Tíminn - 18.01.1990, Side 3
Fimmtudagur 18. janúar 1990
Tíminn 3
Láglaunafólk tekur minnst lán til íbúðakaupa, borgar þau fyrst upp og lendir síst í erfiðleikum:
Fimmti hver íbúðakaupandi
fjármagnar kaup án lántöku
Meira en helmingur hús/íbúðareiganda hefur keypt/byggt
sér íbúðarhúsnæði á þessum áratug. Og um 5. til 6. hver
þeirra gerði það án þess án þess að taka nokkur lán til
framkvæmdanna. Húsnæðisöflun án lántöku hefur verið
tvöfalt algengari á þessum áratug heldur en 1970-1980.
Sérstaka athygli vekur að það er fólkið með hæstu tekjurnar
sem sjaldnast kaupir/byggir án lána, er hlutfallslega færra
skuldlaust, skuldar töluvert meira og hefur jafnvel fremur
lent í alvarlegum fjárhags— (26%) og fjölskylduerfiðleikum
(12%) vegna kaupanna heldur en láglaunafólkið. Þeir sem
oftast slepptu lántöku og skulda að jafnaði minnst eru aftur
á móti í hópi láglaunafólksins og sömuleiðis lang hæsta
hlutfall (37-38%) skuldlausra húseigenda.
Þessar upplýsingar (sem ekki ólík-
lega stinga í stúf við almannaróm-
inn) má lesa út úr umfangsmikilli
húsnæðiskönnun sem Félagsvísinda-
stofnun gerði fyrir Húsnæðisstofnun
meðal landsmanna á aldrinum 20-70
ára. Tekið skal fram að „húseigend-
ur“ voru hlutfallslega álíka margir í
hópi hinna tekjulægri og þeirra
tekjuhærri. Þau hlutföll sem að
framan er vitnað til byggjast á svör-
um þeirra sem voru húseigendur
þegar könnunin var gerð á miðju ári
1988.
Nær allir húseigendur
fyrir miðjan aldur
Könnunin leiðir m.a. í ljós mjög
almenna húsnæðiseign á íslandi og
eðlilega því meiri sem fólk er eldra.
Um 97% allra yfir fimmtugt eru í
hópi húseigenda, rúmlega 90% fólks
40-50 ára, 85% fólks milli þrítugs og
fertugs og um 2/3 allra (66%) á
aldrinum 25-30 ára.
Ef hins vegar er litið á fjölskyldu-
gerð kemur í ljós að 98% allra
hjóna/para með börn yfir 7 ára aldri
eru í hópi húseigenda (mikill meiri-
hluti í sérbýli), sömuleiðis 85%
hjóna/para með yngri börn og 77%
barnlausra. Um 60% einstæðra for-
eldra á einnig eigið þak yfir höfuðið,
en fjórðungur þeirra býr hjá foreldr-
um eða ættingjum. Rúmurþriðjung-
ur barnlausra einstaklinga er einnig
kominn í hóp fasteignaeigenda, en
sjálfsagt tilheyra margir þeirra
yngsta aldurshópnum, hvar af stór
hluti býr enn í foreldrahúsum.
Og margir húseigendur
um tvítugt
Af 20-24 ára íslendingum er yfir
fjórðungur (28%) þegar kominn f
hóp húseigenda - eðlilega nær allir á
síðustu árunum fyrir könnunina,
þ.e. á árunum 1984-1988. Meðal-
stærð íbúða þeirra er um 100 fer-
metrar. Um 2/3 keyptu notaða íbúð
og rúmlega helmingurinn í blokk.
Af jafnöldrum þessa hóps (20-24
ára) sögðust meira en 2/3 ætla að
kaupa sér húsnæði á næstu tveim
árum, þótt aðeins sára lítill hluti
þeirra ætti lánsumsókn hjá Hús-
næðisstofnun. En verði þessar vænt-
ingar að veruleika þýðir það að 78%
þessa unga fólks ætlar sér að vera í
hópi húseigenda fyrir 26 ára aldur.
Athygli vekur að um 7. hver
(13,3%) þessara yngstu húseigenda
tóku ekki lán til kaupanna. Þeir sem
tóku lán skulduðu að meðaltali um
1,7 millj. kr. (um helming íbúða-
verðsins). Greiðslur (afborganir og
kostnaður) af þeim lánum voru um
22 þúsund kr. á mánuði að meðaltali
árið 1988, eða álíka upphæð og
meðal húsaleiga var þá á almennum
leigumarkaði, samkvæmt sömu
könnun.
Margt af þessu unga fólki virðist
þó hafa færst of mikið í fang, því hátt
í helmingurinn sagðist hafa lent í
alvarlegum fjárhagserfiðleikum
vegna kaupanna og hjá fimmta
hverjum höfðu þau spillt fjölskyldu-
friðnum. Mikill meirihluti (70%)
heldur eldri húseigenda (25-30 ára)
keyptu einnig á þessu sama árabili.
Af þeim kaupendum töldu færri sig
hafa lent í greiðsluerfiðleikum og
aðeins 7% sögðu kaupin hafa spillt
heimilisfriðnum.
Á hinn bóginn er athygli vert að
þrátt fyrir að aðeins 17% þeirra sem
komnir eru yfir miðjan aldur hafi
staðið í húsakaupum á „verðtrygg-
ingaráratugnum“, þ.e. eftir 1979
kváðust 14% þeirra hafa lent í
alvarlegum fjárhagserfiðleikum
vegna íbúðakaupa og 8% að þau
hafi valdið alvarlegum fjölskylduerf-
iðleikum. Það bendir til þess, að
annaðhvort hafi erfiðleikarnir ekki
„fæðst“ með verðtryggingunni, ell-
egar að meirihluti þeirra fáu úr
þessum hópi sem staðið hafi í fjár-
festingum á þessum áratug hafi kom-
ið sér í vandræði vegna þeirra - þ.e.
hlutfallslega miklu fleiri en í hópi
yngstu húseigendanna. - HEI
ORYGGISHJALMAR FRÁ
YAMAHfl
Hagstætt verð.
BUNADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
Úrval varahluta á lager fyrir
YAMAHA vélsleða.
3 Um áramótin laskkaöi allt lamóakjöt um 8%. SAMSTARFSHÓPUR
i Sparaðu og kauptu lambakjöt. UM SÖLU LAMBAKJÖTS