Tíminn - 04.09.1993, Side 10
lOTíminn
Laugardagur 4. september 1993
HEILSDAGSSKÓLI . . . HEILSDAGSSKÓLI . . . HEILSDAGSSKÓLI .
Unnur Halldórsdóttir, formaður samtakanna
Heimili og skóli, um heilsdagsskóla:
Eykur öryggi
barnanna
„Við teljum þetta vera jákvætt framtak," segir Unnur Halldórsdóttir, for-
maður samtakanna Heimilis og skóla, um heilsdagsskóla. Unnur lítur
helst til þess að þarna gefíst kostur á að ijúfa einangrun sem mðrg bðrn
Unnur Halldórsdótti.r
hafa búið við.
Unnur segir að mörg grunnskóla-
böm haíi verið ein heima lengstan
hluta dags þar sem foreldrar eigi ekki
annars úrkosta. ,JÞað hefur slæmar
afleiðingar í för með sér fyrir böm-
in,“ segir Unnur og vísar til talna um
tiltölulega háa slysatíðni bama sem
og kannana sem sýna fram á vanlíð-
an þessara bama.
Þá telur hún annan ávinning felast í
því að foreldrar þurfi ekki að hendast
frá einum stað til annars með böm
sín í alls konar aukatíma eins og tón-
listarskóla o.fl. og vísar til samstarfs
gmnnskólanna við sérskólana.
Unnur óttast ekki að með þessu sé
verið að seinka þróun í átt að ein-
setnum skólum og samfelldum
lengdum skóladegi. Hún telur þvert
á móti að hér sé stigið ákveðið skref
sem miðar í áttina.
Þá óttast Unnur ekki að greiðslufyr-
irkomulag hindri efnaminni foreldra
í að leita þessarar lausnar. Hún segir
að tekið verði á slíkum tilvikum sem
upp koma en bætir við: „Þetta er oft
spuming um forgangsröð hjá fólki.
Það þykir oft ekki mikið að greiða
nokkur hundmð krónur fyrir eitt
myndband en þegar sama upphæð á
að renna til starfsemi í skóla þá þykir
fólki það stundum ofrausn," segir
Unnur og telur einnig að þama sé
um mun lægra gjald að ræða en fylg-
ir því t.d. að vista böm hjá dagmæðr-
um. Þá bendir hún einnig á að oft
átti fólk sig ekki á þeim kostnaði sem
fylgir því að aka bömum á milli staða
og það oft í vinnutíma þess.
Heilsdagsskóli var tilraunaverkefni
í nokkmm skólum í fyrra. Unnur
hefur eftir nokkmm forráðamönn-
um þessara skóla að foreldrar hafi
verið mjög ánægðir með þessa til-
högun.
Það er samt greinilegt að krafan um
lengri skóladag eða viðvem hefur
víða hljómgmnn og má t.d. vísa til
Garðabæjar. Þar ákváðu bæjaryfir-
völd að greiða fyrir eina auka
kennslustund fyrir yngri nemendur
Flataskóla, m.a. til að koma til móts
við þarfir foreldra sem áður áttu erf-
itt með að vinna hálfan daginn.
„Það er meira réttlæti í því en gall-
inn er sá að það dregur úr ábyrgð
ráðamanna þjóðarinnar," segir Unn-
ur og á við að það ýti undir að ráða-
menn láti sveitafélögum eftir að
standa straum af kostnaði við skóla-
starf.
„Þegar farið er að tala um að flytja
skólana yfir til sveitarfélaga er eins
og ríkið kippi að sér hendinni," segir
Unnur og vísar m.a. til niðskurðar til
skólamála. „Ég hef ekki trú á að
sveitarstjómarmenn muni sætta sig
við að taka við gmnnskólanum upp á
einhverja fimm miljarða eins og
hann kostar núna. Þeir vilja sjálfsagt
að viðurkennt sé í raun að almenni-
legur gmnnskóli kosti miklu meira
og ríkið gangist við þeirri ábyrgð,"
segir Unnur.
-HÞ
Árni Sigfússon, formaður skólamálaráðs um heilsdagsskólann:
Leið til að fækka
slysum á börnum
Slys á börnum eru tíðari hér á landi en í nágrannalöndum sem m.a. má
rekja til þess að hér eru börn meira ein heima en þar tíðkast. Þetta,
ásamt ótta við uppeldisleg slys, segir Árni Sigfússon, formaður skóla-
málaráðs borgarinnar, hafa kveikt hugmyndina um heilsdagsskóla.
Hann býst við að allt að 1.500 börn á aldrinum sex til tíu ára muni nýta
sér þjónustuna í 26 skólum borgarinnar í vetur.
„Það má rekja tíð slys á börnum til
þeirrar staðreyndar að þau eru
meira ein heima en í nágrannalönd-
um okkar. Oft verða slysin þegar
fullorðnir eru ekki nærri til þess að
leiðbeina eða aðstoða," segir Árni og
bætir við að ekki sé síður ástæða til
að óttast það sem hann kallar upp-
eldisleg slys.
Hann segir að borgaryfirvöld hafi
viljað draga úr þessum slysum og
leitað leiða til að byggja upp mennt-
un sem allir geti verið stoltir af. „Þar
með er lagt af stað með hugtakið
heilsdagsskóla sem á að bjóða ör-
ugga þjónustu við börn upp að níu
ára aldri þ.e. heimanám og tóm-
stundir í skólanum frá kl. 7.45 til kl
17.15,“ segirÁrni.
Hann segir að jafnhliða sé börnum
boðið upp á margs konar fræðslu
sem ekki sé í boði í ríkisskólunum.
Árni Sigfússon.
„Einnig tökum við inn tómstunda-
starf, íþróttir o.fl.,“ segir Árni. Hann
segir að foreldrum sé gert að greiða
að hámarki 6.500 kr. fyrir þessa
þjónustu. „Allt þar fyrir neðan er
einnig til eftir því hvernig þjónustan
er nýtt,“ segir Árni.
Þá bendir hann á að ætlunin sé
einnig að auka fjölbreytni í hverfun-
um með það að marki að þar nýtist
þjónusta ýmissa einkaskóla og ann-
arra samtaka. Árni nefnir tónlistar-
skóla, málaskóla o.fl. sem dæmi um
þetta. „Við gefum þeim tækifæri til
að koma inn í skólana með sína
þjónustu að því tilskildu að þeir
lækki verð þar sem við sjáum þeim
m.a. fyrir húsnæði," segir Árni og
telur að þessir skólar og samtök hafi
þegar lækkað verð.
Á Árna er að heyra að misjafnlega
gangi að fullnægja þörfinni fyrir
húsnæði sem þessari starfsemi fylg-
ir. „Það þarf að stækka húsnæðið og
á mörgum stöðum þarf að athuga
hvernig við förum að því að bjóða
alla þessa þjónustu. Þetta kallar
Bridge
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON '+tMim^
Þraut 32
Vestur gefur; allir
Vestur Norður Austur Suður
IV dobl 2 V 34
3 V pass pass 3Á
pass 4Á pass pass
pass
Útspil: hjartakóngur
Þetta spil kom fyrir í tvímenn-
ingi í sumarbridge og þeir voru
margir sem fóru niður á samn-
ingnum. Ef við einblínum ekki á
hugsanlega yfirslagi heldur segj-
um að spilið komi upp í sveita-
keppni, hvemig er þá best að
spila?
Sagnhafi drepur útspilið með ás
og síðan er náttúrlega meiningin
að gera tígulinn góðan. í Sigtún-
inu freistuðust „gráðugir" menn
til að kasta hjarta í laufásinn en
það skilaði svipuðum arði og loð-
dýraeldi á Norðurlandi eystra.
Svona var allt spilið:
NORÐUR
♦ Á8652
*Á5
♦ D9
*Á832
:STUR AUSTUR
A G74
T82 y G943
4 K4
974 * DT65
SUÐUR
4 KDT3
V 76
♦ GT87532
Sjáum hvað gerist. Suður drepur
með ás í fyrsta slag, tekur laufás
(kastar hjarta) tromp á spaða-
kóng og spilar tígli á drottning-
una. Vestur drepur á kóng og
spilar hjarta sem sagnhafi neyðist
til að trompa með þristinum. Þá
annar tígull, vestur drepur og
spilar laufi. Sagnhafi trompar
með tíu og nú er tígullinn orðinn
góður, en það er ekki nóg. Eina
tromp suðurs í stöðunni er
spaðadrottning en austur er enn
með G7. Hið sama gerist hvort
sem sagnhafi tekur öll trompin
áður en hann fer í tígulinn eða
sleppir því alveg. Málið er einfald-
lega að sagnhafi á ekki nógu
mörg tromp heima til að stinga
tvisvar og taka þrisvar tromp.
Hér er það nægjusemin sem
gildir. Laufásinn má ekki hreyfa.
Strax í öðrum slag verður sagn-
hafi að spila tígli. Þegar austur
drepur og tekur hjartaslag f kjöl-
farið, verst hann best með því að
spila laufi. Þá drepur sagnhafi
með ás og spilar aftur tígli. Vöm-
in fær þrjá slagi en sagnhafi er
með vald á spilinu, tígulliturinn
góður og afraksturinn staðið spil.
Líkumar á að spaðinn botni 3-1
eru heldur nmeiri en 2-2 legan
sem er undirstaða þess að sagn-
hafi fái 11 slagi með því að kasta
hjarta í laufásinn. Og lærdómur-
inn: Betri er einn fugl í hendi en
tveir í skógi.
Sumarbrídge 1993
Þá fer að síga á seinni hlutann í
sumarbridge 1993 enda fer hin
hefðbundna starfsemi bridgefé-
laganna að heíjast. Staða efstu
manna var eftirfarandi 31. ágúst:
1. Guðlaugur Sveinsson_______817
2. Lárus Hermannsson ........755
3. Jón Viðar Jónmundsson..... 624
4. Erlendur Jónsson..........553
5. Eggert Bergsson...........519
6. Sveinn R. Þorvaldsson....... 468
7. Páll Þór Bergsson.........467
8. Björn Theódórsson.........406
9. Þórður Björnsson..........402
10. Sveinn Sigurgeirsson ....394
11. Sigfús Þórðarson..........362
12. Hjálmar S. Pálsson........360
13. Jón Stefánsson............345
14. Óskar Karlsson............328
15. Gylfi Baldursson..........322
16. Þórir Leifsson ...................312
17. Guðjón Bragason...........286
18. -19. Árnína Guðlaugsdóttir .253
18.-19. Bragi Erlendsson........ 253
20. Þórður Sigfússon.............. 241
Eins og áður hefur komið fram
standa nú yfir einmennings-
keppnir á laugardögum í Sigtúni
9. Spilamennska hefst kl. 14.00
og allir em velkomnir. Um síð-
ustu helgi reyndu 36 spilarar
með sér og varð staða efstu
manna eftirfarandi:
1. Þórir Leifsson ..........1930
2. Jón Viðar Jónmundsson ..1739
3. Halidór Þorvaldsson ........1719
4. Steingrímur Jónasson..... 1666
5. Anna ívarsdóttir ..............1657
6. Brynjar Jónsson ..............1649
7. Karl Brynjarsson .............1640
8. María Haraldsdóttir .........1638
9. Viðar Jónsson ..................1629
10. Kristinn Þórisson ............1623
Sagnvenjur:
Kröfu-stayman
Það er varla til það keppnispar
sem ekki notar stayman í ein-
hverri útgáfu. Algengast er að 2
lauf yfir einu grandi biðji um 4-lit
í hálit og ef ekkert 4-4 fitt kemur
í Ijós enda sagnir oft í 2 hjört-
um/2spöðum. M.ö.o. sá sem opn-
ar á grandi má passa aðra sögn
svarhandar.
Dæmi: 1 grand/2 lauf/2 hjörtu/2
spaðar/pass.
Kröfu-stayman meinar hins veg-
ar opnara að passa fyrr en tveggja
granda þrepinu er náð og þá ein-
ungis með algjört lágmark.
Dæmi: 1 grand/2 lauf/2 hjörtu/
2paðar/???
Hér era 2 spaðar krafa og ef opn-
ari á 3- eða 4-lit í spaða verður
hann að hækka en segir annars 2
grönd.
Kosturinn við krst. er sá um-
fram hinn venjulega að geim- og
slemmuþreifingar verða auðveld-
ari. Hins vegar eftir að yfirfærslur
raddu sér til rúms er hinn
hefðbundni stayman e.t.v. líklegri
til að skila árangri. Fróðleiks-
fúsum má benda á margar og
góðar útfærslur á stayman í bók
Amalya Kearse "Bidding
Conventions Complete".
HM-molar
Nú er heimsmeistaramótið í Sant-
iagó í Chile nýlega hafið. Þar bítast
í tveimur flokkum 16 lönd um Ber-
múdaskálina góðu sem íslending-
ar verða nú að láta af hendi eftir
tveggja ára alheimstign í íþrótt-
inni. Löndin eru:
Opinn flotícun Pólland, Dan-
mörk, Noregur, Holland, Banda-
ríkin I, Bandaríkin II, Mexíkó,
Brasilía, Chile (gestgjafar), Suður-
Afiríka, Indland, Venezuela, Gua-
deloupe, Kína, Indónesía ogÁstral-
Konun Svfþjóð, Frakkland, Ítalía,
Þýskaland, Bandaríkin I, Bandarík-
in II, Kanada, Argentína, Chile
(gestgjafer), Suður-Afríka, Indland,
Venezuela, Kólumbía, Taipei, Kína
og Ástralfa.
*** Pólverjar hafa farið vel af stað
þrátt fyrir að þeim væri meinað að
af mótshöidurum að nota passkerf-
ið fræga í 6 fyrstu umferðum móts-
ins. Ástæðan: Kerfiskortið barst
mótshöldurum of seint!
*** Hið sterka lið Brasilfumanna
hefur orðið fyríráfalli þar sem einn
albesti spilari heimsins f dag,
Branco, mætti ekki til veislunnar.
Hvort um er að ræða einhverja
„ForresterfýIu“ vita menn ekki en
Ijóst er að þetta kemur til með að
veikja sveit Brasilíumanna.
*** Danir töpuðu nokkuð óvænt
fyrir Indverjum, 6-24, en Dönum
hefur verið spáð mjög góðu gengi í
keppninni og jafnvel verðlauna-
sætl
*** Eins og staðan var þegar þetta
er skrifað leiða Pólland og Kína
opna flokkinn en Svíar kvenna-
flokkinn..