Tíminn - 22.07.1989, Qupperneq 4
4- Tíminn.-
LaugarqJagur 22. júlí 1989
7 Oryggi i
fóðurverkun
Einfaldar og öruggar.
Þvermál bagga 90 cm (R34) og
120 cm (R46). Sjálfsmurðar drif-
keðjur á vöisum. Rafstýrð
binding.
Rúllubindivélar!
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Laust embætti er
forseti íslands veitir
Við Kennaraháskóla íslands er laust til umsóknar embætti prófess-
ors í uppeldis- og sálarfræði.
Auk fullgilds háskólaprófs skal umsækjandi hafa viðurkennd kennslu-
rettindi eða hafa að öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan undirbúning.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. janúar 1990.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík, fyrir 1. september n.k.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni skýrslu um vísindastörf
þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknarskýrslur svo og
upplýsingar um námsferil og störf. Þau verk sem umsækjandi óskar
að dómnefnd fjalli um skulu einnig fylgja.
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Við Fósturskóla íslands er laus til umsóknar heil staða í sálarfræði
næsta skólaár í afleysingum. Þá er laust hálft starf félagsfræði-
kennara. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma: 612320.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 3. ágúst
n.k.
Forval Hafnarfjarðarvegur - Kópavogur - Arnarneslækur
wr Vegagerð ríkisins efnir hér með til forvals á f verktökum vegna ofangreinds verkefnis. 1 verkinu felst gerð brúa og undirgangs og vegarlagning á Hafnarfjarðarvegi frá Kópavogi suður fyrir Arnarneshæð. Forvalsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Borgartúni 5,105 Reykjavík, frá og með 24. þ.m. Útfylltum og undirrituðum forvalsgögnum skal skila á sama stað eigi síðar en mánudaginn 14. ágúst 1989.
Vegamálastjóri
Sauðárkrókur:
Ný flugstöð vígð við
Alexandersflugvöll
S.l. sunnudag, 17. júlí, var vígð ný
flugstöð við Alexandersflugvöll á
Sauðárkróki. Flugstöðin er mjög
gott og myndarlegt hús og öll að-
staða hin besta til að taka á móti og
afgreiða flugvallargesti. Húsið er
240 ferm. og byggingarkostnaður
um 18 milljónir.
Viðstaddir athöfnina voru margir
yfirmenn flugmála ríkisins. Jóhann
Jónsson, framkvæmdastjóri flug-
vallaþjónustunnar, setti samkomuna
og stjórnaði henni.
Ávörp fluttu Steingrímur Sigfús-
son samgönguráðherra og Pétur Ein-
arsson flugmálastjóri. Sr. Hjálmar
Jónsson flutti blessunarorð og bæn,
Jóhann Már Jóhannsson, bóndi og
söngvari, söng einsöng við undirleik
Önnu Jónsdóttur við góðar undir-
tektir áheyrenda.
Þá hafði Sigurður Blöndal í fórum
sínum málverk af doktor Alexander
Jóhannessyni sem Steinunn Guð-
laugsdóttir, Reykjavík, hefur gefið
Alexandersflugvelli og skal myndin
prýða einn vegginn í nýju flugstöð-
inni.
Doktor Alexander var sem kunn-
ugt er Skagfirðingur og einn af fyrstu
baráttumönnum fyrir íslenskum
flugmálum og eftir honum heitir
Alexandersflugvöllur við Sauðár-
krók.
Guttormur
Frú Skærn
í heimsókn
Danska leikkonan Gitte Nörby,
sem lék frú Skærn í dönsku fram-
haldsþáttunum Matador, og eigin-
maður hennar, Svend Skipper pí-
anóleikari, koma til íslands næst-
komandi laugardag. Koma þau hing-
að í boði Eldhesta sf. í Hveragerði.
Þau hjónin eiga íslenska hesta í
Danmörku og vilja kynnast uppruna
og umhverfi íslenska hestsins með
því að fara í ferðin „Perlur Suður-
lands“ með Eldhestum, sem stendur
í þrjá til sex daga.
Gitte og Svend munu skemmta í
Norræna húsinu að kvöldi miðviku-
dags 26. júlí og er öllum heimill
aðgangur. Dagskráin nefnist: „Lidt
om os - lidt om os allesammen".
Svend Skipper leikur píanótónlist
og Gitte Nörby les sögur eftir H.C.
Andersen og fleiri. Þau hafa hugsað
sér að hafa þetta: „En hyggeiig
aften, hvor alle har det rart“.
Líkneski í
Hellnahrauni
Sunnudaginn, 23. júlí verður vígð
stytta af Maríu mey við Lífslind
Hellnamanna. Lindin sprettur upp
undan Hellnahrauni vestanverðu við
Laugabrekku sem er fornt grasbýli.
Lindin var vígð árið 1230 af Guð-
mundi góða biskupi á Hólum í
Hjaltadal og verður sagan um vígsl-
una skráð við lindina.
í þessa lind var sótt vatn handa
sjúkum og reyndist það vel og er hún
því nefnd Lífslind Hellnamanna.
Séra Rögnvaldur Finnbogason á
Staðastað vígir styttuna að beiðni
ábúenda og eigenda Hellnapláss sem
gefa styttuna og standa að vígslunni.
Öllum er velkomið að vera við-
staddir vígsluna.
Skálholtshátíð
á sunnudaginn
Hin árlega Skálholtshátíð verður
á sunnudaginn kemur, 23. júlí. Há-
tíðahöldin verða með veglegri hætti
en venjulega, þar sem herra Ólafur
Skúlason vígir séra Jónas Gíslason,
prófessor, biskupsvígslu, en séra
Jónas var nýlega kjörinn vígslu-
biskup í Skálholtsstifti.
Hátíðarsamkoma verður kl. 16:30
og mun krikjumálaráðherra, Hall-
dór Ásgrímsson, flytja ræðu, Bar-
okksveit sumartónleika í Skálholti
leikur, Margrét Bóasdóttir syngur
auk kirkjukórs Hafnarfjarðarkirkju
og séra Halldóra Þorvarðardóttir
flytur ritningarlestur og bæn. Ávarp
í upphafi samkomunnar flytur stað-
arráðsmaðurinn Sveinbjörn
Finnsson, en hann lætur nú af störf-
um fyrir Skálholtsstað.
Allir eru velkomnir til að sækja
guðsþjónustu og samkomu og kaffi-
veitingar verða eftir messuna í Skál-
holtsskóla.
Messan hefst kl. 14:00 og áætlun-
arferð verður frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 12:00.
Athugasemd vegna skrifa Tímans
Mánudaginn 17. júlí hringdi Árni,
blaðamaður Tímans, til Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráðherra
og innti hana eftir því hvort satt væri
að á þingflokksfundi Alþýðuflokks-
ins í vikunni á undan hefði hún
hótað að hætta í ríkisstjórn. Jóhanna
sagði blaðamanninum sem var, að
það væri tilhæfulaust með öllu.
Blaðamaður lauk símtalinu og
kvaddi.
Daginn eftir birtist eftirfarandi í
Tímanum, undirritað ÁG: „Það á
að hafa gerst á þingflokksfundi krata
fyrir helgina að félagsmálaráðherr-
ann, Jóhanna Sigurðardóttir, struns-
aði út með þeim orðum að hún segði
sig úr flokknum og færi í sérfram-
boð.“
Þetta skrifar sami maður og tveim-
ur dögum áður ræddi við Jóhönnu.
Nú vill svo til að undirritaður
stýrði þessum þingflokksfundi, sem
hófst á hádegi fimmtudaginn 13. júlí
og lauk um klukkan 14.30. Allmörg
mál voru á dagskrá fundarins, fyrsta
mál á dagskrá var hugsanlegt sam-
starf við Borgaraflokk. Einnig var
rætt um vanda loðdýraræktar, ríkis-
fjármál og EB-EFTA málefni. Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra sat fundinn til enda og var
raunar enn í fundarherberginu þegar
formaður þingflokks yfirgaf staðinn
að fundi loknum.
Frásögn Tímans er uppspuni frá
rótum og fyrir henni er ekki flugufót-
ur. Ekki aðeins er frásögnin ósönn,
heldur vissi sá sem skrifaði að hún
var ósönn. Það gerir hans hlut og
Tímans hálfu verri.
Miðvikudaginn 19. júlí ræddi ég
þetta mál við aðstoðarritstjóra
Tímans, Odd Ólafsson, greindi hon-
um frá málavöxtum og óskaði leið-
réttingar. Hann tók máli mínu vel og
kvaðst mundu ræða við umræddan
blaðamann. Ekkert hefur hinsvegar
orðið úr því að leiðrétting birtist og
því er ég knúinn til að skrifa þetta
bréf.
Lesendur Tímans eiga betra skilið
en að logið sé að þeim með þessum
hætti.
Eiður Guðnason,
formaður þingflokks
Alþýðuflokksins