Tíminn - 11.09.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 11. september 1993
Tíminn 11
Mættum gera
nokkru betur
íslensk iönfyrirtæki hafa staðið sig vel í
| bróun tæknibúnaðar, en mættu gera betur.
| Ámi Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri sjávarút- |(
vegsráðuneytisins.
© Blaðsíða 17 Sf
Aukin tengsl
| við umheiminn 1
| Sjávarútvegssýningin gefur færi á myndun
persónulegra tengsla við viðskiptavini.
Gunnar Svavarsson, formaður Félags ís-
lenskra iðnrekenda.
• Blaðsíða 15 I
Nýjasta og besta
| tæknin er íslensk
Við njótum álits fyrir háþróaða veiðitækni
og höfum ímynd ferskieika og hreinleika.
Ellen Ingvadóttir, blaðafulltrúi íslensku
sjávarútvegssýningarinnar.
• Blaðsíða 12 |
1||
Fiskurinn ferskur j
langtímum saman |
p
I 1
Gaspakkaður ferskfiskur í loftþéttum um-
búðum.
• Blaðsíöa 17
Stórviðburður fýrir sjávarútveg við N-Atlantshaf haldinn í Ijórða sinn í Reykjavík:
ÍSLENSKA SJÁVAR-
ÚTVEGSSÝNINGIN
Allur
fiskur I
W
af
bein- |
unum
íslensk tækni,
sem getur bætt
nýtingu aflans
um 3%.
I
Blaðsíða 16 f
...
ISLENSKA sjávarútvegssýningin
verður haldin í Laugardalshöll
og næsta nágrenni hennar dag-
ana 15.-19. september. Þetta er í
fjórða sinn sem þessi sýning er
haldin á íslandi. Það er breskt fyrir-
tæki, Reed Exhibitions, sem stendur
fyrir sýningunni nú sem fyrr í sam-
vinnu við íslenska aðila. Á sýning-
unni er lögð áhersla á alls konar vör-
ur, vélar, tæki, tækni- og hugbúnað
sem tengist veiðum og vinnslu á sjó
og í landi. Hundruð aðila, íslenskra
og erlendra, taka þátt í sýningunni
nú sem fyrr og fjöldi nýjunga verður
kynntur þar opinberlega í fyrsta
sinn, eins og verið hefur á fyrri sýn-
ingum. íslendingar teljast í röð
fremstu fiskveiðiþjóða og margar
nýjungar — ávextir íslensks hugvits
og menntunar — hafa náð alþjóð-
legri viðurkenningu og útbreiðslu
eftir að hafa verið kynntar á íslensku
sjávarútvegssýningunni og öðrum
alþjóðlegum sýningum og kaup-
stefnum svipaðrar gerðar.