Tíminn - 14.04.1989, Page 4

Tíminn - 14.04.1989, Page 4
4 Tíminn Föstudagur 14. apríl 1989 Hjúkrunar- fræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu- gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu- stöðina á Djúpavogi. 2. Staða hjúkrunarforstjóra og hálf staða hjúkr- unarfræðings við Heilsugæslustöðina í Ólafs- vík. 3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöðina í Hólmavík. 4. Staða hjúkrunarforsjtóra við Heilsugæslu- stöðina á Þórshöfn. 5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöðina í Neskaupstað. 6. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöðina á Egilsstöðum. 7. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöðina í Þorlákshöfn til styttri tíma, frá 15.05 til 30.11. 1989. 8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslust- öðvarnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. 9. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöðina á Hvammstanga frá 1. júní 1989 til tveggja ára. 10. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöðina á Patreksfirði. 11. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu- stöðina í Keflavík. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 11. apríl 1989. Frá Ðorgarskipulagi Reykjavíkur Stóragerði Á Borgarskipulagi er verið að vinna tillögur að breytingum Stórgerðis. íbúum Stóragerðis og öðrum sem áhuga hafa á bættu umferðaröryggi í götunni er bent á að kynna sér tillögurnar og greinargerð á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, alla virka daga milli kl. 8.30-16.00 frá föstudegi 14. apríl til föstudags 28. apríl 1989. Athugasemdum eða ábendingum skal skila skrif- lega á sama stað innan tilskilins frests. Borgarskipulag Reykjavíkur. Bújörð til sölu Jörðin Mýrartunga I í Reykhólahreppi er auglýst til sölu og ábúðar. Upplýsingar á skrifstofu Reykhólahrepps í síma 93-47786 og hjá oddvita Reykhólahrepps í síma 93-47722, til 5. maí. Hreppsnefnd Reykhólahrepps. SCOUT 1974 Er að rífa SCOUT 74, mikið af góðum hlutum til sölu. Sími 32101. Stefán Guðmundsson alþingismaður vill í Ijósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og í viðskiptalöndum okkar: Hefja undirbúning að nýrri stefnu í iðnaði Stefán Guðmundsson alþingismaður mun innan tíðar flytja tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á stefnu í iðnaðar- málum. Samkvæmt henni er iðnaðarráðherra falið að koma á fót starfshópi er hafi það verkefni að vinna að endurskoðun iðnaðarstefnu með tilliti til breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og í viðskiptalöndum okkar. Jafnframt skal starfshópurinn leita leiða til að bæta starfsskilyrði ís- lensks iðnaðar og gera tillögur þar um. Stefán sagðist koma til með að leggja mjög mikla áherslu á, er hann fylgdi málinu eftir á þingi, að tekin yrði upp af hálfu opinberra stofnana og fyrirtækja er lytu forsjá ríkisins, mun harðari stefnumörkun um neyslu á innlendri framleiðslu og að viðskiptum yrði beint til innlendra samkeppnisaðila í iðnaði. Það sama ætti að gilda um sveitarfélög og stofnanir þeirra. „Þessi þingsálykt- unartillaga er mun meira byggðamál en menn e.t.v. gera sér grein fyrir“, sagði Stefán, „vegna þess að bæði í landbúnaði og sjávarútvegi hefur verið sett á ákveðin framleiðslustýr- ing og sú takmörkun kemur mjög niður á fólki á landsbyggðinni". Slíkar aðgerðir kæmu miklu síður við fólk á höfuðborgarsvæðinu. Stefán sagði að vegna þessarar þróunar væri nauðsynlegt að endur- meta vægi undirstöðuatvinnuveg- anna. Mikilvægi iðnþróunar hefði aukist frá því sem var, sérstaklega þegar litið væri til landsbyggðarinn- ar, því enn væri mannafli á íslandi í vexti og því yrði að fjölga starfstæki- færum. Stefán vitnaði til skýrslu er samstarfsnefnd um iðnþróun skilaði af sér í maí 1979 og birt var sem fylgiskjal sama ár með tillögu iðnað- arráðherra til þingsályktunar um iðnaðarstefnu. Skýrsla þessi hefði verið mjög vel unnin, en frá því að hún var lögð fram hefði margt breyst í íslensku þjóðlífi og ýmsar breyting- ar væru í sjónmáli er gæfu tilefni til að endurskoða stefnuna í iðnaðar- málum. „Ég vona að þingmenn sjái að málið er mjög brýnt og að tillagan verði samþykkt á þessu þingi“, sagði Stefán. Hann kvað mikilvægt að Stefán Guðmundsson alþingismaður telur brýnt að iðnaðarstefnan verði endurskoðuð í Ijósi breyttra að- stæðna í þjóðfélaginu og viðskipta- löndum okkar. unnt væri að skipa starfshópinn í vor svo vinna gæti hafist í sumar og niðurstöður vinnuhópsins lægju fyrir er þing kæmi aftur saman í haust. -ÁG Hvort þessir voru að selja eða kaupa er ekki vitað, en eitt stykki sófi hefur allavega skipt um eigendur. Tímamynd: Pjetur Fyrsti almenningsmarkaöurinn: Fjör í Kolaportinu Fyrsti markaðsdagurinn í Kolaportinu fór langt fram úr björtustu vonum aðstandenda hvað aðsókn og stemmningu varðar. Almenningsmarkaðurinn var haldinn á laugardaginn var og verður haldinn aftur næstu helgar, á sama stað og tíma. Samtals komu um þrettán þúsund manns í Kolaportið til að versla, sýna sig og sjá aðra. Seljendur voru farnir að koma sér fyrir strax uppúr átta um morguninn. Nokkuð var um kaupmenn og heild- sala að selja vörulagera, en megin- uppistaðan þó einstaklingar með gamla og nýja muni. Nokkrar fjöl- skyldur höfðu, að sögn aðstandenda markaðstorgsins, greinilega lagað til í geymslum sínum og var sérstaklega góð stemmning í kringum þá bása. Seljendur voru flestir ánægðir með söluna og sumir hálf ringlaðir eftir daginn. Nokkrir af þeim sem seldu gamla muni kvöddu um hádeg- isleytið, búnir að selja allt saman. Einn seldi átta þúsund kókosbollur og tvær stúlkur sem seldu helium fylltar blöðrur gátu ekki tekið sér hlé frá sölunni vegna aðsóknar fyrr en allt var uppselt hjá þeim um þrjú leytið. Að sögn frumkvöðuls þessa framtaks, Helgu Mogensen, erstefn- an sú að gera Kolaportið enn skemmtilegra og nýta til þess hinar margvíslegustu tillögur sem bárust á laugardaginn var, bæði frá seljend- um og kaupendum. Til að efla þátttöku fjölskyldna og annarra þeirra sem eingöngu selja notaða muni, verður þeim boðið upp á sérstakan afslátt á þátttöku næst- komandi laugardag. Básinn mun þá kosta 1500 krónur í stað 2500 króna. Þátttöku þarf að tilkynna fyrirfram skrifstofu Miðbæjarsamtakanna. jkb

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.