Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn Föstudagur 14. apríl 1989 lllllllllJllllllllllllll LEIKLIST llllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllll „Hvað gerðist í gær?“ Alþýðuleikhúsið frumsýndi leikritið „Hvað gerðist í gær?“, í Hlaðvarpanum, á sunnudaginn var. Leikgerðin er unnin upp úr endur- minningabók Isabellu Leitner. En hún er ungverskur gyðingur sem lifði af dvöl í fangabúðum nasista, meðal annars Auschwitz og fleiri staða og er nú búsett í Bandaríkjun- um. Guðrún Bachmann þýddi leikrit- ið, tónlistin er samin af Lárusi H. Grímssyni, Egill Örn Árnason sér um lýsingu, Viðar Eggertsson um leikmynd og búninga, Gerla leikstýr- ir og henni til aðstoðar er Erla B. Skúladóttir. Guðlaug María Bjarn- adóttir fer með hlutverk Isabellu sem er eina hlutverkið í leiknum. í byrjun verksins er drepið á aðstæður stórrar gyðingafjölskyldu í Kisvardá í Ungverjalandi. Fjöl- skyldu Isabellu, móður hennar, föð- urogfimmsystkinum. Einnmorgun- inn er gettóið tæmt og allir sendir til Auschwitz. í yfirfullum gripavagni hefst skelfingarsaga ungrar stúlku, sem að lokum hefur misst megnið af fjölskyldu sinni og gengið í gegn um meiri þrautir en þann sem ekki hefur reynt, gæti órað fyrir. Fjórar systr- anna héldu hópinn í fangabúðunum en hinum var stíað frá þeim. Þær börðust í níu mánuði við þá tak- markalausu grimmd og niðurlægingu sem ríkti allt í kring. Börðust fyrir sínu eigin lífi og studdu hver aðra. Reyndu að halda í trúna á hið góða, mannlega reisn, mannúð og annað það sem móðir þeirra hafði kennt þeim að trúa á sem börnum. Þegar leið að stríðslokum, tæmdu nasist- arnir fangabúðir sínar og fluttu þá sem ekki var þegar búið að myrða til Bergen-Belsen. Á leiðinni tókst þremur systranna að flýja en sú fjórða lét lífið í nýju búðunum. Þessi sýning er áberandi vel og nosturslega unnin. Texti verksins er mjög erfiður í meðförum, hann er einfaldur en jafnframt ljóðrænn, til- finningaríkur og gífurlega sterkur. Mikið er hlaupið fram og aftur í tíma þannig að ef ekki er vel með farið gæti áhorfandinn misst samhengið, eða leikurinn virkað ósannfærandi. En Guðlaug skilar textanum þannig að ekkert orð fer fram hjá þeim sem fylgist með. Hún bregður greinilega og yfirvegað upp mynd af lífshlaupi ungrar skelfingu lostinnar stúlku sem á skömmum tíma eldist um mörg ár og losnar aldrei við skugga minninganna. Tónlist og lýsing hafa mikil áhrif í sýningunni og hefur tekist einstak- lega vel upp með hvoru tveggja. Bæði til að undirstrika þær tilfinning- ar sem leikarinn tjáir og eins upp á ímyndað umhverfi og strauma frá því að gera. Leikmynd og búningar eru einföld að gerð og að flestu leyti vel. En ef til vill má kenna sterkum áhrifum frá öðrum þáttum verksins um, að mér fannst stundum eitthvað vanta upp á að þessi atriði veittu nægan stuðning eða væru út af fyrir sig nógu áhrifarík. Leikskráin segir hvert orð Isabellu standa fyrir hundruð annarra orða sem of sárt var að skrifa. Sársaukinn situr eftir þegar Hlaðvarpinn er yfirgefinn að sýningu lokinni og fylgir áhorfandanum lengi. Sagt er að hláturinn lengi lífið „Hvað gerðist í gær?“ er ekki til þess fallin að skemmta mönnum mikið. En hvers virði er lífið ef það mikilvægasta týnist og gleymist. Til þess að svo verði ekki er nauðsynlegt að rifja upp öðru hvoru og reyna að læra af reynslu annarra. Það er kjörið að gera í Hlaðvarpanum um þessar mundir. Sýningin er án nokkurs vafa rós í hnappagat Alþýðuleikhússins. Jóhanna Kristín Birnir Úr sýningu Alþýðuleikhússins á verkinu „Hvað gerðist í gær?“ Guðlaug María Bjarnadóttir leikur höfund verksins sem er ema pcrsona leikritsins. Keflavíkurgrín Hilmar Jónsson og Þór Helgason fara leikandi létt með hlutverk lækna í Keflavíkurrevíunni. Leikfélag Keflavikur: Revían, „Við kynntumst fyrst I Keflavik" Höfundur: Ómar Jóhannsson. Leikstjórl: Hulda Ólafsdóttir. Húsfyllir var í Félagsbíói í Kefla- vík, þegar L.K. frumsýndi revíuna, „Við kynntumst fyrst í Keflavík" s.l. föstudagskvöld og var leikendum vel fagnað af áhorfendum, í leikslok. Langt er síðan frumsýning hjá L.K. hefur verið svo vel sótt og menn hljóta því að spyrja hvað veldur? Svarið er einfaldíega það, að Leik- félag Keflavíkur er að komast upp úr öldudal og er það vel á 40 ára afmæli bæjarins og svo sannarlega góð afmælisgjöf frá menningaröflum þessa staðar og auðvitað flutti leik- hópurinn verk tengt sögu bæjarins og þeim persónum sem settu og setja svip á bæinn, - allt í léttu gamni með ljúfum tónum, sem gerðu hvort tveggja að ylja áhorfendum um hjartaræturnar og kitla hláturkirtlana í þá tæpu tvo tíma sem sýningin stóð. En til að sýning lánist þarf margt til. Góða og áhugasama stjórn leik- félagsins, leikstjóra, höfund, sviðs- menn og aðstoðarfólk, sem vilja fórna tíma, næstum ótakmörkuðum, í þágu Thalíu, og sá hópur sem stendur að „Við kynntumst fyrst í Keflavík" hefur svo sannarlega upp- skorið góðan ávöxt erfiðisins. Reyndar mátti sjá það s.l. haust á verkefni því sem L.K. flutti, að ýmislegt var í flytjendur spunnið, Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef- ur gefið út leikritið Haustbrúði eftir Þórunni Sigurðardóttur. Þjóð- leikhúsið frumsýndi leikritið hinn 10. mars s.l. undir leikstjórn höfund- ar. Útgefandi kynnir höfundinn og leikritið á eftirfarandi hátt á bókar- kápu: Leikritið Haustbrúður fjallar um efni úr íslenskri sögu frá öndverðri 18. öld, um sakamál sem af eirihverj- um ástæðum hefur fyrnst yfir meira en ætla mætti þó að þar ætti hlut að máli æðsti yfirmaður landsins á þeim tíma. En á söfnum hér á landi og í Danmörku er að finna málsskjöl frá sem góður leikstjóri gæti unnið meira úr, - og sú reynsla sem af þeirri sýningu fékkst, myndi nýtast með fleiri verkefnum. Huldu Ólafs- dóttur leikstjóra hefur svo sannar- lega tekist það, enda stjórnaði hún einnig fyrra verkinu, sem hún reynd- ar samdi að mestu leyti. Að þessu sinni er höfundurinn annar, Ómar Jóhannsson. Hollur er heimafenginn baggi, segir máltækið. Ómar er heimamaður og ekki er annað að sjá en að þessi frumraun hans, sem höfundi heillar revíu, bragðbætt með Ijóði eftir Kristin Reyr, - hafi tekist vel. Gamanmálin voru laus við rætni, Ijóðin þjál í flutningi og persónurnar úr bæjarlíf- inu vel valdar, þótt við sem eldri erum höfum saknað sumra þeirra sem settu svip á bæinn á árum áður. Hins vegar má skoða Gvend þribba, sem samnefnara þeirra flestra. Hann var leikinn af Árna Ólafssyni, sem tjáði þennan góðvin Bakkusar, dansar- ann, munnhörpusnillinginn, vin æsk- unnar og lögreglunnar, á meistara- legan hátt. Engu var líkara en að „þribbinn" væri kominn á sviðið endurborinn í sínum skrautlegu ein- kennisklæðum. Revían samanstendur af stuttum þáttum, með söngívafi, þar sem farið er mildum höndum eða öllu heldur orðum um ýmsa þætti í bæjarlífinu, sem ýmist gerist inn á leiksviðinu, eða á palli sem gengur langvinnum réttarhöldum sem af því spruttu. Úr þessum efniviði hefur Þórunn Sigurðardóttir unnið verk sitt um þau Níels Fuhrmann amt- mann og Appoloníu Schwartzkopf heitmey hans sem lést með óútskýrð- um hætti á Bessastöðum árið 1724. Margar fleiri eftirminnilegar persón- ur koma við sögu í þessu verki sem lýsir miklum ástríðum, kjarki og kjarkleysi. Þórunn Sigurðardóttir er enginn byrjandi í leikritagerð og Haust- brúður er þriðja verk hennar sem sýnt er á íslensku leiksviði. Áður hefur hún skrifað Guðrúnu, sem sækir efni sitt í Laxdælasögu og fram í áhorfendasalinn. Skemmtileg tilhögun, sem auðveldar sviðskipt- ingu, en hefur þann ókost, að ekki heyrist nógu vel í leikendum, þegar fram á pallinn er komið. Nokkuð sem auðvelt er að laga, með því að hækka örlítið róminn. Leikmyndirn- ar voru haganlega unnar, og féllu vel að efninu. Hljómsveitin var vel með á nótunum, en þar gáfu tóninn nokkrir ungir piltar, þeir Veigar Margeirsson, Ari Daníelsson, Björn Árnason og Júlíus Guðmundsson. Revían fór hægt af stað, -en undir lokin var orðið aldeilis líf í tuskun- um, enda komið meira við samtím- ann. Þekktar persónur í bæjarlífinu blönduðust beint í málin. Vakti það mikla kátínu áhorfenda, sem vænta mátti, hvort heldur verið var að gantast með ráðamenn bæjarins eða aðra embættismenn. Þar mátti greina Þór Gils Helgason og Hilmar Jónsson í hlutverkum lækna, sem þeir gerðu skemmtileg skil. Hjördísi Árnadóttur í hlutverki endur- skoðandans - alltaf jafn viðfeldin á sviði. Gísla Gunnarsson, sem brá sér í eitt gervið enn, eins og reyndar margir aðrir og skilaði því vel. Af öðrum leikendum má nefna Dagmar Róbertsdóttur, sem var al- veg „ekta“ sjoppukerling og þau Höllu Sverrisdóttur og Sverri Gísla- son, fyrirgóðan söngog leik, þareru góð efni á ferðinni. Eggert Ólafsson var myndugur í hlutverkum lögreglu- fjallar um ævi og ástir Guðrúnar Ósvífursdóttur, og í smásjá, sem gerist í Reykjavík okkar daga en fjallar um efni sem er í hæsta máta alþjóðlegt. Þó að leikrit Þórunnar gerist á ólíkum tímum eiga þau margt sam- eiginlegt. Konur eru aðalpersónur í þeim öllum og öll fjalla þau um hin stóru dramatísku yrkisefni: um ást og afbrýði, um metnað og niðurlæg- ingu, um manninn andspænis dauð- anum. Þórunn er mjög vaxandi höf- undur eins og þetta nýja leikrit hennar ber glögglega vitni um. Haustbrúður er þriðja leikritið í ritröð Bókaútgáfu Menningarsjóðs, mannsins og bankastjórans, enda sviðsvanur og leikreyndastur allra leikenda í hópnum. Heildarsvipur sýningarinnar var fágaður og vandaður. Bar hún glögg merki um handbragð Huldu Ólafs- dóttur, sem þegar hefur sett á svið mörg verk á Suðurnesjum, þótt hún hafi búið syðra skamman tfma. Tak- Þórunn Sigurðardóttir. ist LK að virkja þann kjarna sem skapast hefur undanfarin tvö ár, má vænta mikils á næstu árum. Efnivið- urinn er fyrir hendi. Spurningin verður um úthald og aðstöðu, en hvort tveggja fer saman. Framtíðin ein getur víst svarað því, - en við vonum hið besta. Magnús Gíslason íslensk leikrit, en út eru komin Dansleikur eftir Odd Björnsson og Týnda teskeiðin eftir Kjartan Ragn- arsson. í útgáfunefnd íslenskra leikrita eru: Úlfur Hjörvar (Mennta- málaráð Islands), Stefán Baldursson (Leiklistarráð) og Árni Ibsen (Félag íslenskra leikritahöfunda). Haustbrúður er 129 blaðsíður. Leikritið er unnið í Prentsmiðju Hafnarfjarðar h.f. en kápu gerði Sigurður Örn Brynjólfsson. ÓKEYPIS hönnun auglýsingar þegar þú auglýsir í TÍMANUM AUGLÝSINGASIMI 680001 Haustbrúður - Leikrit eftir Þórunni Sigurðardóttur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.