Tíminn - 27.02.1993, Side 19
Laugardagur 27. febrúar 1993
LA NEYSLA NEYSLA NEYSLA
— segir Sólrún Halldórsdóttir hagfræðingur,
sem leiðir námskeið í heimilisbókhaldi á vegum
Neytendasamtakanna
-fiármál eru okkar fag!
UERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
SAMUINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568
getur sparað þarna 17 þúsund
krónur á ári.“
Nú hefur byrðin af greiðslu-
kortareikningunum reynst
mörgum erfið?
„Það er rétt, og notkun
greiðslukorta og blekkingin,
sem oft tengist þeim, er tekin
fyrir. Fólk lítur svo á að þarna sé
um vaxtalaust lán að ræða, sem
ekki þurfi að standa skil á fyrr en
eftir ákveðinn tíma. En komið
hefur á daginn að mjög fáir ráða
við að nýta lánskort á þennan
hagkvæma hátt. Flestir eru fyrr
en varir búnir að binda sig í báða
skó, eru með mest af sinni fram-
færslu á kortinu og geta ekki
verslað á þeim stöðum sem
bjóða ódýrustu vöruna, en taka
oft ekki við kortum. Margir
verða að nýta sér greiðsludreif-
ingar, en þau Ián eru mjög dýr.
Við förum annars í lánskostnað
almennt og það hve hægt er að
auka ráðstöfunartekjurnar mik-
ið með því að losa sig við láns-
fjármögnunina og komast á
„núllið“. Einhver besta tekju-
aukningin, sem um ræðir, er að
geta staðgreitt hlutinn. Sann-
leikurinn er sá að flestir fórna
höndum þegar þeir sjá hverju
þeir hafa eytt í lánakostnaðinn.
Það er misjafnt hve lengi fólk er
að losa sig úr viðjum lánakostn-
aðar. Sumum tekst þetta á 8-10
mánuðum, en hjá öðrum getur
það tekið eitt og hálft ár eða
Hefur þú sjálf farið eftir þess-
um reglum?
„Já, hvað mínum eigin fjármál-
um viðvíkur þá reyni ég eins og
ég get að fara eftir því sem ég er
að kenna, enda fengi ég annað
ekki af mér. Satt að segja hef ég
fært heimilisbókhald mjög
lengi, byrjaði á því löngu áður
en ég tók að starfa að þessu.
Upphafið var þegar ég var að
reyna að lifa af námslánunum,
sem voru af mjög skornum
skammti og komu að auki allt of
seint. Þá kenndi erfið reynsla
mér mörg þessara sparnaðarráða
og þau hef ég haldið mig við síð-
an.
Hvernig hefur nemendunum
svo gengið?
„Ég hef fundið að fólk er mjög
ánægt og margir hafa haft sam-
band, en eins og alltaf leiðir tím-
inn í ljós hvernig gengur. Margir
halda að örðugleikarnir séu bara
hjá þeim og finnst allir aðrir
bera sig svo vel. En í reynd eru
hlutirnir oftar en ekki í allt öðr-
um skorðum en virðist á yfir-
borðinu.
Já, nú hefur atvinnulausum
fjölgað. Fólk, sem er í þeim
sporum og til mín leitar, fær þau
ráð að það megi engan veginn
fresta því að skoða stöðu sína
mjög nákvæmlega. Fólk þarf að
spyrja hvað það geti gert svo það
missi ekki flest það, sem það
kann að eiga. Þegar atvinnuleys-
ið ber að dyrum, verður að end-
urskipuleggja fjármálin frá
grunni, því þótt alltaf vonist
menn til að fá vinnu þá getur
það dregist. í þessum tilfellum
ætti fólk því að leita eftir ein-
staklingsráðgjöf- Ég get þó ekki
sagt að fleiri atvinnulausir hafi
leitað til mín að undanförnu frá
því að ég byrjaði hér, en það
kann að eiga sér skýringar í því
að á þessum tíma hafa fleiri aðil-
ar komið inn í myndina sem sér-
hæfa sig í málefnum atvinnu-
lausra."
Nokkuð að lokum?
„Það væri þá helst það að ég
vildi minna þá, sem hafa lengi
ætlað að fara að fylgjast betur
með heimilisútgjöldunum, á að
það er ósköp einfalt að færa
heimilisbókhald. Til þess þarf
enga sérfræðiþekkingu. í Heim-
ilisbókhaldi Neytendasamtak-
anna er að fmna einfaldar leið-
beiningar fremst, sem auðvelda
mönnum að byrja án vandræða.
Um leið eða í framhaldi af því
ættu menn svo að koma á nám-
skeið til okkar og sannfærast um
hve lítið þarf til svo stór árangur
náist. Þótt fólk sé margt tekið að
draga úr þeim liðum, sem eru
augljósastir í útgjöldum þess, þá
er það ekki fyrr en farið er að
færa bókhaldið að sést hvar
mestu möguleikarnir liggja. Og
fólk uppgötvar að þetta er hreint
engin kvöl, heldur framkvæm-
anlegt með bros á vör!“
waou
undirtökunum
ídúmmni
viö|ármál
fjölskyidunnar
Með því að gera fjárhagsáætlanir og halda þannig utan
um fjármálin er hægt að draga úr óþarfa útgjöldum.
Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar er krókur á móti bragði
eyðslunnar. Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar er mappa
með töflu, sem einfalt er að fylla út og sýnir svo ekki
verður um villst í hvað peningarnir fara.
Notaðu Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar og þú berð
hærri hlut í glímunni
við fjármálin. . |j LðndSbSilkÍ
Islands
Banki allra landsmanna
■ Þjónustufulltrúi Landsbankans
leiðir þig í allan sannleikann um
Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar.
Þjónustan er þér að kostnaðarlausu.
£| Bankinn lætur þér í té viðskiptayfirlit
síðasta árs gegn vægu gjaldi.