Tíminn - 22.05.1993, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.05.1993, Blaðsíða 7
Laugardagur 22. maí 1993 Tíminn 7 sinni til, heldur skrá þar sem öll- um hundum sé lýst. „Það þarf að mæla, mynda og skrá hvern ein- asta hund sem núna er til og reyna að afla upplýsinga um alla hina sem eru dauðir. Þá þarf að gefa ættbókina út með öllum dýrum sem vitað er um, öllum dómum og upplýsingum sem til eru,“ segir Jóhanna. „Hingað til hefur verið bannað að sýna dóma hundanna. Það er fá- ránlegt og það skilur enginn hvaða ástæður þar liggja að baki,“ segir Jóhanna. Hún telur að eigi að vera vit í ræktun þurfi dómar að vera opin- ber gögn og bendir á hrossarækt til samanburðar. „Þar er hver lík- amshluti dæmdur fyrir sig þannig að fólk getur séð hvað er gott og hvað slæmt," bætir hún við. Þetta segir hún nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að verið sé að para t.d. saman tvo hunda sem eru með sömu gallana aftur í ættir. „í svona litlum stofni vega erfða- gallar þungt. Það er hægt að festa erfðagalla með einföldum mistök- um. Ræktun miðast einfaldlega við að eyða göllum en festa kost- ina,“ segir Jóhanna. Heldur að hann sé maður Hvers vegna á að vera rækta ís- lenska hundinn og hvað er svona merkilegt við hann? Jóhanna telur að það sé skylda ís- lensku þjóðarinnar að halda ís- Ienska fjárhundinum í rækt. „Hann kom hingað með land- námsmönnunum og er tengdur þessu landi órjúfanlegum böndum alveg eins og íslenski hesturinn. Hann hélt lífi í þessari þjóð ásamt hestinum og nú er komið að skuldadögunum," segir Jóhanna. Það eru samt ekki eingöngu sögulegar ástæður sem Jóhanna telur að eigi að ráða. „íslenski hundurinn er yndislegur og per- sónutöfrar hans eru einstakir og það er viðurkennt um allan heim,“ segir Jóhanna. Hún segir að það sé því auðvelt að hrósa þessum hundi. „Hann er mjög greindur, húsbóndahollur og ljúfur í lund," segir Jóhanna og bætir við að einnig sé hann talinn barngóður, mannelskur og góður félagi. Jóhanna hefur kennt mörgum hundategundum og segir að ís- lenski hundurinn þurfi ekki að skammast sín miðað við þann samanburð nema síður sé. „ís- lenskir hundar eru mjög fljótir að læra og eru mjög sjálfstæðir. Þá nýta þeir þekkingu sína vel. Þeir virðast hafa einhvers konar hugs- un. Ég segi alltaf að íslenski fjár- hundurinn haldi að hann sé mað- ur,“ segir Jóhanna og hlær við. Björgunaraðgerðir standa enn yfír Að sögn Jóhönnu eru ekki nema nokkrir áratugir síðan byrjað var að rækta íslenska hundinn eða í kringum 1960. Hingað til lands kom þá skoskur maður, Watson að nafni, og sýndi mönnum fram á að íslenski hundurinn væri í útrým- ingarhættu að sögn Jóhönnu en þá var stofninn orðinn mjög blandaður. Fljótlega upp úr því hófu nokkrir menn að rækta íslenska hundinn var þar fremst í flokki Sigríður Pétursdóttir á Ólafsvöllum á Skeiðum í Árnessýslu. Jóhanna telur að þá hafi íslenska hundinum í rauninni verið bjarg- að. „Þessari björgun er samt ekki lokið. Samkvæmt alþjóðlegri skil- greiningu eru stofnar taldir í hættu séu einungis til innan við 3.000 dýr. Hér á landi eru til innan við 350 hundar en þeir eru einnig til í Danmörku, Svíþjóð, Þýska- landi og víðar," segir Jóhanna og bendir á að enn sé langt í land við björgun íslenska hundsins. Hundar þessara brautryðjenda eru nú dreifðir um allt land og hafa hækkað í verði með tíman- um. Til marks um það segir Jó- hanna að fyrir góðan íslenskan hund séu greiddar um 50.000 kr. „Þetta er eins og hver önnur fjár- festing," bætir hún við og bendir á að enginn færi að biðja t.d. um ókeypis hest. Hættulaus varðhundur Eins og áður hefur komið fram var það Skoti sem leiddi landanum það fyrir sjónir að það þvrfti að rækta íslenska hundinn. I kjölfar þessa fóru útlendingar að sýna ís- lenska hundinum vaxandi áhuga. „Útlendingar sýna íslenska fjár- hundinum áhuga og þeir sjá hvað það er mikið varið í þennan hund þó að við sjáum það ekki," segir Jóhanna. Hún bendir á að það séu fleiri íslenskir hundar til í Svíþjóð og Danmörku en hér á landi. „Það kunna margir að meta það að hundurinn hafi persónuleika og íslenski hundurinn er mjög vinsæll vegna þess,“ bætir Jó- hanna við. Sem dæmi um þessar vinsældir segir Jóhanna sögu frá Þýskalandi þar sem íslenski hundurinn er vinsæll varðhundur." Hjá mér var gestur um daginn, mikill hesta- maður og hundaræktandi, í þeim erindagjörðum að kaupa íslenska tík en hann á íslenskan hund fyrir. Hann býr á stórum búgarði og segir að íslenski hundurinn sé besti varðhundurinn sem hann hafi nokkurn tíma átt,“ segir Jó- hanna. Hún hefur eftir Þjóðverjanum að hann hafi kennt hundinum sínum að gelta að ókunnugum. „Þeir fæl- ast við þetta og telja að um veru- lega hættulegan hund sé að ræða. Þar sem íslenski hundurinn er meinleysis skepna þurfa eigendur þeirra aldrei að greiða nokkrum manni skaðabætur eða sekt vegna þess að hundurinn hafi ráðist á mann eða skemmt föt o.s. frv. Þetta er bara hundur sem lætur vita og getur vakið ótta í brjósti ókunnugra en hann gerir engum mein. Hann er kannski eins og margir íslendingar þ.e. meiri í kjaftinum," segir Jóhanna og hlær við. -HÞ Suðurland: Átak til að eyða úrgangsplasti Nú er að fara af stað á Suðurlandi söfnunarátak. Ekki á þó að saftia peningum í þetta sinn heldur úr- gangsplasti í landbúnaðinum sem einkum er rúllubaggaplast og pokar utan af áburði. Ætlunin er að farga síðan plastinu í nýju sorporkustöð- inni í Vestmannaeyjum. Það eru umhverfisráðuneytið, Stéttarsam- band bænda, Samband ísl. sveitarfé- laga og Samtök sunnlenskra sveitar- félaga sem standa að þessu átaki. Það er hugsað sem tilraun til að koma á framtíðarskipulagi á lands- vísu í söfnun umbúðaplasts í land- búnaði. í frétt frá heilbrigðiseftirliti Suður- lands segir að árlega falli til um 900 tonn af landbúnaðarplasti hér á landi, þar af um 250 tonn á Suður- landi. í þessu átaki verður komið á fót söfnunarstöðum í hverju sveitar- félagi og verður plastið síðan flutt frá þeim til Þorlákshafnar og þaðan út í Eyjar með ms. Herjólfi. Þar verður það brennt í nýju sorpeyð- ingarstöðinni og hitanum veitt inn á fjarvarmaveituna þar. Einnig er í at- hugun að nýta hluta plastsins hjá Brennu-Flosa, nýstofnuðu sorp- brennslufyrirtæki að Svínafelli í Ör- æfum sem nýtir hitann frá brennsl- unni til að hita upp nýja sundlaug þar á staðnum. Jafhframt átaki þessu hvetur heil- brigðiseftirlit Suðurlands fólk til að vinna að hreinsun landsins al- mennt. í frétt frá því segir að nauð- synlegt sé að safna saman og farga hættulegu sorpi svo sem rafgeym- um og úrgangsolíu. Slíkt sorp geti verið hættulegt heilsu manna og valdið umhverfisspjöllum sé því ekki eytt á viðeigandi máta. —SBS, Selfossi // '// /*/•////*////* Njóttu lífsins! Borðaðu Kotasœlu og Léttost í sumar! OSTA OG SMIÖRSALAN SE Safnaö í afmælisgjöf handa Markúsi Erni Markús Öm Antonsson, borgar- stjóri í Reykjavík, verður fimm- tugur næstkomandi þriðjudag. Samstarfsmenn Markúsar í Ráð- húsinu vildu vera sérstaklega rausnarlegir og ákváðu að beita sér fyrir því að allir starfsmenn Reykjavíkurborgar gæfu Markúsi sameiginlega veglega afmælis- gjöf. Ivikunni voru þau tilmæli látin ganga á allar borgarstofnan- ir að hver og einn starfsmaður borgarinnar gæfi 500 krónur í af- mælisgjöf handa Markúsi. Tekið var fram að nöfh gefenda yrðu skráð á skjal sem fylgdi gjöfinni. Einhverja bakþanka virðast hin- ir örlátu samstarfsmenn Markús- ar hafa fengið því að nú hafa starfsmenn fengið þau boð frá Ráðhúsinu að ekki yrði safnað í afmælisgjöf meðal þeirra handa Markúsi vegna þess að forstöðu- menn borgarstofnana myndu fyr- ir hönd starfsmanna borgarinnar gefa borgarstjóra afmælisgjöf. Töluvert miklar símhringingar urðu frá Ráðhúsinu vegna þessa vandræðalega máls. drÉpar Dropateljara Tímans er ókunn- ugt um hver afmælisgjöf Markús- ar átti að vera, en hún hlýtur að hafa átt að vera aldeilis vegleg því að starfsmenn borgarinnar eru samkvæmt upplýsingabæklingi borgarinnar yfir 7.000. Ef allir starfsmenn hennar hefðu greitt í afmælissjóð Markúsar hefði verði hægt að kaupa afmælisgjöf fyrir yfir 3,5 milljónir króna. Gunnar Smári búinn að fá nýtt starf Gunnar Smári Egilsson, nýrekinn ritstjóri Pressunnar, hefur verið að kanna möguleika á því að stofna nýtt blað sem kæmi út tvisvar í viku, en frá þessu var greint í frétt í Tímanum í vikunni. Dropateljara finnst ólíklegt að af þessum fýrirætlunum verði þar sem Gunnar Smári hefur fengið nýtt starf. Hann verður senn að- stoðarritstjóri tímaritsins Heims- myndar. Ætli Pressumenn andi ekki léttar? VERZLUNARSKOLI ÍSLANDS OPIÐ HÚS laugardaginn 22. maí 1993 kl. 14-1 7 Nýútskrifuðum grunnskólanemum og aóstandendum þeirra er sérstaklega boðið að koma og kynna sér skólann, námsefni og félagslíf. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS TJALDALEIGA KOLAPORTSINS RISATJÖLD fyrir hverskonar útisamkomur. Frá 200-800 m2. Vanir starfsmenn aöstoða viö uppsetningu hvar á landi sem er. ^ Upplýsingar og pantanir í síma 625030. y

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.