Tíminn - 12.06.1993, Side 7
Laugardagur 12. júní 1993
Tíminn 7
Jón á fréttamannafundi meöan hann var dómsmálaráöherra. Tlmamynd Pjetur
Jón undirritar áfangasamkomulag um byggingu álvers á Keilisnesi I október
1990. Tímamynd Pjetur
eigin flokks, en í staðinn koma
tveir einstaklingar sem taldir
eru til hinnar órólegu deildar í
flokknum?
„Ég vona að stjórnin nái vel
saman og geti einbeitt sér að
þeim mikilvægu verkefnum sem
framundan eru. Jafnframt tel ég
að menn finni frekar til ábyrgðar
þegar þeir taka við ábyrgðar-
störfum og því muni þessi breyt-
ing ekki veikja stjómina."
Er það eitthvað öðru fremur
sem þér flnnst standa upp úr á
þmum pólitíska ferii?
„Ég vil nú ekki velja þar eitt
öðm fremur. En segi það að ég
er afskaplega ánægður með að
hafa getað tekið þátt í lands-
stjóminni til þess að setja
traustar, réttlátar og sanngjam-
ar reglur um viðskipti manna og
samskipti í frjálsu og opnu sam-
félagi. Það er fyrst og fremst
verkefni stjómvalda og ég tel að
á þessum ámm hafi tekist að
koma þar mörgum málum vel
fram, bæði á sviði dóms-, iðnað-
ar-, viðskipta-, og bankamála,
sem ég hef öll fengist við á þess-
um tíma. í>að er það sem stend-
ur upp úr og skiptir mestu máli,
en ekki það sem menn kalla
minnisvarða."
Finn ekki til sárra
vonbrigða
En hver eru mestu vonbrigðin?
„Ég finn ekki til neinna sárra
vonbrigða. Ég horfi með raun-
sæi á það að menn vildu gjaman
hafa komið í framkvæmd verk-
eihum á sviði virkjana og stór-
iðju, en þar þýðir ekki að lemja
sjóinn af því að hann gefur ekki.
Það er bara einfaldlega þannig
að það er ekki verið að fjárfesta í
slíkri starfsemi á Vesturlöndum
vegna lægðarinnar í efnahags-
málum og breytinga í heiminum
og um það tjóar ekki að fást. Þess
í stað eiga menn að hugsa um
hitt, sem við eigum í vændum,
og það er að nýta betur auðlind-
ir lands og sjávar og þá ekki síst
kraftinn sem býr í fólkinu.“
En hvemig hefur þessi túni í
pólitíkinni verið? Var hann eitt-
hvað í líkingu við það, sem Jón
bjóst við þegar hann ákvað að
hverfa úr Þjóðhagsstofnun og
gefa kost á sér til þings í kosn-
ingunum 1987, eða eitthvað
öðruvísi?
„Hann var nú mjög líkur því
sem ég átti von á og fátt sem
kom á óvart. En auðvitað er mál-
ið öðruvísi þegar maður er í
stjómmálum sem taka við þegar
starfi embættismannsins lýkur
og þessvegna reynir á annað.
Menn búa hinsvegar mjög vel að
því að hafa starfað sem embætt-
is- og undirbúningsmenn
stjómaraðgerða og stjómar-
ákvarðana þegar þeir þurfa sjálf-
ir að fást við það. Þessvegna er ég
mjög ánægður með þennan tíma
og tel að það sé gagnlegt að
menn geti fært sig á milli sviða í
þjóðmálunum og ef til vill of lít-
ið af því gert. Það þarf að vera
hreyfanleiki, en ekki hreyfan-
leikans vegna. Heldur einmitt til
að geta virkjað þekkingu og
reynslu, sem menn afla sér á
einu sviði, á öðm. Það er jú
markmið okkar flestra í lífinu að
reyna það.“
-grh
POL RAFMAGNS-
GIRÐINGAR.
NÝTT, EINFALT,
STERKT EFNI
í SÁTT VIÐ
UMHVERFIÐ!
Pól girðingarstaurar eru framleiddir
úr endurunnu rúllubaggaplasti og eru
með 10 ára ábyrgð.
Pól er Bresk framleiðsla sem svipar
mjög til viðar í notkun og hægt er að
vinna með efnið á sama hátt; negla,
saga, skrúfa og bora með hefðbund-
num verkfærum. En samanburðurinn
endar hér.
Pól girðingar rotna ekki né fúna og
eru sterkar, en sveigjanlegar. Ekki
þarf að mála (þó það sé hægt) og
viðhald er ekkert. Sami staur gengur
í hefðbundnar girðingar og rafmagns-
girðingar, því Pól staurarnir leiða
ekki straum.
Pól girðing byggist upp á:
Pól staurum (50 x 50 x 1500 mm)
Pól renglum (25 x 390 mm)
Pól þanvír (650 m lengd á rúllu).
Renglurnar eru framleiddar hér á
landi og eru boraðar með splittum.
Þær eru holar að innan og unnar úr
sérstaklega styrktu Polyethelene
sem er viðhaldsfrítt.
Litur: svartur.
Umboðsmenn:
Höfn - Þríhyrningur hf. Hellu sími: 98-75886.
Þóshamar hf. Akureyri simi: 96-22700.
Vélsmiðja Húnvetninga Blönduósi sími: 95-24198.
G.H. Verkstæði Borgarnesi sími: 93-72020.
UMBOÐSMENN ÚSKAST!
Rafmagnsgirðing Rengla
100 cm.
50 cm.
30 m. á milli staura
* *
AGUST SCHRAM
Heildverslun
Haukanes 24-210 Garðabær - Sími: 40947 - Fax: 29613
BÓKAUNNENDUR
Tryggið ykkur ódýrar og góðar bækur í heimilisbókasafnið áður en sérstak-
ur bókaskattur verður lagður á „mestu bókaþjóð í heimi" fýrir að lesa bæk-
ur.
Til 1. júlí n.k. verða neðangreindar bækur á sérstöku tilboðsverði.
□ Fundinnlykil, Norma E. Samúelsdóttir.......kr. 295,-
□ Bárusog, Bergsveinn Skúlason...............- 590,-
□ íslandsferð, John Coles................- 470,-
□ Sprekúrfjöru, Jón Kr. Guðmundsson......- 490,-
□ Letftur liðinna daga, viötöl við hestamenn.- 900,-
□ Að gera jörðina mennska, Silo..........- 450,-
□ Reynslaundirleiösögn, Silo.............- 295,-
□ Mannamunur, Jón Mýrdal.....................- 390,-
□ Aðeins af ást, Margit Ravn.............- 300,-
□ Dumbrauði fálkinn, Sara Hylton.........- 490,-
PÖNTUNARSEÐILL:
Vinsamlegast sendið mér þær bækur sem ég hef
merkt við á þessum pöntunarseðli.
Nafn_______________________
Heimili________________
Póstnr.________Staður
□ Hvíslandi lundurinn, Sara Hylton.- 490,-
□ VemdargripurSets, SaraHylton.......-490,-
□ Læknaritarinn, Ib Henrik Cavling.- 390,-
□ Sporödrekar í Monte Cario, Ib Henrík Cavling - 390,-
□ Sendiherrann, Ib Henrik Cavling.- 490,-
□ Annalísa, Ib Henrik Cavling.....- 490,-
□ Éggraetaðmorgni, Lillian Roth...- 390,-
□ Sóleyjareumar, Guðm. Halldórss.frá BergssL - 690,-
□ Islenskirsagnaþættirl-lll... -2.500,-
Ef pöntun nemur kr. 4.500,- eöa meira
og greiösla fylgir pöntun, er sent burö-
argjaldsfritt.
Bókaútgáfán
Hildur
BÆ, 380 KRÓKSFJARÐARNESI.
SÍMI 93-47757.