Tíminn - 14.04.1989, Side 11
Föstudagur 14. apríl 1989
Tíminn 11
Finnar hafa áhyggjur af
sameinuðum
Evrópumarkaði
Finnum hefur aldrei gengið allt eins í haginn og nú.
Norðaustlægasta land Evrópu upplifir á níunda áratugnum
velgengnisbylgju sem kemur öllu landinu til góöa. Á
svæðinu umhverfis Helsinki þekkist ekki atvinnuleysi.
Verðbólgan hefur staðnæmst við 6 %. En þegar Evrópu-
bandalagið verður búið að koma á einum sameiginlegum
markaði neyðist hið hlutlausa Finnland, sem á aðild að
EFTA, til að grípa til aðgerða. Evrópumarkaðurinn fer
nefnilega með stórt hlutverk í útflutningsmálum Finna. í
þýska blaðinu Welt am Sonntag er þessu máli gerð skil
nýlega.
Martröð finnska kaupsýslumanns-
ins vegna Evrópumarkaðarins.
„Ensk matargerð, franskt viský,
þýsk fyndni, skandinaviskir sjón-
varpsþættir, spænskar klukkur,
svissnesk nautaöt - og ítalski her- (
inn ver allt saman!“
C
Skipasmíðar í ógöngum
ísbrjótarnir sem liggja í höfn
Helsinki hafa ekkert að gera. Pað
er nefnilega enginn ís til að brjóta
- nokkuð sem hefur aldrei áður
gerst á þessari öld. Tilboð þýskrar
ferðaskrifstofu um að fara til Hels-
inki með ferju, þegar „Brakandi
Eystrasaltsrisarnir ryðja sér
braut,“ er algert bull.
Umræðuefnið ís er ekki bara
vinsælt meðal finnsku þjóðarinnar
vegna veðurfarsins. Meira en
helmingur allra ísbrjóta heims eru
smíðaðir í skipasmíðastöðinni
Wártsilá Marine Industries. Nú
bíður hún eftir samningi um að
smíða tvö skip fyrir Sovétríkin, en
samningurinn lætur á sér standa.
Rússar eiga'ekki nóg af finnskum
mörkum, eftir að þeir eru farnir að
fá minna fyrir olíuna sína. Nú eru
viðskiptin aftur komin í form gagn-
kvæmra vöruskipta í venjulegu
magni. Stockmann, stærsta vöru-
húsið í Helsinki, sendir daglega
vörubíl með varning handa dipló-
mötum yfir landamærin.
Finnski skipasmíðaiðnaðurinn á
nú í erfiðleikum og ber nú ekki
sama arð og almennur efnahags-
vöxtur í landinu síðan 1983 gefur
til kynna, þ.e. þrjú til fjögur
prósent. Áætlanir um að sameina
fyrirtæki að þýskri fyrirmynd hafa
einmitt skyndilega verið lagðar á
hilluna. Ríkið hafnaði því að leggja
fram styrk í þeim tilgangi. Þar með
er kreppuástand á finnskum skipa-
smíðaverkstæðum orðið að einu
mestu hitamáli í Finnlandi. Nú
leita Finnar eftir nánara samstarfi
við þýsk skipasmíðafyrirtæki ef
það kynni að leysa þeirra eigin
kreppu í greininni.
Martröð finnska
fyrirtækjarekandans
I sánabaðinu, sem Finnar líta
almennt á sem rétta staðinn til að
skiptast á skoðunum um viðskipti
og pólitík, er annað umræðuefni
jafnofarlega á baugi. Það er vænt-
anlegur Evrópumarkaður. „Áður
var þetta umræðuefni bannað, en
það hefur svo sannarlega breyst,"
segir mikilsmegandi maður í við-
skiptaheiminum. Yfir 40%
finnskra útflutnings- og innflutn-
ingsvara fara um Evrópumarkað. f
stærsta dagblaði Finnlands, Hels-
ingin Sonomat, birtist nýlega
skrípamynd sem sýnir finnskan
fyrirtækjarekanda sem fær stöðug-
ar martraðir vegna Evrópumark-
aðsins.
Ríkisstjórnin, undir forsæti hins
íhaldssama forsætisráðherra Harry
Holkeri, reynir að finna lausn eftir
diplómatískum leiðum, svo að tak-
ast megi að samræma pólitískt
hlutleysi og viðskipti við Evrópu-
markaðslöndin. Margir iðnrekend-
ur setja hins vegar meira traust á
eigið frumkvæði.
Nú eru 2240 finnsk fyrirtæki
starfrækt erlendis, þar af eru 900 á
svæði Evrópubandalagsins. Allt
þar til í upphafi níunda áratugarins
voru það að langmestum hluta
verslunarfyrirtæki, en nú einbeita
Norður-Evrópubúarnir sér að
framleiðslufyrirtækjum. Stærsta
iðnfyrirtæki Finnlands í einkaeign,
Oy Nokia AB, keypti á síðasta ári
rafeindaskemmtitækjahluta SEL
fyrirtækisins. Fiskars Oy AB,
þekkt fyrir hnífamerkið „Wilkin-
son Sword", sameinaðist fyrirtæk-
inu Wilhelm Boss í Solingen.
Nokia auglýsir sjónvarpstækin
sín í Vestur-Þýskalandi með slag-
orðinu „á góðri þýsku“. Það kann
að falla þýskum neytendum í geð,
en yfirstjórnendur Nokia hafa fyrst
og fremst í huga „á góðri evr-
ópsku", að sögn talsmanns fyrir-
tækisins.
Nægt fjármagn í Finnlandi
„Peningar" eru að hans sögn
„ekkert vandamál" í Finnlandi um
þessar mundir. Hagnaður finnskra
framleiðslufyrirtækja jókst um
20% að meðaltali á árinu 1988. En
hjá Nokia hefur innkaupaferðin
um Þýskaland og Svíþjóð raunar
haft neikvæð áhrif á hagnaðinn.
1988 áttu Finnar mest viðskipti
Meira en helmingur ísbrjóta ver-
aldar eru smíðaðir á flnnskum
skipasmíðaverkstæðum.
við Vestur-Þjóðverja. Það er ný
þróun. Áður áttu þeir mest við-
skipti við Sovétríkin eða Svíþjóð.
En Finnar líkja alltaf gjarna eftir
skandinavískum nágrönnum
sínum. Áhrifamestu iðnjöfrar
landsins eru líka af ættum sem má
rekja til sænskra forfeðra eins og
Casimir Ehrnrooth. Hann er for-
seti Samtaka iðnrekenda og eig-
andi stórs hluta hlutabréfa í papp-
írsstórfyrirtækinu Kymmene, sem
smíðar líka lúxuslystisnekkjurnar
„Swan“. Landfræðileg grennd við
Svíþjóð hefur æ minna að segja.
Flugsamgöngur milli Helsinki og
Frankfurt eru svo góðar að kaup-
sýslumenn hafa 12 tíma til að reka
erindi sín ef þeir taka fyrstu vél að
morgni og þá síðustu að kvöldi.
Framleiðslu- og
útflutningsvörur Finna
verða sífellt fjölbreyttari
Útflutningsvörurnar til Vestur-
Þýskalands eru ekki einskorðaðar
við gamalkunnar afurðir eins og
sellulósa, timbur og dagblaðapapp-
ír. Það eru ekki heldur eingöngu
finnsk hönnun eins og munstraðar
baðmullarvörur frá Marimekko
eða poppaðir skíðagallar frá Luhta
(stærstu viðskiptavinir Luhta eru
þýsk vöruhús), sem prýða tölurnar
um utanríkisverslun. Sú finnska
útflutningsvara sem hefur slegið
hvað mest í gegn hjá Vestur-Þjóð-
verjum eru litsjónvarpstæki. Finn-
ar aftur á móti, allar 4,9 milljónir
þeirra, eru óðfúsir að kaupa þýskar
vélar oe bíla.
Mörg þeirra finnsku fyrirtækja
sem hafa löngun til að færa út
kvíarnar, eru verslanir með
blandaðan varning sem raka að sér
fé með framleiðsluvörum úr papp-
írs- og trjáiðnaði án áhættu. Síð-
ustu árin hafa þau sýnt framsýni og
grynnt á yfirfylltum peninga-
geymslum og lagt fé sitt í hátækni,
efnafræði- og rafeindaiðnað. T.d.
var Nokia í næstum því eina öld
eingöngu pappírsverksmiðja. Nú á
þessi fyrirtækjasamsteypa hundrað
afkvæmi, hefur framleiðslu í tíu
löndum og býður upp á mesta
framboð á farsímum í heiminum.
Samtenging f ramleiðenda
og markaða er orðin víðtæk
Samtenging markaða og fram-
leiðenda þvers og kruss yfir landa-
mæri er nú komin langt á veg. Sem
dæmi má nefna fyrirtækið Asko,
sem í hugum Vestur-Þjóðverja
merkir fullkomna hönnun, en selur
þó varla húsgögn í Þýskalandi. Það
er verslunarstórfyrirtækið Ikea
sem er stærsti viðskiptavinur Askos
hvað innréttingar og húsgögn
varðar. Nú standa finnsk Asko-
húsgögn á þýskum heimilum undir
merki Ikea. Framleiðandinn Asko
á líka hlut að máli að baki ísskápa
frá Quelle. Hins vegar framleiðir
Asko þvottavélar í Svíþjóð sem
síðan eru seldar í Finnlandi undir
þýska merkinu AEG.
Áhyggjurnar sem íþyngja Finn-
um nú eru afleiðingar velgengninn-
ar undanfarin ár. Greiðsluhallinn
og verðið hækkar og Finnlands-
banki hvetur til aðhalds og stígur á
bremsurnar. Vinnuafl vantar,
einkum á svæðinu Helsinki/Lahti.
Atvinnuleysi í landinu er að meðal-
tali 3,8%. Ríkisstjórnin hefuraflað
sér óvinsælda yfirmanna fyrirtækja
með breytingum á skattlagningu
fyrirtækja sem tóku gildi 1. mars
sl..
Og ekki má gleyma einu atriði
enn, fasteignaverð rýkur upp úr
öllu valdi. Það er álíka erfitt að fá
húsnæði í Helsinki og Múnchen.