Tíminn - 02.11.1989, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISS^IP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu, ® 28822 ri SAMVINNUBANKINN ~ í BYGGÐUM LANDSINS Leigjum út sali fyrir fundi og einkasamkvæmi og aðra mannfagnaði ^oi0IL aS7-0^ ÞRDSTUR 68 50 60 VANIR MENN
Tímiim
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989
Leituðu síldar á stóru svæði við Vesturland í nótt:
SALTSILDARSAMNINGAR
VIÐ SOVETIBIDSTODU
Sfldarsölusamningar við Sovétmenn ganga hægt þessa
dagana. Að söng Gunnars Jóakimssonar hjá Síldarútvegs-
nefnd er verið að reyna að ýta á um að frekari gjaldeyrishei-
mildir verði veittar til þessara kaupa. „Staðan er í raun sú
að verið er að bíða niðurstöðu úr því,“ sagði Gunnar.
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin aðilaumkaupásaltsíldfráíslandi.
Hannibalsson ritaði utanríkis- og
viðskiptaráðherra Sovétríkjanna
bréf á dögunum, þar sem hann
lýsir áhyggjum vegna viðræðna
Síldarútvegsnefndar og sovéskra
Samkvæmt bókun í ramma-
samningi þjóðanna er gert ráð fyrir
að Sovétmenn kaupi af okkur 200
til 250 þúsund tunnur. Gjaldeyris-
heimildin sem sovésku aðilarnir
hafa er um helmingur af efri
mörkunum eða fyrir um 120 til 130
þúsund tunnum. Stefnt hefur verið
að því að selja þeim ekki færri en
200 þúsund tunnur í þessum samn-
ingaviðræðum.
Síðdegis í gær fóru um tíu bátar
til síldarleitar fyrir Vesturlandi.
Að sögn Halldórs Brynjólfssonar
skipstjóra á Skagaröst KE, er ætl-
unin að leita í nótt á svæðinu frá
Kollál og suður fyrir Reykjanes-
sker. „Það á að fínkemba svæðið,"
sagði Halldór. Hver bátur hefur
sína lóranlínu til að keyra eftir,
þannig að fimm til sjö mílna bil sé
milli bátanna, að sögn Halldórs.
Hann sagði að því miður hefðu
menn ekki orðið varir við síld á
þessum slóðum nú, en á undan-
förnum tveim árum hefur síld hald-
ið sig í Miðnessjó og þar í kring.
Aðspurður sagði hann þessi leit
ætti ekki að taka nema nóttina og
kannski eitthvað fram á morgun-
inn.
í gær var búið að salta í um
52500 þúsund tunnur upp í þá
samninga sem þegar hafa verið
gerðir. Mest var búið að salta í
Grindavík, eða 8700 tunnur, á
Fáskrúðsfirði var búið að salta í
um 6700 tunnur, á Eskifirði var
búið að salta í 6400 tunnur og á
Hornafirði var búið að salta í 6300
tunnur. -ABÓ
Karvel Pálmason alþingismaöur segir
skatta of háa og kaupmátt of lítinn:
Skorar á laun-
þegahreyfinguna
Karvel Pálmason alþingismaður segir að ef launþegahreyfingin sé
ekki tilbúin til þess að standa að því að loforð ríkisstjórnarinnar frá
því við kjarasamningana í vor verði efnd, sé hún að hans mati einskis
nýt.
Við umræður í efri deild þingsins
um lánsfjárlög fyrir árin 1989 og
1990 á þriðjudag gagnrýndi Karvel
fjármálaráðherra harðlega, sagði
skatta of háa og að ekki hefði verið
staðið við ioforð gagnvart launþeg-
um um kaupmátt tekna. Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
sagði í svari sínu til Karvels að staðið
hefði verið við öll loforð sem gefin
voru við samninga í vor, og að sumu
leiti gott betur. Umræðum var frest-
að og stóð til að taka þær aftur upp
í gær, en það reyndist ekki unnt þar
eð fjármálaráðherra var bundinn við
umræður í neðri deild þingsins.
Lánsfjárlögin koma aftur á dagskrá
næstkomandi þriðjudag samkvæmt
ákvörðun þingforseta.
„Það er ýmislegt sem ekki hefur
verið staðið við að mínu viti og það
mun koma fram á þriðjudaginn þeg-
ar málið verður tekið til áframhald-
andi umræðu“, sagði Karvel. „Það
eru til dæmis fæðingarorlofin, at-
vinnuleysistryggingarnar, og líka að
því er varðar kaupmáttinn sem
slíkan. Það mun muna að minnsta
kosti um þremur prósentum sem
kaupmátturinn er lægri heldur en
menn gerðu ráð fyrir þegar gengið
var frá samningaborði 1. maí.
Karvel sagðist tilbúinn að ganga
jafn langt og hann gæti til þess að
tryggja að við það yrði staðið sem
fyrirheit voru gefin um. Hann kvaðst
ekki vera einn um að benda á þessi
atriði. Þing Verkamannasambands-
ins hefði gert það, miðstjórn Al-
þýðusambandsins, þing Alþýðu-
sambands Norðurlands, stjórn Al-
þýðusambands Vestfjarða, svo og
Landssambandsþing verslunar-
manna. Allir þessir aðilar hefðu
bent á að ekki hefði verið staðið yið
þau fyrirheit sem gefin hefðu verið
við gerð síðustu samninga.
Karvel sagðist telja að hann væri
ekki einn stjórnarliða um að vera
óánægður með efndir ríkisstjórnar-
innar við launþegahreyfinguna, en
hann væri kannski sá opinskásti.
Varðandi það hvort hann væri tilbú-
inn til að láta af stuðningi við
ríkisstjórnina ef ekki kæmu fram
úrbætur í þessum málum, kvaðst
Karvel aldrei hafa lýst yfir neinum
sérstökumstuðningi viðhana. -ÁG
Karvel Pálmason.
Forsvarsmenn Bok- och Bibliotekmássan eru staddir hér á landi. Á myndinni (f.v.) eru Bertil Falck, Anna Falck,
Conny Jacobsson, Christina Uhlin og Sven Hallonsten. Tímamynd Ámi Bjama
Norræn bóka- og menningarhátíð aö ári:
í brennidepli
Island
ísland og íslensk menning verð-
ur í brennidepli á „Bok- och Biblio-
tekmássan", norrænu bóka- og
menningarhátíðinni í Gautaborg á
næsta ári. Á þeim fimm árum sem
hún hefur verið haldin er hún orðin
þriðja stærsta bókastefna í Evrópu.
í ár komu um 60 þúsund manns þá
fjóra daga sem hún stóð yfir.
Á fréttamannafundi sem haldinn
var í gær kom fram hjá þeim Bertil
Falk og Conny Jacobsson að hátíð-
in að ári verður sú veglegasta fram
að þessu, en þeir áttu frumkvæðið
að þessari bóka- og menningarhát-
íð í Gautaborg. í fyrsta skiptið
sýndu 100 aðilar, en í ár voru þeir
800 og að ári er gert ráð fyrir að
sýningaraðilar verði 1000 talsins.
Sem áður sagði verður ísland í
brennidepli á hátíðinni, sem fram
fer dagana 13. til 16. september á
næsta ári. Það hefur það í för með
sér að veggspjöld, bæklingar og
allt upplýsingaefni hafa fsland sem
viðfangsefni. íslensk menning
verður til umræðu á mörgum sér-
stökum ráðstefnum sem haldnar
verða í tengslum við hátíðina.
Bertil Falck og Conny Jacobs-
son, sem einnig standa bak við
Bokklubben Norden, hafa á með-
an þeir dvöldu hér á landi hitt frú
Vigdísi Finnbogadóttur forseta og
Svarar Gestsson menntamálaráð-
herra að máli. Frú Vigdís mun
setja menningarhátíðina og einnig
taka þátt í ráðstefnu um tungumál
og þjóðarvitund. Svavar tekur þátt
í dagskrá með menntamálaráð-
herrum Norðurlandanna. -ABÓ