Tíminn - 18.01.1990, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Miðvikudagur 17. janúar 1990
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaöur: Nafn umboðsmanns Heimili Simi
Hafnarfjöröur Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur LindaJónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgeröl IngviJón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut 3 93-41447
fsatjörður JensMarkússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavik ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd ÓlafurBernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-5311
Siglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hlíðarveig46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pótursson Árskógar13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Djúpivogur Jón Biörnsson Borgarlandi21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut16A 97-81796
Selfoss Margrót Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjam í nsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vik IngiMárBjörnsson Ránarbraut9 98-71122
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
O ! j
C^dda
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Símí 45000
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Námsvist í
Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum Islendingi skólavist
og styrktil háskólanáms í Sovétríkjunum háskólaáriö 1990-1991.
Umsóknum skal komið til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík, fyrir 15. febrúar n.k. og fylgi staðfest afrit prófskírteina
ásamt meðmælum.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
t
Maðurinn minn,
Benedikt Guðmundsson
bóndi, Staðarbakka
lést á Sjúkrahúsinu Hvammstanga, miðvikudaginn 17. febrúar.
Ásdís Magnúsdóttir.
t
Útför
Sigfúsar B. Sigmundssonar
kennara,
Blönduhlið 31, Reykjavik
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. janúar kl. 15. Blóm og
kransar eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins
látna er bent á Minningarsjóð S.Í.B.S. eða líknarstofnanir.
Anna G. Frímannsdóttir
Baldur F. Sigfússon Halldóra Þ. Halldórsdóttir
Sigmundur Sigfússon Ingibjörg Benediktsdóttir
Rúnar I. Sigfússon Björg östrup Hauksdóttir
og barnabörn.
IIIIIIIIIIIIHIIiíi LESENDUR SKRIFA lllllllllllllllllllllllllillllllilillllllllllllllllllllllllllllllllllllllililllllliilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
seytjándi
Hinn
Yfirgnæfandi meirihluti íslensku
þjóðarinnar er skírður til nafns heil-
agrar þrenningar. f>að getur því
varla verið nein goðgá að birta í
dagblaði orð úr Biblíunni um þá
heimssögulegu atburði sem eru að
gerast þessa dagana fyrir augum
vorum. Þetta ætti að vera auðvelt
þar sem kristin kenning er sú að Guð
sé Guð sögunnar, starfi í heimi og
stjómi heimsrásinni, þótt hann skýli
hönd sinni sjónum manna, að vísu
ekki aiveg, ekki alltaf. Hann fer
berum orðum um marga hluti, þar á
meðai hvers vænta megi. Strax í 4.
kafla Opinberunarbókarinnar segir
Jesús sjálfur, „votturinn trúi“ (1,5):
„Stíg upp hingað, og ég mun sýna
þér það sem verða mun eftir þetta.“
(4,1)
Þó að Opinberunarbókin fjalii um
tíma heimsslitanna, endi ríkjandi
heimsskipulags, og því mest um
Gyðingana, þá fjallar byrjuriin um
kirkjuna og undir lokin kemur hún
inn aftur. Seytjándi kaflinn fjallar
um atburði þá sem eru að gerast
þessa dagana. Ég ætla að fjalla um
þær lýsingar hans í örfáum orðum.
Bókin er að mestu leyti skrifuð á
táknmáli Biblíunnar. Það er því
nauðsynlegt að fjalla sérstaklega um
helstu táknin. Sum þeirra eru samt
skýrð berum orðum í textanum
sjálfum, tákn eins og vötn og hom.
Kaflinn byrjar á því að segja að nú
skuli skækjan mikla dæmd, sú sem
er við vötnin miklu og konungar
jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað
með. Konan er „borgin mikla sem
heldur ríki yfir konungum jarðarinn-
ar.“
Kirkjan er brúður Krists og ísrael
er eiginkona Jahves. Þannig eru
konur tákn fyrir kenningakerfi og
söfnuði þá sem myndast um kenn-
ingar trúarbragða og hugmynda-
fræða. Og þess vegna er dýrkun
falsguða hórdómur, á máli Biblíunn-
ar.
Vötnin sem konan situr við eru
lýðir og fólk, þjóðir og tungur. (15).
Hún hefur því fjöldafylgi. Lýðurinn
eltir hana. Þar sem íbúar jarðarinnar
hafa orðið drukknir af saurlifnaðar-
víni hennar, þá er augljóst að skækj-
an mikla er heimshyggja og falstrú-
arbrögð og þeirra söfnuðir. En til
þess að gera hana auðþekkjanlegri
er meira sagt um hana.
Skækjan situr á skarlatsrauðu dýri
alsettu guðlöstunarnöfnunum. Hún
er skrýdd purpura og skarlati, gulli,
gimsteinum og perlum. Hún er með
gullbikar fullan viðurstyggðar og er
það óhreinleikur saurlifnaðar
hennar. Á enni hennar er ritað nafn
sem er leyndardómur: Babýlon hin
mikla, móðir hórkvenna og viður-
styggða jarðarinnar. Hún er drukkin
af blóði hinna heilögu og Jesú votta.
Dýrið sem konan situr á hefur sjö
höfuð og tíu horn. Hornin eru
konungar (12). Konungur er þarna
sá sem hefur konungsvald, það er að
segja hefur ríkisvald. Stundum tákn-
ar orðið konungur þjóðfélagsgerð
eða þjóðfélagsforystu.
í 13. kapítula Opinbeninarbókar-
innar segir frá tveimur dýrum. Dýrið
sem konan situr á er annað þeirra.
Þessi dýr hef ég túlkað í bók minni
Ég er og skal ekki endurtaka þá
lýsingu hér, segi aðeins að skarlats-
rauða dýrið með guðlöstunarnöfnin
er Sovétríkin.
Konan sem situr á dýrinu, skækjan
mikla, er kommúnisminn og komm-
únistahreyfingin og þær ýmsu angalí-
ur kenninga sem þeim fyigja, enda
hefur kommúnismanum oft verið
líkt við trúarbrögð og jafnvel kirkju.
Ég kem þá loks að kjarna þessarar
greinar, lýsingu Opinberunarbókar-
innar á atburðum seinustu vikna, en
hún í síðari hluta 17. kaflans (12-18).
Hornin tíu eru konungar sem fá
vald sem konungar eina stund ásamt
dýrinu. Ein spádómsstund er 40 ár.
„Þessir hafa allir eitt ráð, og mátt
sinn og vald gefa þeir dýrinu."
Leiðtogar hinn kommúnistísku al-
þýðulýðvelda hafa allir tilheyrt hinni
alþjóðlegu kommúnistahreyfingu og
hlýtt húsbændunum í Moskvu. Þeir
hafa einmitt gefið dýrinu mátt sinn
og vald. En nú eru 40 árin liðin.
Síðan kemur hið undarlega: „Og
homin tíu, sem þú sást, og dýrið,
munu hata skækjuna og gjöra hana
einmana og nakta, eta hold hennar
og brenna hana í eldi, því að Guð
hefur lagt þeim í brjóst að gjöra vilja
sinn og vera samráða og gefa ríki
þeirra dýrinu, allt til þess að Orð
Guðs koma fram.“ (16-17). Á bak
við hina heimssögulegu atburði þess-
ara daga er því fingur Guðs.
Ég sagði: hið undarlega. Þarna er
sagt fyrir, að það muni verða forysta
kommúnistaríkjanna sem snúist
gegn kommúnismanum, skækjunni,
meira að segja forysta Sovétríkj-
anna. Forystusveitirnar munu leika
kenningar kommúnismans og
kommúnistaflokkana hraklega (éta,
brenna). Sá eldur sem mun brenna
kommúnismann getur naumast verið
neitt annað en brennandi hatur,
eldur hatursins, því að hornin tíu,
konungarnir, „hata skækjuna".
Dr. Benjamín H.R. Eiríksson
Sárreiður lesandi,
hlustandi, sjáandi
Leggðu það á þig að vera opin(n)
fyrir fréttum/heimsfréttum í, eigum
við að segja 6-10 mánuði, kannski
skemur. Þá á ég við fréttir í öllum
fjölmiðlunum. Þetta hef ég reynt á
sjálfum mér.
Hver verður svo útkoman? Jú, þú
ert litlu nær, þér finnst flest standa í
stað.
Vissulega eru það mikil gleðitíð-
indi hvernig mál leysast fyrir austan
jámtjald, þó er ekki allt sem sýnist.
Nei, góði lesandi, það eru trúar-
brögðin, hin ólíku trúfélögþjóðanna
sem öllum glundroðanum valda um
heim allan. Trúarleiðtogar þjóðanna
eru, ef grannt er skoðað, hinir
raunverulegu ráðamenn. Ef þeir
koma sér ekki saman logar allt sem
getur brunnið. Hinir pólitísku ráða-
menn eru máttlitlir, þeim tekst aldrei
að koma á friði í heiminum.
Mér er sama hvað hver segir. Hin
ólíku trúarbrögð hafa lítið sem ekk-
ert breyst í gegnum aldirnar. Lftið
nálgast hver önnur, þó öll stefni að
sama marki. Það er einna helst að
Lúter virði páfann eða öfugt. Búið
heilagur. Þá em öll hin eftir, Guð
má vita hvað þau eru mörg, en þau
stærstu getur maður talið á fingmm
sér.
í raun er þetta mjög einfalt dæmi.
Ef þeir sem öllu ráða í heiminum í
dag, og þá er ég kominn að kjama
málsins, það er að beita vopnum í
þágu friðar, ef þessir háu herrar
krefðust þess í valdi vopna sinna að
trúarleiðtogar þjóðanna talist við og
semji ævarandi frið, geta jarðarbúar
andað léttar um aldamót.
„Maðurinn“ í dag getur búið yfir
þvílíkri menntun, kunnáttu, að sól-
kerfi okkar er í hættu.
Ef ekki er unnt að komast stystu
leið að meininu nú þegar er voðinn
vís. Annars er það furðulegt að ekki
hafi verið vakin athygli á þessu fyrr,
eins og það í sjálfu sér er einfalt. Nú
er bara að hamra járnið á meðan það
er heitt.
Ég segi eins og þeir á Stöð ’90:
Boltinn er hjá þér, lesandi góður.
Hassi
Óvæntur stuðningur við LV
Það var býsna skondið að lesa
pistilinn, sem Geir Thorsteinsson
var með hér í þættinum fyrir nokkr-
um dögum og átti að vera svar við
athugasemdum Landssambands
veiðifélaga varðandi verðlag á stang-
veiddum laxi. Var ekki annað að sjá,
en að hann staðfesti sjálfur með
útreikningi sínum um verðlag á laxi
í Norðurá á komandi sumri, að LV
talan kr. 9.300.- fyrir laxinn 1988 sé
rétt en ekki röng, eins og Geir
heldur fram.
Geir segir að laxinn í Norðurá
kosti kr. 14.500 sumarið 1990, miðað
við árlegt meðaltal seinustu 10 ára í
ánni. Sé nú gert ráð fyrir verðlags-
hækkun áranna 1988 til 1990 yrði
verðið hjá LV, kr. 9.300, komið í
um 14 þús. kr. 1990, ef sú yrði
raunin. En þróunin í verðlagi hefur
alls ekki verið sú, eins og fram kom
í grein LV hér í blaðinu. Það ræður
auðvitað verðinu hvemig veiðin
gengur fyrir sig og samningar milli
aðila um breytingar milli ára verða,
eins og dæmið frá Norðurá sýnir.
Nú er vitað, að Geir hefur haldið
því fram, sbr. kúrfuna, sem birtist í
DV, að verðlag á laxi í Norðurá hafi
verið ríflega 40 þúsund krónur 1989
og því var slegið upp í blöðum, að
meðalverð á laxi hafi verið um 24
þúsund krónur, sbr. upplýsingar frá
GeirThorsteinsson. Nýjustu upplýs-
ingar Geirs um verðlag á laxi í
Norðurá sumarið 1990 eru fróðlegar
og býsna langt frá fyrri tölum hans
um verð á laxi í ánni, þó að tekið
væri tillit til fráviks ársins 1989 frá
meðaltali 10 áranna. Sýnist mér að
það muni um 120%, sem talan í
kúrfunni frægu er hærri en útkoma
úr því dæmi 1989. Má það teljast
góður árangur á ekki lengri tíma en
liðinn er frá því hann birti grein sína
í Sportveiðiblaðinu. Væntanlega
heldur verðið áfram að lækka eftir
því sem meira er reiknað og reiknað.
Ég hygg að Landssamband veiði-
félaga og ekki síst Veiðifélag
Norðurár, sem Geir taldi vera með
næstum dýrasta laxinn 1989, megi
vel við una, hversu Geir Thorsteins-
son leggur sig nú vel fram um að
sýna haldleysi sitt í útreikningi á
verðlagi á laxi í stangaveiðiám, sem
birtist í Sportveiðiblaðinu.
eh.