Tíminn - 12.06.1993, Síða 15
Laugardagur 12. júní 1993
Tíminn 15
+
m
Gamli „ Kvennabragginn ‘ hefur fengið á sig upprunalega mynd. Hann hefur undanfarín ár hýst Hótel Djúpavík, sem stjórn-
að er af hjónunum Evu Sigurbjörnsdóttur og Asbirni Þorgilssyni.
„Kvennabragginn"
hýsir Hótel Djúpavík
Að innan hefur .Kvennabragginn' verið færður f nýtfskulegt horf, þarsem heim-
ilislegt andrúmsloft ræður ríkjum.
í Djúpuvík við Reykjarfjörð á
Ströndum var á síldarárunum starf-
rækt sfldarverksmiðja, en efdr hrun
sfldarstofnsins var verksmiðjunni
lokað. Nú er starfrækt hótel í
Djúpuvík og þar ræður Eva Sigur-
bjömsdóttir hótelstýra ríkjum.
„Reksturinn hefur gengið vel og er
alltaf að aukast með hverju árinu
sem líður. Hins vegar er þetta voða-
lega stuttur tími sem við höfum á að
byggja. Það hefur verið töluvert um
bókanir og talsvert um hópa,“ sagði
Eva. Ásbjöm Þorgilsson, eiginmaður
Evu, sér um viðgerðarþjónustu og
bensínafgreiðslu á staðnum.
Á Hótel Djúpavík eru átta tveggja
manna herbergi og tvö fjögurra
manna og getur hótelið hýst 24 í
rúmum. Á herbergjum em hand-
laugar, auk þess sem snyrtingar em
góðar og með sturtum. Boðið er upp
á bátsferðir, útsýnisferðir á sjó og
Iandi, en náttúmfegurð er mikil á
þessum slóðum. Á Krossnesi er all-
sérstæð sundlaug, þar sem sund-
laugarveggurinn er alveg niðri við
sjó og má þar jafnvei sjá seli á sundi
rétt við sundlaugina. Gönguleiðir
em margar í nágrenninu og má þar
nefna foma gönguleið yfir í Trékyll-
isvík.
Á Djúpuvík má enn sjá menjar þess
mikla athafnalífs sem þar var á árum
áður, en þar var rekin stór síldar-
verksmiðja og söltunarstöð á meðan
á hinu mikla sfldarævintýri stóð.
Eftir að aflabrests varð vart, hallaði
vemlega undan fæti og var stöðin
lögð niður. Húsið, sem hýsir Hótel
Djúpavík, hýsti á þessum tíma sfld-
arsöltunarstúlkur og gekk húsið þá
undir nafninu „Kvennabragginn".
Það hefúr nú verið fært í uppruna-
lega mynd, en innanhúss er það ný-
tískulegt
/VIMDREA ■ I.
SJÓSTANGAVEIÐI - SKEMMTIFERÐIR
★ Þjónusta allan
sólarhringinn
★ Tökum allt að
20 manns
★ Tólfgeta veitt
í einu
Pantanir og
upplýsingar
i símum
93 - 12278 og
985 - 35878
Ferðaþjónusta
bænda
Frábær uppskrift
ao frnnu i ar
^-~+. ---------- —■—
Verðdæmi I: '
f 4RA MANNA FJÖLSKYLDA
- gisting í góðu svefnpokaplássi.
Eldunaraðstaða og góð setustofa til boða á
\ flestum stöðunum. Verð kr. 3.450.
\ Pr. mann á nótt 862. \
Verðdæmi II:
4RA MANNA FJÖLSKYLDA ^
- gisting í uppábúnum rúmum.
Frábær morgunverður að sveitasið og Ijúffengur
v kvöldverður. Verð kr. 11.100.
Pr. mann á nótt 2.775.
m m »«í
IS 515 Bti
m
BÆKLINGURINN
OKKAR
ER ÓMISSANDI
FÖRUNAUTUR
Á FERÐALAGINU
Verðdæmi lll:
4RA MANNA FJÖLSKYLDA
- sumarhús í viku (fl. B)
Verð kr. 24.500.
Pr. mann á nótt 875.
Ferðaþjónusta
bænda
Ferðaþjónusta bænda, Hótel Sögu v/Hagatorg, símar 623640/43, símbréf 623644.
Ferðaþjónusta
bænda
+