Tíminn - 18.09.1993, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 18. september 1993
- ER STJORNIN AÐ SPRINGA?
- HVAÐ MEÐ TRYGGINGASTOFNUN?
Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður:
Stjómin er að
tætast í sundur
„Ríkisstjómin er ekki að springa en
hún er að tætast í sundur hægt og
bítandi og hætt að starfa sem áhrifa-
ríkt ákvörðunartæki. Hún hangir
eiginlega saman á dauðateygjunum,"
segir Olafur Ragnar Grímsson al-
þingismaður og formaður Alþýðu-
bandalagsins.
„Ef litið er yfir undanfarið hálft ár
þá hefur stjómin ekki tekið eðlilega
eða faglega á einu einasta máli. Það
byrjaði með gengisfellingunni í sum-
ar þegar Jón Baldvin lýsti því yfir að
hann hefði orðið undir og væri á
móti gengisfellingunni. Það birtist
einnig í veiðunum í Smugunni þegar
Þorsteinn Pálsson ætlaði fyrst að
gefa út reglugerð og banna þær en
sfðan tilkynntu Jón Baldvin og Davíð
í Qölmiðlum að það væri ekki hægL
Það birtist einnig í heimsókn Símon-
ar Peres, utanríkisráðherra ísraels,
þar sem forsætisráðherra hóf hann
til skýjanna en utanríkisráðherra
flýði af hólmi. Það birtist líka f
skinkumálinu þar sem ráðherrarnir
töluðu saman í gegnum fjölmiðlana
dag eftir dag; einnig í afgreiðslu fjár-
lagafrumvarpsins sem enginn virðist
styðja og þannig koll af kolli."
Varðandi ráðningu Karls Steinars í
stöðu forstjóra Tryggingastofnunar
segir Ólafur Ragnar að þegar Guð-
mundur Ámi varð ráðherra, hefði Al-
þýðublaðið sagt á forsíðu að ný kyn-
slóð væri komin til valda.
„Guðmundur Ámi hefur sýnt það
með þessari ákvörðun að þetta er
bara sama gamla spillta kratagengið.
Ólafur Ragnar Grfmsson.
Það er leitt að sjá ungan mann eldast
svona á fyrstu mánuðum í embætti."
-grfi
Þórarinn V. Þórarínsson, framkvæmdastjóri VSÍ:
en
„Nei, ég held ekki að rfkisstjóm-
in sé að springa. Ég sé heldur eng-
in teikn uppi um það í samstarfi
stjómarflokkana né heldur að þeir
hafi áhuga á að leita sér annars
fylgilags," segir Þórarinn V. Þórar-
insson framkvæmdastjóri VSÍ.
„Hinsvegar gerðu þeir sennilega
betur í því að tala meira hver við
annan heldur en hver um annan
Varðandi ráðningu Karls Stein-
ars í embætti forstjóra Trygginga-
stofnunar og annarra ráðrúnga
stórkrata í sumar segist Þórarinn
V. muna eftir þessari umræðu um
stöðuveitingar Alþýðuflokksins
frá því í æsku.
„Þá þótti það loða við flokkinn að
hann reyndist sínum mönnum
Þórarinn V. Þórarinsson.
mjög vel og teldi jafnan að mestu
hæfileikamenn og synir lands og
þjóðar ættu sér athvarf í Alþýðu-
flokknum. Mér sýnist að það sé
sama raunin að verða á núna.
Þannig að þessi flokkur er greini-
lega að taka upp vinnubrögð for-
tíðarinnar í þessu efni.“
Þórarinn V. segist þó ekki vera að
halla neinu máli á þá einstaklinga
sem þama eiga hlut að máli.
„Þetta er hinsvegar orðið dálftið
einlitt, svo vægt sé til orða tekið.
Þeim mætti verða það ljóst að það
kunna að leynast hæfileikar víðar
en í þingliði Alþýðuflokksins,"
segir Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ.
Steingrímur Hermannsson alþingismaður:
Ríkisstjórnin
sekkur æ dýpra
„Það er von að spurt sé hvort stjóm-
in sé að springa. Ég hef keppst við að
segja fólki að ef þeir hafa samið um
eitthvað úti í Viðey, þá hafi þeir sam-
ið um að sitja út kjörtímabilið og ég
Lára V. Júlíusdóttir, fram-
kvæmdastjóri ASÍ:
Erfið fæð-
ing fjár-
laganna
„Ætli fréttamenn séu ekki bara að
fara á taugum? En þetta er örugg-
lega voðalega erfið fæðing í tengsl-
um við fjárlögin, en ég held þó að
menn verði að halda ró sinni. Jafn-
framt held ég að það eigi eftir að
reyna á það hvort það sé ekki hægt
að ná samkomulagi," segir Lára V.
Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ.
Lára V. segir að varðandi þessi
skinku- og kalkúnamál sé verið að
Qalla um ákveðin gmndvallarmál í
þjóðfélaginu sem hafi verið deilur
uppi um mjög lengi.
JSIúna er hægt að takast á um þetta
af meiri alvöru og hörku vegna þess
að það eru komin lög um frjálsan
innflutning. í síðustu viku eða svo
voru staddir hér á landi sérfræðing-
ar frá GATT sem voru að kíkja yfir
öxlina á okkur og athuga hvað við
værum að gera. Og við erum víst
ekkert í mjög góðum málum.“
Lára V. segir að ráðning Karls
Steinars í stól forstjóra TVygginga-
stofnunar eigi ekki að koma neinum
á óvart.
„Karl Steinar er auðvitað hinn
mætasti maður og á ekki að gjalda
þess að hann sé alþýðuflokksmaður.
Ég er heldur ekki í nokkrum vafa
um það að hann á eftir að standa sig
vel í þessari stöðu. Þetta segi ég ekki
bara vegna þess að hann er krati
heldur líka vegna þess að hann er
Lára V. Júllusdóttlr.
fyrrverandi verkalýðsforkólfur og
þar reynir á mjög margt sem ég
þekki af eigin raun.“ -grh
er raunar sannfærður um það, út af
fyrir sig,“ segir Steingrímur Her-
mannsson, alþingismaður og for-
maður Framsóknarflokksins.
„Ef ég væri hinsvegar forsætisráð-
herra í þessari stöðu sem ríkis-
stjórnin er í, þá mundi ég kalla Jón
Baldvin fyrir mig á stundinni og
segja honum að semja um frið innan
ríkisstjómarinnar og víkja ellegar.
Það getur ekki nokkur ríkisstjóm
haldið sinni virðingu með svona
háttemi."
Steingrímur segist kannast við rík-
isstjórnir sem hafi gengið langt í
þessu og Ld. var slæmt á milli krata
og komma í ríkisstjóm Ólafs Jó-
hannessonar.
„En það komst ekki í hálfkvisti við
þetta. Aldrei datt nokkmm manni í
hug innan ríkisstjómar að bera það
upp á Ólaf að hann færi með rangt
mál og vitleysur í sínum úrskurð-
um. Né heldur heyrði ég það nokk-
um tíma borið uppá Gunnar Thor-
oddsen. Ég man ekki heldur eftir því
að það hafi verið borið uppá mig,
þótt ég sé kannski búinn að gleyma
Stelngrfmur Hermannsson.
því. En utan ríkisstjómar segja
menn og gera allan andskotann.
Þannig að mér finnst þetta alveg
ótrúlegt hvemig þetta hefur þróast
innan núverandi ríkisstjómar."
Steingrímur segir það vera sorg-
legt fyrir stjórnarflokkana ef það er
óttinn við skoðanakannanir og svo-
leiðis sem heldur stjórninni saman
því þeir sökkva bara dýpra og dýpra.
Formaður Framsóknarflokksins
segir að ráðning Karls Steinars í stól
forstjóra Tryggingastofnunar hafi
ekki komið neinum manni á óvart.
„Þetta var frágengið fyrir löngu. Al-
þýðuflokkurinn hefur gengið flokka
lengst í því að hygla sínum mönn-
um. Þetta er orðið svo yfirgengilegt
að það tekur engu tali.“ -grh
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingkona:
Kosningaóttinn er lim
„Það væri vonandi að ríkisstjómin
væri að springa. Hinsvegar er ótt-
inn við kosningar nokkuð sterkt og
seigt lím. Þannig að það gæti svo
sem farið svo að hún sameinaðist í
óttanum og lafði,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, þingkona
Kvennalistans.
Ingibjörg segir að engu að síður
séu margir brestir komnir í stjóm-
arsíunstaríið. Það sé síðan spuming
hvort þeim takist að berja eitthvað í
þá.
„Það em m.a. deilumar útaf
skinkunni, húsaleigubótunum, fyr-
irvörunum hjá Jóhönnu og
áherslumunur varðandi Smuguna.
Svo kann að vera eitthvað í uppsigl-
ingu út af þessum kalkúnum."
Ingibjörg Sólrún segir að ráðning
Karls Steinars í embætti forstjóra
Ingibjörg Sólrún Glsladóttir.
Tryggingastofhunar komi ekkert á
óvart.
„Þetta er búið að liggja fyrir í
marga mánuði. Ég man ekki betur
en það væri búið að bjóða nýjan
þingmann úr Reykjanesi velkom-
inn til starfa á síðum Alþýðublaðs-
ins löngu áður en þessi staða var
veitt. Þannig að þeir vom auðvitað
búnir að ákveða þetta fyrir löngu
síðan.“
Ingibjörg Sólrún segir það hvarfla
að sér að alþýðuflokksmenn séu
ekki með fúllum sönsum að ganga
svona langt í pólitískum stöðuveit-
ingum.
.JÚér finnst þetta líka mjög óþægi-
legt af því maður er sjálfur f pólitík
og þetta kemur þannig óorði á
mann sjálfan. Sérstaklega ef maður
ætlar seinna meir að sækja um ein-
hverjar stöður, þá verði maður í
einhverri sérstakri kompu og lúti
ekki sömu reglum og aðrir.“ -grii
Ámundi Ámundason
framkvæmdastjóri:
Tíu dagar
langur
tími í
pólitík
„Stjórnin að springa? Nei, það get ég
ekki fmyndað mér. En enginn veit
sína ævina fyrr en öll er,“ segir
Ámundi Ámundason framkvæmda-
stjóri.
Ástæða þess að Ámundi segist ekki
geta ímyndað sér að stjórnin sé að
springa er m.a. gerð fjárlaga og því
fátt sem bendi til þess að stjómar-
samstarfið bresti á þessu ári. Hann
vildi hinsvegar ekki tjá sig um það
hvort samstarfið væri gott og trausL
„Tíu dagar eru langur tími í pólitík
og hvað þá heldur nokkrir mánuðir."
Um stöðuveitingar Alþýðuflokksins
sagði Ámundi að hæfasta og besta
fólkið í landinu væri í Alþýðuflokkn-
um og því ekkert skrítið að það væri
valið til áhrifa.
„Ég bendi einnig á það að það var
gerð skoðanakönnun meðal þjóðar-
innar þegar Jón Sigurðsson var ráð-
inn seðlabankastjóri. Þá voru 93%
þjóðarinnar á því að þetta hefði ver-
ið rétt ákvörðun. Þarf frekari vitna
við? Það held ég ekki.“
-grh
Ámundl Ámundason.