Tíminn - 27.02.1993, Qupperneq 7
Laugardagur 27. febrúar 1993
Tíminn 7
Guðmundur Bjarnason alþingismaður segir að meginatriði
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar gangi ekki upp:
Minna lánað en
vextir samt eins
„Meginatriðið í efnahagsstefnu rík-
isstjómarinnar hefur verið að
minni ríkissjóðshalli og minni
Iánsfjáreftirspum ríkissjóðs eigi að
leiða til lækkunar vaxta. Nú hefur
hallinn og lánsfjáreftirspum opin-
berra aðila minnkað og atvinnufyr-
irtækin era nánast hætt að taka lán.
Samt lækka vextir ekkert. Svo virð-
ist því sem meginatriði efnahags-
stefnu stjómarinnar gangi ekki
upp,“ segir Cuðmundur Bjarnason
alþingismaður.
Guðmundur segir að þetta eigi að
kenna ríkisstjórninni tvennt. Hún
eigi að endurskoða efriahagsstefn-
una og velta fyrir sér fleiri leiðum til
að ná niður vöxtum.
í vikunni gaf fjármálaráðuneytið út
skýrslu um ríkisfjármál á síðasta ári.
Samkvæmt skýrslunni varð hallinn
á ríkissjóði 7,2 milljarðar, en hann
var 12,5 milljarðar 1991.
„Það hefur orðið mikið tekjutap hjá
ríkissjóði upp á tvo milljarða. Þetta
stafar m.a. af efnahagsstefnu ríkis-
stjómarinnar. Tekjuskattur og virð-
isaukaskattur hafa dregist verulega
saman og sömuleiðis tekjur af inn-
flutningi vegna þess að umsvifin
hafa verið mikið minni í þjóðfélag-
inu,“ sagði Guðmundur. Hann sagði
að þessi efnahagsstefna SEimdráttar-
ins hefði leitt til aukins atvinnuleys-
is sem aftur hefði kallað á aukna
fjármuni til atvinnuleysisbóta. At-
vinnuleysið gæti auk þess orðið rík-
issjóði og þjóðinni dýrt þegar til
framtíðar væri litið. Hér væri á ferð-
inni framtíðarvandamál sem ríkis-
stjóminni væri hollara að takast á
Guðmundur Bjamason alþing-
ismaður.
við í stað þess að horfa sffellt á svo-
kallaðan fortíðarvanda.
Útgjöld ríkissjóðs fóra milljarð
fram yfir fjárlög. Inn í þeirri upphæð
er veraleg fjárhæð sem skilgreind er
sem kostnaður vegna kjarasamn-
inga. Guðmundur sagði að spurning
væri reyndar hvort hægt væri að
skilgreina það að hætt var að loka
ákveðnum sjúkradeildum sem
kostnað vegna kjarasamninga. Aðal-
atriðið væri að markmið um sparn-
að vora óraunhæf eins og stjómar-
andstaðan hefði margoft bent á. Það
sæist best á útgjöldum í heilbrigðis-
kerfinu. Þar hefðu útgjöld farið
langt yfir áætlun fjárlaga. Það væri
fráleitt af heilbrigðisráðherra að
vera að hrósa sér af einhverjum
spamaði í heilbrigðismálum, spam-
aði sem væri þannig reiknaður að
miðað væri við útgjöld eins og þau
hefðu orðið ef ekkert hefði verið
gert. Guðmundur sagði að svona út-
reikningar væra gapuxaháttur svo
notað væri orðalag sem heilbrigðis-
ráðherra þekkti.
í skýrslu fjármálaráðherra segir
um útgjöld vegna sjúkratrygginga:
„Árangurinn varð ekki eins og til var
ætlast.“
Guðmundur sagði að það sem hefði
átt mikinn þátt í að útgjöld ríkis-
sjóðs urðu ekki meiri en þau þó
urðu væri að forstöðumenn opin-
berra stofnana hefðu lagt mikið á sig
til að halda sig innan fjárlaga. Það
hefðu þeir gert með því að fresta
tækjakaupum og viðhaldi. „í við-
halds- og stofnkostnaði hefur spar-
ast um einn milljarður króna. Ég er
sannfærður um að af þeirri upphæð
á eftir að fara veralega mikið út aft-
ur. Stofnanir hafa lagt áherslu á að
halda rekstrinum gangandi en við-
hald er trassað og stofnkostnaður
geymdur," sagði Guðmundur.
Guðmundur benti á að í desember
hefði fjármálaráðherra gert ráð fyrir
í fjáraukalögum að hallinn á ríkis-
sjóði yrði níu milljarðar. Ein af
ástæðunum fyrir því að sú varð ekki
niðurstaðan væri að viðhalds- og
stofnkostnaður hefði orðið miklu
minni en ráðherra hefði gert ráð fyr-
ir. Líklegt væri að víða myndu stofn-
anir nýta sér heimildir sem flokkast
undir þennan lið á þessu ári þar sem
þær mættu flytja fjárheimildir milli
ára ef þær héldu sig innan ramma
fjárlaga. -EÓ
Blómstrandi menning á Suðurlandi:
Þrjú stykki á fjölunum
Davíð Kristjánsson leikur titilhlutverkið í sýningu Leikfélags Sel-
foss, Fílamanninum.
Óhætt er að segja að leiklistarlíf á
Suðurlandi sé í miklum blóma
þessar vikumar því nú era á fjölun-
um eða væntanlegar þangað víðs
vegar um Ámessýslu þijú Ieikrit.
Það era Hvergerðingar, Selfyssing-
ar og Laugvetningar sem standa að
þessum menningarauka.
Fyrst skal nefna Leikfélag Selfoss.
Það framsýnir í lok næstu viku,
föstudagskvöldið 5. marsjeikritið
Fílamanninn eftir bandaríska leik-
skáldið Bemard Pomerance en leik-
ritið hefur verið sýnt austan hafs og
vestan við góðar undirtektir. Þetta
er í fyrsta sinn sem Fflamaðurinn er
sýndur hérlendis og það er Sigur-
geir Hilmar Friðþjófsson sem þýtt
hefúr leikritið. Hann fer jafnframt
með hlutverk í sýningunni. Leik-
stjóri er Þórann Sigurðardóttir. AIls
koma um tuttugu leikarar fram í
sýningunni. Fflamanninn sjálfan
Ieikur Davíð Kristjánsson.
í Hveragerði er á fjölunum Bróðir
minn Ljónshjarta eftir Astrid Lind-
gren en það era félagar úr Leikfélagi
Hveragerðis sem sýna verkið undir
leikstjóm Guðjóns Sigvaldasonar.
Með helstu hlutverk fara Höskuldur
Eiríksson, Rósant Guðmundsson,
Anna Jórann Stefánsdóttir og Jó-
hann IV. Sigurðsson. Framsýning
var ellefta febrúar og síðan hefur
verkið verið sýnt í húsnæði grann-
skólans í Hveragerði við ágæta að-
sókn.
Þá er leikhópur Menntaskólans að
Laugarvatni að sýna leikritið Land
míns föður eftir Kjartan Ragnarsson
um þessar mundir. Sýning þessi er
sett á svið f tilefni af 40 ára afmæli
skólans í aprflmánuði nsestkom-
andi. Leikstjóri er Ingunn Jensdótt-
ir og hljómsveitarstjóri er Hilmar
Öm Agnarsson, organisti í Skál-
holti. Um 45 manns taka þátt í sýn-
ingunni og verður næsta sýning
þann 1. mars í Félagsheimili Kópa-
vogs.
—SBS, Selfossi.
FASTEIGNIR TIL SOLU A
AKRANESI, VESTMANNA-
EYJUM OG LÓÐ í KEFLAVÍK
Kauptilboð óskast í effirtaldar eignir:
HAFNARGATA 91, KEFLAVÍK, 3200 m2 lóð með litlum vigtar-
skúr á lóðinni.
ÞJÓÐBRAUT 1, AKRANESI. Atvinnuhúsnæði, stærð húsnæð-
isins er 187,1 m2. Brunabótamat er kr. 6.536.000,-. Húsnæðið
verðurtil sýnis í samráði við Svein Garðarsson, simi 93-13244.
KIRKJUVEGUR 22, VESTMANNAEYJUM (Samkomuhús Vest-
mannaeyja á mótum Kirkjuvegar og Vestmannabrautar). Stærð
hússins er 9.275 m3. Branabótamat er kr. 103.169.000,-. Húsið
veröurtil sýnis í samráði við Ingvar Svemsson, fulltrúa sýslu-
manns, sími 98-11066.
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum aðilum og á
skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavik.
Tllboð verða opnuö á sama stað kl. 11:00 f.h. 8. mars 1993 I
viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til háskóia-
náms í Kína skólaárið
1993-94
Stjómvöld Alþýðulýöveldisins Klna bjóða fram tvo styrki
handa Islendingum til háskólanáms ( Klna námsárið 1993-
94.
Umsóknum um styrkina skal komið til menntamálaráöuneyt-
isins, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 26. mars n.k. á sér-
stökum eyöublööum sem þar fást. Umsóknum fylgl stað-
fest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
26. febrúar 1993.
fyrir nokkur
umferðarlagabrot:
Umferöarráö vekur athygli á
nokkrum neöangreindum sektarfjárhæöum,
sem eru samkvæmt leiöbeiningum ríkissak-
sóknara til lögreglustjóra frá 22. febrúar 1991
Akstur gegn rauðu Ijósi - allt að 7000 kr.
Biðskylda ekki virt “ 7000 kr
Ekið gegn einstefnu “ 7000 kr.
Ekið hraðar en leyfilegt er “ 9000 kr.
Framúrakstur við gangbraut “ 5000 kr.
Framúrakstur þar sem bannað er “ 7000 kr
„Hægri reglan“ ekki virt “ 7000 kr.
Lögboðin ökuljós ekki kveikt 1500 kr.
Stöðvunarskyldubrot - allt að 7000 kr.
Vanrækt að fara með ökutæki
til skoðunar “ 450o (<r.
Öryggisbelti ekki notuð “ 3000 kr.
MJÖG ALVARLEG OG ÍTREKUÐ BROT
SÆTA DÓMSMEÐFERÐ.
FYLGJUM REGLUM - FORÐUMST SLYS!
mÉUMFERÐAR
Uráð
-Q eftit boLta
Áamut Iratn!
yUMFEROAR
RÁO