Tíminn - 27.02.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 27. febrúar 1993
Tíminn 11
VlR SKULDIR SKULDIR SKULDIR
árin, eins og margir þeirra, sem
nú eru á miðjum aldri, kannast
við. „Heldur erum við í húsbréfa-
kerfinu að tala um lán til 25 ára.
Og greiðslubyrði þeirra léttist
ekkert, heldur er alltaf hin sama
öll þessi 25 ár.“
Afskaplega margar
freistingar
íbúðalán úr opinbera húsnæðis-
lánakerfinu eru samt aðeins rétt
rúmlega helmingur heildarlána
heimilanna, og sömuleiðis sá
hlutinn sem alla jafna ber hóflegri
vexti en hinn helmingurinn. Við
sjáum t.d. auglýsingar á nýjum
bflum þar sem menn sleppa með
lága útborgun og þurfa svo „bara“
að borga 19.895 kr. á mánuði. Er
samt ekki hætt við að þetta gæti
orðið mörgum erfitt?
„Það eru afskaplega margar
freistingar í gangi fyrir fólk,“
sagði Sigurður. Allir séu vitanlega
að reyna að selja sína vöru. Ungir
og aldnir standi daglega frammi
fyrir alls konar gylliboðum. Og
allir bjóði fjölda lánamöguleika.
Jafnvel enga útborgun og síðan
eitthvert smáræði á mánuði dreift
á svo og svo langan tíma.
Sigurður segir því brýnt að menn
átti sig á heildardæminu. Þó 19
þús. kr. á mánuði virðist kannski
ekki stór upphæð fyrir nýjan bfl,
þá geti hún samt orðið mjög stór,
komi hún til viðbótar greiðslu-
byrði sem nemur 30 þús., 40 þús.
og jafnvel 50 þús. kr. af öðrum
skuldbindingum sem menn eru
með fýrir. Þá sé þetta óneitanlega
orðið ansi mikið fyrir almenna
launþega.
Of mörg lífeyris-
sjóðslán í of skamm-
vinnar fjárfestingar
Lífeyrissjóðslán hafa löngum ver-
ið vinsæl, m.a. vegna þess að lang-
ur lánstími léttir greiðslubyrði
þeirra. Lán til sjóðfélaga hafa
numið samtals 3-4 milljörðum
króna á ári að undanförnu. En
geta slík langtímalán samt ekki
stundum verið viðsjárverð?
„Það er eitt af því sem ég hef
ósjaldan haldið fram, að fólk taki
of oft Iífeyrissjóðslán, vegna of
skammvinnra fjárfestinga. Maður
þekkir dæmi um að menn noti líf-
eyrissjóðslán til bflakaupa, hús-
gagnakaupa og jafnvel utanlands-
ferða, þ.e. til kaupa á hlutum sem
kalla má hreinar og klárar neyslu-
vörur.“ Með lífeyrissjóðsláni sé
fólk sem sagt að taka á sig skuld-
bindingar til 10, 15 og jafnvel allt
upp í 25 ár, til þess að kaupa vörur,
t.d. bfla sem endast að hámarki í
8-10 ár með góðri meðferð.
„Það er oft á tíðum eitt og annað
svona lagað sem mér finnst að
okkur fslendingum hætti allt of
oft til að „klikka“ á. Við athugum
ekki nægilega hvað við erum að
kaupa. Hvað við erum að fara út í.
Vegna hvers við erum að taka á
okkur hinar og þessar skuldbind-
ingar. Mönnum finnst t.d. tilvalið
að taka lífeyrissjóðslán vegna þess
að greiðslubyrði þeirra er léttari
en af skammtímaláni. En það er
bara ekkert sniðugt að taka lán til
10 eða 20 ára til þess að kaupa
hlut sem er orðinn ónýtur eða úr-
eltur áður en fólk hefur einu sinni
borgað helminginn af lífeyris-
sjóðsláninu. Þarna tek ég þó dæmi
um hámarksendingu neysluvara,
flestar endast þær miklu skemur
en 5-10 ár.“ Jafnvel ennþá fráleit-
ara sé að skuldbinda sig til að
borga af láni til ársins 2010 til
þess að komast í 3ja vikna utan-
landsferð í sumar.
Smáskuldimar líka
hættulegar
Geta „smáskuldirnar" kannski
ekki síður orðið hættulegar held-
ur en stóru langtímalánin?
„Smáskuldirnar eru afskaplega
hættulegar, því verður ekki neit-
að. Hættulegastar eru þær fyrir
þær sakir, að fólk virðist svo sjald-
an gera sér grein fyrir því að
margt smátt gerir eitt stórt."
Sigurður telur samt ýmis merki
sjáanleg um að landsmenn fari
heldur að hægja á sínum óhóflegu
lántökum. T.d. virðist fólk nú
loksins farið almennt að gera sér
grein fyrir því að það þurfi að
borga verðtryggð lán til baka með
fullu raungildi og rúmlega það. Að
fleiri og fleiri skuli hætta við að
„nýta sér allan lánsrétt sinn“ er
t.d. lýsandi dæmi um þetta. - HEI
J_ÖGREGLUSTJÓRINN
I REYKJAVIK
Hverfisgötu 115 - Sími 698000 - Telefax 699165
Laus staða
deildarlögfræðings
Staða deildarlögfræðings við embætti lögreglu-
stjórans í Reykjavík er laus til umsóknar. Leitaö
er að reyndum lögfræðingi í fullt starf. Umsóknum
ber að skila til starfsmannastjóra í aðallögreglu-
stöðinni að Hverfisgötu 115, Reykjavík, eigi síðar
en 31. mars nk.
'VIÐ SEM OKUM!
Höfum gott bil á milli bíla!
IUMFERÐAR
Iráð
' - fjármál eru okkar fag UERÐBRÉFAUIÐSKIPT / 1
\7 SAMUINNUBANKANI SUÐURLANDSBRAUT 18 ■ SÍMI 68856 s 3
Frá fjármálanámskeiði hjá Granda í fyrrakvöid. LjósmyndÁrni Bjarna
Yfir 60 fiskvinnslustarfsmenn hafa
skráö sig á fjármálanámskeiði VÍB
Yfir 60 af starfsmönnum í fiskvinnslu Granda hf. hafa
þegið boð fyrirtækisins um 2ja kvölda fjármálanámskeið,
þeim að kostnaðarlausu. Grandi réði VÍB (Verðbréfa-
markað íslandsbanka) til þess að sjá um kennsluna. Svo
mikill áhugi á leyndardómum fjármálaheimsins reyndist
meðal starfsmanna Granda, að rúmlega 60 manns höfðu
skráð sig áður en námskeiðið átti að hefjast Aðeins
helmingur þess hóps komst að á námskeið, sem haldið
var kvöldin 23. og 24. þessa mánaðar, svo annað nám-
skeið verður haldið 2. og 3. mars. í athugun er að halda
enn fleiri námskeið.
Talsmenn Granda h.f. segja þessi námskeið bæði fróðleg
og skemmtileg. Þar sé m.a. farið yfir lífeyrismál, hús-
næðismál og að sjálfsögðu heimilisbókhaldið.
HANDSALŒ
,5j| VERÐBRÉFAMIÐLUN
■ VIDSKIPTAVAKI HÚSBRÉFA
ERLEND VERÐBRÉF
F
,j, FJÁRVARSLA
. FJÁRMÁLARÁÐGJÖF
HANDSAL HF.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI ■ AÐILI AÐ VERÐBRÉFAÞINGI ÍSLANDS
ENGJATEIGI 9 ■ 105 REYKJAVIK • SÍMI 686111 • FAX 687611
• •
- eignarskattsfrjáls og án bindingar
Á síðasta ári gáfu Öndvegisbréf 8,6% raunávöxtun.
Öndvegisbréf eru eignarskattsfrjáls og innleysanleg að jafnaði samdægurs.
Kynntu þér kosti Öndvegisbréfa.
&
LANDSBREF HF.
Ráðgjafar Landsbréfa og umboðsmenn í Landsbanka íslands
um allt land.
' 8
Landsbankinn stendur með okkur I
Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavik, sími 91-679200, fax 91-678598
Löggilt verdbréfafyrirtæki. Adiii ad Verðbréfaþingi íslands.