Tíminn - 30.01.1993, Side 24
AUGLÝSINGASÍMAR 1 i 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTTOG
FERSKT
DAGLEGA
il
86
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
. ^waone!
HÖGG-
* DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
varahlutir
Hanurshöffta 1 - s. 67-6'44
Iíniinn
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
Stofnun öflugs og alhliða sjávarútvegsfyrirtækis á Suðurnesjum eitt af fjölmörgu sem unnið er að
til að efla atvinnulífið. Keflavík:
Uppsveiflunnar mun fyrst
verða vart á Suðurnesjum
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavík, segir að uppsveiflunnar í
efnahagslífí landsmanna muni fyrst verða vart á Suðumesjum.
Hann segir að meðal þeirra fjölmörgu þátta sem skoðaðir hafl verið
til að efla atvinnulífið á svæðinu með iangtímasjónarmið í huga sé
stofnun stórs og öflugs alhliða sjávarútvegsfyrírtækis. Þar fyrir ut-
an er horft til stofnunar fríhafnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli, upp-
byggingar á vellinum með framlögum frá Mannvirkjasjóði NATO
auk annarra þátta svo sem verslunar, iðnaðar og ýmiskonar þjón-
ustustarfsemi.
„Við erum búnir að vera með það
lengi í maganum að stofha hér á svæð-
inu stórt og öflugt sjávarútvegsfyrir-
tæki í útgerð og fiskvinnslu og nýlega
keypti bærinn hlut Sambandsins í
sjávarútvegsfyrirtækinu Stakksvík hf.
fyrir 45 milljónir króna og á því rúm-
lega 85% í fyrirtækinu."
Þá hafa verið uppi getgátur um að Út-
gerðarfélag Akureyringa hf. og Útgerð-
arfélagið Eldey á Suðumesjum hyggi á
enn frekara samstarf, en það hefúr
ekki fengist staðfesL í vetur hafa tvö af
þremur skipum Eldeyjar landað hjá
ÚA, auk þess sem Eldeyjarskipin hafa
veitt töluvert fyrir aðra sem ekki hafa
getað náð kvótanum með eigin skip-
um. Á síðasta ári veiddu Eldeyjarskipin
þrjú alls um fjögur þúsund tonn og
þar af nam afli keilu og löngu um þús-
und tonnum og heildaraflaverðmæti
skipanna var um 380 milljónir króna.
Bæjarstjórinn segir að ýmsir aðilar í
sjávarútvegi, bæði fyrir norðan og
austan Iand, hafi haft samband við sig
og lýst áhuga á samstarfi við Suður-
nesjamenn um útgerð og fiskvinnslu.
Ástæðan fyrir því er m.a. sú að afli á
gmnnslóð úti fyrir Suðumesjum hef-
ur verið góður á sama tíma og lítið hef-
ur fengist á öðmm hefðbundnum
veiðislóðum. Það hefur m.a. leitt til
þess margur kvótahafinn á erfitt með
að nýta til fulls sínar veiðiheimildir
sökum aflaleysis á sínum heimamið-
um. En þar sem búið er að hefta frjáls-
an aðgang að þeirri auðlind sem fiski-
miðin em er ekki hægt að ráðast í
stofnun öflugs útgerðarfyrirtækis
nema í samvinnu við aðra, hvort sem
átt er við fjármagn, reynslu eða þekk-
ingu.
„Þessi mál og fjölmörg önnur em í at-
hugun og vinnslu og of snemmt að spá
fyrir um hveijar niðurstöðumar verði.
Hitt er aftur á móti alveg ljóst að við
ætlum okkur annað og meira með
okkar starfi en að tjalda til einnar næt-
ur með skrautblómum eða sumar-
blómum því þetta er spuming um við-
Ieitni okkar til sjálfsbjargar til langs
tíma.“
Aftur á móti hefur það staðið upp-
byggingu atvinnulífs á Suðumesjum
fyrir þrifúm að svæðið virðist hvorki
vera talið til landsbyggðar né höfuð-
borgarsvæðis og því ekki notið nauð-
synlegrar fyrirgreiðslu til jafns við Ld.
landsbyggðina. Það hefur Ld. ekki ver-
ið talið sérstakt tiltökumál þótt skip og
kvótar væm seldir ffá svæðinu á sama
tíma og allt hefúr orðið vitlaust þegar
svipað er upp á teningnum í kaupstöð-
um og þorpum í öðmm landsfjórð-
ungum. -grh
hjá Flugleiðum
Flugleiðir tilkynntu í gær form- mlði aö þvf að bæta rekstrarstöðu
lega um áætlun félagsins tii að fyrirtæisins en benda á að efna-
spara 500 milljónir í rekstri. hagsstaða þess sé sterk. Það sé
Veröur 44 starfsmönnum sagt verið að búa í haginn fyrir frekari
upp störfum í þessu sparaaðar- sókn en ekki að hefja skipulegt
átald og á næstu tveimur árum er undanhald á markaðinum.
stefnt að því að fækka stöðugild- Helstu sóknarfærin era að dómi
um hjá fyrirtækinu um 119. Þeir Flugteiðamanna á Evrópu markaði
starfsmenn sem sagt verður upp og era þeir orðnir óþreyjufullir
koma úr ýmsum deildum og eru eftir frjálsræðinu sem EES-
bæði undir- og yfirmenn í fyrir- samningurinn felur f sér í flug-
tækinu. Forsvarsmenn Flugíeiða málum en vonast er tii að með þvf
leggja áherslu á að þessi aðgcrö opnist nýir markaðir.
Er kvóti Árness hf. að verða svipaður kvóta Glettings fyrir samein-
ingu? Árnes hf. til umræðu á borgarafundi á Stokkseyri:
Talað um að selja
Jóhann Gíslason ÁR
Innan stjórnarÁmess hf. hefúr ver-
ið ræddur sá möguleiki að selja tog-
arann Jóhann Gíslason ÁR með
2000 þorskígilda kvóta. Verði hann
seldur verður kvótaeign Árness
sambærileg við kvótaeign Glettings
fyrir sameiningu hans við Hrað-
frystihús Stokkseyrar um áramótin
1991-1992.
Margrét Frímannsdóttir alþingis-
maður upplýsti þetta á almennum
borgarafundi um atvinnumál sem
haldinn var á Stokkseyri á mánu-
dagskvöld. Til þess fundar voru boð-
aðir nokkrir af alþingismönnum
Suðurlandskjördæmis en einnig
mætti Ragnar Arnalds, stjórnarmað-
ur í Byggðastofnun, en hann hefur
barist mjög í Ámessmálinu í stjóm
Byggðastofnunar. —SBS, Selfossi.
...ERLENDAR FRÉTTIR...
PERUCA-STlFLA, Króatiu
Króatar reyna aö
stööva flóð
Króatar unnu hörðum höndum aö þvi i
gær aö koma I veg fyrir aö vatn úr uppi-
stööulóni sködduöu Peruca- stífiunnar
fiæddi yfir heimili 20.000 þorpsbúa en
stifluveggurinn varö fyrir skemmdum 1
bardögum viö hörfandi Serba.
GENF
Semja stríöandi fylkingar
í Bosníu?
Owen lávaröur sáttasemjari sagöi I gær
aö brátt liöi aö þvi aö samningar næöust
milli striöandi fylkinganna þriggja I
Bosniu jafnvel þó aö þaö þýddi aö hann
og meösáttasemjari hans, Cyrus Vance,
yröu aö leita til Sameinuöu þjóöanna til
að ýta þeim I gegn. S.þ. sögöu aö
Bosnlu-Króatar heföu visvitandi komiö I
veg fyrir alla mannúöaraöstoö f Miö-Bo-
snlu siöustu viku og heföi þar með k>ft-
brúin til Sarajevo veriö eina björgunar-
leiöin fyrir meirihluta landsins.
CALAFAT, Rúmeniu
Olíuflutningar júgóslav-
neskra báta
Júgóslavneskur dráttarbátur sem flytur
ollu til Serblu (trássi viö aöflutningsbann
S.þ. sigldi i rólegheitum fram hjá rúm-
enskum og búlgörskum ettiriitsskipum á
Dóná I gær og rúmenskir embættismenn
sögðu aö margir fleiri væru á leiöinni.
KINSHASA
Franski sendiherrann í Zaire
drepinn
Frakkar tilkynntu i gær aö sendiherra
þeira i Zaire heföi veriö drepinn aö yfir-
lögöu ráöi meö vélbyssuskothriö i Kins-
hasa þar sem haldiö var áffam skothríð-
inni eftir aö uppreisnarhermenn gengu
berserksgang.
I BRUSSEL sögöu talsmenn stjóm-
málaflokks i Zaire og alþjóölegrar hjálp-
araöstoöar lækna að margir heföu faliiö
I Zaire.
Belgiska rikisstjómin sagöist hafa
ákveöiö aö flytja belgiska borgara frá
Zaire til Brazzaville, höfuöborgar grann-
ríkisins Kongó. Frakkar hafa lika sent
landgönguliöa til Kongó til aö flytja burt
erienda borgara ef nauösyn krefur.
JERÚSALEM
Palestínumenn vilja ekki
áfrýja
Vonir Israela um aö lægja öldumar I út-
lagadeilunni meö þvi aö leyfa Palestinu-
mönnunum aö áfrýja dómi hæstaréttar
dvlnuöu I gær þegar enginn hinna mörg
hundruö Palestinumanna sem fluttir
voru nauöugir til Llbanon nálguöust
Israela til aö leggja fram áfrýjanir. I
MARJ AZ-ZAHOUR sögöu palestinsku
útlagamir aö þeir myndu aldrei viöur-
kenna dómstóla Israela meö þvf aö
áfrýja brottrekstrarfyrirskipununum.
TÝRUS, Llbanon
ísraelar gera árás
Vopnaöar þyriur Israela og stórskotaliö
geröu I gær mikla skothríö á hæö sem
skæruliöar vinveittir (rönum halda I Suö-
ur- Llbanon eftir aö tvær árásir voru
geröar á öryggissvæöi israela, sögöu
heimildir innan öryggisliösins.
HÖFÐABORG
„Tortímandi stríð“
F.W. de Klerk forseti varaöi uppstökka
Suöur-Afríkumenn viö því aö .tortiming-
arstríö" myndi brjótast út ef sunduriynd-
um stjómmálaleiötogum tækist ekki aö
koma sér saman um breytingar til lýö-
ræöis.
MANAMA
írakar samþykkja að segja
frá
Irakar hafa loks fallist á aö ræöa þaö
mikilvæga atriöi hverjir sjái þeim fyrir
hlutum til aö framfylgja hinni mikiu
vopnaáætlun þeirra, aö þvl er vopnaeftir-
litsmaöur S.þ. sagöi I gær.
MOGADISHU
Stríðsfangar látnir lausir
Sómalski striösherrann Mohamed Farah
Aideed lét I gær 387 strfösfanga lausa til
aö lýsa sáttavilja viö óvini sina.
DENNI DÆMALAUSI
„Jæja ... þið vitið hvað skeður
... eftir aðþið losið ykkur við alltþetta krakkadót..."