Tíminn - 12.06.1993, Blaðsíða 21

Tíminn - 12.06.1993, Blaðsíða 21
Laugardagur 12. júní 1993 Tíminn 21 Heiðursborgari Hafnar í Homafirði, Óskar Helgason, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju í dag, laugardaginn 12. júní. Óskar lést á sjúkrahúsi 2. júní síðastliðinn, eftir erfið veikindi og heilsuleysi síðustu misseri. Óskar fæddist 14. september árið 1917 á Háreksstöðum í Norðurárdal. Foreldrar hans vom Helgi Þórðarson bóndi og smiður þar og Ingibjörg Skarphéðinsdóttir. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum við leiki og sveita- störfþesstíma. Óskar stundaði nám í Héraðsskólan- um Reykjum árin 1934-36 og lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla ís- lands 1941. Eftir kennaraprófið kynnti hann sér síma- og radíótækni hjá Landssíma íslands og tók við starfi stöðvarstjóra landssímastöðvarinnar á Höfn árið 1945. Því starfi gegndi hann þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Jafnframt starfi stöðivarstjóra sinnti hann um tíma flugradíóinu fyrir Fiugráð og endurvarpsstöð Ríkisút- varpsins á Höfn. Sömuleiðis stundaði hann kennslu um skeið og var próf- dómari í samræmdum prófum grunnskólans. Á Höfn kynnist Óskar eftirlifandi konu sinni Guðbjörgu Gísladóttur frá Breiðdalsvík. Hún er dóttir Ingibjarg- ar Guðmundsdóttur og Gísla Guðna- sonar póst- og símstjóra þar. Þau giftu sig á tvítugsafmæli Guðbjargar 14. janúar 1947. Óskar og Guðbjörg eignuðust fimm böm og eru fjögur á lffi. Elst er Ingibjörg, gift Auðuni Kl. Sveinbjömssyni lækni. Þau búa á Álftanesi og eiga þrjár dætur. Helgi Óskar framkvæmdastjóri, giftur Krístínu Þorkelsdóttur. Heimili þeirra er í Kópavogi og eiga þau þrjár dætur. Þröstur skrífstofumaður á ísa- firði, kona hans er Guðrún Karlsdótt- ir. Yngst er Svala, í sambúð með Bjama Sævarí Geirssyni húsasmíða- meistara og verktaka á Höfn og eiga þau eina dóttur. Næst elstur var Gísli, sem lést aðeins 10 ára gamall úr krabbameini árið 1960. Gísli var hraustur og efnilegur drengur þar til hinn illvígi sjúkdómur lagði hann að velli. Þau læknavísindi, sem þá vom þekkt bæði innanlands og utan, megnuðu ekki að bjarga honum. Það var þungbært fyrir foreldra, systkini, aðstandendur og vini að sjá á eftir þessum bjarta og fallega dreng. Það var og er þeim Óskari og Guðbjörgu huggun harmi gegn að eiga bamaláni að fagna. Öll böm þeirra hjóna bera þess vitni að hafa fengið hollt vega- nesti í uppeldinu. Ég var svo lánsamur að eiga meira og minna samleið með Óskari allt frá því ég man fyrst eftir mér og fram á síðustu ár. Símstöðin og heimili hans stóðu gegnt æskuheimili mínu. Á þeim tíma var heil kynslóð fólks á aldur við Óskar og Guðbjörgu nýbúin að stofna heimili í Nátthaganum sem við kölluðum alltaf Höfðann. Þama var bamafjöldi á nánast hverju heim- ili og samgangur milli fjölskyldna mikill. Helsti leikvöllur okkar fyrir utan fjörumar var Póstlóðin. Eins og með aðra túnbletti fengu fjáreigend- ur að nýta Póstlóðina til beitar í sauð- burðinum og sláttar að sumri. Það leyndi sér ekki að Óskari fannst erfitt og var jafnan tregur að stöðva leiki okkar og víkja okkur af túninu. Þessi viðbrögð Óskars komu ekki á óvart, því uppeldismál og aðstæður bama og unglinga vom honum sérstaklega hugleikin. Hann var gæslumaður bamastúkunnar Rósarinnar til margra ára. Starfsemi stúkunnar var um tíma nánast eina tómstunda- og félagsstarfið fyrir böm og unglinga á Höfn. Ég á góðar minningar frá þátt- töku minni í stúkunni og minnist fjölmargra fræðslu- og skemmti- funda og ekki síður tjald- og útilegu- ferða upp í Lón og inn að Þveit. Þá voru þau hjón bæði með í för og fyrir okkur krakkana voru það ævintýra- ferðir og kærkomin tilbreyting. í mínum huga sneri þetta starf Óskars ekki eingöngu að bindindisfræðslu, heldur einnig að almennu uppeldis- starfi og sýndu þau hjón í verki áhuga og umhyggju fyrir æskufólkinu. Eg hef alla tíð borið mikla virðingu fyrir þessum störfum Óskars. Þetta vom ekki einu afskipti Óskars af rnálefh- um æskunnar. Hann tók virkan þátt í starfi Ungmennafélagsins Sindra og Ungmennasambandsins Úlfljóts og gegndi formennsku í þeim um tíma. Óskar var mikill reglumaður og samviskusamur. Þessir mannkostir hans urðu til þess að til hans var leit- að með liðveislu og forystu á mörg- um sviðum. Hann var þannig gerður að vilja Ieggja öllum góðum málum lið. Þrátt fyrir að vera þátttakandi í fjölmörgum tímafrekum og erfiðum verkefrium, leysti hann þau ávallt vel af hendi og af þeirri trúmennsku sem var áberandi í fari hans. Ómögulegt er að gera tæmandi skil öllum þeim málum sem Óskar kom að, en hér verður getið þeirra helstu. í stjóm Kaupfélags Austur-Skaftfell- inga var Óskar kosinn 1949 og átti þar sæti í 30 ár. Fyrst sem varafor- maður stjómar og síðar sem stjóm- arformaður. Hann var fulltrúi kaupfé- lagsins í ýmsum nefndum, stofnun- um og fyrirtækjum, m.a. sat hann í stjóm SlS. Formaður Framsóknarfélags Aust- ur-Skaftfellinga var Óskar um árabil og skipaði efsta sæti á lista þeirra í femum hreppsnefndarkosningum á Höfn. Hann var oddviti í öll þessi ár eða frá 1966-82. Jafnframt setu í hreppsnefnd valdist Óskar í ýmsar nefndir og ráð fyrir sveitarfélagið, svo og í stjómir fjölmargra stofnana og fyrirtækja, m.a. í stjóm Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi og byggingamefndir Heilsugæslu- stöðvarinnar og Heppuskóla. Það var lærdómsríkt fyrir mig, hálfgerðan ungling, að setjast í hreppsnefnd undir stjóm Óskars og með öðrum góðum mönnum'sem þar sátu. Það var dýrmætur félagsmálaskóli sem ég minnist alltaf með þakklæti. í ágreiningsmálum reyndi Óskar ávallt að finna samningaleiðir. Ég held að honum hafi liðið illa ef ekki náðist samkomulag og niðurstaða, sem allir gátu unað við. Samt gat hann verið fastur fyrir þegar honum þótti það viðeigandi, en fór afskaplega vel með það að ná fram sínum vilja. Hann var vel máli farinn, rökfastur og skipulagður í umræðum og góður ræðumaður. f eðli sínu var Óskar mikill jafriaðar- maður og sannur samvinnumaður. Hann hafði ríka samúð með þeim sem minna máttu sín og voru undir í lífsbaráttunni og vildi rétta hlut þeirra eftir mætti. Skömmu eftir að Höfn varð sveitar- félag var stofnaður sérstakur söfnuð- ur þar. Á fyrsta fundi safnaðarins var Óskar kjörinn safnaðarfulltrúi og gegndi því starfi til síðasta dags eða í 40 ár. Jafnframt sat hann í sóknar- nefnd um tíma. Nýr söfnuður þurfti kirkju og aðstöðu fyrir safnaðarstarf- ið og hafði Óskar forystu í þeim mál- um. Hann var formaður byggingar- nefndar Hafnarkirkju, sem vígð var 1966. Ég er sannfærður um að í þess- um störfum leið Óskari vel, því hann sótti styrk í trúna og boðskapur meistarans átti sterk ítök í hugarþeli hans eins og finna mátti í samskipt- um og umgengni hans við náungann. Óskar var áhugamaður um norræna samvinnu og var konsúll Dana hér um nokkurt skeið. Fyrir þau störf var hann sæmdur riddarakrossi Danne- brogsorðunnar. Áhugamaður um fþróttir og útivist var Óskar alla tíð og á seinni árum hafði hann mikla ánægju af að spila golf. í Golfklúbbnum eins og annars staðar var hann kallaður til starfa og var þar meðal annars formaður í tvö ár. Ótalin er þátttaka hans í Lionshreyf- ingunni um langt árabil. Á þeim vett- vangi starfaði hann dyggilega og gegndi þar helstu trúnaðarstörfum í hreyfingunni. Með víðtækri þátttöku sinni í félags- málum héraðsins hefur Óskar haft ómæld áhrif á þróun og framtíð þess. Á þessum tíma hefur Höfn vaxið úr þorpi í myndarlegan bæ. Hann hafði mikinn metnað gagnvart uppgangi og framtíð byggðarlagsins og ég veit að honum leið vel að sjá og finna að fólk vildi setjast hér að. Það var stað- festing þess að ekki hafði verið til einskis unnið. í pólitík og félagsmálum fer ekki hjá því að fólk sé gagnrýnt og fundið að ákvörðunum þess og störfum. Það er með ólíkindum að maður með af- skipti af öllum þeim málum sem Ósk- ar hafði, skuli ekki hafa verið um- deildari en raun ber vitni. Ég hygg að þar vegi þyngst að allir treystu heið- arleika hans og trúmennsku og að öll störf sín, smá og stór, vann hann af einstakri prúðmennsku og tillitssemi við samferðafólkið. Sömuleiðis var hann afskaplega hlý manneskja og mér fannst alltaf bjart yfir honum. Það á vel við að segja um Óskar að hann var drengur góður. í mínum huga var hann sannur heimsborgari. Allt frá því að ég man fyrst eftir Ósk- ari fannst mér hann lítið eldasL Hann bar aldurinn einstaklega vel. Það var aðeins nú á allra síðustu árum að maður sá honum brugðið vegna sjúk- leika. Alla tíð naut Óskar mikils stuðnings frá Guðbjörgu og fjölskyldunni. Það fór ekki framhjá okkur samferðafólki þeirra að þau voru samrýnd og sam- taka í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og nutu þess að vera samvist- um við öll tækifæri. Á sjötugsaftnæli Óskars 14. septem- ber 1987 var hann sæmdur nafnbót- inni heiðursborgari Hafnar. Á þann hátt var honum sýnd viðeigandi virð- ing og þakklæti fyrir mikil og heilla- drjúg störf í þágu byggðarlagsins. Á kveðjustund stöndum við Hafnar- búar og Austur-Skaftfellingar allir í þakkarskuld við Óskar Helgason. Um Ieið og honum eru þökkuð mikil og fómfús störf sendum við Guðbjörgu, bömum, fjölskyldum þeirra og öðr- um aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur á sorgarstundu. Guð blessi minningu Óskars Helga- sonar. Albert Eymundsson, forseti bæjarstjómar Hafnar Heiður Baldursdóttir Fædd 31. maí 1958 Dáin 28. maí 1993 Hugsjónakonan Heiður Baldursdótt- ir, sérkennari og rithöfundur, er horf- in sjónum okkar, en mynd hinnar að- sópsmiklu og hrífandi stúlku mun lifa með okkur alla tíð. Hún barðist hetjulega til hinstu stundar, en 28. maí sl. lét hún undan hinum illvíga sjúkdómi sem fyrst varð vart 1992 og hún virtist hafa sigrast á. En eftir sl. áramót kom hún skyndi- Iega fárveik frá Bandaríkjunum, þar sem hún var við meistaranám í sér- kennslufræðum. Þótt mér væri ljóst að Heiður væri mikið veik, setur mann hljóðan við slíka harmafregn. Aðeins 20 dögum áður, laugardaginn 8. maí, hafði ég hitt Heiði ásamt manni hennar Ómari, á skólasýningu í Réttarholts- skóla. Þannig var hún með hugann við skólamálin til sfðustu stundar. Ég frétti einnig af henni 19. apríl þar sem hún var að lesa upp úr handriti nýrrar bókar sinnar fyrir böm í Melaskóla. Þannig vann hún að ýmsum hugðar- efnum á meðan nokkrir kraftar leyfðu. Foreldrar Heiðar, Þórey Kolbeins og Baldur Ragnarsson, voru bæði bekkj- arsystkini mfn úr Menntaskólanum á Akureyri og góðir vinir. Ég hafði dval- ið nokkur ár erlendis og sá því ekki Heiði fyrr en hún var nokkurra ára hnáta og ég minnist þess sérstaklega hvað mér fannst hún skýrt og gerðar- legt bam með þessi pírðu, glettnis- legu augu og glaðlegt fas. Heiður var alla tíð afburða námskona, hljóp yfir bekk til að ljúka Iandsprófi og lauk svo stúdentsprófi á tveimur og hálfu ári frá Menntaskólanum í Hamrahlíð. Á þessum ámm tók Heiður mikinn þátt f félagsmálum og félagsstarfi og kom þá í ljós að hún var kröftugur málsvari lítilmagnans og vildi meiri jöfnuð í þjóðfélaginu, eins og raunar alla tíð og ljóslega kemur fram í bók- um hennar. Heiður hélt síðan til náms í KHÍ og lagði stund á kennslu um nokkurt skeið, m.a. í Safamýrarskóla. En hún lét ekki staðar numið, heldur fór áfram í framhaldsnám í sérkennslu- fræðum og lauk BA-prófi vorið 1990. Fór mikið orð af góðri ffammistöðu hennar og forgöngu á þessum vett- vangi. Heiður hélt síðan ásamt manni sínum, Ómari Harðarsyni stjómmála- fræðingi, og tveimur dætrum til Bandaríkjanna til frekara framhalds- náms í New Jersey. Það kvað mikið að Heiði hvar sem hún fór og hún vildi byggja skoðanir sínar á rökum. Því var hún sífellt leit- andi, vildi umræður um málefni eins og skólamál, varpaði fram athyglis- verðum spumingum og vildi rann- sóknir til að fó óyggjandi svör. Það var gefandi þegar hún hringdi til að ræða skólamál sem henni lágu á hjarta. Hún þoldi ekki misrétti og ef maður hitti hana á fundum, hafði hún alltaf eitthvað nýtt ffarn að færa. Það má með sanni segja að Heiður bjó yfir mikilli hugmyndaauðgi og var gædd sérstökum frásagnarhæfileikum og ritfæmi. Það hefur hún ekki langt að sækja, því báðir foreldrar hennar em auðugir af þeim hæfileikum. Sam- hliða námi og heimilisstörfum afrek- aði Heiður að skrífa margar bækur á stuttum tíma, en segja má að opinber- lega uppgötvuðust fyrst rithöfundar- hæfileikar hennar þegar hún fékk bamabókaverðlaun fyrir fyrstu bókina sína ,ÁIagadalurinn“, 1989 frá Vöku- Helgaífelli. Síðan hafa þegar komið út þrjár bækur og sú fimmta er nú tilbú- in f handriti og væntanleg er útkoma hennar með haustinu. Auk þess var gefin út eftir hana hjá Námsgagna- stofnun bókin ,Að lesa umhverfið", myndskreytt eftir Halldór bróður hennar. Það er mikill missir fyrir alla að slfk mannkostastúlka falli frá á besta aldri. Kennarar hafa misst baráttukonu, en vilja nú minnast hennar með þátttöku f stofnun minningarsjóðs sem vinna mun að rannsóknum í anda hennar. Bömin, sem hefðu notið frásagnar hennar í kennslu og með lestri á fleiri góðum bókum hennar, fara mikils á mis. Sárastur er þó söknuður eigin- mannsins, Ómars, og ungu dætranna tveggja, þeirra Brynhildar og Þóreyjar Mjallhvítar. Elsku Þórey, Baldur og fjölskyldan öll, megi góður guð gefa ykkur styrk í þessum sára söknuði. í minningu Heiðar koma þessar ljóð- línur Tómasar Guðmundssonar í hug- ann: En meðan árin þreyta hjörtu hirma sem horfðu efíirþér í sárum trega, þá blómgast enn og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor i hugum vina þirma. Áslaug Brynjólfsdóttir Hallgrímur Sigurvaldason Látinn er Hallgrímur Sigurvaldason bóndi á Eiðsstöðum í Blöndudal. Hall- grímur var fæddur í Gafli í Svínadal 6. apríl 1917, sonur hjónanna Guðlaug- ar Hallgrímsdóttur og Sigurvalda Jós- efssonar. Hallgrímur var þriðji í ald- ursröð 10 systkina. Foreldrar hans vom bláfátæk og bjuggu á snjóþungu fjallakoti. Bæði vom þau hjón úrvals- manneskjur, Guðlaug skynsöm kona og hafði notið menntunar umfram það sem þá gerðist Hafði hún verið f þremur skólum. Sigurvaldi var glæsi- menni og afrendur að afli. Lífsbarátta þeirra var harðari en nútímafólk þekkir. Systkinin vöndust mikilli vinnu strax á bamsaldri. Fjölskyldan fluttist að Eldjámsstöðum í Blöndu- dal og þar ólst Hallgrímur upp að mestu. Éldjámsstaðir vom erfið jörð til búskapar og lá undir miklum ágangi afréttarpenings. Örðugt var um heyskap og aðdrættir allir tíma- frekir og um torleiði að fara. Með þrotlausri vinnu og samheldni tókst fjölskyldunni að komast til bjargálna. Jarðnæði var þröngt á Eld- jámsstöðum og tveir elstu bræðumir, Jósef og Hallgrímur, keyptu næstu jörð, Eiðsstaði, og haífa búið þar tveir einir langa hríð. Samheldni þeirra bræðra var einstök og aldrei varð þess vart að þeim yrði sundurorða. Þeir bræður vom þó ólíkir að skaphöfn, en ágætir báðir. Hallgrímur var afrendur að afli og einstakur maður að dugnaði og vinnuþreki. Hann var mikill skap- maður og tilfinninganæmur, en glað- sinna, orðheppinn og hnyttinn í til- svömm. Gestrisni þeirra Eiðsstaða- bræðra var viðbmgðið og hafði maður það á tilfinningunni að þeim væri gerður stórgreiði ef mann bar þar að garði. Það sem þó einkenndi Hallgrím öðm fremur var mjög sterkt trygg- lyndi. Hallgrímur var ekki allra vinur, en þeir sem eignuðust vináttu hans áttu hana heila. Hjálpfysi og greiða- semi vom sjálfsagðir hlutir og nutum við nágrannar hans þess alla tíð. Ég hef átt Hallgrím að nágranna og vini allt mitt líf. Ég minnist þess frá bamæsku þegar hann kom heim til mfn aufúsugestur, síðan höfum við unnið saman margan daginn og glaðst saman iðulega. Það var gaman að vera f verki með Hallgrími. Hann var óvílinn og ákaflega kappsamur. Mér þótti mikill sigur þá sjaldan mér tókst að halda til jafhs við hann í verki. í hugann koma glaðir og góðir dagar fullir með sólskin og hlýju. Snjallyrði Hallgríms hafði maður heim með sér að kveldi og það nesti entist marga daga. Hallgrímur var bóndi allan sinn ald- ur. Honum var það kappsmál að gera vel við skepnur sínar. Hann vildi ffern- ur eiga skepnur vel fóðraðar í sæld en að hafa uppúr þeim. Hallgrímur bjó sér til skemmtunar fremur en að hann hygðist efnast á búskapnum. Nú er Hallgrímur allur. Ég sakna vinar í stað. Ég þakka margra áratuga vináttu og gott nágrenni. Þakka greið- vikni, ærlegheit og trygglyndi. Ég færi Jósef á Eiðsstöðum og aðstand- endum Hallgríms öðrum innilegar samúðarkveðjur. í hugum okkar lifir minningin um góðan dreng og traust- an vin. Páll Pétursson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.