Tíminn - 18.01.1990, Qupperneq 19
Fimmtudagur 18. janúar 1990
Tíminn 19
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur - VÍS-keppnin:
Bikarinn á leið í Fjörðinn
Mikil barátta ríkti á fjölum Laug- ingar tóku á móti FH-ingum í 1.
ardalshallar í gærkvöld þegar KR- deildinni í handknattleik. Spenna
var einnig mikil lengst af, en undir
lok leiksins misstu dómararnir
endanlega tökin á leiknum, en það
breytti engu um úrslitin sem voru
öruggur FH sigur. Þar með er Hafn-
arfjarðarliðið komið með aðra hönd
á íslandsbikarinn.
KR-ingar tóku þá Héðinn Gilsson
og Óskar Ármannsson báða úr um-
Guðjón Árnason lék vel í gærkvöldi fyrir lið sitt FH og hér er eitt 5 marka hans í leiknum í uppsiglingu.
Tímamynd Pjelur
ferð og við það riðlaðist sóknarleikur
FH-inga mjög. Guðjón Árnason lék
þó lausum hala og hélt FH á floti.
Hinu megin á vellinum voru þeir allt
í öllu í sóknarleik KR-inga Páll
Ólafsson eldri og Stefán Kristjáns-
son. Hálfleikurinn var hnífjafn, en
undan er skilinn kafli þar sem FH-
ingar náðu tveggja marka forystu.
Jafnt var í leikhléinu 10-10.
FH-ingar gerðu út um leikinn með
góðum leik í upphafi síðari hálfleiks.
Þeir komust í 14-11 og KR vörnin
svaf værum blundi. Þessi munur
hélst nokkurn vegin út hálfleikinn,
en um tíma leit út fyrir að FH-ingar
væru að missa leikinn úr höndum sér
er þeir misstu 18-13 forskot niður í
18-16.
Undir lok leiksins misstu þeir
Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
Sigurjónsson dómarar leiksins
endanlega tökin á leiknum, en þeir
höfðu verið ákaflega óöruggir í gerð-
um sínum. Leifur Dagfinnsson
markvörður KR trylltist vegna þess
hve óánægður hann var með störf
þeirra svartklæddu og fékk fyrir
vikið rautt spjald.
FH-ingar höfðu betur í því upp-
lausnarástandi sem ríkti á vellinum
síðustu mín. leiksins og tryggðu sér
öruggan 24-22 sigur.
„Við áttum í erfiðleikum fyrir
þennan leik vegna þess að tveir
leikmenn meiddust, en vörnin gekk
vel hjá okkur í fyrri hálfleik. Slæmi
kaflinn í upphafi síðari hálfleiks
gerði út um leikinn fyrir okkur, við
misstum taktinn og FH vann verð-
skuldaðan sigur. Dómararnir misstu
tökin á leiknum, þeir leyfðu hörku
og mótmæli leikmanna í 54 mín. en
Margt smátt
London. Hinn 30 ára gamli Mick
Harford, sem er fyrrum ensku lands-
liðsmaður í knattspymu hefur verið
seldur frá Luton til Derby fyrir 800
þúsund pund. Harford lék á laugar-
daginn sinn fyrsta heila leik á þessu
keppnistímabili þegar Luton gerði
2-2 jafntefli við Liverpool á Anfield
Road. Harford hefur gengist undir
fjórar hné og þrjár ökkla aðgerðir á
síðustu fjórum árum.
London. Úrslit í ensku deildarbik-
arkeppninni í fyrrakvöld urðu þau
að Southampton vann Swindon 4-2 í
framlengdum leik, en Swindon hefði
náð 2-2 forystu í leiknum. South-
ampton mætir Oldham í 8-liða úrslit-
um keppninnar.
London. Tveir leikir voru í fyrra-
kvöld í 8-liða deildarkeppninni á
Evrópumóti bikarhafa í körfuknatt-
leik. PAOK Salonika frá Grikklandi
vann Partizan Belgrad frá J úgóslavíu
93-81. í Sovétríkjunum urðu þau
úrslit að Zhalgiris Kaunas sigraði
Ostend frá Belgíu 101-82.
New York. í NBA-körfuknatt-
leiknum voru fjórir leikir í fyrrinótt.
Úrslit urðu þessi:
Milwaukee Bu.-Golden State W. . 134-126
L.A.Clippers-Charlotte Hom. . . . 106- 98
PortlandTrailBl.-DenverNu. ... 120-115
Sacramento Kings-Atlanta Hawks . 108- 91
Blak:
Þróttarar ekki í
vandræðum með HK
Um síðustu helgi fóru fram sex
leikir í 1. deild karla og kvenna í
blaki.
Á Akureyri sigruðu KA lið HSK
3:0, Þróttur Neskaupstað vann Fram
3:1 og Þróttur Reykjavík bar sigur-
orð af HK 3:0 í karlaflokki. í
kvennaflokki sigraði Breiðablik
Þrótt Neskaupstað fyrir austan 3:1.
Reykjavíkurþróttur vann HK í
Digranesi 3:0 og Víkingur hafði
betur gegn ÍS, 3:0.
Létt hjá KA
KA sigraði HSK auðveldlega 3:0,
15/9, 15/6 og 15/9. HSK mætti með
varalið sitt til Akureyrar og léku án
Sigfinns Viggóssonar og Péturs
Guðmundssonar. Þetta varalið hafði
lítið í KA liðið að gera. I fyrstu hrinu
komst KA í 7/0 en HSK mönnum
tókst að jafna. Þá skreið KA framúr
og sigraði hrinuna 15/9. Seinni tvær
hrinumar vom síðan léttar hjá KA
og gátu þeir leyft sér að nota 1.
flokks lið sitt. Hjá HSK var skástur
af slöku liðinu Bjarki Guðmundsson
en hjá KA var það Stefán Magnús-
son sem reyndist HSK mönnum
Karlar ÍS 9 9 0 27 7 18 létt æfing fyrir KA.
KA 9 8 1 26 6 16 Barátta í Neskaupstað
ÞrótturR. 10 5 5 19 19 10 Botnliðin Þróttur Neskaupstað og
HSK 10 4 6 16 22 8 Fram áttust við í Neskaupstað.
HK 9 3 6 13 20 6 Þróttur sigraði í leiknum 3:1 15/9,
ÞrótturN. 11 3 8 16 27 6 15/13, 14/16 og 15/10. Þessi leikur
Fram 8 1 7 7 23 2 þótti frekar slakur og ekki vel leik-
inn. Fyrsta hrina var örugg hjá Þrótti
Konur en næstu tvær einkenndust af mikilli
Víkingur 9 7 2 25 10 14 baráttu. f síðustu hrinu gaf sig
UBK 7 6 1 19 6 12 úthaldið hjá Fram og Þróttur sigraði
KA 8 6 2 20 10 12 örugglega 15/10. Hjá Þrótti vakti
ÍS 9 5 4 20 15 10 athygli 3. flokks piltur, ívar Kristins-
ÞrótturN. 11 4 7 17 26 8 son, en hann þykir með hærri mönn-
ÞrótturR. 9 3 6 9 19 6 um þar fyrir austan. Lið Fram var
HK 9 0 9 27 0 jafnt og eru þeir í lélegri æfingu.
Lið UBK átti ekki í vandræðum
með kvennalið Þróttar og vann 3:1
5/15, 15/5, 15/1 og 15/4. í fyrstu
hrinu voru Þróttarar sprækir en
síðan hrundi liðið og átti sér ekki
viðreisnar von eftir það. Þar með
náði Þróttur ekki að fylgja eftir
góðum leik, en þær sigruðu íslands-
meistara Víkings um síðustu helgi.
Hjá Þrótti vakti athygli Sesselja
Jónsdóttir, en liðið átti ekki mögu-
leika í þessum leik. Hjá Breiðablik
var best í jöfnu liði Sigurborg Gunn-
arsdóttir. Þær lentu ekki í mikilli
mótspyrnu og eiga nú mikla mögu-
leika á deildarmeistaratitlinum.
Þróttur á aðeins fræðilega möguleika
á að komast í 4 liða úrslitin.
Þróttur bætir stööu sína
f Digranesi áttust við HK og
Þróttur. í karlaflokki sigraði Þróttur
3:0 15/12, 15/13 og 15/12. Þessi
leikur var mikill baráttuleikur og oft
sáust skemmtileg tilþrif, fastir skellir
og góðar lágvarnir. Fyrsta hrinan
var mjög jöfn allan tímann. Jafnt var
11/11 en þá sigu Þróttarar fram úr og
sigruðu 15/12. f annarri var Þróttur
með örugga forystu framanaf. Tölur
eins og 10/5 ogh 13/8 sáust. Þá tóku
HK menn sig á og minnkuðu muninn
í 14/13 með mjög góðum leik en
náðu ekki að fylgja því nógu vel
eftir. f þriðju hrinu náði HK 4 stiga
forystu 12/8 en þá misstu þeir alla trú
á sjálfa sig. Þróttur gekk á lagið og
sigraði 15/12. Eins og áður sagði var
þetta mjög skemmtilegur leikur.
Einar Þór Ásgeirsson Þróttari
reyndist fyrrverandi félögum sínum
erfiður, skellti oft mjög vel. Aðrir
Þróttarar höfðu sig ekki í frammi, en
æ sjaldgæfara er að sjá gott miðjuspil
hjá þeim, sem var þeirra sterkasta
vopn hér áður fyrr. Hjá HK voru
bestir Vignir Hlöðversson og Stefán
Sigurðsson. Karl Sigurðsson átti
einnig góða spretti. HK menn áttu
alls ekki skilið að tapa þessum leik
3:0. Liðið er mjög ungt og léttleik-
andi og á ekkert lið er eins gaman að
horfa og HK. Þá vantar hins vegar
meiri stöðugleika í leik sinn og í
krítískri stöðu reyna þeir stundum
leikkerfi sem þeir ráða ekki almenni-
lega við. Einnig hefði mátt nota
meira Geir Hlöðversson í uppspil-
arahlutverkið í fyrri tveim hrinun-
um, en hann ræður yfir meiri reynslu
en flestir aðrir í liðinu. Annars
virðist mikið lánleysi fylgja liðinu.
Þrátt fyrir góða frammistöðu gengur
illa að klára dæmið. HK menn þurfa
þó ekki að kvíða framtíðinni. Ef
þeir ná að halda þessum mannskap
verður íslandsmeistaratitillinn
þeirra innan fárra ára.
Þróttur sigraði einnig í kvenna-
flokki þessara liða 3:0 15/8, 15/1 og
15/13. Jafnt var í fyrstu hrinu 7/7 en
þá seig Þróttur fram úr og sigraði
15/8. Onnur hrinan var einstefna og
tók heilar 10 mín. í þriðju komst
Þróttur í 14/5 en HK tókst að
minnka muninn í 14/13 áður en
Þrótti tókst að ná síðasta stiginu.
Hjá Þrótti voru bestar uppspilarinn
Metta Helgadóttir en HK liðið var
lélegt, eins og í flestum leikjum í
vetur. Þessi leikur var frekar dapur
og greinilega um leik botnliða að
ræða.
Víkingur sigraði ÍS 3:0 í kvenna-
flokki 15/11,15/5 og 15/12. Víkingur
átti ekki í vandræðum með ÍS eftir
tvo tapleiki í síðustu leikjum. Helst
var það í síðustu hrinunni sem ÍS
stóð í Víkingi. Leikurinn var frekar
slakur og lítið um góð tilþrif.
Staðan í 1. deild karla og kvenna
er nú þessi:
6 síðustu mín. breyttu þeir út af og
slíkt er ekki eðlilegt,“ sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson þjálfari KR-inga
eftir leikinn.
Bestir hjá FH voru markverðirnir,
Guðmundur í fyrri hálfleik og Berg-
sveinn í þeim síðari og Guðjón var
góður í fyrri hálfleik og Héðinn í
síðari hálfleik. Hjá KR Vörðu þeir
Leifur og Gísli Felix ágætlega og
Stefán stóð fyrir sínu og Páll var
mjög góður framan af.
Mörkin KR: Páll 8, Stefán 7,
Sigurður 4, Konráð Konráð 2 og
Einvarður 1. FH: Héðinn 6, Guðjón
5, Jón Erling 4, Óskar 3/3, Gunnar
3, Þorgils Óttar 2 og Hálfdán 1.
BL
LESTIINARÁfETLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Skip..........
10/2
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga
SKIPADEIID
r^SAMRANDS/NS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi
105, Reykjavík, sími 698300
Á Á A á k l A
ÍAKN IRAUSIPA IUJININC.A