Tíminn - 11.09.1993, Blaðsíða 19

Tíminn - 11.09.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 11. september 1993 Tíminn 19 Fjárfesting í fiskveiðum um 4,3 milljarðar í fyrra og litlu minni á þessu ári: Fjárfesting í fiskveiðum óx um 58% milli 1991 og 1992 „Langt er síðan Ijóst varð að magnaukning í sjávarvörufram- leiðslu væri takmörkunum háð. Þrátt fýrír þetta hefur fjárfesting verið með mesta móti undanfarin ár f fiskiskipaflotanum. Jafn- framt eru skuldir sjávarútvegsfyrirtækja mjög mikiar, eða á bilinu 90-100 milljarðar króna," segir m.a. I nýni skýrslu Byggðastofn- unar. Þar kemur fram að flárfestingar í fiskveiðum hafi aukist um 58% milli 1991 og 1992. Áætlað er að Qárfest hafi verið fyrir nærri 4,3 milljarða í fiskiskipum árið 1992 og að slíkar fjárfestingar verið litlu minni, eða kringum fjórir milljarðar á þessu ári. Fjárfestingar í fiskvinnslu náðu hins vegar hámarki um miðjan síð- asta áratug, en hafa síðan minnkað jafnt og þétt í um 1,4 milljarða í fyrra og kringum 1,3 milljarða á þessu ári. Þegar litið er á þróunina síðustu þrjá áratugi kemur í Ijós að fjár- magn bundið í sjávarútvegi hefur vaxið kringum 220% að raungildi á sama tíma og sjávarvöruframleiðsl- an hefur aðeins aukist kringum 70- 75%. „Því bendir allt til offjárfest- ingar í greininni, sem kemur fram í því að fjárfesting hefur ekki skilað sér í framleiðsluaukningu. Aflasam- dráttur á sinn þátt í því enda hafa fyrirtæki væntanlega ekki reiknað með því að hann yrði svo mikill sem raun er orðin á þegar ávarðanir voru teknar um fjájfestinguna. Sumar þeirra eru þó beinlínis teknar í þeim tilgangi að bregðast við samdrætti," segir Byggðastofnun. Vísbending um offjárfestingu í fisk- veiðum og meiri samkeppni um hráefnið gefi til kynna að gagngerar breytingar verði á uppbyggingu þessarar atvinnugreinar á næstu ár- um. Aðlögun að breytum aðstæðum og hagkvæmnikröfum verði fyrst og ffemst að verða innan fyrirtækjanna sjálfra. Alls 2.160 skip og bátar voru við fiskveiðar árið 1992. Þar af voru smábátar 1.520 eða 70%. Togarar voru 110, þar af 22 frystitogarar. Um 500 fyrirtæki voru starfandi í fisk- vinnslu árið 1990, þar af tæplega fimmtungurinn með meira en 20 ársverk. Milli áranna 1985 og 1990 fjölgaði mannafla við fiskveiðar um 1.700 ársverk, í 6.750 ársverk. Þróunin var þveröfug í fiskvinnslunni. Þar fækk- aði starfsfólki jafnt og þétt á þessum árum um 1.900 ársverk, niður í 7.560 árið 1990. Mannafli við fiskveiðar og vinnslu var því samtals um 14.300 árið 1990. -HEI Milljónir á verðlagi 1992 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 1970 1972 1974 1976 1978 1980 1982 1984 1986 1988 1990 1992 Allt að fimmfaldur munur er á fjárfestingu I fiskveiöum frá einu ári til annars. Eins og lesa má af þessu súluriti voru skipa- kaup mjög mikilárin 1986 og 1987, eöa áiíka og á upphafsárum skuttogaranna kringum 1973 og 74. Áriö 1988 varsíöan algert metár, þegar skip voru keypt fyrir hátt t tfu milljaröa. Skipakaup voru meö minnsta móti 1990 og 91 en þrátt fyrir minni aflamöguleika fóru þau aftur vel yfir fjóra milljaröa I fyrra og enn á þessu ári. Fjárfesting f fiskvinnslu hefur veriö mun jafnari. Hún náöi hámarki f kringum tvo miiijaröa um miöjan slöasta áratug, en síöan hefur hún minnkaö ár frá ári niöur f rúman milljarö. hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar IÐNÞROUNARSJOÐUR Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92 Flutningur EIMSKIPS á saltfiski til Spánar er eitt dæmið um sveigjanlega, hag- kvæma og örugga þjónustu við saltfisksútflytjendur til Miðjarðarhafslanda. Val á milli nokkurra leiða til áfangastaðar gefur kost á mismunandi verði og afhend- ingartími er sveigjanlegur. Öflugur bílafloti erlendis og sérhæft starfsfólk EIMSKIPS hér heima og á skrifstofum okkar í Evrópu annast öruggan flutning alla leið. Fyrsta flokks kæligámar tryggja kjörhitastig á flutn- ingstíma (1 - 4 °C) og í Sundahöfn eru kæligeymsl- ur sérútbúnar með geymslu á saltfiski í huga. EIMSKIP VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ - fyrir íslenskan saltfisk! Reykjavík Immingham Hamborg 1 Antwerpen 1 Rotterdam 1 Barcelona Barcelona Barcelona Barcelona Bilbao Bilbao Bilbao Bilbao SanSebastian SanSebastian SanSebastian SanSebastian Flutn.tími: 6 dagar 8 dagar 9 dagar 10 dagar Afh.dagur: Þriðjud. Fimmtud. Föstud. Laugard. * Miðað er við 6 - 10 daga ferðir með gámi aðra leiðina. Brottför alla miðvikudaga. Hagstæðar og Qölbreyttar \\eð ElMSKlP í sóVrna'. sólarlandaferðir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.