Tíminn - 22.07.1989, Blaðsíða 18
30 Tíminn
Laugardagur 22. júlí 1989
HHHIIIIIIIIII Iþróttir llllllllllllim^^^^ .......... .......................... ............. ........ ........... ........... ...........Hlllllll.......III......Hllllll....lllllll...............
Frjálsar íþróttir:
Sigrar Carl Lewis enn
einu sinni í langstökki?
Carl Lewis.
Knattspyrna:
íþróttir
og áfengi
Það er löngu vitað að neysla
áfengis spillir fyrir árangri í íþrótt-
um. Áfengi skerðir færni, þol, þrek
og nákvæmni sem er forsenda góðs
árangurs í íþróttum. Það er einnig
vel þekkt að íþróttamaður sem neyt-
ir áfengis síðustu daga fyrir keppni
stendur ver að vígi en hann gerði
annars.
Áhrif áfengis á líkamann ^ara
mun lengur en vímuáhrifin. Áfeng-
isneysla er álag á líkamann og það
tekur hann langan tíma að jafna sig.
íþróttamaður sem ætlar að nýta að
fullu möguleika sína til árangurs
verður því að hafna áfengi.
Herferð í áfengisvörnum
KSÍ og Nefnd um átak í áfeng-
isvörnum hafa ákveðið að hafa með
sér samstarf um áfengisvarnir á yfir-
standandi ári. Er þess farið á leit við
forystumenn aðildarfélaga KSÍ að
þeir ásamt þjálfurum og leiðbein-
endum í knattspyrnu í öllum flokk-
um fjalli um þessi mál og geri
knattspyrnuiðkendum grein fyrir þvf
að neysla áfengis og iðkun knatt-
spyrnu fara ekki saman.
Þess eru dæmi að áfengisneysla
leikmanna í keppnisferðum setji
ljótan svip á íþróttina. Mikilvægt er
að slíkt komi ekki fyrir og forráða-
menn félaga og þjálfarar eru hvattir
til að koma algerlega í veg fyrir slíkt.
Með tilkomu bjórsins kann að
aukast hætta á að áhorfendur komi
með áfengi með sér á leiki. Því er
því beint til umsjónarmanna knatt-
spyrnuleikja að koma þeim skila-
boðum tryggilega til áhorfenda að
áfengisneysla sé óheimil á áhorf-
endasvæðum, þar með talin neysla
bjórs, og fylgi því eftir að þau tilmæli
séu virt. Öllum ráðum verður að
beita til að hér skapist ekki sá vandi
sem áfengisneysla veldur á knatt-
spyrnuleikjum víða annars staðar í
Evrópu.
Gerir tilraun til 61. sigurs síns í röð
Olympíumethafinn Carl Lewis
hefur ekki tapað í langstökkskeppni
í átta ár. Og núna í dag reynir hann
að vinna sinn 61. langstökkssigur á
New York leikunum. En þetta eru
fyrstu stórleikarnir í Bandaríkjunum
í einstaklingsgreinum frjálsra íþrótta
í um 20 ár. ♦
Fimm aðrir Olympíumethafar frá
Sól 1988 verða meðal keppenda á
mótinu og fjórir núverandi heims-
methafar. Gullhafarnir frá Sól eru
ásamt Lewis þau Steve Lewis, Roger
Kingdom, Ándre Pillhips, Jackie
Joyner-Kersee og Louise Ritter.
Carl Lewis beið síðast ósigur í
langstökki árið 1981 á innanhúss-
móti í New York, en á þessu móti
mætir hann tveimur mjög sterkum
langstökkvurum. Þeir eru: silfurhaf-
inn frá Sól, Mike Powell og heims-
meistarinn í þrístökki innanhúss,
Mike Conley.
Steve Lewis hleypur í 400 metra
hlaupi á móti bronshafanum frá Sól,
Danny Everett, en einnig hlaupa í
hlaupinu þeir: Roberto Hernandez
frá Kúbu, Innocent Egbunike frá
Nigeríu og Andrew Valmin frá
Bandaríkjunum.
Roger Kingdom sem hefur tvisvar
orðið Olympíumeistari hleypur á
móti heimsmethafanum Renaldo
Nehemiah í 110 metra grindahlaupi.
Joyner-Kersee hefur einbeitt sér að
400 metra grindahlaupi í ár og hún
keppir í þeirri grein á mótinu, helsti
keppinautur hennar í 400 metra
grindahlaupinu mynda þá verða
Sandra Farmer-Patrick en hún á
einmitt bandaríska metið í þessari
grein. KHG.
Handbolti:
Heimsmetstilraun
í maraþonhandbolta í Hafnarfirði
Handknattleikslið Hauka úr
Hafnarfirði ætlar að gera tilraun til
að setja heimsmet í maraþonhand-
bolta í Strandgötuhúsinu nú um
helgina. Núverandi heimsmet er ná-
kvæmlega 45,50 klukkustundir og
ætla Haukarnir því að spila í 46-48
klukkustundir. Reyndar byrjuðu
þeir að spila um kvöldmatarleytið í
gær eða klukkan sex. Áætlað er
ljúka svo maraþoninu eitthvað um
fjögur leytið á sunnudeginum.
Það verða 14 leikmenn úr meist-
araflokki Hauka sem ætla sér að
spila allan tímánn. Skipt verður í tvö
lið og verða engar skiptingar. Þeir
ætla sér þó að taka fimm mínútna
pásu á klukkutíma fresti. Einnig
verður læknir sem fylgist með þess-
um vösku drengjum og ætlar hann
að fylgjast með blóðþrýstingi drengj-
anna og tíðarfari þeirra yfirleitt
meðan á leik þeirra stendur.
Opið hús verður í Strandgötunni
alla helgina og nú er um að gera að
mæta og hvetja Haukastrákana til
dáða. Eins og áður sagði er áætlað
að hætta um fjögur leytið á sunn-
udaginn og er búist við að fjölmenni
verði þá í Strandgötuhúsinu til að
fagna nýju heimsmeti í maraþon-
handbolta. KHG.
Knattspyrna:
Færeyjar
ÍUEFA
Færeyjar hafa verið teknar inn í
Evrópska fótboltasambandið
(UEFA). Ákvörðun um þetta var
tekin í gær, Færeyjar eru því 36.
þjóðin sem tekin er inn í UEFA.
Staðfesting á þessari ákvörðun
verður síðan gerð á Möltu eftir eitt
ár. KHG.
Knattspyrna:
ÚRSLIT
í íslandsmóti 3. fl. kvenna
Úrslitakeppni 3. flokka kvenna
fer fram dagana 22. og 23. júlí á
Kópavogsvelli. Knattspyrnudeild
Breiðabliks hefur umsjón með
keppninni og má búast við hörku-
keppni.
Niðurröðun leikja er sem her
segir.
Laugardagur 22. júlí
kl. 13.00 Valur-Tindastóll
kl. 13.45 UBK-Sindri
kl. 16.00 Tindastóll-UBK
kl. 16.45 Sindri-Valur
Sunnudagur 23.jú|í
kl. 10.00 Tindastóll-Sindri
kl. 10.45 Valur-UBK
kl. 11.30 Verðlaunaafhending