Tíminn - 11.09.1993, Síða 21
Laugardagur 11. september 1993
Tíminn 21
íslenskt plastiðnaðarfýrirtæki fær alþjóðlega viðurkenningu:
BORGARPLAST HLÝTUR
GÆÐAVOTTUN ISO 9001
Plastverksmiðjan Borgarplast hefur nýlega öðlast alþjóðlegt vott-
orð um að gæðakerfi fyrirtækisins sé í samræmi við alþjóðlega
gæðastaöalinn ISO 9001. Borgarplast hf. var stofnað áriö 1971 (
Borgamesi en rekur nú tvær verksmiðjur. Verksmiðjan ( Borgar-
nesi hefur frá upphafi framleitt einangrunarplast fyrír hús en hefur
á síðarí árum einnig framleitt umbúðir fyrír hvers konar sjávarfang
úr sama efni.
Þá rekur Borgarplast verksmiðju
á Seltjamamesi þar sem fram-
leiddir em ýmsir hverfisteyptir
hlutir en meðal þeirra má nefna
fiskiker, línubala, vömbretti og
fleira fyrir sjávarútveginn. Þá
framleiðir verksmiðjan einnig
ýmsa hluti fyrir byggingariðnað,
sveitarfélög og einstaklinga.
Borgarplast er vel tæknivætt fyr-
irtæki og býr yfir mikilli verk- og
tækniþekkingu sem upphaflega
var sótt til Kanada snemma á ní-
unda áratugnum en hefur verið
aukin mjög síðan.
í ársbyijun 1992 var hafist handa
hjá Borgarplasti við að skipu-
leggja uppbyggingu gæðakerfis í
samræmi við ISO 9001 staðalinn
og var í þeim tilgangi ráðinn sér-
stakur starfsmaður, Einar Ragnar
Sigurðsson verkfræðingur.
Helsti ávinningurinn af vottuðu
gæðakerfi er betur rekið fyrir-
tæki. Innri kostnaður minnkar
meðal annars vegna þess að
vinnubrögð verða markvissari og
færri framleiðslugallar koma fyrir
auk þess sem framleiðsluvömmar
verða betur hannaðar og hent-
ugri.
Þann tíma sem unnið hefur ver-
ið eftir nýja gæðakerfinu hjá
Borgarplasti hefur einangmnar-
göllum í fiskikerjum fækkað úr
2% niður í 0,7% og er stefnt að
því að ná þeim niður fyrir 0,4%.
Nú þegar hafa náðst sölusamn-
ingar á fiskikerjum við kaupanda
sem beinlínis sóttist eftir vöm
Guðni Þórðarson, framkvæmdastjóri Borgarplasts, fyrir miðju tekur við vottorði
frá Kjartani Kárasyni frá Vottun hf. t.v. um aö gæðakerfi fyrirtækisins samkvæmt
staðli ISTISO 9001 hafi verið tekið út. Til hægri á myndinni stendur Gunnar H.
Guðmundsson hjá Ráögarði.
sem framleidd væri samkvæmt Borgarplast er fyrsta alíslenska
ISO gæðastaðli. iðnfyrirtækið sem hefur fengið
vottun samkvæmt ISO 9001 og
annað fyrirtækið í heiminum sem
stundar hverfisteypu og hlotið
hefur slíka vottun.
ISO 9001 er staðall sem tekur til
gæðastýringar í hönnun, fram-
Ieiðslu, uppsetningu og viðhaldi,
og lokaskoðunar á framleiðslu-
vömnni.
Gæðakerfi Borgarplasts var tek-
ið út af Kjartani Kárasyni hjá
Vottun hf. og Bjame Axelsen frá
Dansk Standard og að því loknu
var gefið út vottorð um gæðakerf-
ið.
Helsti ávinningur af gæðakerf-
inu er sá að vottunin vekur traust
erlendra fyrirtækja en Borgar-
plast hyggst sækja í vaxandi mæli
á erlendan markað með fram-
leiðslu sína.
Þá verður öll vinna við fram-
leiðsluna skilvirkari og samstarf
innan fyrirtækisins léttara. Þá
dregur það úr kostnaði vegna
rýmunar og sóunar af ýmsu tagi
og minna verður um gallaða
framleiðsluvöm.
Ur verksmiðju Borgarplasts.
Stærsti veiðarfæraframleið-
andi Noregs eykur umsvif sín
Undanfaríð hefur veríð verulegur upp-
gangur hjá veiðarfærafyrirtækinu Nðre-
not, sem er afkastamesti veiðarfæra-
ffamleiðandi Noregs, en (yrirtækið er
að stækka við sig og auka framleiðslu.
Mörenot hefur lokið stækkun á tóg-
verksmiðju sinni og tekið í notkun ný
tæki og útbúnað. Þetta hefur í för með
sér að framleiðslugeta verksmiðjunnar
eykst um 40%. Þá er verið að vinna að
stækkun á netaverksmiðju fyrirtækisins,
sem framleiðir nótaefni. Hin nýja bygg-
ing verður tilbúin í nóvember, við það
mun afkastagetan í framleiðslu nótaefn-
is aukast um taeplega helming. Þá var sl.
haust tekin í notkun stór bygging til
uppsetningar á stórum botnvörpum og
hringnótum.
Ísco-Netanaust hefúr haft umboð fyrir
Mörenot á íslandi síðan 1985 og að sögn
forsvarsmanna fyrirtækins hefur það á
þeim tíma náð verulegri hlutdeild í sölu
efnis fyrir sfldar- og loðnunætur. ísco-
Netanaust mun taka þátt í Sávarútvegs-
sýningunni og verða fulltrúar Mörenot _________________________________________
þar viðstaddir og veita allar upplýsingar pr^ vjnstri: Jón Eggertsson hjá Isco-Netanausti ásamt samstarfsaöiium; Anne
um fynrtækið og framleiðslu þess. Clarke, Dynoplast, Ásgeir Ámundsson, Fjaröarneti og Jonas Hiidre, forstjóri
(Fréttatilkynning) MöreNotA/.5
SJÁVARÚTVEGS-
STÖRF í NAMIBÍU
Nýtt sjávarútvegsfyrírtæki í Namibíu vill ráöa starfsfólk (eftir-
farandi störf:
Til starfa (landi vantar: Útgeröarstjóra og verkstjóra f fisk-
vinnslu.
I áhöfn frystitogara vantar: Skipstjóra, fyrsta stýrimann, yfir-
vélstjóra, fyrsta vélstjóra og annan vinnslustjóra.
Leitað er eftir víðsýnu, reyndu og duglegu fólki sem tilbúið er
að takast á við nýtt og krefjandi verkefni. Enskukunnátta er
skilyrði. Islenskur framkvæmdastjóri er á staðnum. Mikil vinna.
Umsóknum skal skilað til Nýsis hf. ráögjafarþjónustu, Skipholti
50b, á umsóknareyðublöðum sem þar fást ásamt afritum af
sjóferðabók, réttindasklrteinum, læknisvottorði um heilbrigði og
upplýsingum um fýrri vinnuveitendur. Upplýsingar eru gefnar I
sfma 626380 milli kl. 8 og 12.
Nysir hf. ráðgjafarþjónusta
Skipholt 50 b • 105 Reykjavík • Sími 62 63 80 • Fax 62 63 85
HÁÞRÝST VÖKVAKERFI
SÉRHÆFD ÞJÓNUSTA
Við framleiðum:
Vindur og dælustöðvar
Við eigum á lager eða útvegum með
skömmum fyrirvara nánast alla hluti
fyrir háþrýst vökvakerfi.
FYRIR FÆRIBANDAKERFI:
Mjög hljóðlátar þrýstistýrðar
spjaldadælur, Orþit mótora,
þrýsistýrða magnloka-ryðfría,
kúluloka-ryðfría.
FYIR VINDUR OG KRANA:
Stimpilmótora með innbyggðri
diskaþremsu og fríhjólun,
Orbit mótora með gír og bremsu,
háþrýstar spjaldadælur, tannhjóla-
dælur, stjórnloka-fjarstýrða með
rafmagni, tjakka, öryggisloka,
rafmagnskúplingar, síur,
áfyllistúta, hæðarglöso.fl.
Hönnun kerfa - ráðgjöf - þjónusta
Vökvatæki hf
Bygggörðum 5,170 Seltjarnarnesi,
sími 91 -612209, fax 91 -612226.