Tíminn - 30.01.1993, Page 8
8 Tíminn
Laugardagur 30. janúar 1993
Eyríkið sri lanka
er meðal þeirra landa
sem stundum hejrrist líkt
við paradís. Vera kann að
einhveijir telji það eiga
nokkuð vel við um suður-
og vesturhluta eyjarinnar,
sem er rúmlega 65.000
ferkílómetrar að stærð.
Þar ganga efnahagsmálin
frekar vel, eftir því sem
gerist í þriðja heiminum.
Sú velgengni stafar ekki
hvað síst af því að Sri
Lanka er meðal eftirsótt-
ustu ferðamannalanda. í
augum túristanna er land-
ið fagurt og frítt, hitabelt-
isloftslag er þar og gróður
að því skapi og svali utan
af hafí til að draga mátu-
lega úr hitanum. Mikið er
af stórfenglegum og fal-
legum byggingum og
merkilegum rústum til að
láta mynda sig hjá, ffíar
eru til taks til að fara á
bak, góð hótel og frábærar
baðstrendur sem pálmar
slúta yfír. Og aðkomu-
mönnum fínnst fólkið geð-
fellt og þægilegt í um-
gengni.
Ferðamanna-
straumur
Borgarastríðið þarna, sem staðið
hefur í áratug, fældi ferðamennina
frá um tíma. En um síðir komust
stjórnvöld, undir forustu Ranas-
inghe Premadasa forseta, að þeirri
niðurstöðu að stríðinu yrði ekki
lokið um fyrirsjáanlega framtíð.
Síðan hefur stjórnin leitast við að
að einangra stríðssvæðin, Norður-
fylki og Austurfylki sem eru tæp-
lega þriðjungur eyjarinnar að flat-
armáli. Annarsstaðar á eynni er
reynt að láta sem stríðið sé ekki til,
þar er fjárfest og talsvert fjör er þar
f efnahags- og atvinnulífi. Þetta
hefur tekist svo vel að nú streyma
ferðamenn að eins og var fyrir
stríð. S.I. ár komu um 350.000 er-
lendir ferðamenn í fríi, meirihlut-
inn frá Vesturlöndum, til Sri
Lanka, eða næstum eins margir og
1982, síðasta friðarárið. Líka er
orðið nokkuð um að fólk frá kald-
ari löndum dveljist á sólskinseyju
þessari allan veturinn.
Sex vikna dvöl þar kvað kosta eitt-
hvað um 60.000 ísl. krónur fyrir
manninn.
Á friðarhluta eyjarinnar er þorri
íbúa Singalesar. Sú þjóð talar mál
náskylt hindí og öðrum indversk-
um tungum af indóevrópskum
stofni. Mikill meirihluti lands-
manna eru af því þjóðerni. Trú
flestra Singalesa er búddasiður af
Theravada- greininni. Á norður-
hluta eyjarinnar eru íbúar hins-
vegar flestir Tamflar og þeir eru
einnig fjölmennir, þó í minnihluta,
á austurströndinni. Tamflar tala
dravídamál og eru hindúar að trú.
Þeir eru um 18% landsmanna, sem
eru alls um 18 eða 19 milljónir.
Frclsistígrar
í Norður- og Austurfylki er ástand-
ið allmjög á annan veg en annars-
staðar á eynni. Þar hefur fjöldi
Tamílar sem bátftóttamenn: þeir hafa flúiö strlöiö I hundruöþúsundatali til Indlands og Vesturlanda.
Ekkert lát á yfir 2000 ára viðureign Singalesa og Tamíla:
ÞJÓÐARHREINSUN
þorpa lagst í eyði, borgir eru á
sömu leið og atvinnulífið dregst
upp. Vegir þar eru flestir ekki leng-
ur ökufærir. Norðurfylki hefur
stjórnin afskrifað að þvf marki að á
landabréfum fyrir ferðamenn er
það ekki sýnt nema sem hvítur
flekkur.
Stríðsaðilar eru stjórnarherinn,
singalesískur að mestu eins og
stjórnin sjálf, og tamflskur skæru-
liðaflokkur sem nefnist Tamil Ee-
lam-frelsistígrar (Eyjan heitir Ee-
lam á tamflsku), skammstafað á
ensku LTTE. Flokkur þessi berst
fyrir því að stofnað verði á Sri
Lanka sjálfstætt tamílskt ríki, er
nái yfir um 40% eyjarinnar. Hafa
tígrar Norðurfylki þegar að mestu
á sínu valdi og eru staðráðnir í að
ná Austurfylki líka, þótt meirihluti
fbúa þar séu Singalesar, kristnir
menn og múslímar, sem ekki vilja
heyra til tamflsku ríki. Fylki þetta
reyna tígrar nú að tryggja sér með
gamalli og nýrri hernaðaraðferð,
er upp á síðkastið er farið að kalla
„þjóðarhreinsun".
Holdtekja Maós
Leiðtogi LTTE heitir Vellupillai
Prabhakaran og telur sig vera
holdtekju Maós Kínaformanns.
Skæruher hans segja sumir frétta-
menn ekki síður grimman en
Rauða kmera í Kambódíu og Send-
ero Luminoso í Perú. Liðsmenn
eru flestir unglingar eða jafnvel á
barnsaldri og er það ekkert eins-
dæmi. Því heyrist fleygt að margir
þeir foringjar, er stunda stríð og
hryðjuverk, vilji helst hafa liðs-
menn sína sem yngsta. Eftir slík-
um leiðtogum og fleirum heyrist
haft að hermenn á barnsaldri séu
einkar hlýðnir og trúir yfirmönn-
um sfnum, enda engir einlægari í
trúnni á „málstaðinn" og í aðdáun
á foringjum. Þeir séu og viðbragðs-
fljótari og snarari í snúningum en
fullorðnir menn og óttalausir með
afbrigðum. Enda sé fólk á þeim
aldri, hafa einhverjir sagt, ekki
meira en svo farið að skynja fylli-
lega að það geti dáið.
Hvað sem því líður fer orð af
frelsistígrum sem geigvænlegum
bardagamönnum. Af mörgum
dæmum er ljóst að ófáir f þeim
hópi hika ekki við að fórna lífinu,
sé þess talið við þurfa. Þeir, sem
LTTE-liðar hafa á illan bifur, eiga
þaðan af síður af þeim vægðar von.
Stjórnarherinn er á höttunum eftir
skæruliðum meðan bjart er, en
þorir ekki út úr stöðvum sínum
eftir að niðdimm hitabeltisnóttin
er gengin í garð. Þá eru tígrarnir
athafnasamastir. Flokkar þeirra,
stundum hundruð manna í hverj-
um, koma þá fram úr fylgsnum
sfnum úti í frumskógi og ráðast á
þorp Singalesa og múslíma. í þeim
árásum drepa tígrar hvert manns-
barn, sem þeir ná. í einu sveita-
þorpinu, Palliyagodella, drápu þeir
þannig nýlega á einni nóttu um
200 múslíma.
Stríð þjóða, tróar-
bragða
Ætla má að talsverður hluti Ta-
mfla á Sri Lanka sé beinlínis
hlynntur tígrunum og styðji þá eft-
ir því sem þeir geta og þora. Tamíl-
ar þar lítt eða ekki hrifnir af LTTE
eru kannski fleiri, en margir þeirra
trúlega enn andsnúnari hinum
singalesíska stjórnarher. Hér er
sem sé um að ræða stríð milli
Singalesa og Tamfla, stríð milli
þjóða og trúflokka, eins og víðar.
Támflar sem kynnu að vilja andæfa
tígrunum eiga ekki hægt um vik,
því að þeir hafa ekki teljandi þolin-
mæði með þjóðbræðrum sínum,
sem eru annarrar skoðunar en þeir
um eitthvað. Á Jaffnaskaga hafa
tígrar þannig fangabúðir með þús-
undum „öðruvísi hugsandi“.
Stjórnarherinn á og drjúgan hlut
að hryðjuverkum í stríði þessu og
stundum er svo að heyra á fréttum
að fáir Tamílar séu öruggir fyrir
honum. í byrjun mánaðarins skutu
hermenn í víggirtri bækistöð
skammt frá Jaffna til bana 14 Ta-
mfla, sem voru á leið á bátum yfir