Tíminn - 27.03.1993, Side 7
Laugardagur 27. mars 1993
„Börnin vilja bækur“ stendur á merki fyrir aftan þær Áslaugu Brynjólfsdóttur, fræðslustjóra í Reykjavík, og
Matthildi Guðmundsdóttur, kennslufulltrúa á sömu stofnun. Þetta orðtak var yfirskrift á sérstöku lestrarátaki
Fræösluskrifstofunnar og Félags íslenskra bókaútgefenda á síðasta ári. TimamyndÁmi Bjama.
un,“ segja þær stöllur.
Ástæðu þessa segja þær að í al-
þjóðakönnun sem gerð var meðal
eldri grunnskólanemenda fyrir
tveimur árum kom fram að íslensk
böm stóðu sig verr en erlend í að
lesa úr töflum, línuritum og gröfum.
Þær minnast þess að könnunin
Ieiddi í ljós að íslensk böm komu
mjög vel út hvað varðaði lestur á
fræðibókum. „Þar komum við best
út miðað við 14 ára nemendur,"
segja þær.
Hvað er ólæsi?
Þeim finnst umræðan að undan-
fömu um lestrarkunnáttu og bók-
lestur bama vera mjög villandi þar
sem t.d. er oft talað um ólæsi bama.
„Það að fólk les færri bækur þýðir
ekki ólæsi. Nú á tímum stendur
bömum margt til boða og þau hafa
mikið að gera. Margt af því er hið
besta mál en þar af leiðandi komast
böm ekki til þess að lesa eins margar
bækur og þau gerðu áður fyrr. Það er
þá alveg eins hægt að segja að full-
orðið fólk sé ólæst af því að það les
minna en það gerði áður fyrr,“ bæta
þær við.
Slys geta alltaf
átt sér stað
Að þeirra áliti geta alltaf átt sér stað
slys. Börn geta gengið í gegnum
skólakerfið án þess að fá markvissa
aðstoð við lestrarnám sem annað
nám. Þar eiga þær aðallega við þau
börn sem búa við mikið rótleysi
vegna tíðra búferlaflutninga jafnvel
landshluta og landa á milli. „Það em
mörg dæmi um að barn hafi aldrei
verið tvo vetur í sama skóla," segja
þær.
Þá em þær sammála um að tilfinn-
ingaleg líðan og aðbúnaður leiki
stórt hlutverk í námsframvindu
bamanna. „Því miður er talsvert um
að börnum líði illa og séu leið. Það
em til afskaplega margar klofnar
fjölskyldur og fjölskyldulífið skiptir
miklu fyrir líðan bamanna," segja
þær.
Jafnfram benda þær á að oft sé
börnum sýnd mikil athygli þegar
þau séu yngri sem minnki þegar þau
komist á unglingsárin. „Það þarf að
sýna unglingnum sérstaklega mikla
athygli. Á þessum ámm fær ung-
lingurinn marga kennara í stað eins
bekkjarkennara áður. Við höfum oft
bent á að það sé ekki nógu mikið
hugsað um líðan unglinganna því
það beri enginn í skólanum eins
mikla ábyrgð á börnunum og um-
sjónakennarinn,“ segja þær.
Fóru ekki í
framhaldsskóla
Nú hefur því verið haldið fram að
nemendur úr gmnnskóla komi illa
undirbúnir til náms í framhalds-
skólum.
„Gmnnskólinn er að sinna öllum
nemendum sem em afskaplega ólík-
ir. Það er ekkert óeðlilegt þótt þriðj-
ungi þeirra henti ekki endilega að
fara bóknámsleiðir í framhaldsskóla
og allra síst í háskóla. Það em svo
mörg störf og margt annað í þjóðfé-
laginu sem fólk þarf að sinna.
Gmnnskólinn þarf að huga að því að
byggja gmnninn eins vel og hægt er
og koma öllum til nokkurs manns
miðað við getu og hæfdeika. Skól-
inn getur sinnt þeim til að gera þau
að manneskjum," segja þær og
benda á að áður fyrr hafi þetta fólk
farið fyrr út á vinnumarkaðinn. „Það
er komið nýtt fólk inn í framhalds-
skólana sem enginn var að skipta sér
af áður því það var einhvers staðar
úti að vinna í þjóðfé!aginu,“ bæta
þær við. Til að mæta þörfum þessa
hóps telja þær að það vanti fjöl-
breyttari verknámsbrautir en boðið
er upp á í dag. „Þessu fólki stendur
ekki enn til boða nám við hæfi. Það
er mikill misskilningur að mark-
miðum gmnnskólans hafi ekki verið
náð þó að allir nemendur komist
ekki upp fyrir fimm í einkunn í bók-
legum greinum," benda þær á. „Þeg-
ar talað er um að gmnnskólinn hafi
versnað kemur það til af því að þessi
hópur hélt ekki áður fyrr til náms í
framhaldsskóla. Það er því fram-
haldsskólinn sem þarf að koma til
móts við þessa nemendur en ekki að
þeir fari allir í stíft bóknám," segja
þær.
Tala við bömin
í vöggu
Heyrst hefur að foreldrum hafi ver-
ið innprentað að þeir ættu ekki að
kenna bömum sínum lestur fyrir
skólabyrjun þar sem það geti raskað
lestrarnámi barnanna.
Þetta telja þær stöllur mikla bábilju
og foreldrar eigi óhikað að fylgja
börnum sínum eftir þegar þau sýni
áhuga á lestri. Þær benda á að hægt
sé að nýta sér umhverfið í þessu
skyni, skilti, texta í sjónvarpi og
fleira. Þá benda þær á að rannsóknir
hafi leitt í Ijós að mjög mikilvægt sé
að foreldrar tali mikið við börn sín
og byrji jafnvel á því strax þegar
barnið sé í vöggu. „Foreldrar geta
einnig leyft bömum sínum að skoða
myndabækur strax á 1. ári og talað
við bömin um myndimar. Það ætti
að verða fastur liður að lesa fyrir
börn á hverju kvöldi og hætta því
ekki þó börnin geti sjálf lesið bæk-
ur,“ segja þær. Einnig telja þær að
foreldrar eigi helst að horfa með
börnum sínum á sjónvarpsefni til að
geta rætt um það við þau og hamlað
gegn ýmsum ranghugmyndum sem
annars kynnu að vakna í barnshug-
anum. -HÞ
Frá Fræðsluskrifstofu
Vestfjarðaumdæmis
Lausar stöður, umsóknarfrestur til 18. apríl.
Skólastjórastöður:
Við Grunnskólann í Holti, Grunnskólann {Súðavík og
Grunnskólann á Drangsnesi.
Kennarastöður við eftirtalda skóla:
Grunnskólann, ísafirði.
Grunnskólann, Bolungarvík. Meðal kennslugreina: Sér-
kennsla, myndmennt, tónmennt, smíðar, almenn bekkjar-
kennsla.
Grunnskólann, Reykhólum.
Grunnskólann, Rauðasandi.
Grunnskólann, Patreksfirði. Meðal kennslugreina: Raun-
greinar og tungumál á framhaldsskólastigi.
Grunnskólann, Tálknafirði.
Grunnskólann, Bíldudal. Meðal kennslugreina: Raungrein-
ar, mynd- og handmennt, almenn bekkjarkennsla.
Grunnskólann, Þingeyri.
Grunnskólann, Holti.
Grunnskólann, Flateyri.
Grunnskólann, Suðureyri.
Grunnskólann, Súðavík.
Grunnskólann, Drangsnesi.
Grunnskólann, Hólmavík.
Grunnskólann, Broddanesi.
Grunnskólann, Borðeyri. Meðal kennslugreina: Iþróttir,
handmennt.
Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis.
Tíminn 7
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Viö leitum að myndmenntakennara og tónmenntakennara
fyrir næsta skólaár.
Um er að ræða tvær heilar stöður.
Skólinn er með rúmlega 500 nemendur og er aðeins í u.þ.b.
40 km fjarlægð frá Reykjavík. Við bjóðum upp á góðar að-
stæður og skemmtilega vinnuaðstöðu.
Ath.: Við ráðum einungis fólk með full réttindi.
Allar upplýsingar veita Gylfi Guðmundsson, skólastjóri, í
síma 92-14399 eða 92-14380, og Sigríður Ingibjömsdóttir,
aðstoöarskólastjóri, I símum 92-14399 og 92-37584.
Frá grunnskólum
Hafnarfjarðar
Innritun nýrra nemenda
Innritun nýrra nemenda í grunnskóla Hafnarflarðar næsta
skólaár fer fram á skrifstofum skólanna og lýkur þriðjudaginn
30. mars nk.
Innrita skal:
- Böm, sem eiga að hefja nám í 1. bekk (fædd 1987).
- Nemendur, sem vegna aðsetursskipta koma til með aö
eiga skólasókn í Hafnarfirði frá og með næsta hausti.
Flutningur milli skóla
Eigi nemendur að flytjast milli skóla innan Hafnarljarðar ber
að tilkynna það viðkomandi skólum fyrir 30. mars nk.
Mjög áriðandi er að skólunum berist þessar upplýsingar nú,
þar sem skipulagning næsta skólaárs er hafin.
Nánari upplýsingar fást á skólaskrifstofu Hafnarfjarðar I síma
53444.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Frá Fræösluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis
Nokkrar kennarastöður em lausar við gmnnskóla Reykjavík-
urá næsta skólaári.
Meðal kennslugreina eru:
Tónmennt, smíðar, heimilisfræði, raungreinar, sérkennsla og
talkennsla.
Þá em lausar stöður kennara með sérkennsluréttindi við eft-
irtalda sérskóla ríkisins í Reykjavíkurumdæmi:
Öskjuhlíðarskóla, Safamýrarskóla, Heyrnleysingjaskólann,
Einholtsskóla og Dalbrautarskóla.
Ennfremur vantar almennan bekkjarkennara með táknmáls-
kunnáttu í Heyrnleysingjaskólann, sjúkraþjálfara í Öskjuhlíð-
arskóla og sjúkraþjálfara eða iðjuþjálfa (1/2 staða) við sér-
deild í Hlíðaskóla.
Umsóknarfrestur er til 21. apríl nk.
Fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14,
Frá Skólaskrifstofu Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga, sem þurfa að flytjast
milli skóla fyrir næsta vetur, fer fram í Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, Tjamargötu 12, sími 28544, þriðjudaginn 30.
og miðvikudaginn 31. apríl n.k., kl. 10-15 báða dagana.
Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast til Reykjavíkur eða
úr borginni, koma úr einkaskólum eða þurfa að skipta um
skóla vegna breytinga á búsetu innan borgarinnar.
Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar skipulagn-
ingar og undirbúningsvinnu að öll börn og unglingar,
sem svo er ástatt um, verði skráð á ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli skóla að loknum
7. bekk, þarf ekki að innrita.
Frá Grunnskólum Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. bama sem fædd eru á árinu
1987) fer fram i skólum borgarinnar þriðjudaginn 30. og
miðvikudaginn 31. mars 1993, kl. 15-17 báöa dagana.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita bömin á þessum
tilgreinda tíma vegna nauðsynlegrar skipulagningar og undir-
búningsvinnu í skólunum.
ATH.: Sex ára böm, sem fara í Rimaskóla í haust, verða inn-
rituð i Hamraskóla á sama tíma.