Tíminn - 08.05.1993, Side 24
K
G
L#TT#
• • alltaf á miðvikudögum
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
íei
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELLI 13-SlMI 73655
GJvarahlutir
Hamarshöfða 1
TVOFALDUR1. vinningur
X
Iíniinn
LAUGARDAGUR 8. MAÍ1993
Einungis Ríkisútvarpið greiðir lögbundið
framlag í Menningarsjóð útvarpsstöðva:
Stöð tvö
skuldar 52
milljónir
í sjóðinn
Elnungis Ríkisútvarpið hefur greitt lögbundið framlag i Menning-
arsjóð útvarpsstöðva. Aðrir sjónvarps- og útvarpsmiðlar hafa ekki
greitt í sjóðinn. Sjóðurinn hefur höfðaö dómsmál til aö innheimta
þessar skuldir og eru þau nú til meðferöar hjá Héraösdómi Reykja-
víkur. Islenska útvarpsfélagið skuldar núna í sjóðinn um 52 millj-
ónir en heildarskuldir allra útvarpsstöðvanna i landinu við sjóðinn
eru um 60 milljónir.
fslenska útvarpsfélagið, sem rekur
Stöð tvö og Bylgjuna, hefur á þessu
og síðasta ári fengið 19 milljónir í
styrki úr sjóðnum. Þessir styrkir
hafa jjó ekki verið greiddir úr sjóðn-
um þar sem félagið skuldar sjóðnum
tugi milljóna króna. Styrkimir hafa
einungis verið dregnir frá skuldinni.
Sama hefur verið upp á teningnum
varðandi Aðalstöðina. Styrkir sem
Aðalstöðin hefur fengið til dagskrár-
gerðar hafa ekki verið greiddir held-
ur einungis dregnir frá skuld hennar
við sjóðinn. Aðrar útvarpsstöðvar
hafa ekki sótt um styrk úr sjóðnum.
Það hefur verið yfirlýst stefna ís-
lenska útvarpsfélagsins að greiða
ekki í Menningarsjóðinn. Ástæðan
er sú að félagið hefur talið að reglu-
gerð sem gildir um sjóðinn brjóti í
bága við útvarpslög. Félagið leitaði
til umboðsmanns Alþingis vegna
þessa máls og gaf hann nýlega það
álit að reglugerðin bryti ekki í bága
við útvarpslög. f framhaldi af þessari
niðurstöðu hafa forráðamenn ís-
lenska útvarpsfélagsins óskað eftir
viðræðum við sjóðsstjómina um
greiðslu skuldarinnar.
íslenska útvarpsfélagið hefur auk
þess gert athugasemdir við setu
Hrafns Gunnlaugssonar í sjóðs-
stjóminni en Hrafn hefur verið og er
starfsmaður Sjónvarpsins, helsta
keppinautar Stöðvar tvö. Hrafn hef-
ur nú tilkynnt að hann hyggist segja
sig úr stjóminni. Frá því hefur hins
vegar ekki verið gengið formlega.
Miklar deilur hafa verið um Menn-
ingarsjóð útvarpsstöðva og vilja
margir breyta honum eða hreinlega
leggja hann niður. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um það en framtíð
hans er til umræðu í nefnd sem
vinnur að því að endurskoða út-
varpsslögin. -EÓ
Eldur varð laus í ísskáp í anddyri Landspítalans, svonefndrí
Krínglu, síðdegis í gær og þurfti að reykræsta svæðið.
Það var um kl. 17.30 í gær að
eldboð kom inn í stjórnstöð
slökkviliðsins. Eldur var þá laus í
goskæliskáp í sölusjoppu í
Kringlu Landspítalans. Er
slökkviliðið kom á staðinn höfðu
starfsmenn náð að slökkva eld-
inn. Talsverðan reyk sem stafaði
af plastdóti lagði um Kringluna
og næsta nágrenni og þurfti því
að reykræsta og hafði einhver
reykur borist inn í sjálfan spítal-
ann.
Fámennt var í Kringlunni þeg-
ar þetta var og sakaði engan
vegna þessa. Tálið er að kviknað
hafi í útfrá flúrljósi í skápnum.
...ERLENDAR FRETTIR...
DENNI DÆMALAUSI
SARAJEVO
Bosníu-Serbar einir á báti
Bandamenn Bosnlu-Serba I Serblu
hafa afneítað hermönnum Bosnlu-
Serba sem I gær voru sagðir ráðast á
Zepa- hérað múslima I austurhluta Bo-
snlu, þrátt fyrir hótun Vesturianda um
hemaðariega ihlutun.
BRUSSEL — Aöildarrlki NATO ræddu
hugsanlegar hemaðaraðgerðir gegn
Bosnlu-Serbum ef yfirvöld I Belgrad
efridu ekki snartega heit sitt um að loka
fyrir mikilvæga birgðafiutninga til upp-
reisnarmannanna.
LONDON — Alþjóðlegi sáttasemjarinn
Owen lávarður skoraöi á Bandarlkja-
menn aö sýna að þeim væri alvara f aö
binda enda á strföiö f Bosnlu með þvl
að senda landher til að taka þátt I
mannúðarstarfi S.þ. þar.
TÚNIS
PLO hafnar samnings-
drögum
PLO hafnaði I gær uppkasti Israels-
manna aö samkomulagi um sjálfstjóm
Palestinumanna og sagði friðarviöræð-
umar um Austurlönd nær stefna I sjálf-
heldu.
MOSKVA
Lögreglumanni sýnd
hinsta virðing
Mörg þúsund Moskvubúa sýndu I gær
hinstu virðingu lögreglumanni sem lét
llfið I átökum 1. mal og einn yfirmanna
hans hét þvl að senda haröllnumótmæl-
- endur ,á flótta alla leið til Beriinar* ef
þeir sýndu öryggissveitum mótþróa
framar.
MOSKVA — Leiötogar rússneska
þingsins hófust handa viö aö ná aftur
undir sitt vald vinnu aö nýrri stjómarskrá
frá Bóris Jeltsln forseta með þvl aö lefta
eftir stuðningi héraðsleiðtoga við eigin
stjómarskrárdrög.
CÓLOMBÓ
Nýr forseti býður friðar
Dingiri Banda Wijetunga forsætisráð-
herra hlaut kosningu án mótframboös til
að taka við af myrtum forseta, Ranas-
inghe Premadasa, I gær. Hann sagði
fyrsta verk sitt veröa aö sameina Sri
Lanka og bauð foringja uppreisnar-
manna til friðarviöraeðna.
PHUMTHMIE, Kambódlu
Rauðir kmerar búast til
stórárásar
Skæruliöar Rauðra kmera em I við-
bragðsstööu til aö hefja stórárás á bæi
undir stjóm rfkisstjómarinnar I norðvest-
urhluta Kambódíu, aö sögn háttsetts
skæruliðaforingja f gær.
LONDON
íhaldsmenn fá slæma útreið
Breskir kjósendur gáfu rfkisstjóm
fhaldsmanna á baukinn I aukakosning-
um og juku þannig þrýsting á John Maj-
or forsætisráðherra að skipta út sumum
ráðhermm og hleypa nýju lifi I klofinn
flokk sinn.
RÓM
Traustsyfirlýsing viö nýja
stjórn
Forsætisráöherra ftaliu, Cario Azeglio
Ciampi, stefndi I gær til sigurs f mikil-
vægri atkvæðagreiöslu þingsins um
traustsyfiriýsingu eftir að hafa lagt lln-
umar um umbætur á kosningalöggjöf-
inni.
LONDON
Bretar auka þrýsing á
framsal Nadirs
Breska rikisstjómin jók þrýsting eflir
diplómatískum leiðum á að strokna at-
hafnamanninum Azil Nadir yrði aftur
skilaö. Tyrkneska sendiherranum var
faliö að fara þess á leit viö rlkisstjóm
slna að hún beitti áhrifum sinum.
PRAG
Engar sannanir um sam-
særi gegn Havel
Lögreglan og embættismenn innanrikis-
ráðuneytisins andmæltu Jan Ruml inn-
anrikisráöherra og sögðust ekki hafa
fundiö nein sönnunargögn um samsæri
útlendinga um aö ráöa Vadav Havel,
Tékklandsforseta, af dögum.
„Wilson er orðinn eitthvað skrýtinn. Hann veit að ég hef
séð dymar hjá þeim þúsund sinnum, en hann er alltaf að
segja konunni sinni að vísa mér á þær. “