Tíminn - 27.03.1993, Síða 14
14 Tíminn
Laugardagur 27. mars 1993
Hagstætt
verðlag,
friðsælt
samfélag og fáir ferðamenn
jKýpur er þriðja stærsta eyjan í Miðjarðarhafínu, á eftir Sard-
iníu og Sikiley, tæplega eitt þúsund ferkflómetrar. Eyjan liggur
undan suðurströnd Tyrklands og um 350 km vestur af Líban-
on. Eftir harðvítugar deilur á milli Grikkja og Tyrkja um yfír-
ráð eyjunnar, var henni skipt í tvö yfírráðasvæði árið 1974 og
tilheyrir norðurhlutinn Tyrklandi en suðurhluti Kýpur lýtur yf-
irráðum Tyrkja. íbúar eyjarinnar eru tæplega 700 þúsund, þar
af búa um 500 þúsund á hinum gríska hluta hennar.
Þessi austasta eyja Miðjarðarhafs-
ins nýtur í vaxandi mæli vinsælda
sem áningarstaður ferðamanna,
enda hefur hún upp á flest það að
bjóða sem túristar sækjast eftir.
Kýpur liggur á 35. gráðu norðlægr-
ar breiddar, sem er svipað og nyrsti
hluti Túnis og Marokkó. Kaldasti
mánuðurinn er janúar, en þá er hit-
inn yfir daginn að meðaltali 15
gráður, en fer niður í fimm á nótt-
unni. Júní og júlí eru heitustu
mánuðir ársins á Kýpur og er hit-
inn að meðaltali á daginn 36- 37
gráður en rúmlega 20 á nóttunni.
Hitinn yfir hásumarið getur verið
óþægilega mikill, í það minnsta fyr-
ir okkur sem búum á norðurhjara
veraldar, en frá því í byrjun júní og
fram í byrjun október rignir lítið
sem ekkert á eynni. Bæði gróður,
menn og skepnur njóta þó góðs af
sjávarloftinu á þessum tíma.
Véðríð er hagstæðast
áður en aðalferða-
mannatíminn hefst
Þegar blaðamaður Tímans átti
stuttan stans í norðurhluta Kýpur í
lok febrúar sl., var hitinn 16-22
gráður á daginn, en um 10 gráðum
lægri á nóttunni. Á þessum tíma
árs eru mjög fáir ferðamenn á
eynni, en að sögn heimamanna
hefst ferðamannatímabilið fyrst
upp úr páskum og varir fram í
október. Þetta á sér í lagi við um
tyrkneskan hluta eyjarinnar þar
sem ferðamannaiðnaðurinn er
skemmra á veg kominn heldur en á
þeim gríska.
Til þess að reyna að lengja tímabil-
Eins og sjá má er landbúnaður,
sem er aðalatvinnuvegur inn-
fæddra, ekki háþróaður á Kýp-
ur, en eggin voru ekki siðri fyrir
það, heldur betri ef eitthvað
var.
ið og nýta hótelin betur hefur verið
gripið til þess ráðs að bjóða upp á
ódýrar ferðir í febrúar, mars og fyrri
hluta apríl. Sem dæmi má nefna að
sú vikuferð sem blaðamaður Tím-
ans fór, kostaði um 26 þúsund fsl.
krónur. í þeirri tölu var innifalið
flug til og frá Þýskalandi, gott
þriggja stjörnu hótel með morgun-
og kvöldverði. Það er reyndar
spurning hvort ekki borgi sig fyrir
þá sem ferðast vilja ódýrt, að kaupa
farmiða til t.d. Kaupmannahafnar
eða London og eyða þar einum degi
í að leita uppi ódýrar tilboðsferðir.
Það er nokkurn veginn með fullri
vissu hægt að segja að af slíkum
ferðum er nægt framboð frá því
seint í janúar fram í fyrrihluta
mars. Annað dæmi um hagstætt til-
boð er þriggja vikna ferð til Kúbu
ákveðna daga í mars og maí, sem
Stutt heimsókn til
Miðjaröarhafseyjarinnar Kýpur
Bridge
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON 'KmJ
þrciut 8
NORÐUR
▲ KG2
V 853
* Á82
* KD72
SUÐUR
* D94
V ÁD2
* DGT6
* Á53
Edgar Kaplan heitir bandarískur
bridgeskríbent og ritstjóri sem
hefur verið virkur í leiðsögn um
ýmsar gildrur sem leynast á braut
bridgespilarans. Á meðal þess sem
allir bridgespilarar þekkja (sér í
lagi í grandsamningum) er taktík-
in að dúkka slagi til að stífla lit
mótherjanna. í eftirfarandi spili
lýsir Kaplan stöðu þar sem and-
stæð gildi skilja á milli feigs og
ófeigs.
Austur opnar á einu hjarta og
suður verður sagnhafi í þremur
gröndum. Útspil vesturs er hjart-
anía sem austur leggur tíuna á og
suður á leik. Hvemig er best að
spila?
í þessu tilviki virðist gagnslaust
að dúkka og reyndar allmiklar lík-
ur á með því tapi sagnhafi spilinu.
Austur mun halda áfram með
hjartað og svíningin í tígli er
dæmd til að mistakast. Að auki veit
suður að vestur hlýtur að eiga
spaðaásinn eftir vakninguna.
Þrautin er því fólgin í því að fá 9
slagi án þess að leyfa vestri að
komast tvisvar inn til að fríspila
hjartað.
Slagirnir hljóta að vera tveir í
spaða, eftir að ásinn hefur verið
svældur út, tveir á hjarta, þrír
laufslagir og tígulás + annar tíg-
ulslagur ef hægt er að endaspila
austur. Og það hlýtur að vera hægt.
í þeirri stöðu hlýtur lykilspilið að
vera smátt hjarta til að spila sig út
á. Hjartað er því drepið, spaða spil-
að á kónginn sem austur drepur.
Hjarta er drepið frá austri, vestur
sýnir eyðu, og tveir spaðaslagir
teknir auk þriggja laufslaga. Aust-
ur lendir í 5 spila endastöðu, verð-
ur að halda í tígulkóng annan, auk
þriggja hjartaslaga. Suður spilar
hjarta og austur á þrjá slagi en
neyðist síðan til að spila frá tígul-
kóngnum og samningurinn er í
húsi.
NORÐUR
* KG2
V 853
* Á82
* KD72
VESTUR AUSTUR
Á T876 Á Á53
V 9 V KGT764
♦ 7543 ♦ K9
* GT96 * 84
SUÐUR
V ÁD2
♦ DGT6
* Á53
Það sem athygliverðast er að hægt
er að endaspila austur jafnvel þótt
hann sé með nógu marga slagi í
upphafi til að hnekkja spilinu.
Hann getur ekki haldið í allt, verð-
ur að kasta af sér fríslögum.
Ergó, segir Kaplan: Þú getur
næstum alltaf endaspilað andstæð-
ing þinn ef hann er sannaður með
kóng eða drottningu í lit sem hann
verður að verja í stöðu sem þessari.
Sagnhafa vantar einn slag og að
dúkka hjartað er ekki bara til-
gangslaust eftir sagnir, það er ban-
vænt.
Guðmundur og Þor-
lákur í 4. sæti
Evrópukeppnin í tvímenningi fór
fram um síðustu helgi í Bielefeldt í
Þýskalandi. Átta íslensk pör mættu
til leiks en alls tóku 450 pör þátt í
mótinu. Hæst ber að Guðmundur
Páll Amarson og Þorlákur Jóns-
son, heimsmeistarar, náðu þeim
góða árangri að enda í fjórða sæti.
Endasprettur þeirra var mjög góð-
ur þar sem þeir voru í 24. sæti fyr-
ir síðustu umferð.
Tvö önnur íslensk pör komust í
úrslit, Aðalsteinn Jörgensen og
Bjöm Eysteinsson sem enduðu í
16. sæti og Eiríkur Hjaltason og
Ragnar Hermannsson sem enduðu
í 36. sæti. Þeir náðu hins vegar 3.
sætinu í undankeppninni sem skar
úr um hvort pörin kæmust í úrslit.
148 pör spiluðu í úrlitunum.
Frakkar vom sigursælir og
hrepptu bæði fyrsta og annað sæt-
ið á mótinu.
Lokastaðan
1 J.Quantln-MJU>ccis«i* ..._(Frakld.)
2. Meyer-Stretz............(Fnldd.)
3. Van Oppen-Rebattu (Holland)
4. Guómundur P.-Þorlikur ..........(faland)
íslandsmótið í sveita-
keppni - Undankeppni
Nú um helgina er barist um þau
átta sæti sem veita rétt til þátttöku
í úrslitum íslandsmótsins í sveita-
keppni sem hefst á miðvikudags-
kvöldið næstkomandi á Hótel Loft-
leiðum. Undankeppninni lýkur
annað kvöld. Þær sveitir sem nú
eigast við em:
A-riðilI
Dröfn Guðmundsdóttir, Reykjavík
Gísli Steingrímsson, Reykjavík
Símon Símonarson, Reykjavík
öm Einarsson, Norðurl. ey.
Landsbréf, Reykjavík
Hvolsvöllur, Suðurland
Birgir ö. Steingrímss., Reykjanes
Karl G. Karlsson, Reykjanes
B-riðill
Glitnir, Reykjavík
Nýherji, Reykjavík
Gylfi Pálsson, Norðurl. ey.
Ingibergur Guðmunds., Norð.ey
S. Ármann Magnússon, Reykjavík
H.P. Kökugerð, Suðurland
Roche, Reykjavík
Guðmundur M. Jóns., Vestfirðir
C-riðill
Sproti-Icy, Austurland
Sparisjóður Siglufj., Norðurl.ve.
Hreinn Björnsson, Vesturland
V.Í.B., Reykjavík
Sigurbj. Þorgeirs., Norðurl. ey.
Daníel Gunnarsson, Suðurland
Júlíus Snorrason, Reykjavík
Sigfús Þórðarson, Suðurland
D-riðilI
TVyggingamiðstöðin, Reykjavík
Kristinn Kristjánsson, Vestfirðir
Hreinn Björnsson, Vesturland
Sjóvá-Almennar Akranesi, V.land
Eðvarð Hallgrímsson, Norðurl. ve.
Hótel Bláfell, Austfirðir
Herðir, Austflrðir
Hjólbarðahöllin, Reykjavík
Fátæktin og eymdin er til staðar
þarna sem annars staðar. Róni,
nýrisinn upp af gangstétt i
þriðju stærstu borginni, Famag-
usta.
hægt er að kaupa fyrir sama verð og
tveggja vikna ferðir, — á 1.100 þýsk
mörk, eða 44 þúsund ísl. krónur.
Best að leigja sér bíl
Norður-Kýpur getur bæði státað af
vinalegu mannlífi og mikilli nátt-
úrufegurð. Fyrir þá sem ekki em að
leita að hreinræktaðri danshúsa-
strandlífs- og drykkjuferð er eyjan
upplagður áfangastaður á þessum
tíma árs. Allt vín, sem og flest ann-
að, er vissulega ódýrt á Norður-
Kýpur og diskótek er hægt að finna
í þremur stærstu borgunum, Fa-
magusta, Girníu og höfuðborginni
Nikósíu, en sjórinn er of kaldur til
þess að hægt sé að synda í honum
fram í byrjun maí. Hafi menn hins
vegar áhuga á að njóta mátulega
mikillar sólar og útivistar, fagurrar