Tíminn - 27.02.1993, Page 25
Laugardagur 27. febrúar 1993
Tíminn 25
Kjartan Jónsson
Fæddur 21. apríl 1936
Dáinn 19. febrúar 1993
í dag verður jarðsettur frá Hólma-
víkurkirkju Kjartan Jónsson, skip-
stjóri á Hólmavík, sem lést fyrir ald-
ur fram þann 19. febrúar s.I. á 57.
aldursári. Varð hann bráðkvaddur
við stýrið á báti sínum, Hilmi ST-1,
er hann var að rækjuveiðum á
Húnaflóa. Við fráfall Kjartans er
höggvið stórt skarð í okkar fámenna
samfélag, sem erfitt verður að fylla.
Ætíð er það svo á slíkum stundum
að við stöndum agndofa og eigum
erfitt með að sætta okkur við orðinn
hlut, en ekki tjóar að deila við dóm-
arann. í huga okkar samferðamann-
anna stendur þó eftir minningin um
góðan dreng, prúðmennið sem á
einskis manns hlut vildi ganga.
Kjartan Jónsson var fæddur 21.
apríí 1936 á Kaldrananesi í Kaldr-
ananeshreppi, yngstur fjögurra
bræðra. Foreldrar hans voru hjónin
Jón Áskelsson, bóndi þar, og kona
hans Kristrún Ingimarsdóttir, sem
ættuð var af Snæfellsnesi í föður-
kyn, en maður hennar var af hinni
kunnu Pálsætt, sem fjölmenn er um
Strandir og víðar.
Jóni Áskelssyni varð ekki langra lff-
daga auðið, en hann lést 46 ára gam-
all 1944. Eftir dauða hans hélt Krist-
rún áfram búskap á Kaldrananesi í
nokkur ár, en fluttist síðan, ásamt
Kjartani, yngsta syninum, til
Hólmavíkur. Par kynntist hann eft-
irlifandi konu sinni, Vigdísi Ragn-
arsdóttur, en þau gengu í hjónaband
1963 og settu saman heimili á
Hólmavík. Þeim Vigdísi varð þriggja
dætra auðið. Þær eru í þessari ald-
ursröð: Hjördís Jóna, Hafdís Björg
og Herdís Rós. Barnabömin eru nú
orðin þrjú.
Árið 1964 lá leiðin til Reykjavíkur,
þar sem þau áttu heima í 9 ár. Fyrstu
árin þar stundaði Kjartan sjóinn, var
m.a. á sfldarbátum á Norðursjónum,
en síðari árin vann hann í landi, þá
sem verkstjóri í Umbúðamiðstöð-
inni hf.
Hugurinn leitaði þó til æskustöðv-
anna og 1973 bregða þau á það ráð
að flytja norður til Hólmavíkur, þar
sem þau byggðu sér fljótlega hús og
þar var Kjartan upp frá því útgerðar-
maður og skipstjóri á Hilmi ST-1.
Auk sjómennskunnar tók Kjartan
af miklum áhuga þátt í því mannlífi
sem hrærðist í kringum hann. M.a.
var hann mjög virkur í samtökum
rækjuveiðimanna við Húnaflóa.
Mörg ár sat hann í hreppsnefnd
Hólmavíkurhrepps og hafnamefnd
Hólmavíkurhafnar. Þá starfaði hann
í Lionsklúbbi Hólmavíkur og var þar
oftsinnis í stjóm. Á öllum þessum
sviðum og mörgum fleirum starfaði
hann af þeirri alúð og samviskusemi
sem honum var lagin. Víða stendur
skarð fyrir skildi þar sem Kjartans
nýtur ekki lengur við, en ég veit að
það er mest í hans anda að halda
starfmu áfram eins og ekkert hafí í
skorist.
Að leiðarlokum vil ég þakka Kjart-
ani fyrir samfylgdina. Ég og fjöl-
skylda mín vottum Vigdísi og öðmm
ástvinum hans dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Kjartans Jóns-
sonar.
Brynjólfur Sæmundsson
Það er skammt stórra högga á milli í
minni heimabyggð, Hólmavík. Fyrst
Kristján Jónsson, fyrrverandi sím-
stöðvarstjóri, og nú Kjartan Jónsson
skipstjóri, en hann varð bráðkvadd-
ur um boð í báti sínum Hilmi ST-1
þann 19. febrúar s.l.
Mig langar að minnast Kjartans
með nokkrum orðum, því margt
höfúm við átt sameiginlegt um árin.
Mín fyrstu kynni af honum voru þau
þegar við vorum saman í Bama- og
unglingaskóla Hólmavíkur fyrir 44
árum; tókst þá með okkur slík vin-
átta, sem aldrei hefur borið skugga
á.
Kjartan var fæddur á Kaldrananesi
í Bjamarfirði, 21. apríl 1936. For-
eldrar hans vom Kristrún Ingimars-
dóttir, sem lést fyrir tveimur ámm á
93. aldursári, og Jón Áskelsson, sem
lést um aldur fram, aðeins 46 ára.
Kjartan var þá á 9. ári. Hann var
yngstur af fjórum bræðmm. Hinir
em: Jóhann, fæddur 1921, dáinn
1968; Ingimar, fæddur 1922, bóndi á
Kaldrananesi; og Áskell, fæddur
1924, starfsmaður í Sementsverk-
smiðju ríkisins, búsettur á Akranesi.
Ennfremur ólu þau Kristrún og Jón
upp fósturdóttur, Halldóm Svövu
Clausen, sem búsett er í Reykjavík.
Segja má að ævistarf Kjartans hafí
verið sjómennska. Hann fór ungur
að ámm á vertíðir til Reykjavíkur,
ísafíarðar og á Akranes; þá var hann
á síldarbátum yfir sumartímann, og
í nokkur ár á loðnubátum, og þá á
sfldveiðum í Norðursjó. Þá starfaði
hann í nokkur ár í Umbúðamiðstöð-
inni í Reykjavík sem verkstjóri.
Árið 1960 létum við, sá sem þetta
ritar, Kjartan og Jóhann bróðir
hans, smíða fyrir okkur 12 tonna bát
í Skipasmíðastöð Inga Guðmons-
sonar á Akranesi. Þann bát, Farsæl
ST-28, áttum við saman og gerðum
út meðan heilsa og kraftar Jóhanns
leyfðu, þá seldum við hann þeim Al-
freð Elíassyni og Kristni Olsen hjá
Loftleiðum h.f.
Árið 1972 kaupir Kjartan ásamt
þeim Jóni E. Alfreðssyni, Bjama
Halldórssyni og Unnari Ragnarssyni
á Hólmavík, vélbátinn Hilmi ST-1;
þá átti líka í bátnum Guðmundur
Guðmundsson, sem fyrrverandi
annar eigandi. Og alla tíð síðan var
Kjartan skipstjóri á Hilmi, eða í 20
ár, vel látinn af öllum sem með hon-
um hafa verið, og jafnframt fengsæll
skipstjóri.
Árið 1963 giftist hann mágkonu
minni, Vigdísi Sigríði Ragnarsdótt-
ur, en hún er dóttir Ragnars Valdi-
marssonar og Þuríðar Guðmunds-
dóttur á Hólmavík. Syrgja þau nú
elskulegan tengdason, sem reyndist
þeim alltaf vel. Börn Kjartans og
Vigdísar eru:
Hjördís Jóna, eiginmaður Halldór
Grétar Gestsson, þau eru búsett í
Álaborg í Danmörku. Þau eiga þrjú
börn: Elísu Ósk, Kjartan Orra og
Baldur Örn. Hafdís Björk, hennar
sambýlismaður Ægir Karl Ægisson,
þau eru búsett í Reykjavík. Herdís
Rós, hennar sambýlismaður Jón
Marinó Birgisson, þau eru búsett á
Hólmavík.
Kjartan og Vigdís hafa alltaf átt
heima á Hólmavík, nema árin 1964-
1972 sem þau áttu heima í Reykja-
vík í Rofabæ 29. Þar var ávallt gott
að koma og geta átt þar samastað
þegar íjölskyldan átti leið til Reykja-
víkur. Jafn ánægjulegt var það að
geta haft þau hér hjá okkur, eftir að
við fluttum í Mosfellsbæinn, þegar
þau áttu leið hingað suður.
Félagsmál lét Kjartan töluvert til
sín taka, hann var í hreppsnefnd
Hólmavíkurhrepps í mörg ár, og þá
jafnframt sem formaður hafnar-
nefndar. Hans verður nú sárt saknað
af félögunum í Lionsklúbbi Hólma-
víkur, en þar var hann félagi í 20 ár,
og eins af spilafélögunum í Táfl- og
bridgefélagi Hólmavíkur, en þar var
hann ávallt mjög virkur félagi og
hafði yndi af því að spila bridge, og
góður spilamaður.
Það er margt sem kemur upp í hug-
ann í minningunum um vin minn
og félaga Kjartan Jónsson. Mér er
það þó minnisstætt þegar þau hjón
voru hjá okkur Valdísi í Vík í Mýrdal
á 50 ára afmælisdegi Kjartans. Við
höfðum ekið tveir upp á Reynisfjall,
tókum myndir hver af öðrum, sett-
umst niður og horfðum yfir hafið á
fallegu vorkvöldi og vorum að rifja
upp minningar frá æskuárunum,
þegar við vorum saman á sjónum
fyrr á árum, herbergisfélagar á vetr-
arvertíðinni á Akranesi árið 1956 og
eins margra ára samstarf okkar í
hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
Elsku Vigdís mín, þinn er harmur-
inn sárastur, dætranna ykkar,
tengdasona og barnabama. Við Vald-
ís og fjölskyldur okkar sendum ykk-
ur og öllum öðmm ástvinum inni-
legar samúðarkveðjur á sorgar-
stundu.
Blessuð sé minning Kjartans Jóns-
sonar.
Karl E. Loftsson
Það var á föstudagskvöldið í síðustu
viku, sem fréttin mætti mér í kjall-
aratröppunum, Kjartan var dáinn.
Mér varð fyrst á að hugsa, að þetta
hlyti að vera einhver misskilningur.
Kannski hafði hann veikst skyndi-
lega, en hann gat ekki verið dáinn.
Það var sem tíminn stæði kyrr eitt
andartak, og þá gerði ég mér ljóst,
að hér var ekki hægt að misskilja
neitt. Þetta var veruleiki.
Ég man ekki lengur hvenær ég
kynntist Kjartani fyrst. Líklega hef-
ur það verið á íþróttamóti í Sævangi
fyrir svo sem 15 ámm. Fyrsta mynd-
in er af jákvæðum og glaðlyndum
manni, sem var ailtaf tilbúinn að
rétta hjálparhönd í íþróttastarfinu.
Stundum vantaði starfsmenn á síð-
ustu stundu, kannski til að mæla
kúluvarpið eða halda á skeiðklukku.
Og þegar aðrir brugðust var það
Kjartan sem bjargaði málinu. Hann
var líka einn örfárra af eldri mönn-
unum, eins og menn um fertugt
vom skilgreindir í þá daga, sem tók
sjálfur virkan þátt í íþróttunum, og
fáir fylgdust með frammistöðu barn-
anna sinna af meiri áhuga.
Þessi fyrsta mynd af Kjartani var
komin til að vera, og þegar árin liðu
varð myndin enn skýrari. Þegar ég
réðst til starfa hjá Hólmavíkur-
hreppi haustið 1985 sat Kjartan í
hreppsnefnd, og varð þar með einn
af nánustu samstarfsmönnum mín-
um. Þar þekkti ég strax aftur já-
kvæða lífsviðhorfið og hjálpsemina,
sem ég hafði fyrst séð á íþróttavell-
inum nokkmm ámm fyrr. Kjartan
var einn af 5 aðalmönnum í hrepps-
nefnd fyrstu 5 árin mín á Hólmavík,
og á þessum tíma leit hann oft við á
skrifstofu hreppsins til skrafs og
ráðagerða. Það var alltaf gott að fá
Kjartan í heimsókn. Hann kunni þá
list að sjá jákvæðu hliðarnar á mál-
unum, og vandamál vom til þess að
leysa þau, en ekki til að fárast yfir.
Þetta em ómetanlegir eiginleikar á
tímum landlægrar svartsýni.
Það var alltaf gaman að vera sam-
ferða Kjartani, og þegar litið er til
baka birtast atvikin í minningunni
eins og myndir á vegg, myndir sem
aldrei verða teknar niður á meðan
húsið stendur. Þama er mynd af
ungu fólki á gönguskíðum. Kjartan
er langelstur í hópnum, en samt
jafnaldri þeirra yngstu. Þama er
mynd af hópi manna sem situr í
stofunni heima hjá Kjartani og
Viggu og reynir að hugsa eitthvað
skemmtilegt. Þetta er Góunefndin
1989. Ein myndin er af Kjartani í
brúnni á Hilmi í fögm vetrarveðri í
mars 1990, á leið inn í Steingríms-
fjörð að skoða búrhvali. Enn ein
myndin er af hreppsnefndinni á
göngu um götur Reykjavíkur á milli
stofnana ríkisvaldsins. Og síðasta
myndin er af hreppsnefndarfundi
27. janúar sl.
Hér verður ekki gerð tilraun til að
rekja æviferil Kjartans, en aðeins
minnst á fátt eitt. Hann ólst upp á
Kaldrananesi í Bjarnarfirði á þeim
ámm, sem skfðaáhugi Bjarnfirðinga
var hvað mestur. Þar var fremstur í
flokki göngumeistarinn Jóhann
Strandamaður, bróðir Kjartans, en
hann lést langt um aldur fram á 7.
áratugnum. Það var gaman að heyra
lýsingar Kjartans á skíðaferðum
ungu mannanna í Bjarnarfirði. Þar
vom hreystin og lífsgleðin í fyrir-
rúmi, og stundum var kannski tekin
áhætta í brekkum, sem ekki höfðu
áður verið markaðar skíðafömm.
Um 1963 er Kjartan sestur að á
Hólmavík ásamt eftirlifandi konu
sinni, Vigdísi Ragnarsdóttur. Eftir
það lá leiðin til Reykjavíkur, en árið
1973 koma Kjartan og Vigga alkom-
in heim, og eftir það bjuggu þau á
Hólmavík ásamt dætrunum sínum
þremur. Kjartan var fyrst kosinn í
hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps
1982 og sat þar sem aðalmaður í 8
ár, en síðan sem varamaður frá ár-
inu 1990. Þá var hann formaður
hafnarnefndar um árabil.
Fjölskyldan, heimilið og félags-
störfin skipuðu stóran sess í lffi
Kjartans, en eins og vænta mátti var
vinnan líka stunduð af alúð. Kjartan
var lengst af skipstjóri á Hilmi ST-1,
auk þess að vera einn af eigendum
Guðmundar Guðmundssonar hf.
sem gerir bátinn út. Hilmir var
happafley og Kjartan farsæll skip-
stjóri. Það var að morgni föstudags-
ins 19. febrúar sl. sem Kjartan lagði
upp í síðustu veiðiferðina á Hilmi
við þriðja mann, og í brúnni á Hilmi
rann hinsta stundin upp. Skyndilega
var Kjartan allur, langt um aldur
fram.
Við vitum svo sem öll, að sjúkdóm-
ar og dauði gera ekki boð á undan
sér. Samt finnst manni óskiljanlegt
að hraustur maður á besta aldri geti
hnigið niður örendur án minnsta
fyrirvara.
Allir, sem þekktu Kjartan, hafa
misst mikið, og Hólmvíkingar hafa
misst einn af sínum bestu félögum.
En enginn hefur þó misst eins mik-
ið og Vigdís og dætumar þrjár, Hjör-
dís, Hafdís og Herdís. Þó að orð
megi sín lítils, fylgja þessum línum
dýpstu samúðarkveðjur til þeirra og
annarra nánustu aðstandenda.
f dag býr sorgin í hjörtum Hólm-
víkinga. En sorgin býr þar ekki ein.
Þar búa Iíka þakklætið og gleðin yfir
því að hafa kynnst góðum samferða-
manni. Minningamar um góðar
stundir em í senn uppspretta sorg-
arinnar og helsta huggunin. Með
orðum spámannsins hljóðar þetta
svo: „Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran).
Guð blessi minningu Kjartans
Jónssonar og veiti eftirlifandi ástvin-
um styrk í Iífinu.
Stefán Gíslason,
Hólmavík
Innilegar þakkir öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför
Bríetar Magneu Stefánsdóttur
og heiðruðu minningu hennar.
Helga Pétursdóttir Höröur Valdimarsson
Eysteinn Pétursson Aldfs Hjaltadóttir
Kristín Pétursdóttir Ágúst Alfreðsson
barnabörn, barnabamaböm og fjölskyldur
_____________________/
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og út-
för bróður okkar
Helga Pálssonar
frá Seljalandi, Fljótshverfi
Sérstakar þakkir faenim við læknum og starfsfólki Sólvangs I Hafnarfiröi.
Systklnin
/
%,SV^
FASTEIGNIR TIL SÖLU
Á STÓRÓLFSVÖLLUM,
HVOLHREPPI
Kauptilboö óskast I eftirtaldar húseignir á Stórólfsvölium I Hvolhreppi.
Heimilt er að bjóða I hverja eign fyrir sig eöa allar saman.
Birgöaskemma og verksmiðja 1688,5 m2 brunabótamat 64.301.000
Timbureiningahús 130,2 m2 brunabótamat 10.579.000
Verkstæöishús 306,3 m2 brunabótamat 9.514.000
Vélageymsla 147,8 m2 brunabótamat 2.890.000
Vörugeymsla 300,9 m2 brunabótamat 6.883.000
Eignimar eru til sýnis I samráöi við Bergþór Guöjónsson, Hvolsvelli,
vinnuslmi 98-78392, heimaslmi kl. 19-20 98-78243.
Tilboðseyðublöö liggja frammi hjá ofangreindum aðila og á skrifstofú
vorri.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavlk, fyrir kl.
11:00 þann 10/3/93, þar sem þau verða opnuð I viöurvist viðstaddra
bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK