Tíminn - 27.03.1993, Blaðsíða 15

Tíminn - 27.03.1993, Blaðsíða 15
Laugardagur 27. mars 1993 Tíminn 15 náttúru og friðsæls mannlífs, eða kaupa ódýra skartgripi eða hand- unnar vörur, er þetta upplagður staður til slíks. Einfaldasta og besta leiðin til þess að skoða sig um á eynni er að leigja bíl. Nýlegur Suzuki blæjujeppi kostaði um 6000 krónur íslenskar í þrjá daga. Full trygging var innifal- in, enda jafn gott fyrir okkur sem vön erum hægri umferð, en á Norð- ur-Kýpur er vinstri umferð, — ein af leifum breskra yfirráða fyrr á öld- inni. Og það er vissara að aka gæti- lega því bæði eru vegir þröngir í fjalllendi eyjarinnar og eins eru íbúarnir hálfgerðir klaufar að keyra, flestir. Þeir eru hins vegar að sama skapi vinalegir og gestrisnir og ef maður veifar einhverjum, veifar sá hinn sami nánast undan- tekningarlaust á móti og brosir. Góð kaup í gulli og leðri Þeir sem til þekkja segja að það sé tvennt sem borgar sig að kaupa innan landamæra Tyrklands; leður og gull. Unnir skartgripir úr gulli eru seldir eftir vigt á Norður-Kýpur og kostar grammið 11 mörk þýsk, eða um 440 krónur íslenskar. Hvort það er eitthvað sérstaklega hag- stætt skal ósagt látið, en rétt er að benda á að sjálf gullsmíðin er ódýr og vanti mann einhvern sérstakan skartgrip úr gulli er minnsta málið að láta smíða hann fyrir Htið verð. Tyrkir eru einnig þekktir sem snillingar í því að smíða eftirlíking- ar og það skyldu menn hafa í huga þegar þeir rekast á ódýr Rolex-úr eða Ray-Ban sólgleraugu á hag- stæðu verði í búðarglugga. Hvað leðrið varðar eru flestallar leður- vörur fluttar inn til eyjarinnar frá Tyrklandi. Úrvalið af handtöskum og öðru reyndist þokkalegt og á góðu verði, en leðurjakkar og ann- ar fatnaður úr ieðri fremur dýr og lítið spennandi útlitslega séð. Fyrir íslendinga er líklega skynsamlegast að taka með sér annað hvort banda- ríkjadali eða þýsk mörk sem gjald- eyri og skipta yfir í tyrkneskar lírur þegar á staðinn er komið. Eitt mark jafngilti 5.600 lírum, en jafnvægið þar á milli breytist í hverjum mán- uði, lírunni í óhag. Þá er einnig vandalaust að greiða allar vörur og þjónustu í þýskum gjaldeyri, bandarískum eða enskum. Rétt er að benda ferðamönnum á að láta ekki blekkjast af útsöluauglýsing- um í búðagluggum, þar sem boð- inn er yfirleitt 10% afsláttur og þar yfir. Þessar útsölur eru aðeins að nafninu til og standa yfir allt árið um kring. Landamærin kljúfa höfuðborgina Vegna legu eyjarinnar í Miðjarðar- hafinu, fyrrum nafla alls heimsins, er saga Kýpur samofin sögu fall- andi og rísandi heimsvelda undan- farin árþúsund. Þannig lutu eyjar- skeggjar egypskum yfirráðum frá því á þriðju öld fyrir Krists burð þar til seint á fjórðu öld eftir Krist, er Rómverjar tóku þar völd. Á sjöundu öld náðu Arabar yfirráð- um á Kýpur og svo mætti lengi áfram telja. Frá 1878 var Kýpur síð- an bresk nýlenda þar til Bretar gáfu eyjuna frá sér eftir langar og harð- vítugar deilur við grísksinnaða Kýpurbúa sem vildu sameinast Grikklandi. Eyjan varð sjálfstæð undir stjórn Makaríosar erkibisk- ups og með samþykki Breta, Grikkja og Tyrkja. Kýpur-Grikkir og -TVrkir gátu hins vegar aldrei Hluti af rústum kastala sem byggður var á tímum yfirráöa Rómverja á Kýpur. sætt sig hvorir við aðra eftir að Tyrkir höföu sent her sinn til eyjar- innar til að rétta hlut sinna manna. Árið 1974 var Kýpur síðan skipt upp milli Kýpur-Grikkja og -Tyrkja undir eftirliti Sameinuðu þjóð- ar geta ferðamenn gengið um nánast jafn fáklæddir og þeim sýnist og ekkert er sagt við því þó að konur liggi í sól- baði „topplausar". í kirkjum á suður- hluta eyjarinnar og moskum á norður- hluta hennar er hins vegar öll nekt Tyrkneskir hermenn á götum höfuðborgarinnar Nikósiu. Þrátt fyrir að daglegt líf sé í alla staði friðsælt eru um 30 þúsund tyrkneskir dátar staðsettir á Norður-Kýpur auk nokkurra hundruða friðar- gæsluliða. Þetta er svo vegna ótta við grísku nábúana á Suöur-Kýp- ur. anna. Eins og í Berlín forðum, liggja landamærin á milli fjandvin- anna tveggja í gegn um höfuðborg- ina Nikósíu. Hins vegar verður að telja litlar líkur á því að Kýpurbúar sameinist í eina þjóð. Til þess er fjandskapurinn of mikill og menn- ing of mismunandi. Leigubflstjóri einn orðaði það svo að kristnir menn og múslimar gætu einfald- lega aldrei búið saman í friði. Leyfíð kaffibollanum að kólna Norður-Kýpurbúar eru ekki trúarof- stækismenn þótt þeir játi íslamska trú. Á ströndinni og við hótelsundlaugam- bönnuð að undanteknu því að sjást má í fetur, hendur og andliL Þá eru konur engir aufúsugestir í moskunum. Eins og að framan greinir eru eyjar- skeggjar upp til hópa gestrisið fólk og gott Þess vegna er mikilvægt að ferða- menn sýni kurteisi á móti. Að gefa þjórfé er ekkert skilyrði, en ef um góða þjónustu er að ræða skal það þó gert Mikilvægt er einnig að hafa í huga að stress og æðibunugangur er ekki talið til mannkosta. Þeim sem ti að mynda er boðinn bolli af heitu kaffi er bent á að þeir mega ekki undir nokkrum kringumstæðum yfirgefe gestgjafenn fyrr en bollinn er orðinn kaldur. * Með sínu nefi í þættinum í dag verða gefnir hljómar við nokkur vinsæl sönglög, sem flokkast gætu sem „rútubílalög“. Lagavalið minnir dálítið á að vorið er framundan, e.t.v. öllu lengra í burtu en menn vildu, en það sakar ekki að láta sig hlakka til. Fyrsta lagið er hið sívinsæla „Kötu- kvæði“ eftir Sigurð Ágústsson við lag Will Grosz. Síðan koma tvo lög við ljóð TVyggva Þorsteinssonar, það fyrra er „Þýtur í laufi“ við lag Ald- ísar Ragnarsdóttur og það seinna er „Vertu til“ sem er rússneskt þjóð- lag. Rétt er að taka fram að í síðasta þætti var gripið „B“ (Aís) sýnt á skýr- ingarmynd á rangan hátt. Tvenns konar rithættir eru fyrir hendi á hljómum og er í öðrum ritað „B“, þegar sami hljómur er ritaður „H“ samkvæmt hinum rithættinum. Vegna mistaka við gerð skýringar- myndar var „B“-hljómurinn tekinn úr öðrum rithætti en notaður hef- ur verið í þættinum. Rétt B-hljóms (Aís) skýringarmynd er hins veg- ar sýnd hér til hliðar. KÖTUKVÆÐI D Það var um kvöld eitt að Kötu ég mætti. A7 Hún var að koma af engjunum heim. Það var í ágúst að áliðnum slætti D A7 D og nærri aldimmt á kvöldunum þeim. G D Hlýtt ég tók í hönd á Kötu, A7 D D7 horfði í augun djúp og blá. G D Gengum síðan burt af götu, E7 A7 geymdi okkur náttmyrkrið þá. 2. Viðlag: G D X 0 O 1 3 2 A7 4 ) ( ) < > O X 0 1 1 13 D7 2 10 0 0 3 X O O 2 1 3 Hún var svo ung eins og angandi rósir. Ég hafði aldrei séð hana fyrr. Um vanga dönsuðu lokkarnir ljósir og augun leiftruðu þögul og kyrr. 3. En þegar eldaði aftur og birti í hjarta ákafan kenndi ég sting. Og fyrir augum af angist mig syrti. Hún var með einfaldan giftingarhring. E7 ( > > < » > 0 2 3 14 0 ÞÝTUR f LAUFI Am F Þýtur í laufi, bálið brennur. C E7 Blærinn hvíslar: „Sofðu rótt“. Am F Hljóður í hafið röðull rennur, Am E7 Am roðnar og býður góða nótt. G C Vaka þó ennþá vinir saman G C E7 varðeldi hjá í fögrum dal. Am F Lífið er söngur, glaumur, gaman. Am E7 Am Gleðin, hún býr í fjallasal. Am p B(Aís) Dm VERTU TIL ER VORIÐ KALLAR Am E Vertu til, er vorið kallar á þig, c E7 Am B C vertu til að leggja hönd á plóg. C Dm Am Komdu út, því að sólskinið vill sjá þig Dm Am E7 Am sveifla haka, rækta nýjan skóg. KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.