Tíminn - 22.05.1993, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 22. maí 1993
í þættinum í dag förum við út á sjó, enda spáð ágætis veðri um helgina
víðast hvar. Fyrra lagið er „Sfldarvalsinn" eftir Steingrím Sigfússon við
ljóð Haraldar Zóphaníassonar, en þetta er sívinsælt sönglag. Seinna lagið
er „Sigling“ eftir Friðrik Bjarnason við Ijóð Amar Amarsonar, og er það
ekki síður vinsælt en það fyrra. Góða söngskemmtunl
SÍLDARVALSINN
C F
Syngjandi sæll og glaður
F C
til sfldveiða nú ég held.
G C
Það er gaman á Grímseyjarsundi
D G
við glampandi vorsólareld,
C F
þegar hækkar í lest og hleðst mitt skip
A Dm
við „háfana“ fleiri og fleiri.
G C
Svo landa ég sfldinni sitt á hvað:
G C
á Dalvík og Dagverðareyri.
2.
Seinna er sumri hallar
og súld og bræla er,
þá held ég fleyi til hafnar.
I hrifningu skemmti ég mér
á dunandi balli við dillandi spil
og dansana fleiri og fleiri.
Og nóg er um hýreyg og heillandi sprund
á Dalvík og Dagverðareyri.
SIGLING
C G
Hafið, bláa hafið, hugann dregur.
C G7C
Hvað er bak við ystu sjónarrönd?
C G
Þangað liggur beinn og breiður vegur,
C G7 C
bíða mín þar æsku draumalönd.
G
Beggja skauta byr
C
bauðst mér aldrei fyrr.
D7 G
Bmna þú nú bátur minn.
C
Svífðu seglum þöndum,
G
svífðu burt frá ströndum.
C F C G C
Fyrir stafhi haf og himinninn.
c
< ► < » 4 >
<
X 0 1 1 13
VIÐ SEM OKUM!
Höfum gott bil á milli bíla!
UMFERÐAR
RÁO
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum
í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar.
Opinberri heimsókn Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, lýkur í dag. Á uppstigningardag lá
leið ráðherrans í ReykholL Skal engan undra að sá
staður er Norðmönnum hugleikinn. Þar ritaði Snorri
Sturiuson sögu Noregskonunga frá öndverðu til tólftu
aldar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti
í Reykholti um kl. 14.30. Með Gro
Harlem í för var ásamt fleirum
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra. Geir Waage, prestur í
Reykholti, tók á móti gestunum
og veitti leiðsögn um staðinn.
Þennan eftirmiðdag var blíðskap-
arveður í Reykholti og staðarbúar
veittu ráðherranum hlýlegar
móttökur með kórsöng og bóka-
gjöfúm.
Bömin voru klædd í sparifötin af
þessu tilefni en hins vegar er lík-
legt að þau hafi séð tilefnið öðr-
um augum en fullorðna fólkið.
Börnunum fannst lögregluþjón-
arnir, klæddir í viðhafnarein-
kennisbúninga, vera miklu at-
hyglisverðari en forsætisráðherr-
ann. Einn strákurinn fékk leyfi
hjá mömmu sinni til að tala við
lögguna og spurði bláeygður hvað
þeir væru eiginlega að gera þama.
„Við emm að passa forsætisráð-
herrann," svaraði löggan. Stráksi
varð hugsi um stund og spurði
síðan í barnslegri einlægni:
„Haldiði að hann muni stela ein-
hverju?“
Og ef löggan og löggubflamir
vom merkilegir þá vom þyrlur
Landhelgisgæsl-
unnar stórbrotin
upplifun. Þær tók-
ust á loft um hálf-
fjögur og flugu með
forsætisráðherrann
og fylgdarlið til
Reykjavíkur. Um
kvöldið snæddi Gro
Harlem málsverð í
boði Davíðs Odds-
sonar og frú Ástríð-
ar Thorarensen í
Viðey. Þótti veislan
vera hin ánægjuleg-
asta.
í gærmorgun var
keyrt til Nesjavalla.
Að lokinni heim-
sókn þangað sat Gro
Harlem hádegis-
verðarboð forseta Qro Harlem hlaut aö gjöf Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar. Hér rýna þau I bókina, Gro Haríem
Islands, frú Vigdísar og Geir Waage.
Finnbogadóttur,
að Bessastöðum.
Þaðan var haldið í
stofriun Áma
Magnússonar og
handritin skoðuð.
Móttaka norska
forsætisráðherr-
ans fór fram í
Perlunni seinni-
partinn í gær.
GS.
„ Vá maöur" gæti strákurinn veríö aö öskra íeyra hins. A.m.k.
veittu börnin þyrlunni og lögreglumönnunum óskipta at-
hygli.
í kirkjunni, sem veríö er aö byggja I Reykholti, var boöiö upp á léttar veitingar.
Menntamálaráðherra tók aö sér aö skenkja I glösin.