Tíminn - 09.05.1992, Síða 10

Tíminn - 09.05.1992, Síða 10
10 Tíminn Laugardagur 9. maí 1992 Hin austræna dulúö jók trúna á lækningamætti elixírs herra Valdimars í Frederikshavn. Kínverjinn með alasið Á seinni hluta fyrri aldar tóku ýmis kraftaverkalyf að bjóðast kvefuðum og brjóstveikum lýð á íslandi. Og undirtektirnar létu ekki á sér standa. Það var fyrir rúmurn hundrað árum: Úti í ná- lægum löndum, hand- an Atlantshafsins, hafði mönnum tekist að setja saman dropameðal, er hafði hin undraverð- ustulækningaáhrif. Það var sett á ofurlitlarflösk- ur, sem tóku nokkra munnsopa. Þær voru skreyttar fagurlitum miða, og á honum var mynd af Kínverja með glas í hendi. Merkið var auðskilið hverjum hugsandi og athugul- um manni: Kínverjinn var ímynd hinnar dul- rænu visku, en glasið var tákn þess, að hverjum og einum skyldi Ijúflega boðið að bergja af heilsubrunni þeim, er náttúran hafði látið upp Ijúkast til blessunar fyrir mann- kynið. Heilsubrunnur frá Frederikshavn Heilsubrunnur þessi hafði opnast í Danaveldi, nánar tiltekið í bænum Frederikshavn. Og sá, sem dældi úr uppsprettunni og tappaði á litlu flösk- umar, hét Valdimar Petersen. Þegar hann hafði sett innsigli sitt: W.P7F. í grænt lakk yfir stútinn, voru flöskum- ar sendar út í heiminn, en meðalið í þeim nefhdist Kína-lífs-elbcír. Kínverjanum með glasið í hendinni var víða tekið opnum örmum. í raun- inni fór hann sigurför um löndin, ekki einungis um Danaveldi, heldur svo vítt sem spurðist til austurs og suðurs. Norðmenn tóku honum tveim hönd- um og í Svíaríki átti hann vinum að fagna. Þá hélt hann suður um Bæheim og TVrol og yfir Mundíafjöll, þau hin miklu, og austur í hálendishéruð Karpatafjalla, jafnvel austur á slétt- umar við Svartahaf. Háir sem lágir tóku honum fegins hendi, og reyndu brátt sannindin um lækningamátt hans. Hvaðanæva bár- ust þakkarbréf til Valdimars í Friðriks- höfh fyrir þetta dásemdar meðal. Menn veittu upplýsingar um líkam- lega armæðu sína og krankleika. Og það var sama sagan: í öllum löndum þjáðust menn af magakvefi og melt- ingarleysi, lystarleysi og taugaveiklun, tæringu, innanveiki og sjósótt En Kínveijinn kom öllum til nokkurs bata, er þakka mátti Valdimar. Glasið á krónu og fimmtíu Þetta gerðist á seinni hluta 19. aldar sem áður segir. Þó að íslenska þjóðin væri tíðum af- skipt um þá hluti, sem aðrar þjóðir höfðu til lystisemda og lífsnautna, varð ekki sú reyndin í þessum efnum. Valdi- mar sá um það. Einn daginn var Kín- verjinn orðinn hér landfastur, hafði komið með vorskipi, og var nú á boð- stólum í höfuðstaðnum og á nokkrum stöðum úti um land. Glasið kostaði 1 krónu og 50 aura, — segi og skrifa eina krónu og fimmtíu aura, — og vit- anlega mátti ekki taka innihaldið í 3 eða 4 sopum, það átti að takast inn í smáskömmtum í litlum skeiðum. Sparlega varð að fara með þetta dýr- indis vatn, því að samkvæmt núgild- andi verði kostuðu þessir þrír sopar rúmlega 100 krónur. Ekki hafði Kínverjinn verið lengi hér á landi, þegar fregnir um ágæti hans tóku að berast manna milli. Og ekki nóg með það. Mönnum var ljúft að vitna, til þess að augu annarra mættu oprtast fyrir dásemd hins blessaða vökva. Sannfærandi vottorð Maður einn austur í Fljótshlíð, á bæ þeim, er Tunga heitir, gaf eftirfarandi „Vottorð. Ég undirritaður, sem í mörg ár hef þjáðst mjög af sjósótt og árangurslaust leitað ýmsra lækna, get vottað það, að ég hef reynt Kína-lífs-elixír sem ágætt meðal við sjósótt. TUngu í Fljótshlíð Guðjón Jónsson." Ekki var lakara vottorð, sem kom frá hendi annars Fljótshlíðings, Lofts Loftssonar í Kollabæ. Það var á þessa Iund: „í frek 8 ár hefur konan mín þjáðst mjög af brjóstveiki, taugaveiklun og slæmri meltingu, og hafði hún þess- vegna reynt ýmiskonar meðal, en allt að árangurslausu. — Ég byrjaði þá að reyna hinn heimsfræga Kína-lífs-elixír ffá Valdimar Petersen í Frederikshavn og keypti af honum nokkrar flöskur hjá hr. J.R.B. Lefolii á Eyrarbakka, og þegar hún hafði brúkað úr tveimur flöskum, fór henni þegar að batna. — Meltingin varð betri og taugamar styrktust. Ég get þessvegna af eigin reynslu mælt fram með bitter þessum, og er viss um, að ef hún heldur áfram að nota þetta ágæta meðal, verður hún heil heilsu, er fram líöa stundir." Svo mælti Loftur í Kollabæ, og þurfti vart að efa, að hann segði grandvarlega frá sjúkleika konu sinnar og síðan lækningu hennar. Þó voru til kvaddir tveir menn, þeir Bárður Sigurðsson, fyrrum bóndi í Kollabæ, og Þorgeir Guðnason bóndi í Stuðlakoti, til þess að votta, að Loftur færi ekki með fleip- ur út af þessu í blöðin. Þeir skrifuðu eftirgreinda yfirlýsingu: „Við undirritaðir, sem þekkt höfum konu Lofts Loftssonar í fleiri ár og séð hana þjást af ofannefndum sjúkdóm- um, getum vottað það upp á æru og samvisku, að það, sem sagt er í ofan- skráðu vottorði, er fyllilega sannleik- anum samkvæmt, að því er snertir heilsusamlegar verkanir hins heims- fræga Kína-lífs-elixír.“ Þetta tók því af öll tvímæli um, að Loftur færi ekki með fals og dár, enda setti Valdimar þetta í blöðin á íslandi. Og margur maðurinn hugsaði til sinn- ar konu og færði henni bitter, þegar hann kom úr kaupstaðnum. Eftir hæfilegan tíma skrifaði eiginmaður- inn svo lýsingu á heilsufari konunnar og setti á prent undir sínu nafni. Stundum vitnuðu karlmennimir um sína eigin reynslu eftir inntöku bitters- ins. Það gerðu konur líka. Má þar til nefna konuna á Grafarbakka, er sendi Valdimari svofellda yfirlýsingu: „Ég hef um langan tíma þjáðst af óhægð fyrir brjósti og óreglulegri meltingu, en eftir að hafa tekið inn 2 flöskur af Kína-lífs-elíxír frá hr. Valdi- mar Petersen í Frederikshavn, get ég með ánægju vitnað það, að ég hef ekki kennt þessara sjúkdóma. í þessu skal ég ekki láta undir höfuð leggjast að skýra frá því, að gömul kona hér á bænum (Sigr. Jónsd.) hefúr brúkað Kína-lífs-elixír við meltingar- leysi, sem komiö hefur af stöðugum kyrrsetum innanhúss, eftir að hafa áð- ur vanist vinnu undir berum himni, og hefúr henni orðið gott af. Eins er því varið með ýmsa aðra hér, sem hafa brúkað hann, og gera það enn, við ýmsum kvillum. Ég get því af fullri sannfæringu mælt með þessum elixír gegn nefndum sjúkdómum, og það því ffemur sem auövelt er að hafa hann við hendina, og hann er jafnvel ódýr í samanburði við það, sem meðul kosta og læknishjálp. Grafarbakka, Ástríður Jónsdóttir.“ Svo sem nærri má geta, varð Valdi- mar hugumglaður af bréfi þessu. Sjaldan hafði verið gefin í einu og sama bréfi jafn yfirgripsmikil lýsing á ágæti bittersins, sem hann sendi hinu hrjáða fólki. Hann lét því bréfiö snar- lega á þrykk út ganga Reynt að hlúa að lífinu Svo sem löngum í sögu þjóðarinnar, var fólk um þetta leyti fjarska ber- skjaldað fyrir válegum sjúkdómum, pestum og landfarsóttum. Það þurfti ekki að fara aftur í aldir og riQa upp hörmungasagnir ffá svarta dauða og stóru bólu. Á 19. öldinni höfðu geisað farsóttir, sem ögruðu þjóðinni með tortímingu, og þá fyrst og fremst mislingaárin 1846 og 1881. Fólk hrundi niður, einkum ungviðið. Og jafhlfamt riðu yfir ógnir annarra sjúkdóma: bamaveiki, taugaveiki, skarlatssóttar. En eftir hveija pláguna hjamaði þjóð- in við með undraverðum mætti. Reynt var að hlúa að lífinu með heimafenginni reynslu, þar eð Iæknar voru fáir og stijálir. Grasakonan sauð jurtir náttúmnnar og lagði lífgrös við sár og kaun. í rauninni vom til ráð við öllu, við hveijum kvilla og hverri sótt Þau ráð dugðu þó oft skammt En hvað var um að sakast, — það gerði hver sem hann gat til þess að vemda líf þessarar þjóðar, líf hvítvoðungsins. Hvítvoðungurinn var sú lífvera, sem ekki skyldi reikna með að kæmist til þroska, hans líf var blaktandi ljós fyrir gusti veraldarinnar. Það var mikil/ hamingja, ef hann fékk að komast úr vöggu og vaxa og dafna, en líklegra mátti oft teljast að ljós hans slokknaði. Við slíkum umskiptum mátti jafnan búast Og þó að sjónarsviptir mikill væri að því að missa hið ómálga bam, var söknuðurinn út af því ekki eins djúpstæður og þá er hinir eldri féllu frá. Bóndi nokkur hafði misst tvö böm, hvítvoðung og stálpað bam. Honum varð að orði: „Það var bágara að missa hann Nonna litla, því að hann var farinn að grauta í flekk.“ Þjóðin hafði að vísu mikla trú á hinni lærðu og vaxandi læknastétt, en á 19. öldinni vom læknar enn fáir og dreifð- ir í víðlendum héruðum, en frá útskik- um var of langt að vitja þeirra við hverjum krankleika, svo að til ýmissa ráða varð að grípa, þegar sjúkleika bar að höndum. Hómopataöld Hómopatar og aðrir ólærðir læknar vom víða um sveitir. Þeir höfðu með- alaskrín og stokka og gáfu dropa við margskonar kvillum. Glös þeirra vom jafnan mjög lítil, á stærð við vísifingur fermingarbams að gildleika, en inni- haldið var sterkt og hressandi. Hómopatadropar og allopatadropar vom tíðast látnir drjúpa í hvítasykur- smola eða í blávatn, — 3-4 dropar, — 8-10 dropar, stærri skammtar í senn vom óalgengir. Og margur lasburða hresstist í bili af inntökunr.i, og það var altjend talsverð huggun að eiga hómopataglas eða allopataglas í fómm sínum, þegar kveisur og kvillar steðj- uðu að. Auk þess komu til hjálpar andlegar lækningar og andleg vemd, orð send frá guði, fyrir milligöngu höfuðengl- anna, til hjálpar og blessunar þeim, sem í lotningu og skilyrðislaust trúðu lækningamætti hins innblásna orðs. Þannig var Himnabréfið þýska eitt- hvert voldugasta tákn þess læknandi máttar og vemdandi afla, sem send vom frá dularheimum hins mikla skapara alls sem var, — þess, er skóp duftkomið á veginum og var einnig hnattanna herra. Þar að auki streymdu til hinnar fó- mennu þjóðar elfur annarra meðala, sem höfðu lækningamátt sinn af jarð- neskum uppmna, en bjuggu yfir undra eiginleikum til þess að lina hvers konar vesaldóm: hressa maga- veikan, styrkja hinn blóðlitla og mátt- vana, reka burtu bijóstveiki, létta höf- uðkvalir, draga úr blóðsókn, næra hinn sljóa og endurvekja lífsvon hjá þeim, er áður sá sæng sína uppreidda í eymd og volæði. Óþægilegar afleiðingar æskusynda í frönskumælandi löndum höfðu frægir menn hugboð um, að eyja-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.