Tíminn - 11.09.1993, Blaðsíða 16

Tíminn - 11.09.1993, Blaðsíða 16
16 Tíminn Laugardagur 11. september 1993 Klaki sf. sýnir holdsköfu, nýjan vélbúnað sem verður væntanlega kærkominn á tímum aflasamdráttar: Eykur aflanýtingu um 3% FISKIKE Wimwik Siguröur Benediktsson viö nýju holdskuröarvélina. Á myndinni má sjá háþýstistútana en kraftmikil vatnsbunan úr þeim sker holdiö af beinunum, svo rækilega aö ekkert er eftir. Tlmamynd Árni Bjarna Sigurður Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Klaka, sagði í samtali við Tímann að miklar vonir væru bundnar við vélbúnaðinn, enda væri á tímum aflasamdráttar mikilvægt að reyna að auka nýtingu og verðmæti hans. Innréttuð var tilraunaverksmiðja í húsnæði Klaka f Kópavogi þar sem vélbúnaðurinn var prufukeyrður og var niðurstaða þeirra prófana mjög já- kvæð. Vélin vinnur á þann hátt að hryggir eru lagðir á færiband, sem leiðir þá undir háþrýstibunur sem skafa holdið af hryggjunum. Frá vél- inni kemur því annars vegar hreint fiskhold og hins vegar hryggbein með sundmaga og svörtum himnum. Mik- ill kostur er að það ásamt blóði komi ekki í fiskmassann, þar sem geymslu- þol eykst að mun og hann fær hvítari lit. Auk þess sýndu tilraunir að fiskmass- inn hafði mikla bindieiginleika, þ.e.a.s. loðir vel saman og þykir því henta vel í ýmiss konar matvælafram- leiðslu, s.s. fiskborgara, fiskstauta, fiskibollur og fleira. Kynnið ykkur kjör og skilmála samkeppnis- og útflutningslána IÐNLANASJOÐUR ÁRMÚLA 13 a *108 R E Y K J A V I K • S í M I 68 04 00 Á Sjávútvegssýningunni mun KJaki sf. sýna nýjan vélbúnað sem skefúr fiskhold af hrygg eftir flökun. Þessi nýi vélbúnaður eykur heildamýtingu afla um 3%. Vélbúnaður þessi hefur verið í þróun og prófun síðastliðin tvö ár og verður kynntur í fyrsta sinn á sýn- ingunni. Vélbúnaðurinn sem um er að ræða verður til sýnis í sýningarbás Klaka númer D-42. Þar verður einn sýnt það nýjasta á sviði rækjuvinnslukerfa fýrir verksmiðjuskip auk fjölda annarra nýjunga. -PS Viðskiptin verði stöðvuð Framkvæmdastjóm Sjómanna- sambands íslands skorar á stjómvöld að stöðva nú þegar með valdboði öll viðskipti við er- lend fiskiskip, sem sigla undir þægindafána og hafa selt afla sinn hériendis. Magnús Helgason, útgerðar- stjóri á Þórshöfn, er ekki sam- mála þessari ályktun SSÍ. Hann segir að ef ekki hefði komið til afli frá tveimur færeyskum skip- um, sem sigla undir þæginda- fána, hefði fiskverkafólk á Norð- austurlandi orðið atvinnulaust um tíma sökum hráefnisskorts. Hann segir að afli skipanna hefði brúað það bil sem ella hefði orðið í vinnslu húsa frá Húsavík til Vopnafjarðar. f ályktun Sjómannafélags Reykjavíkur segir m.a. að fiöl- mörg verkalýðsfélög hafi fagnað komu þessara þægindafánaskipa og telji hag umbjóðenda sinna borgið um atvinnu. „Hér er um stundarhagsmuni að ræða sem aðgát skal höfð á," segir í ályktun SR. Framkvæmdastjóm SSÍ harmar að á sama tíma og sjómönnum á framangreindum skipum séu ekki tryggð lágmarks kjör og lág- marks öryggi við sín störf, skuli íslendingar styðja útgerðir skip- anna með viðskiptum og þjón- ustu. SSÍ er aðili að Alþjóðaflutninga- verkamannasambandi- nu, ITF, sem um langt skeið hefur barist fyrir auknu öryggi, bættum að- búnaði og mannsæmandi kjör- um sjómanna á skipum sem sigla undir þægindafánum. -grh PÖSTFAX TÍMANS Styrkur, ending og notagildi einkenna flskikerin fró Borgarplasti h.f. VORU- - LINU- BRETTI BALAR Fimm geröir af vöubrettum. tau eru eW fylltmeo Myurethane. Timburbretti eru bönnuð í matvœlaíðnaði í ERAog EB. 5 £ ■§1 gS. oo O D - 0 s? - ® B irgarplaitf hff Sefgörðum 3,170, SeHjamamesi. Sími 91-612211. Fax9h614185 Sýningarbás C-66 á sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll 15.-19. september ÍSIISO 9001 Aukin framleiðni er forsenda aukins Interroll hefur í áratugi framleitt og þróað hagvaxtar. í framleiðsluiðnaði fæst aukin færibandamótora, flutningsrúllur, hagræðing með vel hönnuðum lager- og flutningskerfi og lagerkerfi sem eru flutningskerfum. viðurkennd gæðavara. Auktu framleiðnina með INTERROLL. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, SÍ.MI 624260 VERSLUN - RÁÐGJÖF

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.