Tíminn - 12.06.1993, Page 23
Laugardagur 12. júní 1993
Tíminn 23
mikið á útvarp og var fyrstur manna
að fá sér sjónvarp þegar það kom til;
hafði yndi af tónlist, en var ekki al-
æta á það sem hann heyrði í útvarpi
og sjónvarpi. Nýrri tónlist, s.s.
djass- og poppmúsík, kunni hann
illa. Sagði það ekki vera annað en
öskur og garg, sem gerði menn vit-
lausa, og þá ekki síður dvr, og
nefndi óyggjandi dæmi þess. Á yngri
árum spilaði hann á harmoniku
sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Hann hafði gaman af að spila ef
hann náði í menn til þess. En þó var
skákin honum mesta yndi af öllu
tómstundagamni hans. Næði hann í
einhvern gest eða gangandi, sem var
til í skák, sleppti hann ekki því tæki-
færi. Og hann var slyngur skákmað-
ur. Þannig leyndist með honum
margþætt listamannseðli, þó hann
væri ekki ávallt uppfærður á lista-
manna vísu. Hann var gestrisinn og
gjöfull.
Axel var heilsuhraustur og lítt
kvellisjúkur. Nokkuð er þó síðan
fætur hans fóru að bila, einkum
hnjáliðir. Gerði það honum erfitt
um gang, en þegar hann var kominn
út í bát bagaði það hann ekki eins,
og var hann vel liðtækur á sjó fram
til síðustu ára. Hann hafði á hendi
vörslu Gjögursvita eftir lát föður
síns, 1943, og hafði raunar haft það
á hendi lengur með föður sínum. Og
við veðurathugunum á Gjögri tók
hann um 1970, er þær færðust frá
Kjörvogi er Kjörvogur fór í eyði.
Þau störf vann hann af trúmennsku,
í almanna þágu. Að sveitarstjórnar-
málum kom hann aldrei nema sem
óbreyttur borgari. Lét þau mál sér
oftast í Iéttu rúmi liggja.
Ég ætla að ljúka þessum slitróttu
minningabrotum mínum um vin
minn, Axel á Gjögri, með því að
segja frá síðustu samfundum mín-
um við hann í lifanda lífí.
Það var á annan páskadag s.l., að
messað var í Árneskirkju. Kirkju-
sókn var góð og margt sóknarbarna
komið í kirkju. Allir höfðu sest í
sæti, ekki búist við fleiri kirkjugest-
um og athöfnin að byrja. En þá eru
kirkjudyrnar opnaðar og inn koma
þeir Gjögursfeðgar, Axel og Jakob.
Þeir gengu til sætis og messan fór
fram. — Þama, öllum á óvænt, var
Axel kominn og sestur á meðal okk-
ar í nýju kirkjunni okkar. — Ég get
ekki lýst því hver fögnuður fór um
hug minn við það. Og ég vissi að
eins var um okkur öll, sem þarna
vorum, við að sjá blessaðan öldung-
inn þarna á meðal okkar. — Friður
hvíldi yfir honum og það geislaði af
honum birta og hlýleiki í svip hans.
Að athöfn lokinni stóð hann upp og
heilsaði okkur hverju af öðru með
þeim hjartans innileik að enginn
var ósnortinn af því. Hann umfaðm-
aði okkur hvert af öðru með þeim
innileik, sem kom frá innstu hjart-
ans rótum eins og aldrei hefði neitt
í milli borið. Og við umföðmuðum
hann á sama hátt. Mér liggur við að
segja, með grátklökkri gleði yfir að
sjá hann og finna nálægð hans með
þessum hætti á þessum stað eftir
það sem gerst hafði og hann átt
nokkurn þátt í. Öll kepptumst við
um að fagna honum og láta hann
finna hvað gleði okkar var rík.
Þessi fagnaðarstund var hápunktur
þeirrar guðsþjónustu, sem þarna fór
fram. Þó ekkert annað hefði gerst,
þá var það hrein og sönn guðsþjón-
usta, helguð friði, kærleika og sátt-
um, sem Axel innsiglaði með nær-
veru sinni og átti frumkvæði að. —
Það var og verður okkur, sem þarna
vorum samankomin, helg stund,
hrein og sönn guðsþjónusta. Andi
Guðs var yfir okkur, ekki síst fýrir
nærveru hans á meðal okkar. Og við
héldum okkur finna í því fyrirheit
um að hann ætlaði að koma oftar í
kirkju með sama hætti. En svo varð
ekki. Stutt var til næsta áfanga. Með
nálægð sinni þessa stund hafði
hann innsiglað þann sáttmála, sem
sfst má brjóta í jafn fámennu samfé-
lagi og við búum við, með veikum
undirstöðum á marga lund. Þökk sé
honum fyrir það.
Útför hans fór fram að Árnesi laug-
ardaginn 22. maí í góðu veðri að
viðstöddu fjölmenni. Nálega allir
heimamenn fylgdu honum til grafar
og böm hans komu og fylgdu hon-
um síðasta spölinn og fjöldi barna-
bama var þar samankominn til að
þakka samvistina með honum, sem
mörg þeirra höfðu notið heima á
Gjögri. Sum þeirra hafa minnst
hans látins með ágætum. Það fyllir í
eyður þessara minningarbrota
minna. Ég votta öllum aðstandend-
um hans samúð mína við fráfall
hans og óska þeim blessunar.
Að endingu færi ég honum, fyrir
mfna hönd og allra sveitunga hans,
innilegar þakkir fyrir langa og góða
samfylgd og vináttu. —Árneshrepp-
ur er mun fátækari þegar hann er
horfinn úr hópnum.
„Farþú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt. “
Bæ, 31. maí 1993,
annan dag hvítasunnu,
Guðmundur P. Valgeirsson
Það var einmitt föstudaginn 14.
maí, að við hjónin vorum um morg-
uninn að tala um að líklega kæmi
Axel í dag. Það hafði verið gott veð-
ur undanfarna daga, og við vissum
að hann hefði verið á sjó, en nú
hafði veður spillst, og ekki sjóveður,
svo það var líklegt að þeir feðgar
kæmu til að versla uppá helgina. En
Axel kom ekki í verslun daginn
þann. í hádeginu fréttum við að
hann hefði látist um morguninn.
Mann setti hljóðan. Þó Axel væri
orðinn gamall maður, bar hann ekki
merki dauðans, en svo skammt er
þama á milli. Þarna hafði fallið
dómur, sem ekki varð áfrýjað.
Eitthvert tóm var eftir við þessa
frétt, því það var ævinlega tilbreyt-
ing þegar Axel kom. Það var svo
notalegt að staldra við um stund og
spjalla við hann. Hann hafði frá
mörgu að segja, og samtalið var allt-
af blandað góðlátlegri glettni, og
skildi eitthvað eftir, sem ekki
gleymdist strax. En nú var því lokið
og ekki þýddi um að sakast.
Axel Thorarensen var fæddur á
Gjögri 24. október 1906. Foreldrar
hans voru hjónin Jóhanna Sigrún
Guðmundsdóttir frá Kjós hér í
hreppi — í móðurætt var hann því
af hinni fjölmennu Pálsætt, sem
kennd er við Kaldbak — og Jakob
Jens Thorarensen, sem lengst af var
bóndi og sjómaður á Gjögri, en var
frá Kúvíkum.
Föðurafi Axels var Jakob Thoraren-
sen, kaupmaður við Reykjarfjarðar-
verslun (Kúvíkur).
Föðurætt Axeis má rekja til ey-
firskra embættismanna, og m.a. var
Stefán Þórarinsson, amtmaður á
Möðruvöllum, langalangafi hans.
Axel var einn níu systkina, þar af
tvö hálfsystkini, og var Jakob Thor-
arensen skáld hálfbróðir hans. Öll
eru þessi systkin nú látin, nema
yngsti bróðirinn, Karl.
Axel ólst upp á Gjögri og þar ól
hann allan sinn aldur. Á Gjögri
byggðu menn afkomu sína á sjávar-
fangi og smávegis landnytjum, enda
er Gjögur fornfræg veiðistöð. Inn í
þetta umhverfi fæddist Axel, og varð
snemma þátttakandi í brauðstriti
forfeðra sinna, sem varð honum
drjúgt veganesti, því á þessu byggði
hann afkomu sína til dauðadags.
Um 1930 tók Axel upp sambúð við
frændkonu sína, Agnesi Guðríði
Gísladóttur, sem einnig var fædd og
uppalin á Gjögri. Stofnuðu þau
heimili á Gjögri, þar sem þau
bjuggu til æviloka. Þeim fæddust
níu börn, eitt lést í frumbernsku, en
einn sonur þeirra, Ölver, lést full-
tíða maður. Fimm dætur þeirra eru
fluttar úr byggðarlaginu, en bræð-
urnir tveir, Olafur og Jakob, hafa
haldið heimili á Gjögri með foreldr-
um sínum.
Má nærri geta, að húsmóðirin
unga hefir mátt taka til hendi við
umönnun barna og heimilis. Hún
lagði allt í sölurnar fyrir heimilið,
var dugleg og reyndi allt hvað hún
gat að halda fátæklegu heimilinu
þrifalegu. Eins og margar húsmæð-
ur á hennar reki, sem helguðu sig
heimilinu, heimti hún daglaun sín
að kvöldi við það eitt að sjá vöxt og
viðgang barnanna. Agnes reyndist
vanda sínum vaxin, um það bera
bömin gott vitni. Agnes lést fyrir
tæpu ári, farin að kröftum eftir að
hafa lokið farsælu ævistarfi.
Heimilisfaðirinn lá heldur ekki á
liði sínu, og kom sér nú vel kunn-
átta kynslóðanna, veiðiskapurinn,
sem hann hafði ungur tileinkað sér.
Þó fiskimið við Gjögur væru feng-
sæl og stutt að fara, var sjósóknin
kaldsöm á opnum bát, enda bar Axel
þess merki á gamals aldri. Hann
varð veiðimaður af lífi og sál, og á
veiðiskapnum framfleytti hann fjöl-
skyldunni. Hann varð snillingur að
handleika byssuna og öngulinn.
Hann var sannur veiðimaður að því
leyti, að öll rányrkja var honum á
móti skapi og gagnrýndi hann hana
harðlega. Hann miðaði ekki byss-
unni til þess eins að sjá dýrið falla,
eða vita hvort hann hitti. Hann
gerði það til að afla heimilinu matar
og það var honum lífsnauðsyn, enda
færði byssan fjölskyldunni margan
málsverð.
Axel tók sér fleira fyrir hendur. Um
áratuga skeið var hann vitavörður
við Gjögurvita. Tók við því af föður
sínum, eftir að hafa aðstoðað hann
við það í ellinni, og seinni árin með
aðstoð Jakobs sonar síns. Þannig
hefur starfið fylgt ættliðunum. Þá
hefir hann einnig með aðstoð Jak-
obs annast veðurathuganir á Gjögri
um tuttugu ára skeið.
Þó Axel væri ekki víðförull um dag-
ana, var hann orðinn landsþekktur
maður af viðtölum í blöðum og
sjónvarpi. Hann var veiðimaður af
lífi og sál, hann hafði útlit veiði-
mannsins, hann hafði frásagnargáfu
og frásagnargleði veiðimannsins.
Frásögn hans var ávallt sönn og
öfgalaus. Hann var fulltrúi liðins
tíma, og það var ekki að ófyrirsynju
að menn Ieituðu í „smiðju" til hans.
Líf Axels var ekki eingöngu bundið
veiðiskapnum, honum var fleira til
lista lagt. Hann var tónlistarunn-
andi og spilaði sjálfur lengst af á
harmoniku og munnhörpu. Elsta
dóttir hans, Jóhanna, minnist þess
að þegar hún var barn þá klæddi
hann sig uppá í góðviðri á sunnu-
dögum, fór út á bæjarhólinn og spil-
aði þar á harmoniku, og börn og
unglingar úr nágrenninu komu og
hlustuðu. Hann spilaði einnig fyrir
dansi á yngri árum. Taflmaður var
hann ágætur og iðkaði það til
dauðadags, og sneri þar oft á sér
yngri menn.
Axel, eins og fleiri á hans aldri,
mundi tímana tvenna, þegar hann
var unglingur og frameftir öldinni
var iðandi mannlíf á Gjögri. Hann
var áhorfandi að fólksfækkun þar,
sem kom í kjölfar breyttra atvinnu-
hátta, og minnkandi atvinnu í
byggðarlaginu. Axel gaf sig ekki að
því, hann hélt ótrauður áfram við
sitt, seinni árin með aðstoð Jakobs
sonar sfns, og honum átti hann um-
fram allt að þakka að geta unað
glaður við sitt til endadægurs.
Á gamals aldri bar hann merki vos-
búðarinnar, hendurnar voru hnýtt-
ar, fæturnir bognir, en þó var hanr.
hraustur og bar aldurinn vel. Það
féll aldrei niður róður hjá Axel, dag-
inn fyrir andlát sitt réri hann tvisv-
ar. Hann var að leggja netin, vorið
var búið að vera erfitt, en nú voru
góðviðrisdagar og það var hann
reiknaði með að grásleppan væri að
ganga á miðin, og þá amaði ekkert
að. En grásleppan gekk ekki á mið-
in, en Axel hefði tekið því með jafn-
aðargeði, það er eðli hins sanna
veiðimanns að þekkja öll tilbrigði
náttúrunnar.
Axel var jarðsettur frá Árneskirkju
laugardaginn 22. maí, að viðstödd-
um fjölmennum hópi afkomenda og
sveitunga. Við kvöddum þennan vin
okkar með virðingu og þökk, og
fundum glöggt, þegar við stóðum
yfir moldum hans, að þarna var
genginn fulltrúi liðins tíma og hér
voru þáttaskil. Við fundum líka, að
hér var genginn maður, sem ekkert
var að vanbúnaði, börnin uppkomin
og Iífsförunauturinn farinn á undan
honum.
Blessuð sé minning Axels á Gjögri.
Við hjónin og börn okkar sendum
börnum hans og öðrum vanda-
mönnum innilegustu samúðar-
kveðjur.
Á hvítasunnudag árið 1993,
Gunnsteinn Gíslason,
Norðurfirði
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1993
Dregið veröur I Sumarhappdrætti Framsðknarflokksins 9. júli 1993. Vetunnarar
flokksins eru hvattir til að greiöa heimsenda giróseðla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91-28408 og
91-624480.
FiramsdknarftoWturfhn
Landsstjóm LFK
Fundur verður I Landsstjóm LFK föstudaginn 18. júnl kl. 20.44 að Kársnesbraut
99, Kópavogi. Rætt verður um Landsþingið i haust.
Framkvæmdasljóm LFK
Félag framsóknarkvenna
Ámessýslu
Vetrarstarfi félagsins lýkur með kvöldstund I Sklðaskálanum Hveradölum þriðju-
dagskvöldið 15. júnl kl. 20.00.
Kvöldverður — létt spjall
Þátttaka tilkynnist fyrir 13. júnl hjá Margróti Þórðardóttur I slma 76568 eða Þóru
Einarsdóttur I sima 22606.
Allar konur velkomnar. Stfómki
Aðalfundur—
Framsóknarmenn
Akranesi
Aðalfundur Framsóknarfélagsins verður haldinn mið-
vikudaginn 16. júnl kl. 20.30 I Framsóknarhúsinu við
Sunnubraut.
□agskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Kosið I nefndir
Ingibjörg Pálmadóttir ræðir stjórmmálaviðhorfið.
Stjómki
Ingibjörg
Vorferð Freyju
félags framsóknarmanna I Kópavogi, verður farin að Nesjavöllum næstkomandi
sunnudagskvöld 13. júnl. Lagt verður af stað frá Digranesvegi 12 kl. 20. Góðar
veitingar I boöi á 800 krónur
Tilkynna þarf þátttöku I slma 40576 (Katrin) eða 43774 (Sigurbjörg).
StjómFmyju
Unnur Stef&nsdóttlr Asta Ragnhelöur Inglbjörg
Stjómmálanefnd L.F.K.
Fundur verður haldinn þriðjudaginn, 15. júnl nk. ki. 17.00 að Hafnarstræti 22,
annarri hæð.
Dagskrá:
1. Landsþing L.F.K. Unnur Stefánsdóttir.
2. Nýsamþykkt jafnréttisáætiun til fjögurra ára. Ingibjörg Pálmadóttir.
3. Skipulögð stjómmálaumræða fyrir konur. Ásta R. Jóhannesdóttir.
Guðmundur
Valgerður
Finnur
Norðuríandskjördæmi eystra
Alþingismennimir Guðmundur Bjamason, Valgerður Svemsdóttir og Finnur Ing-
ólfsson verða til viötats sem hér segir
Á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 90, Akureyri, þriðjudaginn 15.
júní kl. 17.00-19.00.
I Garðari, Garðarsbraut 5, Húsavik, miðvikudaginn 16. júnl ki. 17.00-19.00.
Innilegar þakkir til allra þeirra plmörgu, sem sýndu okkur samúö og hlý-
hug viö andlát og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa
Gríms Eiríkssonar
frá Ljótshólum
Drápuhlíö 42
Ásta Sigurjónsdóttir
Elríkur Grfmsson
Anna Grfmsdóttlr Runólfur Þoiiáksson
og bamaböm