Tíminn - 02.11.1989, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 2. nóvember 1989
Tíminn 17
Steingrímur Steinunn Alexander StefánJ.
30. kjördæmisþing
framsóknarmanna á Vesturlandi
veröur haldið á Hótel Borgarnesi dagana 3. og 4. nóvember nk.
Dagskrá:
Föstudagur 3. nóvember
Kl. 17.00 Þingsetning: Kosning starfsmanna og nefnda; skýrslur og
reikningar.
Umræður og atgreiðsla.
Kl. 18.00 Sveitarstjórnarkosningar 1990.
- framsögur (Steinunn Sigurðardóttir, Akranesi og
Stefán Jóh. Sigurðsson, Ólafsvík), umræður.
Kl. 19.30 Þinghlé.
Kl. 20.30 Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi í
Hótel Borgarnesi.
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 9.30 Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra.
Kl. 10.40 Ávörpgesta.
Kl. 11.00 Málefni kjördæmisins. Alexander Stefánsson, alþingis-
maður.
Kl. 11.30 Almennar umræður.
Kl. 12.30 Hádegisverður.
Kl. 13.30 Framhald umræðna. Afgreiðsla mála, kosningar, önnur mál.
Kl. 16.00 Þingslit.
Stjórn K.S.F.V.
Haustfagnaður framsóknarmanna
á Vesturlandi
verður haldinn á Hótel Borgarnesi föstudagskvöldið 3. nóvember.
Dagskrá hefst kl. 20.30.
Kvöldverður, skemmtiatriði og dans.
Miðapantanir og nánari upplýsingar f sfmum: Bjarni, s. 70068,
Ingimundur, s. 71777, Þorvaldur, s. 38951 og Sædís, s. 71509.
Kvöldfagnaður K.S.F.S.
Haldinn í Hótel Selfossi laugardaginn
4. nóvember 1989.
Húsið opnað kl. 19.30.
Borðhald hefst kl. 20.00.
Matseðill:
Rjómalöguð grænmetissúpa.
Glóðarsteikt lambafillet með bakaðri kartöflu,
salati og grænmeti. Mintu- og kókostriffle.
Dagskrá:
Ávörp.
Gamanmál.
Einsöngur: Loftur Erlingsson.
Karl Sighvatsson leikur „dinner“-músík.
LÚDÓ og STEFÁN
Allir velkomnir - Góða skemmtun
Ull
Skagfirðingar -
Stefán Guðmundsson
alþingismaður
Stefán Guðmundsson alþingismaður verður með viðtalstíma föstu-
daginn 3. nóvember kl. 16-19 f Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki.
Sauðárkróksbúar
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Árnesingar
Lokaumferð í 3ja kvölda félagsvist Framsóknarfélags Árnessýslu,
verður á Borg föstudaginn 10. nóv. kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s.
43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19.
K.F.R.
1I1II11I1I1I11H1I SPEGILL
Paulina Porizkova þykir standa sig jafn vel í ieiklistínni og í fyrírsætustarfinu. Hér er hún að leika ástaratríði á
móti Tom Selieck í myndinni „Her AIibi“
Tom Selleck þykir alltaf einn af „stóru sjarmörunum“ á hvita tjaldinu
Tom Selleck:
„Einkalífið er mér enn dýrmætara
síðan Hannah litla fæddist“
„Tvær nýjar kvenpersónur hafa
komið inn í líf mitt á sl. ári,“ segir
Tom Selleck, en hann á þar við
Paulinu Porizkova, fyrrum fyrir-
sætu en nú ieikkonu. Hún Iék á
móti Tom f myndinni „Her Alibi“.
En svo er það auðvitað aðal-
prinsessan, litla dóttirin sem verð-
ur ársgömul í desember nk. Þau
Jillie Mack og Tom Selleck höfðu
verið gift í nokkur ár og urðu svo
hamingjusöm yfir að eignast nú
loksins bam.
Tom Selleck kvikmyndastjarna
og kona hans Jillie segjast hafa sagt
viljandi rangt til um hvenær þau
áttu von á langþráðu bami sínu.
„Barnið fæðist síðast í janúar,“
sögðu þau bæði grafalvarleg í
blaðaviðtali í lok nóvember sl., -
en hún Hannah Margaret Mack
Selleck fæddist fullburða rúmum
tveimur vikum síðar, eða þann 16.
desember.
Þau hjónin vildu fá að vera í friði
og þess vegna gripu þau til þess
ráðs að villa um fyrir fjölmiðlafólk-
inu með smáskreytni.
Tom Selleck, Ted Danson og
Steve Guttenberg léku saman í
myndinni „Three Men and a
Baby“, þar sem þrír einhleypir
menn sitja uppi með lítið bam til
að annast. En Tom Selleck segir,
að þó að hann hafi þar fengið
nokkra reynslu í að skipta á bleiu
á bami og fleira viðkomandi smá-
börnum, þá muni hann aldrei leyfa
neinar myndatökur þegar hann sé
að annast litlu dóttur sína. - Einka-
lífið og friðhelgi þess er mér enn
meira virði nú eftir að við höfum
eignast dótturina, segir Tom.
Tom Selleck er 44 ára og verður
því um sextugt þegar Hannah dótt-
ir hans er orðin 16 ára. Hann segir
að þegar herramir fari að koma og
spyrja eftir ungu dömunni, muni
hann heldur betur yfirheyra þá -
og líklega verði „stóri bróðir“ ekki
síðri vemdari hennar en „gamli
pabbi“. Stóri bróðirinn er Kevin,
stjúpsonur Toms Selleck frá fyrra
hjónabandi, en Kevin er nú 21 árs
og verður því orðinn 37 ára og
sjálfsagt ráðsettur herramaður,
þegar kemur að því að litla systir
fer að fara út á lífið.
Þau hjónin JUUe og Selleck rétt
áður en Hannah fæddist, - en þau
sögðu þá mánuð vera til þess að
myndi fjölga hjá þeim