Tíminn - 28.11.1992, Page 11
Laugardagur 28. nóvember 1992
Tíminn 11
„Fólk snýr sér
enn meir að
bókinni þegar
að kreppir“
Rætt við Sigurð Valgeirsson, útgáfustjóra Iðunnar, en margt merkra
bóka er meðal 85 titla sem forlagið gefur út
Sigurður Valgeirsson: „Sjálfsagt dregur samdrátturinn í þjóðfélaginu úr mögu-
leikum óþekktra höfunda á aö fá gefiö út eftir sig. “ Tlmamynd Árni Bjarna
„í Noregi segja þeir aö þegar
að kreppi í efnhagslífinu snúi
fólk sér enn meir að bókinni,
og hví skyldi það ekki reynast
svo á íslandi einnig,“ segir
Sigurður Valgeirsson, útgáfu-
stjóri Iðunnar, í samtali við
Tímann þegar við spyrjum
hann tíðinda af helstu bókum
forlagsins í ár. „Fjöldi bóka-
titla, sem Iðunn gefur út nú,
er að minnsta kosti ekki minni
en í fyrra. Þetta er svipað
magn, eða 85 titlar alls, og ég
er bjartsýnn á söiuna og held
að þetta muni ganga vel.
Eigi ég að nefna eitthvað af því,
sem hæst ber, þá er þar um margt
að ræða, en líklega rétt að byrja á
bókmenntum ætluðum fullorðn-
um. Vil ég þá fyrst telja skáldsögu
eftir Vigdísi Grímsdóttur, „Stúlkan
í skóginum," en þetta er þriðja
skáldsaga höfundar og mun varla
vekja minni athygli en þær fyrri.
Þá er Ijóðabókin „Sæfarinn sof-
andi“ eftir Þorstein frá Hamri og
hlýtur ný ijóðabók eftir hann að
teljast til verulegra tíðinda meðal
ljóðaunnenda. Sama á við um aðra
ljóðabók sem við gefum út —
„Árstíðaferð um innri mann“, eftir
Matthías Johannessen.
Bókmenntaleg
ævisaga
Þá er það ævisaga Astu Sigurðar-
dóttur skáldkonu eftir Friðriku
Benonýsdóttur, „Minn hlátur er
sorg“. Þetta er sérstætt rit í flokki
ævisagna, en ég held að svo megi
komast að orði að hún sé á eins
konar mörkum, þar sem þetta er
bókmenntaleg ævisaga. Höfund-
urinn leyfir sér vissar sviðsetning-
ar og fyrir mitt leyti tel ég að
þarna sé mjög vel heppnað verk á
ferð um þá óvenjulegu konu sem
Ásta var, bæði vegna persónu
sinnar og örlaga.
Af öðrum ævisögum skal hér
getið um ævisögu Guðlaugs Berg-
manns, sem ber titilinn „Og nátt-
úran hrópar og kallar" og ævisögu
Thelmu Ingvarsdóttur, en sú bók
heitir því stutta og laggóða nafni
„Thelma". Svo er auðvitað annað
bindi ævisögu Jónasar Jónssonar
frá Hriflu eftir Guðjón Friðriks-
son — „Dómsmálaráðherrann".
Þeirrar bókar munu margir bíða
með eftirvæntingu, af þeim við-
tökum að dæma sem fyrsta bindið
hlut.
Hér erum við farin að nálgast
sagnfræðina og nýtt bindi af „Öld-
inni okkar" lítur nú dagsins ljós
og spannar það árin 1986-1990.
Þá er „Söguatlas", þriðja bindi, á
lokastigi í vinnslu.
Verk þekktra bama-
bókahöfunda
Þegar um svo marga titla er að
ræða, leiðir af sjálfu að barnabæk-
ur eru allmargar meðal útgáfu-
verka og þetta er allsterkur listi. Sé
V_____________________/
byrjað á bókum, sem ætlaðar eru
yngstu börnunum, vil ég nefna
bókina „Velkominn heim, Hanni-
bal Hansson" eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Þessi ágæta bók Guð-
rúnar er myndskreytt af Brian
Pilkington og segir frá strák sem
er á heimleið ásamt foreldrum sín-
um, sem verið hafa í námi erlend-
is. Sagan gerist í flugvélinni og er
mjög skemmtileg, enda annars
ekki að vænta frá hendi Guðrúnar
Helgadóttur. „Litli skógarbjörn-
inn“ heitir bók eftir Illuga Jökuls-
son og er bókin myndskreytt af
Gunnari Karlssyni.
Sé haldið áfram og vikið að bók-
um ætluðum eldri krökkum verða
fyrir bók Iðunnar Steinsdóttur,
„Fjársjóðurinn í Útsölum", og „Allt
í besta lagi“ eftir Andrés Indriða-
son. Bæði eru þau Iðunn og Andr-
és löngu kunn fyrir skrif sín fyrir
börn og unglinga og bækur frá
hendi Iðunnar Steindóttur eru
ekki upp taldar hér með. Við gef-
um út alls sex bækur eftir hana, og
eru þær auk „Fjársjóðsins í Útsöl-
um“ fimm bækur um „Snuðru og
Tuðru“. Um þær stöllur komu
einnig út fimm bækur á fyrra ári,
en taka skal fram að þær eru ekki
stórar hver um sig - aðeins sextán
síður.
Þýðingar á verkum
Iris Murdoch og
Antti Tuuri
Loks víkur sögunni að þýðingum
og þá komum við aftur að bók-
menntum ætluðum fullorðnum.
Nú kemur út skáldsagan „Svarti
prinsinn" eftir Iris Murdoch í þýð-
ingu Steinunnar Sigurðardóttur
og „Ný Jerúsalem", skáldsaga eftir
fínnska höfundinn Antti T\iuri.
Hana hefur Njörður P. Njarðvík
þýtt.
Eins og skilja gefur gæti ég lengt
þetta mál mikið, og þótt það kunni
að hljóma eins og einhver klisja,
fær ekkert haggað því að við Is-
Iendingar erum vissulega bók-
menntaþjóð. Ég vil ekki dyljast
þess að sjálfsagt dregur samdrátt-
urinn í þjóðfélaginu, boðuð endur-
álagning virðisaukaskatts á bækur
og annað, úr möguleikum
óþekktra höfunda á að fá gefið út
eftir sig. Útgefendur verða nokkru
varfærnari og það þótt um annars
álitleg handritsé að ræða. En þetta
er sveiflubundið og fer eftir árferð-
inu og við skulum vona að rofi sem
fyrst til á ný.“
~ ,KVEÐJU
CÁLSINN
Kostulegur vals
Út er komin Kfa Máli og menningu
skáldsagan Kveðjuvalsinn eftir Milan
Kundera.
Sagan gerist á fimm haustdögum í
litlum, fallegum heilsubótarbæ í Mið-
Evrópu. Þangað kemur fjöldi kvenna
til að leita sér lækninga við ófrjósemi,
auk nokkurra karla sem stunda þar
heit böð í þeirri von að ráða bót á
hjartakvillum.
Frægur djasstrompetisti, fögur
hjúkrunarkona, hugmyndaríkur
kvensjúkdómalæknir, amerískur auð-
maður (dýrlingur og kvennabósi í
senn) og fyrrverandi stjómmálamað-
ur eru meðal sögupersóna, sem höf-
vrndur lætur hér stíga vals óvæntra
atburða og kostulegra hugleiðinga.
Vals sem hefst með ljúfri hrynjandi,
en verður bæði hraðari og sárari þeg-
ar lengra líður á söguna.
Friðrik Rafnsson þýddi bókina, sem
er 182 blaðsíður, prentuð í Prent-
smiðjunni Odda hf. Bókin kostar
2680 kr.
Öfgar
Út er komin hjá Máli og menningu skáld-
sagan Sannleikur allífsins eftir Isabel Al-
lende.
Gregory Reeves er aðalpersóna og annar
aðalsögumaður þessarar margslungnu
skáldsögu. Hann er hvítur, en elst upp
meðal spænskumælandi fólks í Kalifom-
íu og reynir á sjálfum sér ýmsar öfgar
bandarísks þjóðfélags, veistu og bestu
hliðar þess, auk þess sem hann hrærist í
sögulegu umróti áranna kringum 1968 og
kynnist því helvfti sem Víetnamstríðið
var. Höfundur lýsir andstæðum banda-
rísks þjóðfélags, upplausn fjölskyldunn-
ar, leit einstaldingsins að lífsfyllingu og
ást — leit Gregory Reeves að þeim „Sann-
leika allffsins" sem hann heyrði föður
sinn predika um sem bam.
Þetta er fimmta skáldsaga Isabel Al-
lende sem kemur út á íslensku, en þekkt-
ust þeirra er Hús andanna.
Tómas R. Einarsson þýddi bókina, sem
er 306 blaðsíður. Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði. Bókin kostar 2980 kr.
íslenskar
lækningaiurtir
Söfnun þeirra, notkun og áhrif
eftir Ambjörgu Lindu Jóhannsdóttur
Grasalækningar hafa verið stundað-
ar frá alda öðli og hér á landi frá
landnámstíð. Á síðari árum hefur
áhugi á þessum fomu lækningaað-
ferðum farið vaxandi og marga fýsir
að öðlast innsýn í heim þeirra. HI
slfks er þessi bók vel falíin. í henni
má lesa um útbreiðslu jurtanna og
kjörlendi þeirra, tínslu og söfnun
jurta, þá jurtahluta sem nýta má til
lækninga, virk efni í jurtum og áhrif
þeirra á mannslíkamann, helstu sjúk-
dóma og kvilla sem jurtalyf geta lin-
að og ráðið bót á og blöndun jurta-
lyfja og notkun þeirra. í bókinni er
ennfremur sagt frá úrvali erlendra
lækningajurta, sem margar er auðvelt
að rækta í íslenskum görðum og
gróðurskálum. Á annað hundrað
glæsilegar Ijósmyndir í lit af öllum
jurtunum prýða bókina og auðvelda
greiningu þeirra í náttúrunni.
Ambjörg Linda Jóhannsdóttir
stundaði nám í grasalækningum við
School of Herbal Medicine East Sus-
sex 1984-1987. Hún stundaði grasa-
lækningar á íslandi 1987-1989 og hef-
ur síðan ásamt manni sínum, sem
einnig er grasalæknir, lagt shmd á
grasalækningar á Englandi.
Útgefandi er Öm og Örlygur.
Nýjar bækur frá Bókaútgáfunni
Björk 1992:
Selurinn Snorri
Selurinn Snorri, hin víðkunna og
vinsæla bama- og unglingabók eftir
norska höfundinn Frithjof Sælen, er
nýlega komin út hjá Bókaútgáfunni
Björk í nýjum og glæsilegum bún-
ingi. Selurinn Snorri kom fyrst út á
íslensku 1950 og kemur nú út í 4. út-
gáfu. Síðasta útgáfan er uppseld fyrir
mörgum árum.
Bókin hefur verið þýdd í mörgum
löndum og hvarvetna notið mikilla
vinsælda og komið út aftur og aftur.
Vilbergur Júliusson skólastjóri hefur
þýtt bókina á íslensku. Hún er 96 bls.
að stærð og er önnur hver síða mynd
í 4 Iitum. Oddi h/f hefur annast gerð
bókarinnar.
Tvær nýjar bækur í bókaflokknum
Skemmtilegu smábamabækumar.
Tinna byggir
kastala
er nr. 31 í bókaflokki þessum. Hún
segir frá kettinum Tinnu, sem byggir
veglegan kastala úr sandi á sjávar-
ströndinni, og hinu fjölþætta lífríki í
flæðarmálinu. Höfundur bókarinnar
er Stephanie Calmenson. Teiknari:
Sheila Beckett. Prentsmiðjan Oddi
h/f prentaði bókina.
eftir Éystein munk
Vaka-Helgafell hefur sent frá sér
nýja bók, Lilju eftir Eystein munk, í
aðgengilegri útgáfu fyrir almenning.
Lilja er frægasta helgikvæði sem ort
hefur verið á íslenska tungu. Hrifn-
ing manna á kvæðinu var slík á sín-
um tíma að svo var sagt að „allir
vildu Lilju kveðið hafa". Kvæðinu
fylgja formáli og ítarlegar skýringar,
en Pétur Már Ólafsson bókmennta-
fræðingur hafði umsjón með útgáf-
unni. Lilja er þriðja verkið í nýjum
flokki lítilla gjafabóka, sem Vaka-
Helgafell hóf útgáfu á í tilefni af tfu
ára afmæli forlagsins. Hinar tvær em
í skugga Iárviðar, ljóð eftir Hóras,
höfuðskáld Rómverja, og Úr sagna-
bmnni, þjóðsögur, sagnir og ævintýri
Ásdísar Ólafsdóttur.
Lilja er helgikvæði frá miðri fjór-
tándu öld, byggt upp sem drápa í
hundrað erindum. Tungutak kvæðis-
ins markar tímamót f íslenskum
kveðskap, þvf að höfundur hennar
hafnaði að yfirlögðu ráði hinu foma
kenningastagli og tók upp nýtt og
auðskiljaniegra mál. Efni Lilju var
einnig nýlunda. Hún fjallar um sjálft
drama veraldarsögunnar frá sköpun-
inni til dómsins. Meginefni hennar er
barátta góðs og ills, Krists og hins
færaglögga fjanda, og er skáldið sjálft
f ormstunni miðri, því að hún stend-
ur um sálu þess.
í formála bókarinnar segir Pétur Már
Ólafsson: „Það er hvorki samfelld
heimssaga né sæt lofgjörð. Sagan er
sögð með því að bregða upp mynd-
um frá helstu atburðum þar sem hin-
ar miklu andstæður takast á. Við
finnum glöggt fyrir nálægð skáldsins
sem talar til okkar í fyrstu persónu,
tökum þátt í baráttu þess, hlýðum á
bænir þess sem hljóma hæst í lokin f
örvæntingarfullu ákalli um miskunn
þegar dómurinn fellur. Kvæðið ein-
kennist af trúarlegri auðmýkt og trú-
arhita, ásamt léttu tungutalki og skýr-
um myndum."
Lilja er 152 blaðsfður að stærð, prent-
uð og bundin í Prentsmiðjunni Ódda
hf.