Tíminn - 09.05.1992, Blaðsíða 18
18 Tfminn Laugardagur
Laugardagur 9. maí 1992
Þróttarar frá Reykjavík uröu sigurvegarar í 1. deild karla og kemur þaö vart á óvart, þar
sem margt þekktra blakkappa voru I því liöi.
Heimasæturnar frá Siglufiröi, Súlan 1, uröu sigurvegarar í 2. deild kvenna. Óöinn frá Akureyri sigraöi í öölingaflokki. Tímamyndir: Þorteifur Haraidsson, Sigiuflrði
Um fjögurhundruð blakarar tóku þátt í íslandsmóti öldunga í blaki, sem fram fór á Siglufirði um síðustu helgi:
HK varö Islandsmeistari í 1. deild kvenna.
Síðastliðna helgi fór fram íslandsmót öldunga í blaki og
var það haldið í nýja íþróttahúsinu á Siglufirði. Alls tóku
um fjögur hundruð manns, þrjátíu ára og eldri, þátt í mót-
inu, sem án efa er eitt það stærsta sem haldið hefur verið á
Siglufirði. Keppt var í fimm deildum öldunga, karla og
kvenna, en mótið er haldið árlega.
Að sögn Runólfs Birgissonar, öld-
ungs mótsins — en það viður-
nefni hlýtur sá aðili sem hefur
umsjón mótsins með höndum —
gekk mótið alveg geysilega vel,
umfang þess hefur aldrei verið
meira en nú. „Ég held að það sé
enginn vafi á því að þetta er eitt
stærsta mótið, sem haldið hefur
verið hér á Siglufirði. Það hefur
verið í undirbúningi frá áramót-
um, en síðustu dagana fyrir mótið
hafa bæði nótt og dagur farið í
undirbúning," sagði Runólfur í
samtali við Tímann.
Ástæðan fyrir því að mótið var
haldið nú á Siglufirði er að eins
og komið hefur fram hér á síðum
blaðsins hefur verið tekið í notk-
un nýtt íþróttahús, þar sem hægt
er að leika blak á þremur völlum.
Siglfirðingar hafa reyndar haldið
mótið tvívegis áður, síðast fyrir
átta árum og var þá leikið í sund-
laugarbyggingunni, en sett var
gólf yfir laugina sjálfa. Nú er mót-
ið hins vegar orðið svo viðamikið
að ekki dugar minna en þrír til
fjórir vellir til að hægt sé að halda
mótið.
Blak hefur ekki verið mikið
stundað á Siglufirði, en þó hefur á
undanfömum árum verið tölu-
fyrr en menn eru orðnir svona
gamlir, þ.e.a.s. komnir yfír þrí-
tugt. Menn hafa ekki spilað það
fyrr og við kunnum varla reglurn-
ar, en þeir, sem eru að leika blak
nú, eru mest íþróttagarpar úr
öðrum greinum. Blakið er að
Aöstaöan í nýju Iþróttamiöstööinni á Siglufiröi, en þar eru sundlaug-
in og íþróttahúsiö sambyggö. Þaö hefur því veriö kærkomiö fyrir
keppenduma á mótinu aö hvíla lúin bein í heita pottinum, eins og sjá
má á meöfylgjandi mynd.
vert um að leikið hafi verið í öld-
ungaflokkum. Tvö félög eru starf-
andi: Súlan, sem er kvennalið, og
Hyrnan, sem er karlalið. Draga
liðin nöfn sín af fiöllum við fjörð-
inn.
„Nei, það hefur ekki verið stund-
sumu leyti sterkara hjá kvenfólk-
inu, þær byrja fýrr og æfa rneira,"
sagði Runólfur Birgisson.
Nú er ljóst að næsta mót, sem
haldið verður eftir ár, fer fram á
höfuðborgarsvæðinu og hefur
Jónas Traustason verið tilnefndur
Fram Reykjavík varö sigurvegari i 2. deild karla.
öldungur mótsins. Er nú verið að
vinna í því að fá keppnisstað.
í 1. deild karla voru það Þróttar-
ar sem stóðu uppi sem íslands-
meistarar, og sigruðu þeir í öllum
hrinum nema einni. Lið Óðins frá
Akureyri varð í öðru sæti. HK bar
sigur úr býtum í 1. deild kvenna,
með sömu yfirburðum. í 2. deild
karla báru Framarar frá Reykjavík
sigur úr býtum, en þeir töpuðu
ekki hrinu í mótinu, en Rimar
höfnuðu í öðru sæti. í annarri
deild kvenna voru tveir riðlar
leiknir og var því hreinn úrslita-
leikur um efsta sætið í deildinni.
Þar léku til úrslita Súlan 1 frá
Siglufirði og HK, og er skemmst
frá því að segja að heimasætur
sigruðu í tveimur hrinum gegn
engri hrinu HK-kvenna, 15-11 og
15-9. Óðinn frá Akureyri sigraði í
öðlingaflokki karla, en í þeim
flokki keppa leikmenn sem eru 40
ára eða eldri.
Runólfur Birgisson sagði að það
hefði ríkt mikil og góð stemmn-
ing meðan á mótinu stóð. „Þetta