Tíminn - 14.04.1989, Side 19
Föstudagur 14. apríl 1989
—1 nrrrr—
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Óvitar
barnaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur
Ath! Sýningar um helgar hefjast kl. tvö
eftir hádegi.
Laugardag kl. 14.00 Uppselt
Sunnudag kl. 14.00 Uppselt
Þriöjudag kl. 16.00 Fáein sæti laus
Fimmtudag 20.4. kl. 14 Sumard. fyrsti.
Laugardag 22.4. kl. 14 Uppselt
Sunnudag 23.4. kl. 14 Uppselt
Laugardag 29.4. kl. 14 Fáein sæti laus
Sunnudag 30.4. kl. 14 Fáein sæti laus
Fimmtud. 4.5. kl. 14.00
Laugard. 6.5. kl. 14.00
Sunnud. 7.5. kl. 14.00
Haustbruður
Nýtt leikrit eftir Þórunni Sigurðardóttur
Laugardag kl. 20.00 Uppselt
Fimmtudag 20.4. kl. 20.00
Laugard. 22.4. kl. 20.00
Fimmtud. 27.4. kl. 20.00
Laugard. 29.4. kl. 20.00
Ofviðrið
eftir William Shakespeare
Föstudag kl. 20.00 Frumsýning
Sunnudag kl. 20.00 2. sýning
Miðvikudag 19.4. kl. 20.00 3. sýning
Föstudag 21.4. kl. 20.00 4. sýning
Sunnudag 23.4. kl. 20.00 5. sýning
Föstudag 28.4. kl. 20.00 6. sýning
Sunnudag 30.4. kl. 20.00 7. sýning
Litla sviðið, Lindargötu 7:
Heima hjá afa
u:iKi'f:iAc;2t2
KFrYK|AVlKlJR
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Föstudag 14. apríl kl. 20.30. Uppselt
Sunnudag 16. apríl kl. 20.30
Miðvikudag 19. apríl kl. 20.30. Örfá sæti
laus
Föstudag 21. april kl. 20.30
Ath. aðeins 8 vikur eftir.
eftir Göran Tunström
Ath. breyttan sýningartima
Laugardag 15. apríl kl. 20.00. Örfá sæti
laus.
Fimmtudag 20. apríl kl. 20.00
Laugardag 22. april kl. 20.00
Ath. aðeins 8 vikur eftir.
Barnaleikrit eftir Olgu Guðrúnu
Árnadóttur
Leikstjórn: Ásdís Skúladóttir
Leikmynd og búningar: Hlín
Gunnarsdóttir
Tónlist: Soffia Vagnsdóttir
Aðstoðarleikstjóri: Margrét Árnadóttir
Lýsing: Lárus Björnsson og Egill Örn
Árnason
Aðstoð við hreyfingar: Auður Bjarnadóttir
Leikendur: Kjartan Bjargmundsson,
Margrét Árnadóttir, Edda Björgvinsdóttir,
Ása Hlin Svavarsdóttir, Stefán Sturla
Sigurjónsson, Valgerður Dan Jónsdóttir,
Rósa Guðný Þórsdóttir, Ólöf Sverrisdóttir,
Arnheiður Ingimundardóttir, Ólöf Söebech,
Margrét Guðmundsdóttir, Kristján Franklin
Magnús og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Laugardag 15. apríl kl. 14. Uppselt
Sunnudag 16. apríl kl. 14. Örfá sæti laus
Sumardagurinn fyrsti 20. apríl kl. 14.00
Ath. aðeins 8 vikur eftir.
eftir Per Olov Enquist.
Gestaleikur frá Borgarleikhúsinu i Álaborg
Leikstjórn: Stefán Baldursson.
Leikarar: Jesper Vigant, Bodil Sangill og
Githa Lehrmann
Föstudag 21.4 kl. 21.00
Laugardag 22.4 kl. 21.00
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-20.
Símapanfanir einnig frá kl. 10-12. Sími
11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíðog
miði á gjafverði.
' I
SAMKORT
Miðasala i Iðnó
sími16620
Opnunartimi: Mán-fös. kl. 14.00-19.00,
lau.-sun. kl. 12.30-19.00 og fram að sýningu
þá daga sem leikið er. Simapantanir virka .
dagafrákl. 10-12.
Einnig simsala með VISA og EUROCARD
á sama tíma. Nú er verið að taka á móti
pöntunum til 1. maí 1989.
NAUST VESTURGÚTU 6-8
*• < ífvi Tv
l u u ar iju :r«r
U! “
#hótel
OÐINSVE
Borðapantanir 17759
Eldhús 17758
Símonarsalur 17759
Fjolbreytt urval kinverskra krása.
Heimsendingar- og veisluþjonusta.
Simi 16513
Tíminn 19
rcuiLL
NÝ „BOND-STÚLKA
Carey Lowell, fyrrum Ford-fyrirsæta, í nýjustu Bond-myndinni
Ljóshærð og
Ijóngáfuð
Loni Anderson, nýlega
bökuð eiginkona Burts Reyn-
olds er ekki heimsk ljóska,
langt því frá. Greindarvísi-
tala hennar mælist 157 stig,
en meðalgreind manneskja
er talin hafa 100 stig.
Nýlega fékk Loni inngöngu
í gáfumannasamtökin
MENSA sem hafa klúbba
sína um allan heim til að gefa
gáfufólki kost á rabba við
jafningja sína öðru hvoru.
Þó Loni hafi háskólagráður
í stærðfræði og eðlisfræði hef-
ur hún lítt flíkað því um
dagana, enda haft öðru að
flíka fyrir framleiðendur
kvikmynda og sjónvarpsþátta
og haft mun meira upp úr
þannig vinnu en til dæmis
kennslu eða rannsóknarstörf-
um.
Loni hin Ijóngáfaða. Heilinn er í góðu lagi og ekki verður
betur séð en þumaifingurnir séu bara hæfilega margir.
Carey Lowell fetar í fót-
spor margra fegurðardísa
þegar hún tekur að sér hlut-
verk nýjustu „Bond-stúlk-
unnar“ í myndinni „License
to Kill" (Leyfi til að drepa).
Á undan Carey hafa t.d.
verið fríðleikskonur eins og
Jane Seymour, Jill St. John,
Barbara Carrera, Ursula
Andress, Barbara Bach, Kim
Basinger, Maud Adams og
Maryam d‘Abo sem allar hafa
verið „skrautpíur" í Bond-
myndum.
En Carey Lowell þykir
mjög frábrugðin fyrirrennur-
um sínum.
Þessi „Bond-stúlka“ er
nútímakonan holdi klædd
„Þetta er algjört fráhvarf
frá fyrri Bond-stúlkum,“ seg-
ir Carey í blaðaviðtali þegar
verið er að kynna hana sem
Pam Bouvier, Bond- stúlk-
una í nýjustu mynd um hetj-
una James Bond, sem Ti-
mothy Dalton leikur.
„Mér líkar mjög vel að
setja mig í spor söguhetjunn-
ar Pam Bouvier. Hún erpers-
ónugervingur konunnar í
dag, dæmigerð „kona 9. ára-
tugarins“. Hún er ekki ein-
hver „skrautgripur“ í mynd-
inni, heldur sjálfstæð, kjark-
mikil og sjálfri sér nóg. Hún
framkvæmir hlutina sjálf, en
bíður ekki eftir hetjunni til
að hjálpa sér,“ sagði Carey
þegar hún lýsti hlutverki sínu
í nýju myndinni.
Byrjaði sem
Ford-fyrirsæta 15 ára
Carey Lowell er 28 ára
gömul. Hún er fædd og uppal-
in í Denver í Colorado. Hún
segist hafa verið ósköp óá-
nægð með sig og feimin sem
krakki. Þegar hún var 15 ára
lét hún samt til leiðast að fara
á fyrirsætunámskeið og fór í
Ford-módelkeppni með vin-
konu sinni. Henni gekk vel
og flutti til New York til að
stunda fyrirsætustörf. Þá fékk
hún áhuga á leiklist og reyndi
fyrir sér á því sviði, og það
gekk ekki síður vel hjá ungu
stúlkunni.
Reyndar segir Carey, að
það sé ekki alltaf góður kost-
ur fyrir ungar leikkonur að
vera fríðar. „Pað er eins og
leikstjórar hafi fyrirfram þá
skoðun, - að laglegar stúlkur
séu aldrei góðar leikkonur.
Það getur orðið erfitt að fá þá
til að breyta um skoðun,"
segir Carey brosandi og bætti
því við, að sér hafi þó tekist
það, því að tilboðum rigni
yfir hana.
Dalton er dýrðlegur,
- bæði sem leikari
og í einkalífinu
Carey á varla nógu sterk
Hin dæmigerða ameríska
stúlka nútímans, er sagt
um Carey Lowell, sem hér
nýiur frístundar eftir erfið-
ar upptökur á Bond-ævin-
týrunum
Carey Lowell hin fagra hefur hér tekið fram byssuna og
bófarnir mega fara að biðja fyrir sér
orð til að lýsa aðdáun sinni á
mótleikara sínum, Timothy
Dalton. „Hann er alveg dýrð-
legur sem Bond, og einnig í
einkalífinu. Frarhkoman er
vissulega svo ólík sem hugsast
getur, eftir því hvort hann er
James Bond eða hægláti
leikarinn, Timothy Dalton.
Þegar upptökuvélin er hætt
að snúast, gefur hann kímni-
gáfunni lausan tauminn og
mikið er hlegið og gert að
gamni sínu.“ Síðan bætirCar-
ey við, að hún hafi verið
heppin að fá að leika á móti
honum. Hann styðji svo vel
mótleikara sína og leiðbeini,
svo það sé eins og happdrætt-
isvinningur fyrir óreynda
leikara að vinna með honum.