Tíminn - 15.02.1992, Page 16
16 Tíminn
Laugardagur 15. febrúar 1992
r MINNING
Eiríkur Metúsalemsson Kjerúlf
Síðustu árin hefur verið stutt stórra
högga á milli hér í Fljótsdal. Þrír
eldri bændur hafa kvatt. Síðastur
þeirra var Eiríkur bóndi í Vallholti.
Eiríkur veiktist alvarlega í fyrra-
haust, en hafði verið hraustur lengst
af sinnar ævi. í æsku tók hann samt
berkla og lenti um tíma á sjúkra-
húsi, en yfirsteig þá. Eftir rannsókn
lækna á Egilsstöðum og í Neskaup-
stað var Eiríkur sendur suður á
Landspítalann þar sem hann lá lengi
milli heims og helju. En lífið er
sterkt. Hann komst út af sjúkrahúsi
og heim til sín um áramót. Var hann
þá hinn hressasti, a.m.k. í andanum,
þegar ég hringdi til hans, sagðist
hlakka mest til að éta sinn góða
sveitamat. Hann var þó í ströngu eft-
irliti sunnanlækna, sem boðuðu
hann af og til suður. Eiríkur puðaði
eitthvað, að hann sagði, en heima
var lítið að starfa. Búpeningurinn
dauður og grafinn. Eiríkur veiktist
snögglega sl. vor, og andaðist í flug-
Ásmundur Sigurðsson frá Reyðará
í Lóni, fyrrum alþingismaður, lést
8. febrúar s.l., 88 ára að aldri.
Ásmundur var bóndi á Reyðará í
allmörg ár, en jafnframt kennari á
ýmsum stöðum í Austur-Skafta-
fellssýslu.
Hann var í framboði fyrir Sósíal-
istaflokkinn í Austur-Skaftafells-
sýslu í fyrstu kosningum flokksins
1942 og síðan áfram meðan gamla
kosningaskipanin hélst. Eftir kjör-
dæmabreytinguna 1959 var hann á
framboðslista sósíalista í Austur-
landskjördæmi.
Ásmundur tók sæti á Alþingi sem
varamaður, 1944,1945 og 1946, en
var síðan landskjörinn þingmaður
1946-1953. Kom síðan á þing 1960
og enn 1966 sem varaþingmaður
Austurlandskjördæmis. Samstarf
okkar Ásmundar á Alþingi og í
bóndi í Vallholti
vél milli Egilsstaða og Reykjavíkur
þann 11. maí (1991).
Það er gott að fara svona snöggt
þegar þessum aldri er náð, og ekki
hrjáði ellihrumleikinn Eirík, því
hann mátti heita í fullu starfi og al-
veg með heilum sönsum, er hann
kvaddi þetta líf.
Nú er skarð fyrir skildi. Eiríkur var
vinsæll og var hans mjög saknað hér
í sveitinni. Það myndast ávallt eitt-
hvert tóm þegar fólk deyr. Eiríkur
var traustur maður í orði og á borði.
Þó var hann í eðli sínu hlédrægur og
tranaði sér aldrei fram, en innilegur
í viðmóti strax við íyrstu sýn. Hann
hefði alveg eins getað verið ráðu-
neytisstjóri, umgerð mannsins gat
boðið upp á það. En það hvarf eins
og dögg fyrir sólu um leið og yrt var
á Eirík. Hann var allra manna vina-
legastur, hvers manns jafningi, hisp-
urslaus og gamansamur.
Eiríkur var fæddur á Hrafnkels-
stöðum 30. okt. 1915, og alinn þar
Sósíalistaflokknum var því orðið
langt og mikið.
Skoðanir okkar Ásmundar fóru
vel saman. Hann reyndist mér
einn besti og traustasti samstarfs-
maður sem ég hefi átt. Ásmundur
var sannur sósíalisti. Hann var af
þeirri gömlu og góðu gerð sósíal-
ista, sem fann óréttlætið á ýmsum
sviðum þjóðfélagsins og sá rang-
láta skiptingu þeirra verðmæta,
sem sköpuð höfðu verið, oftast
með mikíu erfiði og trúmennsku í
starfi.
Ásmundur var sósíalisti, sem sá
að fátækir bændur í sveitum
landsins áttu hagsmunalega sam-
leið með verkamönnum bæjanna.
Hann fann að sósíalismi þeirra,
sem vildu æsa bændur gegn verka-
mönnum og bæjarbúa gegn sveita-
fólki, var rangur sósíalismi. Ás-
upp í glöðum og fjölmennum systk-
inahópi. Metúsalem faðir Eiríks var
sonur Jóns Andréssonar Kjerúlf, og
Aðalbjargar Metúsalemsdóttur frá
Möðrudal (af Burstarfellsætt). Þau
bjuggu á Melum. Andrés Kjerúlf var
einkasonur Jörgens Kjerulf iæknis,
er hingað fluttist frá Kaupmanna-
höfn að Brekku í Fljótsdal 1819.
Hann átti Önnu Jónsdóttur, Þor-
steinssonar á Melum, sem Melaætt
er talin frá. Guðrún, kona Metúsal-
ems, var Jónsdóttir, Vigfússonar,
Jónssonar, fædd á Hólum í Nesjum,
Hornafirði. (Bróðir Jóns Andrésson-
ar var Þorvarður læknir á Ormars-
stöðum í Fellum). Börn þeirra
Metúsalems og Guðrúnar urðu 17
talsins. Þau dóu nokkur í æsku. Ei-
ríkur var þriðji að ofan og varð hann
því ungur að fara að vinna við bú-
störfm á stórbúi foreldra sinna.
Hann var ólatur og lærði snemma
að vinna, enda var vinnan hans
skóli, sem entist honum vel í lífinu.
mundur hlaut því að skipa sér í
raðir okkar róttækra sósíalista. Ás-
mundur Sigurðsson varð einn af
bestu talsmönnum okkar sósíalista
á sviði landbúnaðarmála.
Hann tók saman mjög gagnlegan
bækling um „Erindi Sósíalista-
flokksins til bænda“ árið 1946. Og
hann skrifaði margar greinar um
landbúnaðarmál, enda var hann
einn gagnfróðasti maður um þau
mál sem ég þekkti.
Vinátta okkar Ásmundar var
traust og góð frá því við fyrst
kynntumst. Ég leitaði oft til Ás-
mundar, þegar ég vildi ræða
vandamál við góðan félaga. Hann
var gætinn, vandvirkur og sann-
gjarn í dómum um menn og mál-
efni.
Ásmundur tókst á hendur marg-
vísleg trúnaðarstörf á vegum okkar
Hann naut ekki annarrar skóla-
göngu en hinnar skyldugu barna-
fræðslu frá 10 ára aldri til fermingar,
eitthvað 2 mánuði á vetri.
Á Hrafnkelsstöðum var á þessum
árum stærsta fjárbú sveitarinnar.
flokks. Hann var lengi fulltrúi
flokksins í Nýbýla- og landnáms-
stjórn. Hann vann í landbúnaðar-
nefndum og í fjárveitinganefnd Al-
þingis. Hann var um tíma yfirskoð-
unarmaður ríkisreikninga. Síðustu
starfsár sín vann Ásmundur í Bún-
aðarbankanum og naut þar trausts
og virðingar eins og annarsstaðar.
Um leið og ég kveð vin minn og
samherja Ásmund Sigurðsson, vil
ég og kona mín Fjóla þakka konu
Ásmundar, Guðrúnu Árnadóttur
hjúkrunarkonu, fyrir vinskap og
vinarhug sem hún og Ásmundur
sýndu okkur.
Það var alltaf ánægjulegt og hlý-
legt að koma á heimili þeirra Guð-
rúnar og Ásmundar.
Minningin um góðan dreng og
traustan félaga mun lifa.
Lúðvík Jósepsson
Var Eiríkur strax um fermingu orð-
inn fullgildur fjármaður á því búi.
Fermingarárið var hann látinn passa
140 lömb á eigin spýtur. Fljótt fór
orð af leikni hans í fjármennsku og
hversu hann var fjárglöggur. Hrafn-
kelsstaðir eru góð beitarjörð, land-
rými mikið, engjar heldur reytings-
samar en heygóðar. Afkoman réðst
mest af flinkri fjárpössun, og oft
þurfti að fara sparlega með stráið.
Lömb Metúsalems þóttu jafnfalleg í
svo stórri hjörð. (Fjárbú Metúsalems
varð landsfrægt og var ýmislegt um
það ritað).
Eiríkur og Droplaug kona hans
fengu skipt landi utan af Hrafnkels-
stöðum, þegar þau fóru að búa sjálf-
stætt, og reistu þar nýbýlið Vallholt
á árunum 1946-48, skammt frá
gömlum beitarhúsum sem heita
Hrólfsgerði. Bærinn stendur á holti
eða hól, nokkuð hátt fyrir ofan dal-
botninn, og bratt niður frá honum.
Bæjarstæðið er sérstakt og þaðan er
mikið og fagurt útsýni yfir dalinn og
út á Lagarfljót, en Hengifoss blasir
við í hlíðinni á móti. Landið er ekki
stórt og ræktunarmöguleikar litlir
heima við, en úti á Gilsárnesi er
töluvert undirlendi ræktanlegt. Yst í
landinu er allstór birkiskógur, sem
Ranaskógur nefnist, beinvaxinn og
fagur. Skógurinn var ítak frá Víði-
völlum ytri, en Eiríkur keypti hann
af Víðivallabændum kringum 1950.
r
Asmundur Sigurðsson
Keflavík —
Suðurnes
I tilefni af 75 ára afmæli Framsóknarflokksins verð-
ur hátíðafundur i Framsóknarhúsinu i Keflavík
laugardaginn 15. febrúar kl. 15.00.
Steingrimur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins, mætir.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Keflavíkur. steingrimur
Námskeið í nýju formi
Á næstu vikum mun Landssamband framsóknarkvenna
bjóða upp á „námskeið i nýju formi“.
Hagnýt lögfræði
Námskeiöinu er ætlað að veita þátttakendum hagnýta fræðslu um al-
menn lögfræðiatriði, svo sem afsöl, algenga samninga, meginreglur
erfðaréttar og sifjaréttar. Þá verður sérstaklega fjallað um stofnun og slit
hjúskapar og hver er réttarstaða einstaklinga annars vegar í óvigðri
sambúð og hinsvegar í hjónabandi. Námskeiðið er tvö kvöld og er há-
marksfjöldi á námskeiði 15 konur.
Kennarí er Sigríður Jósefsdóttir.
Byrjendanámskeiö i ræðumennsku
Hér er á ferðinni byrjunamámskeið í ræðumennsku. Hámarksfjöldi þátt-
takenda er 10. Námskeiðið 4-5 kvöld.
Kennarí er Katrín Yngvadóttir.
Framhaldsnámskeiö í ræðumennsku
Ætlast er til að þátttakendur á þessu námskeiði hafi tileinkað sér grunn-
tækni f ræðumennsku. Hámarksfjöldi er 10 konur. Námskeiðið er 4
kvöld.
Kennari er Katrin Yngvadóttir.
Ákveðnlnámskeiö
Námskeiðinu er ætlað að efla öryggi og sjálfsvitund. Hámarksfjöldi er
12-14. Námskeiðið er 3-4 kvöld.
Kennari er Steinunn Harðardóttir.
Landssamband framsóknarkvenna
Létt spjall á laugar-
degi — Reykjavík
Léttspjallsfundur á laugardegi verður haldinn í
Flokksmiöstöö Framsóknarflokksins,
Hafnarstræti 20, III. hæð, laugardaginn 15. febrúar
kl. 10.30.
Umræðuefni: Þingstörfin framundan.
Umræðuna innleiðir Finnur Ingólfsson alþingism.
Fulltrúaráðið.
Keflavík
Fulltrúaráðsfundur verður haldinn mánudaginn 17. febrúar kl. 20.30 að
Hafnargötu 62.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun Keflavikurbæjar.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
Kópavogur
Skrifstofan að Digranesvegi 12 verður framvegis opin á laugardögum kl.
10.00-12.00.
Litið inn og fáið ykkur kaffisopa og spjallið saman.
Framsóknarfélögin i Kópavogi.
MUNIÐ
að skila tilkynningum í
flokksstarfið tímanlega -
þ.e. fyrir kl. 4 daginn fyrir
útkomudag.
Rangæingar —
Félagsvist
Spilum félagsvist i Hvoli, sunnudagskvöld 16. feb. og 1. mars, kl. 21.
Seinni tvö kvöldin I fjögurra kvölda keppni þar sem þrjú bestu gilda
til aðalverölauna.
Aðalverðlaun eru gisting í sex nætur að eigin vali fyrir tvo m/morgunverði
hjá Ferðaþjónustu bænda.
Gód kvöldverðlaun.
Framsóknarfélag Rangæinga.
Framsóknarvist
Reykjavík
Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 16.
febrúarn.k. i Danshúsinu, Glæsibæ, kl. 14.00.
Guðmundur Bjamason alþingismaður
fíytur stutt ávarp I kaffihléi.
Veitt verða þrenn verölaun karia og kvenna. Guðmundur
Aðgangseyrir kr. 500.- (kaffiveitingar innifaldar).
Framsóknarfétag Reykjavíkur.
Almennir stjórnmálafundir
Framsóknarflokksins
Þingmenn Framsóknarflokksins efna til almennra
stjórnmálafunda i öllum kjördæmum landsins á timabilinu
26. janúar til 18. febrúar.
REYKJAVÍK:
18.02. Hótel Sögu, Súlnasal kl. 20.30
Finnur Ingólfsson, Steingrímur Hermannsson
Fundimir eru öllum opnir, veríð velkomin
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Finnur