Tíminn - 22.03.1990, Blaðsíða 17

Tíminn - 22.03.1990, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 22. mars 1990 Tíminn 17 »» i r Lvimou ■ m nr Eru íslendingar B-þjóð í umferðarmálum Fræðslufundur um umferðarmál í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands fimmtudaginn 22. mars n.k. kl. 21.00. Framsögumenn verða: Óli H. Þórðarson, framkvst. umferðarráðs. Hergeir Kristgeirsson, lögregluþjónn. Páll Guðmundsson, landpóstur. Sigurður Helgason, fulltrúi Klúbbs 17. Að loknum framsöguerindum verða fyrirspurnir og frjálsar umræður. Allir velkomnir. FUF-Árnessýslu. Aðalfundur Framnes hf„ Hamraborg 5, Kópavogi verður haldinn laugardaginn 24. mars 1990 og hefst kl. 10.00 f.h. í húsi félagsins. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða rædd húsnæðismál félagsins. Stjórnin Borgarnes - Félagsvist Félagsvistinni sem vera átti 9. mars hefur verið frestað. Þriggja kvölda keppni hefst 23. mars kl. 20.30 í Félagsbæ. Framsóknarfélag Borgarness Kópavogur - Bingó Fjölskyldubingó að Hamraborg 5, sunnudaginn 25. mars kl. 15. Framsóknarfélögin Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Framsóknarfélag Kjósarsýslu heldur félagsfund fimmtudaginn 22. mars n.k. kl. 20.30 í Hlégarði. Fundarefni: Málefnasamningur Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Kvennalista. Stjórnin Norðurland eystra Skrifstofa Framsóknarflokksins Hafnarstræti 90, Akureyri er opin alla virka daga frá kl. 16-19, sími 96-21180. REYKJANES Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222. KFR. Reykjavík Létt spjall á laugardegi Kosningauridirbúningurinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor verður umræðuefni þessa fundar. Allir velkomnir Fulltrúaráðið. Selfoss Viðtalstími L.F.K. Ingibjörg Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi verðurtil viðtals fimmtudaginn 22. mars n.k. kl. 15.00-17.00 á skrifstofu Framsóknarflokksins, Eyrarvegi 15. Allir velkomnir. L.F.K. Kópavogur - Kosningaskrifstofa Kosningastarfið er í fullum gangi. Opið hús alla virka daga frá kl. 13.00-19.00 laugardaga frá kl. 10.00-19.00 Sími 41590 Framsóknarfélögin í Kópavogi. Akranes - Bæjarmál Fundur verður haldinn í Framsóknarhúsinu laugardaginn 24. mars kl. 10.30. Fundarefni: 1. Bæjarmálefnin 2. Kosningarnar framundan Allir velkomnir. Bæjarfulltrúarnir Díana og John Travolta leikari dansa í Hvíta húsinu í boði hjá Nancy og Ronald Reagan, en þau sjást í bakgrunnl „ÁRATUGUR DIÖNU“ Hún byrjaði 9. áratuginn sem lagleg og hlédræg ung fóstra, en í lok áratugarins var Díana prinsessa kosin glæsilegasta kona Bretland Engu er líkara en hér sé æfð sýning- ardama á ferðinni, en þama er Díana að opna nýjan bamaspítala. Hún er f rauðri dragt sem fatahönnuðurinn Catharine Walker teiknaði sérstak- Kari Bretaprins er mikill dansari og hér sjást þau hjón dansa saman í Mel- boume þegar þau vom þar í Ástralíuheimsókn sinni. Tískusérfræðingar hældu Díönu fyrir fmmlega notkun á smargaða- og demantahálsbandi Mary ekkjudrottningar, en Díana notaði það sem ennisband í Bandaríkjaför þeirra hjóna, Karls Bretaprins og Díönu, var oft í blöðum talað um glæsilega framkomu og klæðaburð hennar. Einkum vakti dökkblár flauel- skjóll hennar hrifningu í kvöld- verðarboði i Hvíta húsinu. Þar kom greinilega fram dansáhugi prinsessunnar, en gestimir urðu yfir sig hrifnir þegar þau dönsuðu saman, Diana og leikarinn/dans- arinn frægi, John Travolta (Satur- day Night Fever o.fl. dansmynd- ir). Travolta sagði, að Díana dans- aði á við bestu atvinnu- dansara. í byrjun þessa árs efndi tímaritið „Hello“ til skoðana-könnunar um glæsilegust konu 9. áratugarins í Bretlandi. Það kemur sjálfsagt ekki á óvart, að Diana prinsessa vann með miklum yfirburðum, hún fékk yfir 56 % atkvæðanna. Einkum var henni hælt fyrir fal- legt fas og göngulag. Margir sögðu að hún bæri sig eins og besti ballettdansari. Það er reyndar raunin, að Díana hefur stundað ballett og hafði sem ung stúlka mikinn áhuga á dans- námi, en hún varð of hávaxin til þess að það gæti orðið alvara úr dansiðkun hjá henni, en hæð hennar hefur orðið til þess að hún ber tískuklæðnaði eins og færasta sýningardama. Philip Somerville hirðklæðskeri segir um Díönu: „Hún finnur oft upp á breytingum við teikningar mínar og kemur með tillögur, sem ég hefði gjaman viljað að væru mínar uppástungur, því að breyt- ingar- tillögur prinsessunnar em alltaf smekklegar og oft mjög ný- stárlegar og skemmtilegar.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.