Tíminn - 12.06.1993, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.06.1993, Blaðsíða 16
16 Tíminn Laugardagur 12. júní 1993 Flóabáturinn Baldur: Bókan i r fleiri í ár en ífyrra Ferjan sem er þriggja ára, þegar orðin of lítil Flóabáturinn Baldur hefur þjónað byggðum Breiðafjarðar og ferða- mðnnum allt frá árinu 1926 og leiftinnl Stykkishólmur-Flateyri- Bijánslækur, frá 1932. Sama skip- ift hefur þó ekki alltaf verið í forum og er núverandi skip það sjöunda sem þessu verkefni þjónar. Guft- mundur Lárusson, framkvæmda- stjóri flóabátsins Baldurs, er bjart- sýnn á sumarið. Hins vegar þrátt fýrir ungan aldur núverandi skips, er það orftift of lítið. Guðmundur Lárusson sagði í sam- tali við Tímann að sumarið lofaði góðu, þó að veðrið hafi ekki verið upp á það besta upp á síðkastið. Hann sagðist búast við betra sumri hvað fjölda farþega með Baldri varð- aði og bókanir væru nú mun fleiri en á sama tíma í fyrra. Þegar líða færi á sumarið væri fullbókað með bátnum og því væri nauðsynlegt íyr- ir þá sem ætluðu að eiga vfst far með honum, að bóka í tíma. Flóabáturinn Baldur fer tvær ferðir á dag milli Stykkishólms og Brjáns- Iækjar, með viðkomu í Flatey á Breiðafirði. Fyrri ferðin er frá Stykk- ishólmi klukkan 10 að morgni, en síðari ferðin klukkan 16.30. Lagt er upp frá Brjánslæk klukkan 13.00 og 19.30 og er viðkoma höfð í Flatey í Þeir sem leggja leiö slna meö Baldri yfir Breiöafjöröinn geta haft viökomu IFIatey um lengri eöa skemmri tíma. Fióabáturinn Baldur var tekinn I notkun áriö 1990, en erþegar oröinn oflítill. Tímamynd Pjetur báðum ferðum. Hægt er að eiga mislanga dvöl í eyjunni, en stysta stopp er rétt rúmir tveir tímar, en lengst er stoppið um níu tímar. Þeir sem hyggjast fara yfir fjörðinn geta lengst fengið sex tíma stopp, þ.e.a.s. ef ekki er dvalið yfir nótt. I eyjunni er mjög gott tjaldsvæði, auk þess sem hægt er að kaupa svefnpoka- pláss í Flatey. Ef bifreið er með í för er hún send áfram, annað hvort til Stykkishólms eða Brjánslækjar þar sem hún er geymd á meðan farþegar heimsækja Flatey. Ferð yfir fjörðinn kostar 1300 krónur fyrir fullorðna. Fyrir bifreið og bílstjóra kostar 3000 krónur og fyrir hvem aukafarþega í bifreiðinni kostar 1000 krónur. Ferjan getur flutt um 200 farþega og getur hún flutt um 20 fólksbfla, sem ekið er að og frá borði. Guð- mundur segir að nýja feijan, sem tekin var í notkun þann 4. apríl 1990, hafi reynst mjög vel. Hins veg- ar sé það að koma í ljós, sem albjart- sýnustu menn spáðu, að ferjan sé orðin of lítil nú og skipti þá varla máli hvort um væri að ræða sumar eða vetur. Rekstur fyrirtækisins, sem er í eigu opinberra aðila, hefur að mati Guðmundar gengið vel og mun betur en áætlanir gerðu ráð fyrir áður en skipið var smíðað. „Það helgast að því að það er mikið meiri aðsókn að skipinu en áætlað var f upphafi," sagði Guðmundur Lárus- son að lokum. -PS Bridge UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Baráltan hafín Þá er Iandsliðið komið til Nent- on í Frakklandi á Evrópuótið í bridge sem sker úr um hvaða fjögur lönd innan álfunnar senda lið á heimsmeistaramótið íhaust íslendingamir sem nú eru hand- hafar Bermúdaskálarinnar frægu, munu mæta mikilli pressu, enginn vanmetur heimsmeistama og ef- laust leggja flestir aukið kapp á að leggja sjálfa heimsmeistarana að velli. Á móti gæti þó komið að hin löndin hreinlega hræddust hina sterku sveit fslands en markmiðið er að ná einu af fiórum efstu sæt- unum. í sveitinni eru Jón Baldursson, Sævar Þorbjömsson, Guðmundur Páll Amarson, Þorlákur Jónsson, Bjöm Eysteinsson og Aðalsteinn Jörgensen. Landliðsfyrirliði án spilamennsku er Karl Sigurhjart- arson. Fyrsta umferð verður spiluð í dag og stendur mótið til 20. júní. Eftir rúma viku hefst svo Norður- landamót yngri spilara og verður þar keppt í tveimur flokkum. Ann- ars vegar eru liðin skipuð spilumm 21-25 ára gömlum og hins vegar 20 ára og yngri. Fulltrúar íslands í eldri flokknum verða Sveinn R. Ei- ríksson, Hrannar Guðlaugsson, Steinar Jónsson og Ólafur Jónsson. í yngri flokknum spila þeir Ragnar T. Jónsson, TVyggvi G. Ingason, Hlynur T. Magnússon og Halldór Sigurðsson. Fyrirliði er Matthías Þorvaldsson. Tíminn sendir íslensku landslið- unum baráttukveðjur og óskar þeim góðs gengis. Þraut 19 Vestur gefur; allir á hættu NORÐUR + AKD3 ¥ D9842 ♦ G3 * 92 SUÐUR + 9 ¥ K76 ♦ ÁD974 * ÁKD6 Sagnir: vestur norður austur suður pass pass pass 1 * pass lgr. pass 3+ pass 4* pass 4* allir pass Útspil: Hjartanía Suður opnar í fjórðu hendi og verð- ur sagnhafi í 4 spöðum. Eftir útspilið drepur austur með gosanum og spil- ar kóngnum til baka. Austur virðist eiga ÁKG í hjarta og þar sem hann opnaði ekki í þriðju hendi, virðist sem laufkóngurinn sé staðsettur hjá vestri. Hvemig er best að spila ef trompin skiptast 4- 2 og laufkóngur- inn er öfugur. í fyrstu virðist sem sagnhafi eigi 10 slagi, fjóra á spaða, 5 á tígul og laufs- lag. En hættan á að missa vald á spil- inu er rík. Ef suður gefur sér að allt spilið sé eitthvað á þessa leið: (Sjá næsta dálk) — þá er ekki hægt að að trompa hjartakónginn, taka ÁKD í spaða og verka tígulinn. Austur mundi trompa tígul í þriðja skipti sem hon- um væri spilað, rjúfa þar með sam- ganginn við blindan og samningur- NORÐUR + 97 ¥ D6 ♦ ÁG962 + 9632 VESTUR AUSTUR + xx + GTxx ¥ xxxxx ¥ ÁKGxx ♦ XXX ♦ XX + KGx * XX SUÐUR ♦ ÁKD52 ¥ T ♦ KDT + ÁD96 inn væri einn niður a.m.k. Ef suður trompar EKKI hjartakóng- inn og hendir laufi í staðinn, skiptir austur yfir í lauf og sagnhafi verður þar með að gefa einn slag á lauf og annan á tromp, auk þeirra tveggja sem tapast á hjarta; einn niður. Lausnin felst í að trompa hjarta- kóng og spila litlu trompi frá báðum höndum. Sá sem drepur getur ekki ráðist á hjartað því enn er spaði í blindum. Segjum að austur sé inni og spili laufi. Þá tekur suður á ásinn, ÁKD í spaða og 5 slagi á hjarta. Létt- ir 10 slagir. Sagnæfíngar Sagnæfingum hefur ekki verið sinnt að neinu marki í bridgeþætti Tímans. Verður nú bragarbót gerð á og gefst lesendum kostur á að reyna sig í sögnum gegn Guðmundi Páli Amarsyni og Þorláki Jónssyni annars vegar sem nú standa í ströngu á Evr- ópumótinu og John Cox og Oliver Segal hins vegar. Hina fyrmefndu er óþarfi að kynna frekar en Cox og Segal eru þekktir breskir spilarar sem hafa náð ágætum árangri á al- þjóðamælikvarða. Fyrir skemmstu bauð BRIDGE tímaritið breska þess- um tveimur pömm til leiks og má lesa niðurstöðumar í síðasta tölu- blaði þess. Það er ávallt heiður fyrir spilara að vera boðið til sögunnar í þessu víðlesna tímariti, en það er þó ekki nýtt fyrir Guðmund og Þorlák því segja má að þeir séu búnir að vera fastagestir í blaðinu frá áramótum. En nóg um það. Eftirfarandi spil em úr einvíginu. Enginn; suftur (Tvímenningur) NORÐUR + ÁKD3 ¥ D9842 ♦ G3 * 92 SUÐUR + ¥ ♦ + 9 K76 ÁD974 ÁKD6 Segal Cox suður norður l^ 2♦ 2* 3* 4* 4ör.* 5^ 6“ pass * Roman lykilspilaspuming Guðm. Þori. 1* 2* 2* 3* 3* 4* 4¥ 4gr.* 5^ 5* pass * Roman lykilspilaspuming Það er auðvelt að lenda f ógöngum í þessu spili þar sem hjartalitur suðurs er lélegur og erfitt að halda aftur af norðri. Guðmundur Páll mat hins vegar stöðuna rétt eftir að Þorlákur sagði frá einu lykilspili af fimm (spaðaásnum) og lét sér nægja 5 hjörtu sem í sjálfu sér em alls ekki auðunnin. Bretamir gerðust full- bjartsýnir. Besta sagnröðin 1 * s 2 ♦ >2 V »3 ^ S(splinter)4 * >pass Fyrir 5 hjörtu fengu íslensku heimsmeistaramir 75 stig af 100 mögulegum en Bretamir ekkert þar sem heita má vonlaust að vinna 6 hjörtu. Vestur; allir (Tvímenningur) NORÐUR + ÁKD3 ¥ D9842 ♦ G3 + 92 SUÐUR + 9 V K76 ♦ ÁD974 ♦ ÁKD6 Vestur opnar á tveimur Iaufum (Precision) Segal Cox norður suður pass dobl 3+* 3* 4^ pass * tíglar Guðm. Þori. norður suður pass dobl 3^ 3* 4+* 4+** 4V 4gr*»* 5V 5gr.**** 6^ 7^ pass * Hjartastuðningur, segir ekkert um lauf. ** fyrirstaða *** Roman lykilspilaspuming **** áttu aukastyrk? Þetta var síðasta sagnþrautin í ein- víginu og réð úrslitum um að sigur- inn lenti hjá Guðmundi og Þorláki. Fátt verður sagt um sagnir Bretanna annað en að þær skiluðu ekki ár- angri. TYompið í ermi Guðmundar og Þorláks í þessu spili reyndist hins vegar vera 4ra laufe spuming Guð- mundar sem lofaði hjartastuðningi án þess að fyrirstöðu væri lofað í lauflitnum sjálfum. Þorlákur álykt- aði að með áskoruninni hlyti vestur að eiga 6- lit í tígli og eftír 6 tígla sögnina var hægt að plaffa á alslem- muna. Fyrir hana fengu íslending- amir 95 stíg af 100 og unnu þar með einvígið með nokkmm mun.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.