Tíminn - 18.01.1990, Blaðsíða 17

Tíminn - 18.01.1990, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 18. janúar 1990 Tíminn 17 Þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík Hið árlega þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldið laugardaginn 27. janúar n.k. í Norðurljósasal Danshallarinnar (Þórs- cafe) og hefst kl. 19.30. Heiðursgestir verða frú Edda Guðmundsdóttir og Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, sem jafnframt flytur ræðu kvöldsins. Aðgöngumiða- og borðapantanir eru í síma 24480 (Þórunn). Verð aðgöngumiða kr. 2.500,-. (Greiðslukortaþjónusta) Framsóknarfélag Reykjavíkur. Árnesingar Unnur Stefánsdóttir Guðni Ágústsson Jón Helgason Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími verða á eftirtöldum stöðum: Aratungu fimmtudaginn 18. janúar kl. 14.00. Laugarvatni í barnaskólanum 18. janúar kl. 21.00. Alexander Stefánsson Dav íð Aðalsteinsson alþingismaður varaþingmaður Vesturlandskjördæmi Alexander Stefánsson alþingismaður og Davíð Stefánsson varaþing- maður verða til viðtals og ræða stjórnmálaviðhorfið og héraðsmál á eftirtöldum stöðum sem hér segir: Borgarnes Fimmtudaginn 18. janúar kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu. Allir velkomnir. Framsóknarflokkurinn á Vesturiandi. Hvergerðingar - Sunnlendingar! Þorrablót Framsóknarfélags Hveragerðis verður haldið að Hótel Örk, föstudaginn 19. janúar 1990 kl. 19.30. Heiðursgestir kvöldsins verða: Indriði G. Þorsteinsson og frú. Veislustjóri verður: Garðar Hannesson. Ýmis skemmtiatriði. Eftirhermur og gamanmál. Félagar mætum öll og tökum með okkur gesti. Allir velkomnir. Miðaverð kr. 1500.- Miðapantanir fyrir fimmtudag hjá: Gísla Garðarssyni s: 34707. Garðari Hannessyni s: 34223. Sturlu Þórðarsyni s: 34636. Framsóknarvist Framsóknarvist verður haldin sunnudag 21. janúar kl. 14 í Danshöllinni (Þórscafé) Þrenn verðlaun karla og kvenna. Verð að- göngumiða kr. 400,- kaffiveitingar innifaldar. Stutt ávarp flytur Alfreð Þorsteinsson formaður F.R. Framsóknarfélag Reykjavíkur Indriði G. Þorsteinsson llllllllllllllllllllllllilll SPEGILL llllllilllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllll TinaTurner50ára Hélt mikla afmælisveislu með risatertu! Rokkdrottningin Tina Turner hélt nýlega upp á 50 ára afmæli sitt í London og bauð 250 gestum í veisluna. En þetta með afmælið er ekki í samræmi við uppsláttarrit um bandaríska skemmtikrafta, sem flett var upp í ti! að fá að vita afmælisdag söngkonunnar. Þar stendur, að Tina Turner sé fædd í Brownsville í Texas 25. nóvember 1941. Eftir því að dæma yrði hún 50 ára í nóvember á næsta ári. En þetta hefur kannski eitthvað skol- ast til með afmælið, a.m.k. hélt rokkstjarnan upp á afmælið sitt í samkomusal klúbbsins „Reform Club“ í London. Afmælistertan vakti mikla hrifn- ingu. Hún var kúlalaga eins og hnötturinn og studd af tveimur stórum sykurljónum með mikinn makka (sem sumir sögðu að minnti á hárlubba söngkonunnar). Sagt er að tertan hafi ein og sér kostað 8 þúsund dollara (480 þús. kr.) Þá var afmæliskjóllinn ekki af verri endanum. Hann var sérsaum- aður hjá Dior-tískuhúsinu f París og kostaði 39.000 dollara! (ca. 2.4 millj. kr.) Salurinn var skreyttur með hvít- um liljum og kertum og frægir söngvarar og músík-fólk kom fram og skemmti gestum, sem margir hverjir voru þekktustu skemmti- kraftar heims, svo sem Eric Clapton, John Taylor úr Duran Duran, Mark Knopfler úr Dire Straits, söngkonan Shirley Bassey og fyrirsætan Jerry Hall (sambýlis- kona Mick Jaggers) - en þarna var þetta fólk í fríi og skemmti sér vel í afmælinu. Sambýlismaður Tinu er Erwin Bach, 34 ára af þýskum ættum. Þau búa saman í London, en Tina hefur dvalist þar síðan 1987 eftir að hún lauk heims-söngferðalagi sínu Afmælisbarnið skr‘ ;r við gestina

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.