Tíminn - 04.09.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 04.09.1993, Qupperneq 2
2Tíminn Laugardagur 4. september 1993 Innkaupastofnun Reykjavfkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum I byggingu bllageymslu við Aflagranda 40 I Reykjavlk. Flatarmál bílageymslunnar er 1.170 m2 og bllastæði 43, en á þaki bílastæði fyrir 34 bila. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik, frá og með þriöjudeginum 7. september 1993, gegn 15.000 króna skilatryggingu. Ttlboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5. október 1993 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINSQ7 © Styrkir til bifreiðakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum vegna styrkja sem veittir eru hreyfihömluðum til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1994 fást hjá af- greiðsludeild og upplýsingadeild Tryggingastofnunar rík- isins, Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar um allt land. Umsóknarfrestur er til 1. október. Tryggingastofnun ríkisins Matvöru- markaður á Miðbakka Flskmarkaöur: Nýr fiskur, saltfiskur, reyktur fiskur, rækjur, skeldýr, haröfiskur, hákarl, íslenskir matþörungar o.fl. o.fl. Ávaxta- og grænmetistorg: Á boöstólum allt fáanlegt grænmeti og ávextir. Veitingabúð: Léttar veitingar, kaffi og meö því. Leiktæki fyrir börnin og krabbakerin vinsælu. Stuttar sjóferöir frá Miöbakka. GerlO góð kaup á markaöstorglnu og nJótlO veltlnga í hellnæmu sjávarloftl. OplO laugardag kl. 10-17. REYKJAVÍKURHÖFN HAFNARHÚSI TRYGGVAGÖTU 17 101 REYKJAVlK SlMI (91)28211 J Ólafur Ragnar Grímsson nær öruggur um endurkjör sem formaður Alþýðubandalagsíns: Stetngrímur J, Sigfússon, vam- formaður Aljjýðubandalagsins, ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Ólaii Ragnari Grímssyni, for- manni flokksins. Steingrímur segist vitja forða Aljjýðubandalag- Inu frá þeim átökum sem óhjá- kvæmilega hefðu fylgt kosningu milti hans og Ólafs Ragnars. Hann segir að margir flokksmenn hafi lýst yfir áhyggjum við sig af af- leiðingum slíkra átaka fyrir flokk- inn. Steíngrímur sagði í samtali við Tímann að hann heföi aivarlega íhugað að bjóða sig fram til for- mennsku í AJþýðubandalagÍnu. Steingrfmur sagðist ekkí vilja leggja á Alþýðubandalagið þau átök sem flest bendir til að fýlgt heföu kosningu um formannssæt- ið milli sitjandi formanns og vara- formanns flokksins. „Flokksfólk var almennt mjög kvíðafullt yfir því að til harðra átaka kæmi. Eg á von á að það hefði getað orðið tví- sýnt um úrsiitin. hau heföu getað ráðist með litlum mun á annan Stelngrimur J. Slgfússon. hvom veginn. Það er iíka niður- staða sem getur orðið dálítið erfið fyrir menn að ná sér af. Ég held þvt það sé allmikið á sig leggjandi til að afstýra þvf,° sagði Steingrfmur. Nú þegar þessi ákvörðun Stein- grfms liggur fyrir bendir fiest til að Olafur Ragnar verði endurkjörinn formaður Alþýðubandalagsins. Ekki er útilokað að Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður af Vestfjörðum, bjóði sig fram gegn honum, en flestír eru sammála um að Ólafúr Ragnar sé öruggur um að sigra í kosningu milli þeirra tveggja. Lög Aiþýðubandalagsins gera það að verkum að þetta verður síðasta kjörtímabil Ólafs Ragnars í ft>r- mannssæti flokksins. Sú spuming vaknar því hvort Steingrímur J. muni bjóða sig fram að tveimur ár- um liðnum. Þessari spumingu vildi Steingrímur ekki svara. Hann minnti á að vika er langur tími í pólitik, hvað þá tvö ár. „Það er ekk- ert fararsnið á mér úr pólitfkinnj og meðan ég er hér þá er ég í þessu af fullri alvöru." Steingnmur J. mun áfram bjóða sig fram í embætti varaformanns. Frestur til að skila framboðum rennur út 7. september. Berist ein- ungis eitt framboð framlengist fresturinn um tvær vikur. -EÓ Sífellt fleiri árekstrar Hrafns Gunnlaugssonar við starfsmenn RÚV, yfirmenn og útvarpsráð: Ókyrrðin innan Ríkis- útvarpsins eykst stöðugt Mikils óróa gætir innan Ríkisútvarpsins vegna ýmissa ákvarðana Hrafns Gunnlaugssonar, framkvæmdastjóra Sjónvarpsins. Óánægja er meðal starfsmanna, yfirmenn eru ósáttir við sumar yf- irtýsingar Hrafns og ákvarðanir og heilu útvarpsráðsfundimir fara í að ræða um störf hans. Heimir Steinsson útvarpsstjóri sagði þegar hann vék Hrafni Gunn- laugssyni úr starfi dagskrárstjóra inn- lendrar dagskrárdeildar fyrr á þessu ári að ein meginástæðan fyrir ákvörð- un sinni væri að hann teldi að ekki myndi verða neinn friður um störf Hrafns á Sjónvarpinu. Heimir var spurður að því í gær hvort þessi spá- dómur væri ekki að rætast. Heimir vildi ekki svara þeirri spumingu beint en sagði að hann hefði gert samkomu- lag við Hrafn eftir að hann tók við starfi framkvæmdastjóra Sjónvarps um samskipti þetta eina ár sem Hrafn kemur til með að sinna framkvæmda- stjórastarfinu. Hann sagðist ætla að standa við þetta samkomulag. Að öðru leyti sagðist hann ekkert hafa um mál- ið að segja. Ekkert hefur verið gefið upp opinber- lega um í hverju þetta samkomulag Hrafns og Heimis felst. Hins vegar vaknar sú spuming hvort Hrafn ætlar að standa við samkomulagið af sömu samviskusemi og Heimir virðist stað- ráðinn í að gera. Megn óánægja er meðal starfsmanna Sjónvarpsins með ýmsar ákvarðanir Hrafns. Dæmi um það em umræðu- þættimir sem verið hafa á dagskrá á þriðjudagskvöldum. Ekki hefur verið leitað til fréttastofunnar varðandi gerð þessara þátta og ekki heldur til inn- Íendrar dagskrárdeildar. Þættimir þykja viðvaningslega gerðir og hafa al- mennt fengið mjög slæma dóma. í gær skrifaði formaður útvarpsráðs Hrafni bréf þar sem þættimir em gagnrýndir. Það eru þó kannski ekki síst almenn samskipti við Hrafn sem starfsmenn og sumir yfirmenn Ríkisútvarpsins kvarta undan. Á útvarpsráðsfundi í gær var m.a. rætt um yfirlýsingar Hrafns um fiár- mál innlendrar dagskrárdeildar. Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir lagði fram bókun þar sem málsmeðferð varðandi fyrirspum hennar á síðasta útvarps- ráðsfundi er mótmælt. Ásta Ragnheið- ur krafðist þess að útvarpsstjóri svar- aði fyrirspum sinni á næsta útvarps- ráðsfundi. Halldóra Rafnar, formaður útvarps- ráðs, lét bóka að hún teldi óhjákvæmi- legt að fá álit frá utanaðkomandi aðila á fjármálum innlendrar dagskrár- deildar á þeim ámm sem um er deilt Útvarpsstjóri lagði fram bókun að þessu tilefni þar sem hann lýsti yfir fyllsta trausti á hagdeild Ríkisútvarps- ins. Á fundinum í gær lögðu fulltrúar Framsóknarflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista fram bókun þar sem dregin vom fram ýmis gagnrýnisatriði í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Hrafn Gunnlaugsson. Þremenning- amir lýsa því yfir að þau áskilji sér rétt til að halda uppi málefhalegri gagn- rýni á störf Hrafns í útvarpsráði enda sé það sá vettvangur sem eigendur stofriunarinnar og starfsmenn eigi sér að málsvara. -EÓ Aðgerðir til nýsköpunar í atvinnumálum að danskri fyrirmynd: Opinberir starfs- menn einkavæðast Meðal þess sem nefnd um stuðnings- aðgerðir til nýsköpunar í atvinnumál- um leggur til er að opinberum starfs- mönnum verði gert kleift að stofha sín eigin fyrirtæki; t.d. með tíma- bundnum launum í ákveðinn tíma eftir starfslok hjá hinu opinbera. Sigfus Jónsson, formaður nefndar- innar, segir að þessi tillaga sé að danskri fyrirmynd. Hann vildi hins- vegar ekki kannast við að tillagan væri sett fram með það fyrir augum að skapa möguleika til niðurskurðar á launakostnaði hins opinbera. í tillögu nefndarinnar kemur m.a. fram að á rannsókna- og tæknistofn- unum hins opinbera, í háskólum, sjóðum og ýmsum stofnunum eru víða að finna einstaklinga sem búa yf- ir þekkingu og hæfni til að stofna sín eigin fyrirtæki. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að það sé auðvitað sjálf- sagt að skoða allar nýjar hugmyndir sem gætu orðið til nýsköpunar og eflt bæði hagvöxt og atvinnu. Hinsvegar sýnist honum að tillagan beri vott um vissa tegund kerfishyggju og ofurtrú á ákveðnu rekstrarformi. „En það er bara einn grundvallarmis- skilningur f þessu hjá nefndinni og hann er sá að aðgreina annarsvegar á milli hins opinbera og hinsvegar at- vinnulífsins. Opinberir starfsmenn eru starfandi inná rannsóknarstofn- unum, í Háskólanum og öðrum stofii- unum sem eru auðvitað hluti af at- vinnulífinu.“ Formaður BSRB segir að á sama tíma og leitað sé allra leiða til niður- skurðar hjá opinberum stofnunum, þá virðist menn hafa trú á því að þeg- ar hinir sömu einstaklingar séu komnir til starfa f öðru rekstrarformi, að fari þeir að gera allt aðra, nýja og betri hluti. „Hinsvegar er það auðvitað til um- hugsunar að á sama tíma og menn eru að festa pólitíska samherja sína í kerfinu með fastráðningum út og suður, þá liggja menn dag og nótt yfir því hvemig hægt sé að einkavæða alla hina,“ segir Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB. -grh

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.