Tíminn - 28.11.1992, Blaðsíða 1
Flokksþing Framsóknarflokksins stendur nú yfir. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokks:
Emðleikana má rekja
til ríkisstjómarinnar
„Ég ætla alls ekki að gera lítið
úr þeim erfiðleikum, sem steðja
að í íslensku efnahagslífi vegna
samdráttar erlendis.
Vissulega hefur það sín áhrif.
Alls ekki vil ég heldur gera lítið
úr þeim erfiðleikum, sem sam-
dráttur í afla veldur. Vitanlega
hefur það mikii áhrif á þjóðfé-
lag, sem byggir svo mjög á flsk-
veiðum. Ég vil hins vegar mót-
mæla því harðlega að einhver
fortíðarvandi sé meginorsök
fyrir þeim erflðleikum, sem ís-
lenskt efnahagslíf hefur enn
einu sinni ratað í.“
Þetta mælti Steingrímur Her-
mannsson í ræðu sinni í gær á
flokksþingi Framsóknarflokksins,
sem nú stendur yfir á Hótel Sögu.
Sjónvarpað er beint frá flokksþing-
inu á Sýn, sem er nýmæli og hefur
ekki áður verið gert á þingum ís-
lenskra stjórnmálaflokka.
Steingrímur sagði ennfremur í
ræðu sinni að staðreynd væri að
þegar núverandi ríkisstjórn tók við,
var staða atvinnuveganna betri en
hún hafði verið um langa hríð og
staðan á sviði efnahagsmála al-
mennt góð. Núverandi ríkisstjórn
hefði hins vegar snúið þróuninni í
öfuga átt, eins og þjóðin væri nú að
súpa seyðið af.
Utdráttur úr ræðu Steingríms Her-
mannssonar er á blaðsíðu 3. Þar er
einnig sagt frá umrœðum um EES á
flokksþinginu og á blaðsíðum 14 og
15 er ávarp Ögmundar Jónassonar,
formanns BSRB, birt í heild.
VERÐLAUJM-
KROSSGATA
ÍTÍMANUM
Verðlaunakrossgáta er í Tímanum i dag. Dregið
veröur úr réttum lausnum og fær hinn heppni vinn-
inginn sendan heim. Vinningurinn er íslensk menn-
ingargersemi: Ritsafn Jónasar Hallgrímssonar —
heildarútgáfa Máls og menningar á verkum skálds-
ins ástsæla.
Hundruða
milljóna
eftirskattar?
Skattalögreglan hefur fundið gullnámu í
svörtum greiðslum til íþróttaþjálfara og fleiri
sem tengjast íþróttahreyfingunni.
KJARAÁTÖK
ERUAD
HEFJAST
Kennarasamband (slands sagði upp kjarasamn-
ingum sínum í gær og i kjaramálaályktun ASl-
þings eru aðildarfélög hvött til að segja upp
samningum og undirbúa kröfugerð. Átökin eru að
hefjast.
B LAÐSIÐA 16
BLAÐSIÐA 18