Tíminn - 28.11.1992, Side 22
22 Tíminn
Laugardagur 28. nóvember 1992
181 DAGBÓK
Aöventtónleikar Lúörasveitarinnar Svans
Á morgun, sunnudag, heldur Lúðrasveitin Svanur árlega aðventtónleika sína í Lang-
holtskirkju kl. 17. Stjórnandi er Öm Óskarsson, en þetta eru þriðju tónleikar hans
með sveitinni.
Á efnisskránni eru þrjú verk, sem öll eru samin fyrir blásarasveitir. Þau eru:
Fanfare for St. Edmundsbury eftir Benjamin Britten. Verkið er spilað á þrjá trompeta
af þeim Jóhanni Stefánssyni, Búa Pedersen og Snorra Valssyni.
An Original Suite eftir Gordon Jacob.
Symphonie funébre et triomphale (Jarðarfarar- og sigursinfónían eftir Hector
Berlioz. Sinfónían, sem er í þremur köflum, er samin árið 1840 fyrir frönsku ríkis-
stjómina til flutnings á hátíðarhöldum á Bastillutorginu á tíu ára ártíð júlíbyltingar-
innar í Frakklandi og er inntakið í henni hugleiðingar um byltinguna, friðinn og
minninguna um það fólk sem fómaði lífi sínu fyrir frelsið. Þegar verkið var fmmflutt
hafði Berlioz 200 manna hljómsveit svo að það heyrðist um torgið. Einleikari er Sig-
urður Þorbergsson.
Finnsk glersýning í
Norræna húsinu
í dag kl. 15 verður opnuð sýning í sýn-
ingarsölum Norræna hússins á glerlist
frá Finnlandi. Sendiherra Finnlands,
H&kan Branders, flytur ávarp og opnar
sýninguna.
Sýningin spannar 70 ár í glerlist Finna
eða frá 1920 til 1990.33 helstu glerlista-
menn Finna eiga muni á sýningunni og
má þar nefna Aino Aalto, Kaj Franck,
Timo Sarpaneva og Tápio Wirkkala. Elst-
ur þeirra er Valter Jung, sem fæddist
1879 og lést 1946, og yngsti glerlista-
maðurinn er Paivi Kekáláinen, fædd
1961 og lauk prófi frá Listiðnaðarháskól-
anum 1991.
Sýningin verður opin daglega kl. 14-19
og stendur til 20. des. Aðgangur er
ókeypis.
Kvenfélag Háteigssóknar
verður með jólafund sinn þriðjudaginn
1. desember kl. 20 í Sjómannaskólanum.
Á borðum verður hefðbundinn jólamat-
ur: hangikjöt, laufabrauð o.fl. Til
skemmtunar verður upplestur og söng-
ur. Og munið jólapakkana.
Nútímatónlist aö
Kjarvalsstöðum
Á morgun, sunnudag, kl. 13 verða
haldnir tónleikar að Kjarvalsstöðum og
eru þeir hinir fyrstu í tónleikaröð þar
sem flutt verður íslensk nútímatónlisL
Sá háttur verður hafður á að kynnt verða
einstök tónskáld og verk þeirra hverju
sinni. Fyrir valinu urðu nokkur af yngstu
nútímatónskáldum okkar. Kjarvalsstaðir
hafa í hyggju að halda slíkar kynningar
með reglulegu millibili næstu mánuði,
en sá sem ríður á vaðið að þessu sinni er
Kjartan Ólafsson.
Kjartan er fæddur í Reykjavík 1958.
Hann nam píanóleik og tónfræði við
Tónlistarskóla Kópavogs 1976-1980. Pí-
anóleik, tónfræði og tónsmíðar við Tón-
listarskóla Reykjavíkur 1980- 1984.
Hann hélt síðan til Hollands þar sem
hann lagði stund á raftónsmíðar við tón-
listarakademíuna í Utrecht. 1988-1992
dvaldi Kjartan svo í Finnlandi og nam
tónsmíðar, bæði hefðbundnar og tölvu-
tónsmíðar, við Sibeliusar-akademíuna í
Helsinki.
Á efnisskrá tónleikanna eru verkin „Til-
brigði við jómfrú", „Dimma", „Calculus"
og „String Q“, en það síðastnefnda verð-
ur frumflutt á íslandi. Að auki mun
Kjartan halda stutta kynningu á tölvu-
tónsmíðaforritinu Calmus, sem hann
hannaði við Sibeliusar-akademíuna
1988-1992.
Menningarmiöstööin
Geröuberg
Um helgina lýkur sýningunni „Orðlist
Guðbergs Bergssonar". Á sýningunni eru
Ljóðmyndir sem eru konkretljóð Guð-
bergs frá Súm-árunum, teikningar t.a.m.
myndasögur og teiknuð verk með olíu-
litum, ljósmyndasögur, blaðagreinar,
kvikmyndir, munir og fleira. f útibúi
Borgarbókasafnsins er m.a. bókasýning.
Einnig gefst sýningargestum kostur á að
hlýða á hljóðverk Guðbergs, sem hann
nefnir Ljóðhljóð.
í EfFinu á neðri hæð Gerðubergs stend-
ur yfir sýning Kristins E. Hrafnssonar.
Kristinn sýnir skúlptúra og veggmyndir
og er þetta þriðja einkasýning hans, en
áður hefur hann sýnt á Kjarvalsstöðum
og í Otso gallerí í Finnlandi. Sýningunni
lýkur 8. desember.
Sýningamar eru opnar mánudaga til
fimmtudaga kl. 10-22, föstudaga kl. 10-
16, laugardaga kl. 13-16 og sunnudaga
kl. 14-17.
Miðvikudaginn 2. desember kl. 20.30
heldur Einar Kristján Einarsson gítar-
leikari tónleika í Gerðubergi. Einar leik-
ur verk eftir Luis Milan, J.S. Bach, Fem-
ando Sor, Lennox Berkeley, Heitor Villa-
Lobos og Agustin Barrios.
Aöventa í Skálholtsprestakalli
í Skálholtsprestakalli em fjórar kirkjun
Bræðratungukirkja, Haukadalskirkja,
Torfastaðakirkja og Skálholtskirkja, og
söfnuður á sókn að þeim öllum. Bræðra-
tungukirkja varð áttræð á síðasta nýárs-
degi, Haukadalskirkja er 150 ára um
þessar mundir, Torfastaðakirkja verður
100 ára á næsta nýársdegi, og Skálholts-
kirkja verður þrítug á næsta sumri. Af
svo góðu tilefni sæmir að halda góða há-
tíð. Hún hefst nú með fyrsta sunnudegi í
aðventu og mun standa í allan vetur og
fram á sumar. Segja má raunar, að inn-
ganga til hátfðarinnar sé þegar hafin, því
að prófastur Ámessprófastsdæmis, sr.
Tómas Guðmundsson, vísiteraði í
Bræðratungu síðasta sunnudag gamla
kirkjuársins við hátíðamessu.
Fyrsta sd. í aðventu, 29. nóv. hefst há-
tíðin kl. 13,30 með því að flutt verður
Kantata J.S. Bachs nr. 61: „Nun komm,
der Heiden Heiland", í Skálholtskirkju.
Kl. 14 hefst svo hátíðamessa og verður
þá kantatan endurflutt í messunni með
líkum hætti og tíðkaðist á dögum Bachs.
Flytjendur kantötunnar verða Bach-
sveitin í Skálholti, Kammerkór Skál-
holtskirkju og söngvaramir Ema Guð-
mundsdóttir og Guðlaugur Viktorsson.
Hilmar Öm Agnarsson stjómar.
Breiöfiröingafélagiö
Félagsvist verður spiluð á sunnudag kl.
14.30 í Breiðfirðingabúð í Faxafeni 14.
Húnvetningafélagiö
Félagsvist í dag, laugardag, kl. 14 f
Húnabúð, Skeifunni 17. Paravist Allir
velkomnir.
KUBBUR
ÆVISTARF AGÖTU
6647.
Lárétt
1) Vandfýsin. 6) Poka. 7) Kemst. 9)
Bor. 10) Þvottasnúruþvingum. 11)
Tveir. 12) Sólguð. 13) Hress eftir
aldri. 14) Terta.
Lóðrétt
1) Rétt horn. 2) Öfug stafrófsröð. 3)
Land. 4) Eins bókstafir. 5) Hindran-
irnar. 8) Spúi. 9) For. 13) Fomafn.
14) Frumefni.
Ráðning á gátu no. 6646
Lárétt
1) Argsama. 6) Áka. 7) Te. 9) Öl. 10)
Rimpist. 11) Ak. 12) Pé. 13) Ala. 15)
Indland.
Lóðrétt
1) Aftraði. 2) Gá. 3) Skapill. 4) AA. 5)
Alténd. 8) Eik. 9) Ösp. 13) AD. 14)
AA.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í
Reykjavfk 27. nóv. - 3. des. er í Laugames
Apóteki og Árbæjar Apóteki. Þaö apótek sem
fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aö
kvöldi til kl. 9.00 aö morgni virka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis-
og lyfjaþjónustu eru gefnar í síma 18888.
Neyöarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgarog á stórtiátiöum. Símsvari 681041.
Hafnarfjöröur Hafnarfjaröar apótek og Noröurbæjar apó-
tek ern opin á virkum dðgum frá ki. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag ki.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyrí: Akureyrar apótek og Stjómu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búöa. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aö sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opiö i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til Id.
19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00- 1Z00 og 20.00-
21.00. Á öörum timum er lyfjafræöingur á bakvakt Upplýs-
ingar eru gefnar i síma 22445.
Apótek Keflavíkun Opiö virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá Id. 8.00-
18.00. Lokaö i hádeginu miUi ki. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30. Opiö er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek baejarins er opiö virka daga ti kl. 18.30.
Á laugard. Id. 10.00-13.00 og sunnud. Id. 13.00-14.00.
Garöabæn Apótekið er opið nimhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Gengisski *
27. nóvember 1992 kl. 9.15 Kaup Bandarikjadollar 63,380 Sala 63,540
Sterllngspund 95,808 96,050
Kanadadollar 49,244 49,369
Dönsk króna ..10,2143 10,2401
9,6645 9,6889 9,2340
Sænsk króna 9Í2107
Finnskt mark ...12,3348 12,3660
Franskur franki ...11,6497 11,6791
Belgfskur franki 1,9192 1,9240
Svissneskur franki.. ...43,9072 44,0180
Hollenskt gyilini ...35,1535 35,2422
...39,5199 39,6196 0,04553 5,6282
...0,04542
Austurriskur sch 5,6141
Portúg. escudo 0,4399 0,4410
Spánskur peseti 0,5481 0,5495
Japanskt yen ...0,50969 0,51098
Irskt pund ...103,693 103,955
Sérst. dráttarr. ...87,4638 87,6846
ECU-Evrópumynt.... ..77,5613 77,7571
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. nóvember 1992 Mánaöargreiöslur
Elli/órorkulifeyrir (grunnlifeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalifeyrir...........................11.096
Full tekjutrygging ellilifeyrisþega..........22.684
Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega........23.320
Heimilisuppbót...............................7.711
Sérstðk heimilisuppbót........................5.304
Bamalifeyrir v/1 bams.........................7.551
Meölag v/1 bams...............................7.551
Mæöralaun/feöralaun v/1bams...................4.732
Mæöralaun/feöralaun v/2ja bama...............12.398
Mæöralaun/feöralaun v/3ja bama eöa fleiri...21.991
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaöa .............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaöa.............11.583
Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329
Dánarbætur i 8 ár (v/slysa)..................15.448
Fæöingarstyrkur..............................25.090
Vasapeningar vistmanna.......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreiöslur
Fullir fæöingardagpeningar....................1.052
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80
Tekjutryggingarauki var greiddur i júli og ágúst, enginn
auki greiöist i september, október og nóvember.