Tíminn - 11.09.1993, Side 24
24 Tíminn
Laugardagur 11. september 1993
ítalski boltinn
— 4. umferð
Þá er ítalski boltinn farinn að
rúlla og 4. umferð verður leikin á
morgun. Margir áhugaverðir
leikir verða leiknir og gaman að
fylgjast með framvindu mála.
Hér verður farið yfir það helsta
sem gerst hefur hjá liðunum
fram til þessa og spáð í hvernig
liðin verða skipuð á morgun.
AC MILAN-
ATALANTA
Stórleikur umferðarinnar er leik-
ur meistara AC Milan gegn hinu
geysisterka liði Atalanta. Á mið-
vikudagskvöld tapaði Milan sínu
fyrsta stigi á tímabilinu er liðið
gerði markalaust jafntefli gegn
nýliðum Piacenza. Liðinu til
málsbóta má þó nefna að í það
vantaði marga fastamenn. Brian
Laudrup, Jean-Pierre Papin og
Florin Raducioiu voru allir að
keppa með landsliðum sínum á
sama tíma og þeir Marco van Bas-
ten, Cristian Panucci, Gianluca
Lentini og Mauro Tássotti eru all-
ir meiddir og leika ekki með á
næstunni. Van Basten er að ná sér
eftir uppskurð á hné og stefnir að
því að geta byrjað að leika fyrir
áramót Lentini lenti í hörmu-
legu bflslysi í byrjun ágúst og
slasaðist illa á höfði og er búist
við að hann geti farið að spila aft-
ur undir lok október. Hinn efni-
legi vamarmaður, Christian
Panucci, meiddist á hné í æfinga-
leik gegn erkifjendunum Inter og
verður sennilega frá í mánuð í
viðbót Mauro Tássotti meiddist á
æfingu í vikunni og verður frá í
eina viku. Einnig voru þeir Marco
Simone og Dejan Savicevic lítil-
lega meiddir í síðustu viku en bú-
ist er við að þeir verði tilbúnir í
slaginn á morgun.
Líklegt byrjunarlið: Rossi, Nava,
Maldini, Albertini, Costacurta,
Baresi, Eranio, Boban, Papin,
Savicevic, Simone.
Á miðvikudag sigraði Atalanta
nýliða Reggiana 2-1 á heimavelli.
Maurizio Ganz skoraði fyrra mark
liðsins og er nú markahæstur í
deildinni með fjögur mörk.
Franski leikstjómandinn Franck
Sauzée missti af leiknum vegna
landsleiks Frakka og Finna en
hann verður kominn aftur í liðið
gegn Milan á morgun. Hinn bras-
ilíski Alemao hefur verið meiddur
og ekkert getað leikið með liðinu
og hinn argentíski Leo Rodriguez
hefur einnig verið fjarverandi þar
sem hann hefur verið að spila
með landsliði Argentínu í undan-
keppni HM. Atalanta þykir sér-
staklega sterkt sóknarlið með þá
Ganz og Roberto Rambaudi í
fremstu víglínu og á miðjunni
hafa þeir Franck Sauzée og
Christian Scapolo sem báðir em
mjög sókndjarfir og skora mörg
mörk.
Lfldegt byijunarlið: Ferron,
Magoni, TVesoldi, Minaudo, Bigli-
ardi, Montero, Rambaudi, Perr-
one, Ganz, Sauzée, Scapolo.
CAGLIARI-INTER
Mikið hefúr gengið á í herbúðum
Cagliari í upphafi tímabils. Liðið
tapaði fyrsta leiknum stórt, 5-2
fyrir Atalanta, og eftir leikinn var
hinn nýi þjálfari liðsins, Gigi Rad-
ice, rekinn. Bmno Giorgi, sem
rekinn var frá Genúa á síðasta
tímabili, er nú tekinn við þjálfun
liðsins. Liðið fékk sitt fyrsta stig
er það gerði jafntefli við Genúa, 1-
1, á miðvikudag. Belgíski lands-
liðsmaðurinn Oliveira missti af
fyrstu tveimur leikjunum vegna
leikbanns en verður sennilega í
liðinu á morgun og Jose Herrera
hefur ekkert leikið með liðinu þar
sem hann hefur verið að leika
með landsliði Umguay í undan-
keppni HM. Bmno Giorgi er strax
farinn að huga að því að styrkja
lið sitt þegar markaðurinn opnast
aftur í nóvember og hefur náðst
samkomulag við Tórínó um að
framherjinn Paolo Poggi verði
lánaður til Cagliari út tímabilið.
Lfldegt byijunarlið: Fiori, Na-
poli, Pusceddu, Bisoli, Aloisi, Fir-
icano, Moriero, Oliveira, Valdes,
Matteoli, Allegri.
Intemazionale sigraði Cremo-
nese 2-1 á miðvikudag og var Toto
Schillaci hetja liðsins, skoraði
sigurmarkið rétt fyrir leikslok og
var það hans þriðja mark í þrem-
ur leikjum. Dennis Bergkamp var
slakur í fyrstu tveimur leikjunum
en stóð sig vel og opnaði marka-
reikning sinn í leiknum með
skoti af um 20 metra færi. Igor
Shalimov missti af leiknum vegna
landsleiks Rússa og Ungverja, Ru-
ben Sosa, sem hefur verið að leika
með landsliði Uruguay í undan-
keppni HM, kom aftur fyrir leik-
inn á miðvikudag og framherjinn
Darko Pancev hefúr staðið sig vel
í æfingaleikjum en hefur enn ekki
komist í byrjunarliðið í deildinni.
Sevilla bauð nú í vikunni 132
milljónir í Pancev en því var hafn-
að þar sem leikmaðurinn hefur
engan hug á að yfirgefa Inter.
Davide Fontolan hefur komið vel
út í sinni nýju stöðu sem vinstri
bakvörður en hann hefur hingað
til leikið sem framherji.
Lfldegt byrjunariið: Zenga, Berg-
omi, Fontolan, Berti, M. Paganin,
Festa, Shalimov, Manicone,
Schillaci, Bergkamp, Jonk.
CREMONESE-
LAZIO
Nýliðar Cremonese töpuðu á
miðvikudag fyrir Inter, 1-2.
Sterkasti hluti liðsins er framlín-
an með Tentoni og hinn argen-
tíska Gustavo Dezotti í broddi
fylkingar. Þá hefur Luigi Túrci
einnig staðið sig vel í markinu og
Riccardo Maspero stjómar spil-
inu af skynsemi.
Lfldegt byijunariið: Túrci, Gu-
alco, Pedroni, De Agostini, Colon-
nese, Verdelli, Giandebiaggi, Nic-
olini, Dezotti, Maspero, Tentoni.
Diego Fuser kom Lazio á rétta
braut með fyrra markinu í 2-1
sigri á Parma á miðvikudag eftir
að liðið hafði gert tvö markalaus
jafntefli. ftalski landsliðsmark-
vörðurinn Luca Marchegiani hef-
ur verið besti maður liðsins það
sem af er og oft sýnt snilldar-
markvörslu. Paul Gascoigne, sem
nú hefúr látið klippa af sér síða
hárið, var fjarverandi í síðustu
leikjum þar sem hann var að leika
með enska landsliðinu gegn því
pólska á miðvikudagskvöld.
Markahæsti leikmaður síðasta
tímabils, Giuseppe Signori, hefúr
ekkert leikið með liðinu vegna
meiðsla sem hann hlaut í æfinga-
leik gegn Roma og varnarmaður-
inn sterki, Luigi Corino, er
meiddur á hné og leikur senni-
lega ekkert næstu sex mánuði.
Mauro Bonomi sem meiddist í
janúar er hins vegar farinn að æfa
aftur og ætti að styrkja vörn liðs-
ins. í kjölfar brottvikningar Mar-
seille úr Evrópukeppninni gerir
Dino Zoff sér von um að fá Króat-
ann Alen Boksic til liðsins á næst-
unni en til stóð að hann byrjaði
að leika með liðinu næsta tímabil.
Lfldegt byijunarlið: Marchegi-
ani, Negro, Favalli, Di Mauro,
Luzardi, Cravero, Fuser, Doll,
Casiraghi, Gascoigne, Winter.
FOGGIA-
JUVENTUS
Á miðvikudag sigraði Foggia lið
Lecce á útivelli, 0-2, með mörk-
um ffá Pierpaolo Bresciani og
Brian Roy. Leikstjómandinn,
Giovanni Stroppa, hefur leikið
manna best hjá liðinu og vakið
hrifningu Sacchi landsliðsþjálf-
ara. Rússneski framherjinn Igor
Kolyvanov hefúr ekki komist í lið-
ið til þessa og miðjuleikmaðurinn
Andrea Seno hefúr verið meiddur
og missir sennilega af leiknum á
morgun. Þá er vamarmaðurinn
Caini í leikbanni.
Lfldegt byijunariið: Mancini,
ChamoL Nicolini, Sciacca, Bianc-
hini, Di Bari, Bresciani, Di Biagio,
Cappellini, Stroppa, Roy.
Stórlið Juventus náði sér loks á
strik á miðvikudag er það sigraði
Sampdoria 3-1. Andreas Möller
hefúr verið besti leikmaður liðs-
ins það sem af er og skorað mark
í hverjum leik. Nokkuð hefur ver-
ið um meiðsli hjá liðinu, í vöm-
ina hefur vantað þá Júrgen Ko-
hler og Andrea Fortunato, en Ko-
hler verður þó sennilega með á
morgun. Dino Baggio missti af
leiknum gegn Sampdoria vegna
meiðsla og sömu sögu er að segja
af Vialli sem tábrotnaði í leiknum
gegn Roma um síðustu helgi og
leikur sennilega ekkert næstu tvo
mánuði.
Líklegt byijunariið: Peruzzi,
Porrini, Torricelli, Conte, Kohler,
Julio Cesar, Di Livio, Marocchi,
Ravanelli, R.Baggio, Möller.
PARMA-GENÚA
Parma er spáð góðu gengi í ár en
á miðvikudag tapaði liðið 2-1 fyr-
ir Lazio í Róm. Lið Parma þykir
spila skemmtilega knattspymu,
Luca Bucci mjög ömggur í mark-
inu, miðverðimir Minotti og Ap-
olloni traustir í vörninni, Gian-
franco Zola stjómar spilinu og Al-
essandro Melli mjög líflegur
frammi. Á morgun kemur svo
Faustino Asprilla sennilega aftur
inní liðið en hann hefúr verið að
leika með kólumbíska landsliðinu
í undankeppni HM og Thomas
Brolin, sem missti af leiknum á
miðvikudaginn vegna landsleiks
Svía og Búlgara, er tilbúinn í
slaginn að nýju. Þá hefur argent-
ínski tengiliðurinn Sergio Angel
Berti snúið aftur til River Plate í
Argentínu eftir misheppnað tíma-
bil á ítalfu.
Lfldegt byrjunarlið: Bucci, Ben-
arrivo, Di Chiara, Minotti, Apoll-
oni, Gmn, Melli, Zoratto, As-
prilla, Zola, Brolin.
Genúa, sem hélt uppá 100 ára af-
mæli félagsins á þriðjudag, gerði
á miðvikudag jafntefli við Cagli-
ari, 1-1. Tékkneski framherjinn
Thomas Skuhravy hefur ekkert
getað leikið með liðinu hingað til,
fyrst vegna meiðsla og síðan
vegna landsleiks Tékka og Sló-
vaka gegn Wales en hann verður
sennilega með á morgun. Marc-
elo Vink var varamaður í fyrstu
tveimur leikjunum en kom inní
liðið á miðvikudag og stóð sig
mjög vel. Þá missti rúmenski bak-
vörðurinn Dan Petrescu einnig af
leiknum gegn Cagliari vegna
landsleiks Rúmena og Færeyinga.
Hinn ungi Cavallo verður í leik-
banni á morgun en hann var rek-
inn útaf gegn AC Milan um síð-
ustu helgi.
Lfldegt byijunariið: Berti, Petr-
escu, Lorenzini, Caricola, Torr-
ente, Signorini, Vink, Bortolazzi,
Ruotolo, Skuhravy, Nappi.
REGGIANA-
PIACENZA
Nýliðar Reggiana töpuðu fyrir At-
alanta á útivelli á miðvikudag.
Claudio Táffarel lék sinn fyrsta
leik með liðinu gegn Atalanta en
Faustino Asprilla Minestroza frá Kól-
omblu kemurnú aftur inn tliö Parma.
hann missti af tveimur fyrstu
leikjunum vegna landsleikja
Brasilíu í undankeppni HM.
Sænski ffamherjinn Johnny
Ekström missti hinsvegar af
leiknum vegna landsleiks Svía og
Búlgara en verður kominn aftur í
liðið á morgun.
Lfldegt byrjunariið: Tkffarel, Tor-
risi, Zanutta, Accardi, Sgarbossa,
De Agostini, Morello, Scienza,
Ekström, Picasso, Padovano.
Piacenza fékk síðan sitt fyrsta
stig á miðvikudag er það náði
jafntefli við meistara AC Milan.
Þar munaði mest um snilldarleik
Massimo Túibi í marki Piacenza
en hann er einmitt uppalinn hjá
Milan sem enn á helming samn-
ings hans. Vamarmaðurinn Andr-
ea Di Cintio hefur átt við meiðsli
að stríða í vinstra hné en verður
tilbúinn í slaginn á morgun.
Lfldegt byrjunariið: Taibi, Polon-
ia, Carannante, Suppa, Maccoppi,
Lucci, Túrrini, Papais, De Vitis,
Iacobelli, Piovani.
ROMA-NAPOLI
Lið Roma var heppið að sleppa
með markalaust jafntefli gegn
Udinese á miðvikudag. Vörn liðs-
ins hefur verið slöpp og leitar
Mazzone þjálfari nú að sterkum
vamarmanni til að binda vömina
saman. Efstur á óskalistanum er
Enrico Annoni, leikmaður Tór-
ínó.
Lfldegt byijunariið: Lorieri, Bon-
acina, Lanna, Mihajlovic, Comi,
Carboni, Hassler, Piacentini, Bal-
bo, Giannini, Rizzitelli.
Napoli hefur átt í miklum pen-
ingavandræðum á þessu ári og
gengi liðsins í byrjun tímabilsins
er eftir því. Liðið náði sínu fyrsta
stigi á miðvikudaginn í slökum
leik gegn Toríno sem endaði með
markalausu jafntefli. Kantmaður-
inn Paolo Di Canio sem fenginn
var að láni frá Juventus er eini
leikmaðurinn sem staðið hefur
fyrir sínu og verið besti maður
liðsins í öllum leikjunum. Liðið
saknar sárt framherjans Daniel
Fonseca sem hefur verið að leika
með landsliði Umguay í undan-
keppni HM og mætir ekki aftur til
leiks fyrr en 20. september. Gi-
orgio Bresciani tók stöðu hans í
framlínunni og skoraði í fyrsta
leiknum en meiddist svo í æfinga-
leik og missir úr einn mánuð.
Gegn Tórínó vantaði einnig Jonas
Them sem var að leika á sama
tíma með sænska landsliðinu
gegn Búlgaríu.
Lfldegt byrjunarlið: Taglialatela,
Ferrrara, Gambaro, Bordin,
Cannavaro, Bia, Di Canio, Them,
Buso, Corini, Pecchia.
SAMPDORIA-
LECCE
Sampdoria tapaði sínum fyrstu
stigum á miðvikudaginn er Ju-
ventus lagði þá 3-1. Ruud Gullit
hefúr átt hvem stórleikinn af öðr-
um og skoraði fyrsta mark leiks-
ins. David Platt gat ekki leikið tvo
sfðustu leiki vegna landsleiks
Englands og Póllands en snýr aft-
ur á morgun og spilar í fremstu
víglínu ásamt Roberto Mancini.
Lfldegt byijunarlið: Pagliuca,
Mannini, Rossi, Gullit, Vierc-
howod, Bucchioni, Lombardo,
Jugovic, Platt, Mancini, Evani.
Hið ódýra lið Lecce hefur tapað
öllum leikjum sínum til þessa og
er í neðsta sæti deildarinnar.
Foggia sótti liðið heim á miðviku-
daginn og sigraði 0-2. Mestu
vandræðin hafa þó verið með
vöm liðsins og Nedo Sonetti,
þjálfari, hefur reynt ýmsar útgáf-
ur að vamaraðferðum. Brasilíski
framherjinn Gaucho Táffoli
missti af tveim fyrstu leikjunum
en kom inn í liðið gegn Foggia og
átti afleitan leik.
Lfldegt byijunarlið: Gatta, TVinc-
hera, Carobbi, Ceramicola, Padal-
ino, Biondo, Morello, Melchiori,
Toffoli, Gerson, Baldieri.
TÓRÍNÓ-UDINESE
Tórínó er nú í efsta sæti deildar-
innar með fimm stig ásamt Míl-
anóliðunum, AC Milan og Int-
emazionale. Á miðvikudag gerði
liðið markalaust jafntefli við Na-
poli á útivelli þar sem það þurfti
að leika einum færri síðasta hálf-
tímann eftir að Gianluca Sordo
var vikið útaf. Liðið hefur verið án
Enzo Francescoli, Carlos Aguilera
og Marcelo Saralegui, sem hafa
allir verið að leika með landsliði
Umguay í undankeppni HM, en
það virðist ekki hafa komið að
sök. Benito Carbone hefur leikið
frábærlega í framlínunni og Dani-
ele Fortunato og Giorgio Ventur-
in vinna vel saman á miðjunni.
Vamarmaðurinn sterki, Ángelo
Gregucci, hefúr verið meiddur og
sömu sögu er að segja af fríherj-
anum Luca Fusi og óvíst hvort
þeir geti leikið á morgun.
Lfldegt byijunarlið: Galli, Sergio,
Jami, Mussi, Annoni, Sordo,
Osio, Fortunato, Silenzi, Car-
bone, Venturin.
Udinese gerði markalaust jafn-
tefli við Roma á miðvikudag en
var óheppið að ná ekki að sigra.
Gamli reftirinn Andrea Carnevale,
sem meiddist stuttu fyrir tímabil-
ið, kom inná gegn sínu gamla fé-
lagi og stóð sig mjög vel. Hann
leikur í framlíunni á morgun
ásamt Marco Branca. Pólski
landsliðsmaðurinn Marek Kozm-
inski missti af leikjunum gegn
Cagliari og Roma vegna lands-
leiks Englands og Póllands en
tekur sennilega stöðu vinstri bak-
varðar á morgun gegn Tórínó.
Þjálfarinn, Azeglio Vicini, hefur
mikinn hug á að styrkja miðjuna
hjá sér og tveir leikmenn Lazio
em efstir á óskalistanum, Dario
Marcolin, leikmaður U21 árs
landsliðs ítala og hinn gamal-
reyndi Claudio Sclosa, en hvomg-
ur hefur komist í lið Lazio að
undanfömu.
Lfldegt byrjunarlið: Battistini,
Pellegrini, Kozminski, Sensini,
Calori, Desideri, Rossini, Ros-
sitto, Branca, Statuto, Camevale.
Sævar Hreiðarsson skrifar um ítalska boltann