Tíminn - 18.09.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48... Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48.«Frétta-Tíminn...Frétta-síminii—68-76-48,
Laugardagur
18. september 1993
176. tbl. 77. árg.
VERÐ(LAUSASÖLU
KR. 125.-
Davíð Oddsson um yfirlýsingar Jóns Baldvins um flárlagfrumvarpið
„Þetta eru svona
„Þetta eru svona almennar pól- utanrikísráðherra um að hann efasemdir um að Alþýðuflokkur- undir þann flokk heyra, en sjálf-
itískaryfírlýsingarsemþamaeru vilji að skorið verði niður í ríkis- inn sem heild hafi nú staðið að sagt er að athuga þessar tillögur.
geftiar og það er sjálfsagt að gá fjármáium um þrjá til fjóra míllj- þessum tillögum og hugmynd- Pjárlög eru náttúrulega eðli
hvort það sé eitthvað á bak við arða til viðbótar. um. Að minnsta kosti hefur ekki málsins-samkvæmt f vinnslu eða
þær,“ segir Davíð Oddsson for- „Það er árfðandi að menn hafi gengiðaiitofvelaðfániðurskurð þar ti! atkvæðagreiðsla við þriðju
sætisráðherra um yfirlýsingar eitthvað á bak við sig þegar þeir niður á það stig sem við erum á umræðu hefur farið fram," sagði
Jóns Baidvins Hannibalssonar tala með þessum hætti. Ég hef núna í þeim ráðuneytum sem forsætisráðherra. -EO
Sjá helgarviðtal við
forsætisráðherra
blaðsíðu 6-7.
Fjármálaráðherra efast um ágæti tekjutengingar húsaleigubóta:
Bælurnar gætu
aukið skattsvik
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
segir að viss hætta sé á að húsaleigu-
bætur leiði til aukinna skattsvika,
eldd síst ef farin verði sú leið að hafa
bætumar tekjutengdar. Hann segir
einnig hættu á að húsaleigubætur
leiði til þess að húsaleiga hækki.
Hugmynd Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra um húsaleigubæt-
ur er að bætumar verði tekjutengdar.
Friðrik sagði að það væri alltaf sú
hætta fyrir hendi að menn gengju of
langt tekjutengingu í skattakerfinu. í
dag væru menn með tekjutengingu í
húsnæðiskerfinu, lífeyriskerfinu,
bamabótakerfmu og víðar. Of mikil
tekjutenging endaði með því að jaðar-
skattur yrði svo hár að hann færi að
hvetja til skattsvika. „Það er því viss
hætta á að of mikil tekjutenging hvetji
til skattsvika," sagði Friðrik.
Tálið er að stór hluti leigutekna sé
ekki talinn fram til skatts. Friðrik
sagði að húsaleigubætur gætu hugs-
anlega orðið til þess að breyta þessu
þar sem með húsaleigubótum fengju
leigjendur hvata til að setja leigu inn á
skattaskýrslu. Friðrik sagði að þetta
gæti hins vegar leitt til þess að húseig-
endur hækkuðu húsaleigu vegna þess
að þeir slyppu ekki við að greiða af
henni skatt - EÓ
Hagkaup hefur endanlega verið neitað um að
selja danska skinku:
Hagkaup
mun kæra
Hagkaup hefur ákveðið að höfða
mál á hendur stjóravöldum fyrir að
neita fyrirtækinu um að flytja inn
og selja skinku og hamborgara-
hryggi frá Danmörku. Undirbún-
ingur málshöfðunar stendur nú yf-
ir.
Hagkaupsmenn hafa fengið form-
legt svar um að þeim sé óheimilt að
flytja inn skinkuna. Landbúnaðar-
ráðuneytið hefur tilkynnt tollstjór-
anum í Reykjavík þessa niðurstöðu.
í fréttatilkynningu frá Hagkaup
segir að fyrirtækið harmi þessa af-
stöðu stjómvalda þar sem umrædd-
ur innflutningur hefði verið mikil
búbót fýrir íslenska neytendur á
samdráttartímum.
„Hagkaup er ósammála þessari nið-
urstöðu ráðuneytisins og telur hana
ekki í samræmi við lög. Hagkaup á
þess vegna ekki annarra kosta völ en
að höfða mál á hendur stjórnvöldum
til að fá þessari ákvörðun hnekkt og
til að fá tjón sitt bætt,“ segir í frétt
frá Hagkaup. -EÓ
Gífurleg lækkun á ferðum í miðri viku:
Allt að 67 þús.
króna lækkun
á stuttum við-
skiptaferðum
RETTIR standa yfir um allt land þessa dagana. Hvað sem mönnum finnst um sauðkind-
ina er óhætt að fullyröa að allir hafa gaman af því að fara í réttir. Þá eru sauðkindurnar sjálfar
reyndar undanskildar. Þeim finnst ekki gaman í réttunum. Timamynd Ami Bjama
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn hefur gert
samning við írska ríkisflugfé-
lagið Aer Lingus sem gerir það
að verkum að um rúmlega
tveggja mánaða skeið getur fyr-
irtækið boðið fargjöld t miðri
viku allt að 67 þúsund krónum
ódýrari til 14 áfangastaða í Evr-
ópu. Flogið er í leiguflugi með
Atlanta flugféiaginu til Dublin
þaðan sem áfram er flogið á
áfangastað.
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða- Landsýnar,
sagði á blaðamannafundi í gær að
þetta væri fyrst og fremst hugsað
fyrir stuttar viðskiptaferðir þótt þær
væru öllum opnar. Þær reglur hefðu
verið í gildi hjá öllum flugfélögum
að fólk greiddi „normalfargjald" ef
ekki væri dvalið ytra yfír aðfaranótt
sunnudags. Um er að ræða dýrasta
fargjald, en hinum nýju fargjöldum
Samvinnuferða fylgja engar slíkar
kvaðir. Ekki þarf að bóka með fyrir-
vara, engin lágmarksdvöl, en há-
marksdvöl er hins vegar mánuður.
Sem dæmi um verð má nefna að
„normalfargjald" til London, þar
sem flogið er á Saga- Class er 87.240
krónur, en verðið sem Samvinnu-
ferðir bjóða er 29.905 kr. Þess utan
má nefna til samanburðar að pex-
fargjald með Flugleiðum til London
kostar 40.800 kr. og Apex 35.940 kr,
en bæði fárgjöldin eru skilyrt því að
dvalið sé yfir aðfaranótt sunnudags.
Tilboðið gildir frá 30. september til
9. desember, en á þessu tímabili
fljúga Samvinnuferðir fjórar til
fimm ferðir til Dublin í leiguflugi.
Eins og áður sagði er boðið upp á 14
áfangastaði í Evrópu og víðar, en það
eru London, Paris, Brussel, Ziirich,
Amsterdam, Frankfurt, Dússeldorf,
Birmingham, Manchester, Glasgow,
Milanó, Kaupmannahöfn, Boston og
New York.
Helgi Jóhannsson sagði að þetta
yrði reynt nú og ef vel tækist til
væru þeir möguleikar opnir að
halda þessu samstarfi við Aer Lingus
áfram eftir áramótin. -PS
í Tímanum í dag
er ítarlega íjallað
um ferðamál.