Tíminn - 02.11.1989, Qupperneq 6
6 Tíminn
Tímirm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
____Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
IngvarGíslason
Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson
Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson
EggertSkúlason
Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavik. Slmi: 686300. Auglýsingasími:
680001. Kvöldsímar: Áskriftog dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar
686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot:
Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f.
Frá og með 1. ágúst hækkar:
Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Mannréttindi
Ein þeirra bóka sem kemur út árlega er skýrsla
Amnesty International, sem er alþjóðlegt heiti á
mannúðarsamtökum, sem beita sér fyrir náðun
fanga, sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar
fyrir pólitískar sakir eða geymdir í fangelsum fyrir
engar sakir og án dóms og laga.
Ekki er lát á því að skýrsla Amnesty Internation-
al um árið 1988 er jafn ógnvænleg og aðrar
ársskýrslur samtakanna svo langt sem rakið verður.
Ástand mannréttindamála í heiminum breytist
sáralítið í heild og er yfirleitt sömu sögu að segja
af þeim málum, að það er verst í fátæktar- og
ójafnaðarlöndum þriðja heimsins, Afríku, Asíu og
Suður- og Mið-Ameríku. Ýmis lönd í kommúnista-
heiminum halda áfram að fá á sig áfellisdóma
mannréttindasamtaka, en vestræn lýðræðislönd
bera einfaldlega af hvað snertir dóms- og réttarfar
og mannúðlegt stjórnarfar yfirleitt.
Pað verður a.m.k. lítið úr áfellisdómum sem
stundum heyrast um íslenskt réttarkerfi og lög-
reglumál, þegar skýrslur Amnesty International
eru lesnar. Þá fer margur að efast um að miklu sé
til kostandi að setja íslensku lögreglu- og dóms-
málastjórnina undir smásjá útlendra eftirlitsnefnda
og alþjóðasamtaka, hvort heldur það nú er Evr-
ópuráðið eða Alþjóðavinnumálastofnunin.
Skýrslur Amnesty International hafa sennilega
fremur takmarkaðan lesendahóp og ekki víst
hversu áhrifamiklar þær eru utan síns eigin áhuga-
mannahrings. Þrátt fyrir það eru þessar skýrslur
svo ómissandi heimildir um samtímann, að framhjá
þeim verður ekki gengið, ef menn ætla að gera sér
einhverja mynd af heiminum eins og hann er.
Lestur þessara skýrslna um sama ástandið ár eftir
ár gefur ekki beinlínis vonir um bjarta framtíð
heimsbyggðarinnar eða að það dragi úr harðstjórn
þar sem hún er viðvarandi, ef ekki innbyggð í
menningu og þjóðfélagsgerð.
Þess er getið í ársskýrslunni að mannréttindamál
hafi farið batnandi í Sovétríkjunum. Það er í
samræmi við daglegar fréttir, sem þaðan berast um
aukið málfrelsi og bætta stjórnarhætti. Sömu sögu
er að segja frá Póllandi og Ungverjalandi. í öllum
þessum ríkjum er verið að slaka á og eyða alræði
kommúnistaflokkanna. Afnámi flokkseinræðis
fylgja aukin mannréttindi. Slíkt gerist hins vegar
ekki þar sem í engu er hróflað við flokkseinræði
kommúnista.
Þrátt fyrir allt er það þó á áhrifasvæði Sovétríkj-
anna, þar sem mannréttindaástandið fer skánandi.
Hinsvegar situr allt við það sama í Rómönsku
Ameríku, sem ekki er að svo litlu leyti á áhrifa-
svæði Bandaríkjanna. Stjórnarfar Mið- og Suður-
Ameríkuríkja gefur þessum löndum engan rétt til
þess að kallast í hópi lýðfrjálsra ríkja. Það kemur
m.a. í'ljós að Kólumbía er ekki aðeins veik og
vansæl vegna ofurveldis kókaínfurstanna, heldur
er stjórnarfarið sjálft máttlaust og spillt og réynir
að viðhaldá sjálfu sér með ofbeldi og mannrétt-
indabrotum.
Fimmtudagur 2. nóvember 1989
GARRI
Ráðuneytið á Blönduósi
Innhcimtumcnnn ríkissjóðs cru
margir og þurfa oft á tíðum að
standa stífir á meiningunni, eink-
um nú þegar fiestir eru að fara á
hausinn vegna fjármagnskostnað-
ar. En Samverjar eru þó þeirra á
meðal, þótt þeir lini ekki á inn-
heimtunni. Þeir varpa hins vegar
yfir sig skikkju fjárveitingavaldsins
og láta drjúpa af innheimtunni
nokkurt fé til brýnna verkefna
heima fyrír, sem svikist hefur veríð
um að senda „að sunnan“. Þannig
fór a.m.k. sýslumanni Húnvetn-
ingá. Hann kom sér upp eins konar
Ijármálaráðuneyti á Blönduósi og
veitti fé til Dvalarheirailis aldraðra
á Skagaströnd, en framlög til þeirr-
ar byggingar höfðu brugðist. Þá
veitti ráðuneyti sýslumannsins á
Blönduósi fé til heilsugæslustöðv-
ar. Ríkisendurskoðun sá strax af
glöggskyggni sinni, að fjárveitingar
á borð við þessar áttu að vera í
höndum Ólafs Ragnars, eða a.m.k.
ekki í höndum Jóns tsbergs sýslu-
manns. Ólafur Þ. Þórðarson, al-
þingismaður, hafði nýlega verið á
ferð í ráðuneytisumdæmi Jóns
ísbergs, þar sem bQstjórí hans
veríð tekinn fyrir of hraðan akstur.
Segir ekki frekar af því, nema hvað
Jón ísberg gat þessa atviks svona í
framhjáhlaupi til að undirstrika að
í Húnavatnssýslum væru allir jafnir
fyrir lögunum.
Ráðherraígildið
á Blönduósi
En það var einmitt Ólafur Þ.
Þórðarson, sem upplýsti á Alþingi
að samkvæmt niðurstöðum Ríkis-
endurskoðunar væri nýtt ráðuneyti
tekið til starfa á Blönduósi og lýsti
um leið furðu sinni á fjárveitingum
þaðan í heimildarleysi. Ólafur hef-
ur sýnilega ekki áttað sig á þvi, að
ekki einungis ganga lög jafnt yfir
alla norður þar í umdæmi Jóns
Jón ísberg.
ísbergs; Húnvetningar hafa líka
ráð undir rifjum sínum við að
koma upp byggingum, sem virðast
hafa gleymst á ákveðnu byggingar-
stigi vegna skorts á fjármunum. Nú
er aðeins eftir að vita hvort fjár-
málaráðuneytið samþykkir fjár-
veitingar ráðuneytisins á Blöndu-
ósi. Svo var að heyra á fjármálaráð-
herra á Alþingi, að hann væri ekki
alls kostar ánægður með Jón
ísberg, hinn nýja fjármálaráðherra
norður þar. En landsbyggðin fagn-
ar eflaust frumkvæði sýslumanns,
og vitnar til Ingjaldar í Hergilsey,
sem kvað svo að orði, að föt sín
væru fomleg og Ijót, svo líkingin sé
færð upp á tötrastöðu heilsugæslu-
stöðvar og dvalarheimilis.
Elliheimili yffir
Bjöm á Löngumýri
Jón ísberg hefur veríð tæp þrjá-
tíu ár sýslumaður Húnvetninga og
er ekki mikið laskaður eftir mynd-
um að dæma. Hafa þó sýslumenn
á þessu svæði oft þurft að sækja á
móti stríðum straumi. Jón ísberg
hefur einum tvisvar sinnum lent í
skemmtiatriðum Bjöms á Löngu-
mýri, og fengið að leika þar nokk-
uð stór hlutverk ásamt Löngumýr-
ar-Skjónu, Bimi sjálfum og bað-
fénaði á Löngumýri. Þessi
skemmtiatriði hafa gert þá báða
vinsæla. Jón ísberg fyrir að vera
gamansamt yfirvald, sem talað hef-
ur mildilega um Löngumýrarbónd-
ann og Björa fyrír að sækja hvert
málið af öðra gegn sýslumanni aUt
til Hæstaréttar. Það vakti athylgi á
sínum tíma, þegar sýslumaður fór
að Bimi til að láta baða fé hans,
fékk Björa liðsstyrk frá Skaga-
strönd. Nú hafa þeir á SkagastrÖnd
einmitt notið góðs af fjárveitingum
Jóns ísbergs, þ.e. þegar þeir hafa
aldur til. En eins og alkunna er, þá
er Björa á Löngumýri fyrir löngu
kominn á aldurinn og ekki við öðru
að búast, en að hann fari á Dvalar-
heimilið á Skagaströnd þegar hon-
um finnst stórbúskapurinn á
Löngumýri orðinn of þungur göml-
um manni, en á Strönd hefur hann
alltaf átt vinum að mæta. Jón
ísberg er því efiaust að gera sitt til
að koma þaki yfir Bjöm gamlan
með því að flýta fjárveitingum til
byggingar dvalarheimilisins.
Hinn eini rétti kassi
En góðverkin eru ekki alltaf
metin eða skilin, einkum ef þau
era framin í Ijarlægð frá valdastól-
um. Og Ríkisendurskoðun varðar
náttúrlega ekkert um elliheimili
handa Bimi á Löngumýri og þaðan
af siður Ólaf Ragnar. Opinbert fé
er opinbert fé og því ber að skila í
þennan eina rétta kassa, sem við
erum öll að strita fyrir. Ráðuneytið
á Blönduósi er að vísu nokkurt
alvöramál og lagst er gegn því að
sýslumenn yfirleitt fari að taka upp
ráðherratakta Jóns fsberg. En
Húnvetningar eru manna glað-
beittastir og skemmtilegastir og
geta hafið stór málaferli út af
hrossum eða baðfé ef þeim sýnist
svo. TUbrigði við athafnir fjármál-
aráðuneytis hlaut því að koma
þaðan. Niðurstaðan er að húsin
standa, en stendur ísberg? Garri
VÍTT OG BREITT
Ólögin fæðast heima
Það á að auka framleiðslu á
kindakjöti á íslandi. Þetta kann að
hljóma fáránlega, en samt er þetta
trúlega eina ráðið til þess að bjarga
bændastéttinni frá algeru hruni,
eins og nú blasir við.
Aðlögun framleiðslu að innan-
landsmarkaði hefur mistekist.
Framleiðslan hefur minnkað í
kjölfar fækkunaraðgerða stjórn-
valda og Stéttarsambands bænda.
Vandamálið er samt óleyst vegna
þess að neyslan hefur minnkað
ennþá meira. Sauðfjárbændum var
í upphafi úthlutaður kvóti og sam-
kvæmt honum máttu þeir fram-
leiða ákveðið magn af kindakjöti á
ári. Þegarsábúvörusamningursem
nú er í gildi var tekinn upp, var
kvótinn skertur stórlega (þó mjög
mismunandi eftir bændum) og
skírður fullvirðisréttur. Það er það
magn sem hver bóndi má framleiða
og fá fullt verð fyrir.
Vegna þess að sala kindakjöts
fer enn minnkandi þarf enn að
skerða framleiðslurétt bænda og
það verður væntanlega gert í næsta
búvörusamningi. Með þetta hefur
hinn almenni sauðfjárbóndi ekkert
að gera. Hann á einungis að
hneigja sig djúpt þegar honum
berst í hendur enn eitt skerðingar-
plaggið frá rfkisvaldinu og Stéttar-
sambandinu og lofa Guð og góðar
vættir fyrir að íhaldið og kratarnir
eru ekki byrjaðir að græða á inn-
flutningi landbúnaðarvara,
Smáskammtalækning ríkisins og
Stéttarsambandsins felst í því að
skera sauðfjárstofn íslendinga nið-
ur í áföngum. Eftir því sem fénu
fækkar verður dýrara fyrir bónd-
ann að framleiða hvert kíló af
kjöti, dýrara fyrir afurðastöðvarn-
ar að slátra og vinna innlegg bænd- ■
anna og dýrara fyrir neytendur að
kaupa kjötjð út úr búð. Framleiðsl-
an verður sífellt óhagkvæmari,
raddir sem heimta innflutning
landbúnaðarvara sífellt háværari
og sífellt minnkar salan vegna þess
að enginn hefur efni á að kaupa
kjötið. Léleg sala og lítill fram-
leiðsluréttur neyðir bændur og
neytendur til þess að versla án
milliliða, á svörtu.
Smáskammtalækningunni,. sem
er engin lækning, má líkja við að
tannlæknir geri ekki við tennur
sjúklinga sinna, heldur dragi þær
úr honum. Sjúklingurinn á æ erfið-
ara með að tyggja og getur loks
ekkert tuggið þegar engin tönn er
eftir. Þá getur tannlæknirinn líka
snúið sér að einhverju öðru. Með
þessu er ekki verið að segja að þeir
sem stjóma landbúnaðarmálum á
Islandi séu slæmir menn. Þvert á
móti, vel hugsandi og vel viljandi,
en haldi þeir áfram á sömu braut
verður lítið fyrir þá að gera.
Vandamál íslenskra bænda er að
ríkið hefur verið allt of mikið með
puttana í þeirra málum. Ríkið
hefur ákveðið út á hvaða fram-
kvæmdir ménn fá lán og styrki,
hvernig gripahús þeir byggja, hvað
þeir framleiða, hversu mikið
o.s.frv.. Ríkið tekur skatta af land-
búnaðinum, endurgreiðir hluta af
þeim í formi niðurgreiðsla og
styrkja, og ákveður um leið hvað
bændur mega gera og hvað ekki.
Við næstu búvörusamninga á að
ríkið að hætta að greiða niður
landbúnaðarvörur. Frá þessu má
gera eina undantekningu. Hún er
sú að skattleggja innflutt fóður og
verja þeim peningum til þarflegra
málefna í þágu bænda. Til að vega
upp á móti niðurgreiðslunum á að
afnema alla skattlagningu á land-
búnað og úrvinnslustöðvar fyrir
landbúnaðarafurðir. Bændur eiga
síðan sjálfir að koma sér saman um
hvað mikið þeir treysta sé til að
framleiða og á hve Iágu verði, án
þess að þeir setji hvem annan á
hausinn. Þeim er betur treystandi
en rtkinu til þess að reka bú sín og
afurðastöðvar á hagkvæman hátt
og tryggj a neytendum ódýra vöru.
Hlutverk ríkisins á að vera að
koma í veg 'fyrir innflutning á
stórlega niðurgreiddum landbún-
aðarvörum frá EB-ríkjunum, sem
enginn græðir á nema kaupmenn.
Innflutt fóður er líka niðurgreitt og
það á þess vegna að skattleggja.
Islenskur landbúnaður byggir á því
að lifa af landsins gæðum, ekki
innflutningi. -ÁG