Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 20
AUGLVSINGASÍMAR: 680001 — 636300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu.
S 28822
m^^°*Karfa9!
VERÐBRÉFAWBSKIPTI
SAMVINNUBANKRNS
SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
„LÍFSBJÖRG í
NORDURHÖFUM"
Útvegsbankinn Seltj.
Gíró-1990
Gegn náttúruvernd
á villigötum
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Tíminn
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989
Skýrslugerð og rannsókn á íslandi og í Bretlandi vegna innbrots í skála Jöklarannsóknarfé
Breski fararstjórinn
yfirheyrirsínamenn
Formaður Jöklarannsóknarfélagsins, Helgi Björnsson,
telur fullvíst að breskir leiðangursmenn, undir stjórn
John Hughes, hafi brotist inn í læstan skála félagsins á
Grímsfjalli á Vatnajökli um páskana. Þaðan hafi þeir að
öllum líkindum tekið matarbirgðir, sem íslenskur göngu-
skíðahópur hafði látið koma fyrir sem varafæði og skilið
við skálann ólæstan og ótryggan gagnvart óveðrum. John
Hughes, leiðangursstjóri sagði í samtali við Tímann í gær
að hann hafi heyrt þessar ásakanir og mun hann nú krefja
menn sína um skriflegar skýringar á umgengni við
skálann.
Þess má geta að leiðangur John
Hughes er verndaður af jarlinum
af Lichfield, sem er náskyldur
Elísabetu Englandsdrottningu.
Að hluta til var leiðangurinn
styrktur af JVC í Bretlandi, sem
lánaði m.a. vélar til töku heimild-
armyndar af förinni.
Hughes, sem sjálfur fór ekki á
jökulinn, sagðist nú ætla að krefja
menn sína sagna og vildi fyrir alla
muni losna við eftirmála af Vatna-.
jökulsferðinni, enda leiðangurinn
farinn með konunglegri vernd.
IAð sögn Jöklarannsóknarmanna
mun Hughes hafa talað um að
hafa samband við Helga
Björnsson, formann Jöklarann-
sóknarfélagsins, og gefa honum
persónulega skýrslu um málið
áður en hann héldi af landi brott.
Það mun hann ekki hafa gert, en
kvaðst í samtali við Tímann hafa:
innt menn sína sagna strax og
komið var til byggða og þeir hafi j
Lsvarið fyrir að hafa eyðilagt nokk-j
uð eða stolið mat Ur skálanum.
Jöklarannsóknarmenn hafa nú,
ákveðið að byrja á því að kanna
málavexti sjálfir og hefur Magnúsj
M„T^
efni að safna gögnum. I framhaldi
af því mun stjórn félagsins ákveða
hvort haft verður samband við
Útlendingaeftirlitið, sendiráð eða
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Samkvænrt heimildum Tímans
mættu bresku leiðangursmennirn-
ir íslenskum leiðangri, sem hafði
það verkefni að koma matarbirgð-
unum fyrir í öðrum skála félagsins
á Grímsfjalli, á Háubungu, en
hún er sunnar og vestan við
Gímsvötn. Eitt af því sem hinir
bresku leiðangursmenn höfðu
áhyggjur af var hvort mat væri að
finna í skálunum á Grímsfjaili.
Var þeim sagt að svo væri ekki og
væri aðeins annar skálinn opinn
og ætlaður leiðöngrum eins og
þessum.
Síðar um páskahelgina gekk
annar íslenskur hópur fram á þá
félaga þar sem þeir dvöldu í þeim
skála sem átti að vera harðlæstur.
Fengu þeir þau svör að skálinn
hafi verið opinn þegar þeir komu
að honum, en einhverra hluta
vegrta var greinilegar skemmdir
að sjá á einum glugganum. Við
athugun síðar mun þessi gluggi
hafa verið spenntur upp með ísexi
Bretarnir þrír sem grunaðir eru um innbrotið í Grímsfjallaskálann, ásamt Baldri Þorgeirssyni, sem stendur næst
jeppanum. Myndin er tekin er jeppaleiðangur hitti þá á Háubungu á Vatnajökli.
og greinileg ummerki önnur var
að sjá um innbrot.
Þegar leiðangur Magnúsar Hall-
grímssonar, verkfræðings, kom að
skála þessum að kvöldi 3. apríl,
var matur þeirra horfinn og skál-
inn ólæstur. Vegna frétta fyrri
leiðangra af ummerkjum við
jskálann, hafði skíðagönguhópur
Magnúsar haft með sér nýjar
krækjur og skrúfur til viðgerða.
Þessi leiðangur Magnúsar og
félaga komst síðan í fréttir er þeir
urðu fyrir því að missa einn vist-
arsleða sinna niður í sprungu. Það
réði úrslitum, að sögn Magnúsar,
að þeir höfðu ekki að varamatar-
birgðum sínum í skálanum að
hverfa. Urðu þeir því að hætta við
för sína norður yfir jökulinn og
setjast að í skálanum á Gríms-
fjaíli. Félagar í Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík komu þeim
síðan til aðstoðar með nýjar vistir
um síðustu helgi á snjóbíl og
jeppum. Komu þeir til byggða í
fyrradag án þess að lenda í hrakn-
ingum. En ekki gátu þeir lokið við
upphaflega ferðaáætlun, sem var
að ganga þvert yfir Vatnajökul,
um 300 km leið. KB
MR-ingar dimmitera
Áhrifa umhverfissamtaka gætir
víða eins og sjá mátti f miðbæ
Reykjavíkur í gærdag. Slagorð,
eins og „friðum flugurnar", „frið-
um laxana“ og „friðum ýsuna"
gullu í eyrum vegfarenda. FJér var
sem betur fer enginn óaldarlýður á
ferð heldur menntskælingar í MR
að dimmitera, en þá fagna stúd-
entsefnin síðasta kennsludegi áður
en upplestrarfrí hefst.
Tfmamynd Árni Bjarna
Veðbókarvottorð sem nú eru gefin út kunna að gefa rangar upplýsingar:
Getur valdið tjóni
í eignaviðskiptum
Veðbókarvottorð, sem embætti borgarfógetans í Reykjavík gefur
út meðan á verkfalli lögfræðinga í ríkisþjónustu stendur kunna að
vera röng. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn Stéttarfélags
lögfræðinga í ríkisþjónustu hefur sent frá sér.
Útgáfa veðbókarvottorða liggur
víðast hvar niðri hjá embættum
borgarfógeta og sýslumanna. Hjá
embætti borgarfógeta í Reykjavík
eru hins vegar gefin út vottorð. Þar
er tekið á móti skjölum til þinglýs-
ingar, svo sem kaupsamningum, af-
sölum og veðskuldabréfum, enn-
fremur lögtökum og fjárnámum,
sem gerð hafa verið hjá eigendum
eigna, bæði fasteigna, bifreiða og
skipa. f tilkynningu stjómar SLÍR
segir að skjöl þessi séu ekki færð í
þinglýsingarbækur, sem veðbókar-
vottorð byggjast á, nema þau fáu
skjöl, sem einn starfandi lögfræðing-
ur, borgarfógeti, kemst yfir ásamt
öðrum störfum sínum, en í þinglýs-
ingardeild starfa að jafnaði sjö
manns.
Ennfremur segir í tilkynningunni
að nýútgefin veðbókarvottorð, þ.e.
vottorð sem gefin eru út eftir 6. apríl
sl., frá því verkfall lögfræðinga í
ríkisþjónustu hófst, geti því veitt
rangar upplýsingar og valdið tjóni í
eignaviðskiptum. Þá er einnig bent
á það að vottorð sem útgefin voru
áður en verkfall hófst kunna að vera
úrelt.
Vegna þessa er nú hjá embætti
borgarfógeta stimplað á ný vottorð,
fyrirvari um gildi þeirra og vill stjórn
SLÍR benda fólki sérstaklega á hann
og vara við því að á þessi vottorð sé
trevst.
I lok tilkynningarinnar er það
tekið fram að viðvörun stjórnar
SLÍ R hafi verið borin undir yfirborg-
arfógeta og tillit tekið til athuga-
semda hans. - ABÓ