Tíminn - 27.03.1993, Blaðsíða 9

Tíminn - 27.03.1993, Blaðsíða 9
Laugardagur 27. mars 1993 Tíminn 9 en stjómleysi. Þéttbýlisþróun af þessu tagi, sem á sér stað víðast hvar í þriðja heimi, er með mestum hraða í Rómönsku Ameríku. Lýðfræðingar og fræði- menn á næstu grösum við þá spá því nú að um aldamótin — eftir sjö ár — muni 80% íbúa Suður-Ameríku verða samankomnir í stórborgum. íbúum Sao Paulo fjölgar árlega um 250.000 og um aldamótin verða þeir orðnir 22 til 23 milljónir. Efnahagsundrið, sem hér um ræð- ir, varð ekki til frambúðar. Hers- höfðingjamir sem ríktu 1964-85 tóku óspart lán erlendis til að fjár- magna iðnvæðingu og aðrar stór- framkvæmdir. Þeim var vel tekið hjá erlendum og alþjóðlegum lána- stofnunum, þar eð margir höfðu trú á efnahagsundri þeirra og ekki þurfti að efa að þeir væru á móti kommúnismanum; þá stóð kalda stríðið enn yfir. Þegar þeir létu af völdum, var Brasilía orðin skuldug- ust allra þriðjaheimsríkja, í beinum tölum talið. Skuldaði landið þá er- lendis rúmlega 106 milljarða doll- ara. Lýðræðisstjómir, sem tóku við af hershöfðingjunum, hafa hækkað það upp í rúmlega 116 milljarða. Ólæsir kennarar Sókn brasilfska stóriðnaðarins út á heimsmarkaðinn mistókst, þar eð vörur hans þóttu óvandaðri en vest- rænar og japanskar. Spilling — sem varð mest með því að stóratvinnu- rekendur borguðu stjómmála- og embættismönnum fyrir fyrir- greiðslu og stjómmála- og embætt- ismenn hygluðu stuðningsmönnum sínum — tók á sig slíkar myndir að helst minnir á sumt í frásögnum rómverskra söguritara af hliðstæðu athæfi í rómverska keisaradæminu. Fylkisstjóri í Ceará, einu fátæktar- fylkja norðausturlandsins, kvað td. einhvemtíma á níunda áratugnum hafa á tveimur sólarhringum ráðið um 40.000 fylgismenn sína í opin- ber störf, þ.á m. ólæsa menn og óskrifandi sem kennara. Það fylgir sögunni að flestir þessara starfs- manna hafi aldrei látið sjá sig á vinnustað, en allir fengið laun. Til þess að tryggja sér „sinn“ skerf af kökunni, komu stjómmála- og embættismenn upp reglugerðakerfi svo flóknu, að til varð sérstök starfs- stétt kerfis- og spillingarfræðinga, sem vom atvinnurekendum til ráð- gjafar um að komast gegnum reglu- gerðafmmskóginn. Til að forðast gjaldþrot af völdum skuldabaggans og til að eiga fyrir ríkisútgjöldum létu stjómvöld prenta meira og meira af peningum. Það hafði í för með sér óðaverðbólgu, sem varð 1130% s.I. ár og er enn á uppleið. Sæmilegur hádegisverður á veit- ingahúsi í Rio kostar nú yfir milljón í cmzeiros, gjaldmiðli landsins, að sögn bresks fréttamanns. Evrópskt verðlag, afrísk laun Vemlega fór að halla undan fæti í efnahagsmálunum í byrjun níunda áratugarins og örast hefur sigið á ógæfuhliðina allrasíðustu árin. Jafnframt hefur fátæktin, sem for- sómað var að reyna að draga úr að ráði meðan best gekk, aukist að stómm mun. Lægstu laun vom í ársbyrjun samsvarandi um 6500 ísl. krónum á mánuði og verðbólgan hefur þegar lækkað raungildi þeirra um 40%. Og þriðjungur lands- manna fær í hæsta Iagi fjórðunginn af því á mánuði, hvað sem lögum og kjarasamningum líður. ,J4eirihluti Brasilíumanna býr við evrópskt verðlag og afrísk laun,“ skrifar þýsk- ur blaðamaður. Mikinn þátt í vand- ræðunum á að landsmönnum hefur fjölgað um 90 milljónir síðustu rúm 30 ár og em nú um 155 milljónir. Þeim fjölgar áfram óðfluga og eink- um snauðu fólki og lítt eða ekki skóluðu. Hershöfðingjamir stjómuðu með ógnum og pyndingum, ef þeim þótti þess við þurfa. Síðan lýðræðið kom hafa stjómarhættir verið eitthvað mannúðlegri, en spilling aldrei meiri. Og mál manna í landinu er að Irton Marx meó fána fyrirhugaðs rikis við dómkirkjuna I Santa Cruz do Sul: mannlif og arkitektúr þar um slóðir þykja minna um margt á Norður-Evrópu. helstu ráðamenn þess síðustu ár hafi naumast verið eða séu með öll- um mjalla. í fyrra setti Brasilíuþing af Fem- ando Collor de Mello, forseta lands- ins síðan 1990. Collor, sem nú er rúmlega fertugur, auglýsti sig sem ungan og frískan mann og einskon- ar suðuramerískan Kennedy. í spill- ingu mun hann ekki hafa gefið öðr- um stjórnmálamönnum þarlendum eftir, en þó er sumra fréttamanna mál að hann hafí ekki verið sviptur embætti út af því, heldur vegna þess að hann gerði ráðstafanir til einka- væðingar sem hefðu getað dregið úr spillingargróða allmargra annarra stjórnmála- og embættismanna. Þeir hafí bmgðist við hart til vamar. Þar að auki reyndist upplagt að fóma Collor sem syndahafri vegna spillingarinnar, því að þingmenn- irnir sem steyptu honum fengu út á það hrós fyrir einarðlega baráttu gegn spillingu. Dallaslegir bræður Höggstað á forsetanum gaf þeim raunar Pedro, yngri bróðir Collors. Þeir bræður vom hatursmenn og náði Pedro sér um síðir niðri á stóra bróður með því að ljóstra upp slá- andi dæmum um misferli hans. Fyrrverandi talsmaður Collors lýsir honum sem geðhvarfasjúkum (höldnum oflæti og þunglyndi á vúd) og bróður hans svo skapbráð- um að hann hafi eitt sinn skotið af skammbyssu á kæliskáp af því að hann fann ekki ost í skápnum. Kona Pedros var eitt sinn á forsíðu Play- boy og hélt við eiginmann systur sinnar, samkvæmt sömu heimild. Móðir þeirra bræðra er í dauðadái og á að hafa fallið í það sökum þess hve nærri hún tók sér illdeilur sona sinna. Dallaslegt, segir fréttamaður einn vestrænn. Itamar Franco, eftirmaður Collors á forsetastóli, er rúmlega sextugur og kallaður ríkiskapítalisti í anda herforingjastjómanna. Hann er heiðarlegri sagður en fyrirrennar- inn, en um stefnu hans í efnahags- málum segir fréttamaður breska blaðsins Sunday Times í Rio að hún sé engin. Hann fór nýlega með ráð- herra sína í sirkus og tróð þá sjálfur upp með trúðunum. Hversvegna skiptir hann ekki um starf við þá? segja sumir Brasilíumenn. Brasilískur Marx Eins og víðar þar sem illa horfir, ber í Brasilíu í vaxandi mæli á „björgun- arbátssiðferði" bæði hjá einstakling- um og landshlutum. Brasilíumenn með sæmilega menntun reyna allt hvað þeir geta að fá landvist og störf í Norður-Ameríku, Evrópu og Japan. Og í syðstu fylkjum landsins þrem- ur, Rio Grande do Sul, Santa Catar- ina og Paraná, er í gangi hreyfing sem beitir sér fyrir því að fylkin skilji við Brasilíu og geri úr sér nýtt ríki. íbúar fylkja þessara eru að miklu leyti afkomendur þýskra og ítalskra innflytjenda; leiðtogi sjálfstæðis- hreyfingarinnar er þýskættaður bókaútgefandi sem heitir Irton Marx. Þessi brasilíski Marx segir: „Við er- um búnir að bíða þess nógu lengi að aðrir landshlutar Brasilíu rífi sig upp úr eymdinni." í framtíðarríki hans, sem myndi hafa um 22 millj- ónir íbúa, eiga þýska og ítalska að vera opinber mál auk portúgölsku og stjórnarskráin svipuð þeirri þýsku. Fylki þessi þrjú leggja fram, ásamt með fylkjunum Sao Paulo og Rio de Janeiro, rúmlega þrjá fjórðu vergrar þjóðarframleiðslu Brasilíu. Þrír fjórðu þróunarframlaga frá ríkinu fara til norðausturlandsins og Amazonsvæðisins, en aðeins 3% til syðstu fylkjanna þriggja. Við vinn- um fyrir norðurhlutanum án þess að fá nokkuð í staðinn, segja sunn- lendingar. Norðurfylkin hafá og fleiri fulltrúa á þingi Brasilfu en sem svarar fólksfjölda þeirra og þar með nokkuð sterka stöðu þar. V- UTBOÐ Austurlandsvegur, Fossgerði Gautavík Vegagerö rfkisins óskar eftir tilboöum f lagningu 10,4 km kafia á Austurlandsvegi frá Fossgeröi aö Gautavfk. Helstu magntölur: Fyllingar 72.000 m3, neöra buröartag 54.000 m3, efra burðadag 8.000 m3 og klæöing 46.000 m3. Verki skal aö fullu lokiö 15. nóvember 1993. Otboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö rikisins á Reyöarfiröi og I Borgartúni 5, Reykjavik (aöal- gjaldkera), frá og meö 30. þ.m. Skila skal tilboöum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 13. aprll 1993. Vegamálastjóri ÚTBOÐ y Jökulsá á Breiðamerkursandi — rofvörn Vegagerö rlkisins óskar eftir tilboöum I gerö rof- vamar I farvegi Jökulsár á Breiöamerkursandi. Magn 6.400 m3. Verki skal lokiö 1. júnl 1993. Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö rlkisins á Reyðarfiröi og I Borgartúni 5, Reykjavlk (aöal- gjaldkera), frá og meö 29. þ.m. Skila skal tilboöum á sömu stööum fyrir kl. 14:00 þann 13. aprll 1993. Vegamálastjóri y VELKOMIN TIL U.S.A. Sértilboð frá bandarísk- um stjórnvöldum Bandarísk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öölast varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1. Dregið verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki- færi til að setjast að I Bandarlkjunum og stunda þar vinnu. (orðið handhafi „græna kortsins“). Umsóknarfrestur um dval- arieyfi rennur út 31. mars nk. og þvl nauðsynlegt að bregð- ast við strax, svo umsókn þín nái fram I tíma. Allir þeir, sem eru fæddir á (slandi, Bretlandi eða Iriandi og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa rétt til að sækja um þetta leyfi. Sendið 45 Bandarikjadala greiðslu fýrir hvem umsækjanda til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar- stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað ógiftra bama undir 21 árs aldri. Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas, Texas, 75382, USA. illllllli ^gfélin Súðarvogi 18 Knarrarvogi 2 Sími 91-685128 Fax 91-685119 kimpFX VARAHLUTIR í FLESTAR GERÐIR VÉLSLEÐA YAMAHA VIÐGERÐARÞJÓNUSTA Vélhjól, vélsleðar, utanborðsmótorar o.fl. Stóru-Versalir Öskað er eftir tilboðum I rekstur i Stóru-Versölum, Holta- mannaafrétti, ffá áramótum 1993-94. Áskilinn réttur til aö taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skilað til oddvita Ásahrepps, Jónasar Jónssonar, Kálfholti, 851 Hellu. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 20. apríl 1993, á skrifetofu Ásahrepps, Laugalandi, kl. 14.00. F.h. hreppsnefnda Ása- og Djúpárhrepps, Jónas Jónsson, Páll Guðbrandsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.