Bylgjan komu næst
með 6 rétta. Ekki var gengi okkar
Tímamanna til fyrirmyndar, 3
réttir og kominn tími til að endur-
skoða vel og vandlega hvað lagt
CM
í X2
er til grundvallar spánum. Staðan
í fjölmiðlaleiknum er nú sú að
Mbl. hefur enn örugga forystu
með 76 stig, Bylgjan hefur 70
stig, DV 66, RÚV 65, Þjóðviljinn
63, Stöð 2 62, Stjarnan 58 og
Tíminn og Dagur reka lestina
með 56 stig.
Sjónvarpsleikurinn í dag er
mjögskemmtilegur. Liverpoolog
Nottingham Forest eigast við í
undanúrslitum ensku bikar-
keppninnar. Bein útsending hefst
frá leiknum kl. 13.55 og Bjarni
Fel. verður í eigin persónu á
leiknum sem fram fer á Hillsbor-
ough í Sheffield, heimavelli
Wednesday-liðsins. Ef leiknum
lýkur með jafntefli, þá verður
framlengt og á getraunaseðlinum
gilda úrslit að lokinni framleng-
ingu. Þess má geta að íslendingar
fá einir Norðurlandabúa að sjá
þennan leik í beinni útsendingu
og er þar fyrir að þakka vasklegri
framgöngu íþróttadeildar RÚV.
Munið að sölukassarnir loka
kl. 13.45.
En snúum okkur að leikjunum
og spánni góðu.
Everton-Norwich: 1
Norwich hefur gengið illa að
undanförnu og meistaradraumur-
innerúrsögunni. Evertonliðið er
því líklegra til að krækja í sigur á
heimavelli sínum Goodison Park.
Nottingh. Forest-Liverpool: 2
Stórleikur dagsins í undanúrslit-
um bikarkeppninnar, sem sjón-
varpsáhorfendur fá að fylgjast
með í beinni útsendingu hjá
RÚV. Bæði þessi iið hafa verið
nánast ósigrandi að undanförnu,
en vart verður framhjá því gengið
að Liverpool-liðið er líklegra til
afreka í þessum leik. Ætli 10.
sigurleikurinn í röð verði ekki
staðreynd.
Arsenal-Newcastle: 1
Heldur léttari dagur hjá Arsenal,
en keppinauti þeirra Liverpool.
Lið Newcastle berst vonlítilli bar-
áttu fyrir áframhaldandi veru í 1.
deild, en Arsenal lætur ekki deig-
an síga í toppbaráttunni gegn
botnliðinu á Highbury. Arsenal
tekur þvi' á ný við toppsætinu, en
Liverpool á leik til góða.
Luton-Coventry: x
Heimavöllurinn hefur löngum
verið eitt sterkasta vopn Luton.
Leikmönnum Coventry gengur
illa að fóta sig á gervigrasinu og
Luton nær í dýrmætt stig í fallbar-
áttunni.
Manchester United-Derby: 1
Bæði liðin eru á svipuðu róli í
deildinni og heimaliðið nær
óvænt í bæði stigin.
QPR-Middlesbro: x
Middlesbro þarf á stigum að
halda í fallbaráttunni og þeir
sækja annað stigið til Lundúna á
Loftud Road.
Wimbledon-Tottenham: x
Tottenham-liðinu er vart treyst-
andi í meiri stórræði en að ná
jafntefli í Wimbledon.
Blackburn-Manchester City: 1
Heimamenn hirða öll stigin í
þessum leik, enda er Manchest-
erliðið með það góða stöðu fyrir
að þeir slaka óvart á.
Bournemouth-Stoke: 1
Heimamenn eru harðir í horn að
taka á heimavelli sínum og því fá
leikmenn Stoke að kynnast
óþyrmilega í þessum leik.
Bradford-Ipswich: 2
Loks útisigur á blessuðum seðlin-
um, en leikmenn Bradford eru
frekar lánlausir þessa dagana.
Leicester-Chelsea: x
Leicester nær öðru stiginu af 1.
deildar kandídötunum og nýtur
til þess aðstoðar heimavallar.
Swindon-Watford: 2
Leikmenn Watford eru ekki bún-
ir að gefa upp alla von um að
endurheimta 1. deildarsætið sitt |
og í þessum leik taka þeir Swind-
on í nefið.
skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR15. APRÍL ’89 J CD s > O TÍMINN Z z 3 > s 2 cr 3 O < o 9 Q- cc < <n * cc | BYLGJAN CN g | STJARNAN SAMTALS
1 X 2
Everton - Norwich 1 1 1 1 2 1 2 2 1 6 0 3
Nott. Forest - Liverpool 2 1 2 2 X 1 2 2 2 2 1 6
Arsenal - Newcastle 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0
Luton - Coventry 1 1 X X 2 2 1 X X 3 4 2
Man. Utd. - Derby 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0
Q.P.R. - Middlesbro 1 1 X 2 1 1 1 X X 5 3 1
Wimbledon - Tottenham X X X 2 1 2 2 X 2 1 4 4
Blackburn - Man. City 2 X 1 2 2 X 2 2 1 2 2 5
Bournemouth - Stoke 1 1 1 1 X 1 2 2 X 5 2 2
Bradford - Ipswich 2 X 2 X X X 2 X 2 0 5 3
Leicester - Chelsea 1 2 X 2 2 X 2 X 2 1 3 5
Swindon - Watford 2 X 2 X X 1 X 1 LÍ 3 4 2
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1 x2 1 x2 1x2 1 x M